Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1992, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1992.
Fréttir
Þórður Friðjónsson, forstöðumaður Þjóðhagsstofhunar:
Töluvert atvinnuleysi þar
til hagvöxturinn glæðist
- útilokar ekki að spá VSI um 6 prósenta atvinnuleysi gangi eftir
„Ég vil ekki útiloka aö spá VSÍ um
allt að 6 prósenta atvinnuleysi á
næstu misserum gangi eftir. Það er
Ijóst að töluvert mikið atvinnuleysi
verður viðvarandi hér á landi þar til
hagvöxtur glæðist. Fyrr er ekki von
um bata en það er hins vegar mjög
mikilvægt að menn reyni að halda
atvinnuleysinu niðri. í þvi sambandi
verður að leita allra Ieiða,“ segir
Þórður Friðjónsson, forstöðumaður
Þjóöhagsstofnunar.
Þórður segir nokkuö ljóst að spá
Þjóðhagsstofnunar um þriggja pró-
senta atvinnuleysi í ár muni ganga
eftir. Hann segir mjög vandasamt að
spá enda hafi Islendingar enga
reynslu af atvinnuleysi síðastliðinn
aldarfjórðung. Þann tíma hafi í raun
ríkt umframeftirspum eftir vinnu-
afli. Atvinnuleysi á borð við það sem
VSÍ spái eigi sér ekki aðra samsvör-
un en kreppuna fyrir stríð.
Að sögn Þórðar þarf fyrirsjáanleg-
ur efnahagssamdráttur á næsta ári
ekki að kalla á meira en fjögurra
prósenta atvinnuleysi taki menn mið
af sambærilegri reynslu. í því sam-
bandi bendir hann á efnahagssam-
dráttinn á árunum 1967 til 1969 og
áriö 1983.
„Hvort þessi spá VSÍ gengur eftir
ræðst meðal annars af því hvemig
ríkisfiármálastefnan verður útfærð á
næsta ári. Þá liggur ekki fyrir hver
viðbrögð manna 1 sjávarútvegi og
öðrum atvinnugreinum verða við
efnahagssamdrættinum. Atvinnu-
leysið mun að verulegu leyti fara eft-
ir því hvemig ríkið, atvinnuvegimir
og aðilar vinnumarkaðarins taka á
samdrættinum og stöðnuninni 1
efnahagslífinu.“
Að sögn Þórðar er svokallað nátt-
úrulegt atvinnuleysi óþekkt stærð á
íslandi en kenningar em uppi um
að það þurfi tiltekið atvinnuleysi til
að ná jafnvægi í þjóðarbúskap og
verðlagsmálum. Á hinn bóginn segir
hann afar mikilvægt að hagvöxtur-
inn aukist á næstu árum þannig að
skilyrði myndist fyrir meiri atvinnu.
Á næsta ári gerir Þjóðhagsstofnun
hins vegar ráð fyrir einungis 1 til 1,5
prósentahagvexti. -kaa
Lmdargötumálið:
Fjármálaráðuneytiö hefur skil-
aö umsögn sinni til ríkissaksókn-
ara vegna meints fjárdráttar
feðga sem störfuðu við fymnn
úöbú ÁTVR við Lindargötu. Mál-
ið fór til meðferðar hjá ríkissak-
sóknara í vetur eftir að athuga-
semdir voru gerðar við störf feðg-
anna. Þeim var siðan sagt upp
störfum. Talið er að gárdráttur-
inn nemi um 20 milljónum króna.
Það er sú upphæð sem vantaði
upp á í bókhaldiö, miðaö við
vörulagerinn. Hallvarður Ein-
varðsson ríkissaksóknari sagði í
samtali við DV að embætti sitt
væri með mál feðganna til áfram-
haldandi meðferðar. Ákvörðunar
um hvort feðgarnir verða ákærö-
ir eða ekki er að vænta á næst-
unni.
