Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1992, Qupperneq 19
MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 1992.
19
LiEsstOI
Verðkönnun Verðlagsstofnunar:
Sextíu og sex pró-
sent verðmunur
á framköllun
- ódýrast að framkalla hjá Ljósmyndabúðinni
Verð á framköllun og stækkun á 36 mynda fílmu
- litmynd á pappír (kr.) -
1510 1495 1536 1495 1490 1444 1546 1^82 1577
Verðlagsstofnun kannaði í síðast-
liðnum mánuði verð á þjónustu 21
framköllunarfyrirtækis á höfuð-
borgarsvæðinu og fimm á lands-
byggðinni. Var kannað hversu mikið
kostar að láta framkalla filmur og
stækka myndir. Einnig var athugað
verð á tveimur algengum filmum.
í ljós kom að það er hvorki meira
né minna en 66 prósent verðmunur
á ódýrustu og dýrustu framköllun-
inni. Hjá verslunum Hans Petersen
kostar 1.659 krónur aö framkalla 36
mynda filmu og láta stækka mynd-
irnar í 10 x 15 cm, en ef farið er með
íilmuna í Ljósmyndabúðina að Ing-
ólfsstræti 6 þarf aðeins að borga 998
krónur. Verslanir Hans Petersen
veita þó helmingsafslátt af fimmtu
hverri filmu.
Verðlagsstofnun leit auk þess á
hvaö það kostar að stækka myndir í
13 x 18. Hjá Ljósmyndabúðinni kost-
aði slíkt 120 krónur og reyndist það
lægsta verðið. Nokkrir staðir voru
með hæsta verðið, eða 195 krónur.
Voru það verslanir Hans Petersen,
Hugföng við Eiðistorg, Sælgætis- og
vídeóhölhn í Garðabæ og Tónborg í
Kópavogi. Er 62 prósent verðmunur
á hæsta og lægsta verði.
Þess ber þó að geta aö það er ódýr-
ast að fá myndir stækkaðar í 20 x 30
í Hugfóngum, Sælgætis- og vídeóhöll-
inni og Tónborg. Kostar slík stækkun
490 krónur á þessum þremur stöðum,
en 620 krónur á sex af 11 stöðum sem
buðu upp á slíkt. Dýrast var að láta
stækka í 20 x 30 í Myndasmiðjunni á
Egilsstöðum og kostaði það 675 krón-
ur.
Tiltölulega lítill verðmunur virðist
vera á Kodak Gold (36 mynda filmu)
á milh verslana. Fhman fæst fyrir
lægsta verðið hjá Myndasmiðjunni á
Egilsstöðum, eða 515 krónur, en ann-
ars staðar er hún seld á 570 til 580
krónur. Fujicolor 36 mynda fhma er
seld á 520 krónur nema í Mynda-
smiðjunni, þar sem hún er á 445
krónur, og í Fuji-búðinni á Akureyri
er filman á 460 krónur.
Sé litið á hehdina hefur verð á
framköllun og stækkun hækkað að
meðaltah um 1 til 4 prósent frá því
um mitt ár í fyrra. Nokkur fyrirtæki
hafa samt hækkað þjónustu sína um
3 til 11 prósent. Verð á fhmum hefur
svo að segja staðið í stað á mhh ára.
Nokkuð er um það að verslanir séu
með sérthboð á framköllun og
stækkun, þ.e. bjóða ókeypis fhmu
með framköhunni eða helmingsaf-
slátt á fjórðu hverri eða fimmtu
hverri filmu. Á einum stað þarf ekki
að borga fyrir framköllun á 11. fhm-
unni.
Af þeim 26 stöðum sem lentu í verð-
könnun Verðlagsstofnunar voru það
tíu sem ekki bjóða nein sérkjör. Ef
einungis er litið á þessa tíu staði (sjá
súlurit), kemur í ljós að verðmunur
mihi hæsta og lægsta er 58,5 pró-
sent. Dýrast er að láta framkaha hjá
Pedro-myndum á Akureyri, 1582
krónur, en ódýrast hjá Ljósmynda-
búðinni, 998 krónur. A fimm stöðum
kostar það meira en 1500 krónur að
láta stækka og framkalla. Meðal-
verðið er rúmlega 1519 krónur ef
Ljósmyndabúðin er ekki talin með.
-GHK
ERT ÞU ORUGGLEGA
ÁSKRIFANDI?
EINN BÍLL Á MÁNUDI í ÁSKRIFTARGETRAUN
— I
. . . OG SIMINN ER 63 27 00
ríÝTT-NÝTT
ÓDÝR FRAMKÖLLUM
1 dags blð 1 klukkutíma blð
Verfl 12myndirkr. 533,- Verfl 12 myndir kr. 723,-
24myndirkr. 881,- 24myndirkr. 1191,-
36myndirkr. 1229,- 36myndirkr. 1659,-
Ath.I Við höfum verið i framköllunarþjónustu i 67 ár.
Fyrsta fiokks vinna og myndgæði.
JB AmatÖP LJÓSMYNDAVÖRUVERSLUN
■■■■ «1 I IGi^Wl LAUGAVEGI62 P.O.BOX71 -121 REYKJAVÍK
Okumenn!
Börnum hættir tii
aö gleyma stund
og staö!
UMFERÐAR
RÁÐ
á ferð um landið
Húsavík
11. og 12. ágúst kl. 20.
I---------------
Spumingaleikur
og Cirkus Arena
Frá hvaða landi er Cirkus Arena?
Hvert er símanúmer DV?
Þið klippið út auglýsinguna og skilið í miðasöluna
á sirkussvæðinu.
Dregið verður úr réttum svörum á fyrstu
sýningu sirkusins á hverjum stað.
Nafn:_
Heimili:.
-Sími:.
I-------------------------------------------------------------------------------------
I
I
I
I
I
I
I
V
I
I
I
I
J
Steinvari 2000
Þegar engin önnur málning er nógu góð
Þeir sem vilja vanda til hlutanna, eða berjast
gegn alkalí- og frostskemmdum, mála með
Steinvara 2000 frá Málningu hf.
Steinvari 2000 býður upp á
kosti, sem engin önnur
utanhússmálning á stein
hefur í dag. Hann stöðvar
því-sem næst vatnsupptöku
steins um leið og hann gefltr
steininum möguleika á að
„anda“ betur en hefðbundin
plastmálning. Viðloðun
Steinvara 2000 við stein er
og srewasissrpu im
AKRTUiWit*"
fOUWÁTT
gulltrygg, unnt er að mála mcð honum við
lágt hitastig, jafnvel í frosti, hann þolir regn
eftir um cina klst. og hylur auk þess
fullkomlega í tveimur um-
ferðum. Steinvari 2000 er
góð fjárfesting fyrir húseig-
endur. Veðrunarþol hans og
ending er í sérflokki og
litaval fallegt. Steinvari
2000 er málning fagmanns-
ins, þegar mæta þarf hæstu
kröfum um vemd og end-
ingu.
Næst þegar þú sérð fallega málað hús - kynntu þér þá hvaðan málningin er
lmá/ningh/f
- það segir sig sjdlft -