Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1992, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1992, Blaðsíða 22
38 MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 1992. Fréttir Andrzej Trojanski hjá Nesfiski í Garði: Hér á íslandi eru allir ánægðir „Það er mikið atvinnuleysi í mínu heimalandi. Sennilega um 12 pró- sent. Konan mín og tvö böm eru heima í Póllandi og konan fær enga vinnu þar,“ sagði Andrzej Trojanski, verkamaður hjá Nesfiski í Garði á Suðumesjum, í samtali við DV. Andrzej var að mála stóran hús- vegg í sólinni með fleiri löndum sín- um, Pólverjum, og heimamönnum í Garði sem vinna hjá Nesfiski þegar DV ræddi við hann. „Hér er allt svo rólegt. Fólk fer bara í sína vinnu og er mjög frið- samt. Allt gengur sinn vanagang og alhr eru ánægðir. Þetta er eitthvað betra en í mínu heimalandi þar sem oft gengur mikið á. Verksmiðjan hér er mjög góð,“ sagði Andrzej. Um 20 Pólverjar era í vinnu hjá Nesfiski. Andrzej hefur dvalið á Is- landi í hálft annað ár og segir að sér líki mjög vel. Pólverjarnir búa á þremur stöðum í Garði, að sögn Andrzejs. Varðandi konu sína og tvö böm í PóUandi sagðist Andrzej ekki vera viss um hvort heppilegt væri fyrir hana að koma til íslands - ástæðan virtist í raun vera mjög flók- in og átti Andrzej erfitt með að ræða hana. Hann bar þó útlendingaeftirlit- inu hér á landi mjög vel söguna, þar væri vel staðið að málum. Andrzej sagði jafnframt að hann og landar sínir, Pólverjarnir, væm mjög bjartsýnir þegar horft væri til framtíöarinnar -ÓTT „Konan mín og tvö börn eru heima í Póllandi,“ sagði Andrzej Trojanski sem er frá Kraká. DV-mynd JAK í nágrenni Stokkseyrar var líf og fjör i dýralífi jafnt sem mannlifi þegar DV var þar á feröinni. Myndin þarfnast ekki frekari útskýringa. Náttúran hefur tekið völdin. DV-mynd JAK Fáskrúösíj örður: hafa fengið 10-20 bryggju- laxa Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði: Að undanfomu hefur verið nokk- ur laxveiði í smábátahöfninni - við bryggjur og sunnan fjarðar í Fá- skrúðsfirði. Töluverður fjöldi fólks hefur rennt færi í sjó og fengið ágæta veiði. Laxinn hefur verið þetta frá tveimur upp í tíu pund að stærð. Nokkrir veiðimenn hafa fengið 10-20 laxa við þessar veiðar, aðrir færri. Sumarleyfisgestum, sem hafa fengið lax í firðinmn, finnst ágætt að fá lax svona óvænt þegar þeir eru í heimsókn hjá ættingum sínum í fríinu. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar: 170 milljónum varið í Laugaveg ánæstaári Regnskyggni yfir öllum gangstétt- um og þrjú ný yfirbyggð torg. Þetta em nokkrar hugmynda Laugavegs- samtakanna um nýjan Laugaveg á svæðinu sem afmarkast af Frakka- stíg í vestri og Rauðarárstíg í austri. í desember síðasthðnum heimiluðu borgaryfirvöld Laugavegssamtökun- um, það er samtökum kaupmanna á Laugaveginum, að standa fyrir skipulagsvinnu um endumýjun fyrr- greinds götukafla í samvinnu við borgarskipulag. Tillagan hefur nú verið kynnt fyrir borgarráði. Gert er ráð fyrir trjágróðri á milU hverra tveggja bfiastæöa og við gatnamót og að torg verði mótuð um miðbik hvers götukafla. Ýmsar að- gerðir er ráðgerðar til að draga úr umferðarhraöa á gatnamótum Laugavegs og Snorrabrautar. Auk þess er lagt til að göturýmið frá Snorrabraut að Rauðarárstíg verði vistgata. Borgaryfirvöld reikna meö að framkvæmdir hefjist næsta vor og að þeim verði hugsanlega lokið haustið 1994. Á fjárhagsáætlun borg- arinnar fyrir 1993 eru veittar um 60 núlljónir króna til framkvæmda við Laugaveg frá Frakkastíg að Vitastíg og fyrir 1994 um 110 milljónir fyrir kaflann frá Vitastíg að Snorrabraut. í þessari áætlun er ekki gert ráð fyr- ir yfirbyggingum gangstétta. -IBS Jón Sigurjónsson, formaður Laugavegssamtakanna, við líkan að nýjum Laugavegi með yfirbyggðum gangstéttum. DV-mynd JAK I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.