Fjármálaráðuneytiö hefur haft
tíma í sumar til að skila umsögn
sinni Að sögn Snorra Ólsen hjá
fjármálaráöuneytinu var um-
sögninni skilað í síðustu viku.
„Það eina sem ráðuneytið hefur
gert er að fara fram á að bótakröf-
um verði haldið áfram í málinu
ef feðgarair verða ákæröir. Ef
engin ákæra kemur fram munu
ráöuneytið eða ÁTVR fara af stað
með bótakröfiir. Þaö er til heim-
ildfyrir þvi,“ sagði Snorri Ólsen.
Feðgarnir voru verslunarstjóri
og aöstoðarverslunarstjóri í
áfengisútsölu ÁTVR við Lindar-
götu. Sonurinn, sem var aðstoð-
arverslunarstjóri, var úrskurð-
aöur í gæsluvarðhald. Þar viður-
kenndi hann hluta fiárdráttarins.
Faöirinn hefitr ekki verið tengd-
ur málinu meira en að liggja und-
irgrun. -bjb
Dræmlodnuveidi
Enul Thnrarenaert, DV, Eddfir*;
Dræm loðnuveiði er enn á miö-
unum norður af landinu. Jóhann
Kristjánsson, stýrimaður á
Hólmaborg SU-ll, sagði í samtali
við DV á mánudag að þeir væru
komnir með 400 tonn en Hólma-
borgin hélt til veiða á fimmtudag.
Að sögn Jóhanns eru um 8 ís-
lensk loðnuveiöiskip á miðunum
og halda þau sig í reit 767 norð-
norðaustur af Kolbeinsey.
„Þaö þýðir ekkert að eiga við
loönuna efhún er neðar en á 35
faðma dýpi þar sem nótin sekkur
illa þar sem mÍkíU straúmur er á
svæðinu. Þetta er bara spurning
um hvenær loðnan þéttir sig,“
sagöi Jóhann.
Á Alþingi í gær: Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra fylgist með ummælum stjórnarandstæðinga um
EES-samninginn en Davið Oddsson forsætisráðherra og Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra eiga tal saman yf>r
kjöltu kollega síns. DV-mynd GVA
Stjómarandstaðan gagnrýnir utanríkisráðherra harkalega:
Jón Baldvin þarf að
finna sér nýja þjóð
- eðahættaella-sagðiÓlafurRagnarGrínisson
Steingrímur Hermannsson, Ólafur
Ragnar Grímsson og Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir gagnrýndu öll Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra þegar þau töluöu um EES-
máliö á Alþingi í gær.
Ólafur Ragnar sagði meðal annars
í sinni ræðu að það heföi enginn ís-
lenskur stjómmálamaður fengiö jafn
mikinn tíma og jafn mikla peninga
til að kynna nokkurt mál og Jón
Baldvin hefði fengið í þessu máh.
Þrátt fyrir það hefði hann sjálfur
sagt að ekki væri hægt að skjóta
málinu til þjóðarinnar þar sem hún
þekkti það ekki nægilega vel. Ólafur
Ragnar sagði að í Ijósi þessa lægi það
fyrir að Jón Baldvin yrði aö finna sér
aðra þjóð eða hætta í pólitík ella.
Steingrímur Hermannsson sagðist
ekki geta stutt EES-samninginn þar
sem ekki væri stjómarskrárheimild
til staðar. Þá sagðist Steingrímur
vilja að tryggt yrði að útlendingar
gætu ekki keypt jarðir og orkulindir
umfram það sem þeir þurfa vegna
hugsanlegrar atvinnustarfsemi.
Olafur Ragnar Grímsson gerði
sjávarútvegssamningaviðræðunum
við Evrópubandalagið nokkur skil.
Hann sagði að þegar hann var í ríkis-
stjóm með Jóni Baldvin hefði hann
hlustað á langar ræður utanríkisráð-
herra rnn stjómhst hans. Hann sagði
Jón Baldvin hafa verið sigurvissan í
sjávarútvegsmálunum en nú væri
komiö í ljós að það mál væri ná-
kvæmlega eins statt og fyrir einu
ári. Eini munurinn væri sá að nú er
allt stál í stál.
