Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1992, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1992.
• 13
Þeir tóku hraustiega til matar síns hlaupararnir sem hittust laugardagskvöldið fyrir Reykjavíkur maraþonið og
gæddu sér á pastakræsingum.
Pastaveisla fyrir
maraþonhlaupara
Það var sannkölluð veislustemning
hjá skokkurum landsins laugardags-
kvöldið fyrir Reykjavíkur maraþon-
ið. Þá var hlaupurunum öllum með
tölu boðið í herlegheita pastaveislu á
Hótel Borg.
Pastaveislan var haldin frá klukk-
an 17-19 á laugardagskvöldið og þar
var öllum þeim sem höfðu skráð sig
í Reykjavíkur maraþonið boðið að
mæta og borða kolvetnisríkt pasta
áður en tekist var á við kílómetrana
daginn eftir.
Hlaupararnir létu sig ekki vanta
og röðuðu í sig kræsingunum af
bestu, lyst enda skiptir miklu máli
að matarræðið sé rétt síðustu dagana
fyrir hlaup. Maturinn þarf að vera
léttur, kolvetnaríkur og auðmeltur
Úlfar Hinriksson, Hafdis Ólafsdóttir, Bryndís Magnúsdóttir og Atli Hauksson svo að líkaminn sé upp á sitt besta
raða í sig kolvetnum fyrir Reykjavíkur maraþonið en þau hlupu öll hálft fyrir álagið sem fylgir því að hlaupa
maraþon á sunnudaginn. DV-mynd JAK langhlaup.
Chen Ming frá Kina, Hajime Matsumura, menningarmálafulltrúi frá jap-
anska sendiráðinu í Noregi, og Ragnar Baldursson ræða málin við
opnun sýningarinnar.
Höm Harðardóttlr sérkennari og Eysteinn Þorvaldsson, lektor Kennara-
háskóla íslands, virða fyrir sér japönsk leirker. DV-mynd JAK
Japönsk
listí
Nor-
ræna
húsinu
Farandsýning á hefðbundinni
japanskri leirkeragerð var opnuð í
Norræna húsinu á laugardaginn
að viðstöddu margmenni. Sýningin
gefur góða yfirsýn yfir það sem er
að gerast í hefðbundinni leirkera-
list í Japan á þessari öld.
Hajime Matsumura, menningar-
málafulltrúi frá japanska sendiráð-
inu í Noregi, opnaði sýninguna með
ræðu. Á sýningunni eru verk eftir
56 leirkerasmiði en leirkeragerð á
sér langa sögu í Japan og er stór
þáttur í menningarsögu þjóðarinn-
ar.
Sýningin, sem verður opin alla
daga frá kl. 14-19, stendur til
sunnudags 6. september.
Það er norræna húsið ásamt
ýmsum fyrirtækjum og sjóðum
sem hefur styrkt sýninguna en ís-
lensk-japanska félagið hefur haft
allan veg og vanda af undirbúningi
og uppsetningu hennar.
Sviðsljós
Skotleikar
'92 í Leirdal
Skotfélag Reykjavíkur hélt skot-
leika ’92 fyrir skömmu. Leikamir
voru haldnir á skotsvæði SR í
Leirdal í samvinnu við Hið íslenska
byssuvinafélag og Kringlusport
Baldvin ísaksson keppti sem gest-
ur á mótinu.
sem jafnframt gaf öll verðlaun og
farandbikar (Kringlusportsbikar-
inn) fyrir bestan samanlagðan ár-
angur.
Tilgangur mótsins er að fá sem
flesta tíl keppni og hafa ánægju af
góðum félagsskap en þama er gott
tækifæri fyrir byijendur því grein-
arnar era ekki hefbundnar keppn-
isgreinar. Þátttökugjöldum var
stillt í hóf en þau voru 1500 krónur.
Keppnin skiptist í þijár mismun-
andi greinar. í þeirri fyrstu var
skotið með 22 cal. lr. rifflum á
málmmyndir á 40 og 60 m færi í
standandi stöðu, 10 skot á hvort
færi. í annarri grein var skotið á
sérbúna skífu á 100 m færi með
center fire rifflum í standandi
stöðu, samtals 20 skot í þremur
umferðum. í þriðju grein vora
skotnar 25 leirdúfur frá þremur
mismunandi stöðum. Mótið gekk
vel og mættu 23 keppendur til leiks,
þar af keppti einn sem gestur.
Jóhann Vilhjálmsson var með
bestan samanlagðan árangur og
hlut þvi farandbikarinn.
Þátttakendur á mótinu. Aftari röð f.v.: Herbert Guðmundsson, Sigurður
Einarsson, Svavar Þórhallsson, Óskar Óskarsson, Gunnar Magnússon,
Sveinn Sigurjónsson og Arnbergur Þorvaldsson. Fremri röð f.v.: Hannes
Gilbert, Torfi Harðarson, Jóhannes Jenssen, Steinar Einarsson, Arnar
Lúðvíksson, Gunnar Ólafsson, Ásmundur Ásmundsson, Jóhann Vii-
hjálmsson, Kristmundur Skarphéðinsson, Hilmar Ragnarsson og Haukur
Sigurðsson. Sitjandi f.v.: Kjartan Friðriksson, Björn Halldórsson, Eiríkur
Björnsson, Kristján Vilhjálmsson og Baldvin ísaksson. DV-mynd S
Verslanir nota ýmsar aðferðlr til að seiða til sfn viðskiptavini. Japis f
Reykjavík hefur t.d. auglýst stift að nú standi yfir „hundadagar". Þessi
auglýsing bar svo sannarlega árangur þvf þegar Ijósmyndarl DV átti leið
fram hjá búðlnnl var þessi myndalegi hundur mættur á staðinn. Sjálfsagt
hefur hann gert ráð fyrir að fá bein tll að naga. DV-mynd RaSi