Ingibjörg Sólrún og Ólafur Ragnar
ræddu nokkuð um atvinnuleysiö
innan EB. Ingibjörg Sólrún sagöi að
samkvæmt tölum frá OECD væm 16
milljónir atvinnulausar innan EB.
Hún sagöi atvinnuleysið lenda verr
á yngra fólki og verr á konum en
körlum. Ólafur Ragnar vísaöi í aðrar
heimildir um atvinnuleysi þar sem
gert er ráð fyrir að um 20 milljónir
manna verði atvinnulausar á allra
næstu árum.
Það var ekki síst framsöguræða
utanríkisráðherra í EES-málinu sem
var gagnrýnd. Ingibjörg Sólrún sagöi
meðal annars að í ræðunni væri mik-
ið um lummulegar spæhngar.
Þetta var annar dagur umræðna
um EES-máhð. Stjómarandstaðan
lagði í gær fram tvö frumvörp á Al-
þingi. Annað er um breytingar á
stjórnarskránni. Þar er gert ráð fyrir
aö Alþingi geti framselt vald tii fjöl-
þjóðastofnana, það er ef þrír íjóröu
alþingismanna greiða því atkvæði.
Hitt frumvarpiö gerir ráð fyrir að
þriöjungur alþingismanna geti kraf-
ist þess að mál verði borin undir
þjóðaratkvæði. -sme
Leiðrétting:
í síðasta Ferðablaði DV komu
fram rangar upplýsingar um
helgarferðir til Dublin á vegum
Samvinnuferða-Landsýnar. Þar
var sagt að gisting væri ekki inni-
falin í verðinu. Hér með er beðist
velvirðingar á því og skýrt tekið
fram að gisting, morgunverður
og íslensk fararstjóm er innifalið
í verðinu. Hægt er að velja á milli
tveggja hótela, Burhngton og
Gresham, hæöi fyrsta flokks hót-
el með mikilli og góöri þjónustu.
Verðið á helgarferðunum er frá
21.470 fyrir fjögurra daga ferð og
22.515 fyrir fimm daga, miðað við
siaðgreiöslu. Innifahö í verðinu
er sem fyrr sagði flug, akstur til
og frá flugvelli, gisting með morg-
unverði og íslensk fararsljóm.
Ferðimar til Dublin hefjast þann
1. október og standa fram í míðjan
desember. Ferðir 1. og ll. október
eru beinar ferðir frá Akureyri en
annars er fiogið frá Keflavík. 1
boði eru ferðir frá fimmtudegi til
sunnudags og frá sunnudegi til
fimmtudags, ýmist fjögurra eða
fimm daga ferðir.
Þess má geta að ferðir í október
eru að seljast upp og því hefur
verið hætt við aukahelgarferðum
aUa fóstudaga í október, fimm
daga ferðir frá föstudegi til
þriðjudags. -em
Utanríkismálanefhd:
formaður
Bjöm Bjamason, Sjálfstæöis-
flokki, var kjörinn formaður ut-
anríkismálanefhdar á fundi
nefhdarinnar í gær. Rannveig
Guðmundsdóttir, Alþýðuflokki,
er áfram varaformaður.
Fráfarandi formaður, Eyjólfur
Konráð Jónsson, á ekki lengur
sæti í nefndinni eftir aö hann
varö undir í atkvæðagreiðslu í
þingflokki sjálfstæöismanna um
hvort hann eða Bjöm fengi form-
annsembættið 1 nefrtdinni. -sme
Talning atkvæða um kjara-
samninging fyrir vélstjóra á far-
skipum, sem gengiö var frá hjá
fram í gær. A kjörskrá vorú 120
og atkvæði greiddu 69.
Atkvæði féllu á þann veg aö já
sögðu 40 eða 58% en nei sögðu 29
eða42%. -Ari