Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1992, Page 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1992.
Uflönd
Srf ellt f leiri kon-
urfáblóðtappa
Gizur Helgason, DV, Kaupmaimahöfa
Um fjögur þúsund danskar
konur deyja ár hvert af völdum
blóötappa. Blóðtappi hefur hing-
að til aðallega verið karlmanna-
sjúkdómur og læknum yfirsjást
þvi oft sjúkdómseinkenni meðal
kvenna, hendi þau tii blóðtappa.
Rannsóknir hafa sýnt að sífelit
fleiri konur þjást af hjartasjúk-
dómum og aldursmörkin færast
neöar og neðar. Konur fara
sjaldnar til læknis og því eru
dauðsföll ef til vill fleiri af þeim
sökum.
Læknar verða nú að taka það
með í reikninginn aö konur eru
einnig aö öðiast jafnrétti á þessu
sviði svo leitt sem það nú er.
Austurríkis-
menn hefjaend*
urvinnslubíla
Austurríska ríkisstjómin
skýrði frá því í gær aö náðst heíði
samkomulag víö bilaiðnaðinn í
landinu um aö hefia endur-
vinnslu gamalia bíla. Samkomu-
lagið tekur mið bæði af umhverf-
isþáttum og markaðslögmálum
og með því er hægt að koma í veg
fyrir auknar álögur á almenning.
í yfirlýsingu frá rikisstjóminni
segir að í framtíðinni geti sá sem
kaupi nýjan eða notaðan bil látið
bílasalann fá gamla bíiinn sinn
án þess að þurfa að borga fyrir
að losa sig við hann. Og bíliinn
veröur að vera í heilu lagi.
Öll hættuleg efni, svo sem olía
og rafgeymar, verða tekin úr bíl-
unum og reynt verður að nota
sem mest af bílnum i varahluti.
Emirinn þarf
blundogþvífær
enginn mat
Sérstökum hádegisverði til
heiðurs emímum af Kúveit, sem
stjórnvöld á Nýja-Sjálandi ætl-
uðu að boða til á fimmtudag, hef-
ur verið aflýst vegna þess aö hans
hátign þarf að fá sér blund. Emir-
inn er á Nýja-Sjálandi til að þakka
þarlendum stuðning þeirra við
Kúveit í Persaflóastriðinu.
Auk emirsins hafði 250 gestum
verið boðið til veislunnar og besta
fáanlega lambakjötiö á Nýja-Sjá-
landi hafði verið pantað. En
menn emírsins sögðu í morgun
að þar sem hann færi áleiðis til
Maldíveyja í Indlandshafi eftir
hádegi á fimmtudag yrði hann að
hvílast fyrst.
Emírinn feröast í breiöþotu en
honum ku engu að síöur veitast
erfitt að sofa á flugi. Embættis-
menn hans fóru þvi fram á aö
hádegisverðinum yrði sleppt að
þessu sinni.
Dýragarðimimí
London bjargað
frálokun
Stærsta dýragaröi heimsins,
dýragarðinum i London, hefur
verið bjargað frá því aö verða
lokaö vegna fjöldaáskorana al-
mennings og vegiegs fjárframlags
frá emímum i Kúveit. Fjárhags-
vandi garösins er hðinn í bili og
ekkert verður af áformaðri lokun
um næstu mánaðamót.
Almenningur brást skjótt við
þegar tilkynning um lokunina
var gefin út í júní og flykktust
gestir í garðinn. Þannig tókst að
afla aukatekna upp á 50 milljónir
króna, auk þess sem emírinn gaf
100 milljónir. Dýragarðurinn hef-
ur áður verið í kröggum en alltaf
hefur eitthvað komið til bjargar.
I þetta sinn var það m.a. nýr
pandabjörn sem dró aö sér áhorf-
endaskarann. Reuter
Forsetaframbjóðendumir gleyma efnahagsmálimum 1 óvæntu kapphlaupi:
Báðir vilja líkja sér
við Truman forseta
Bill Clinton segist eiga hann en George Bush segist mega eiga hann
„Harry Truman var undir alla
kosningabaráttuna en sigraði samt.
Það ætla ég líka að gera. Harry Tru-
man viðurkenndi mistök sín. Guð er
til vitnis um að það hef ég líka gert,“
sagði George Bush forseti í fram-
boðsræöu í Wisconsin í gær og ítrek-
aði kröfu sína um að vera líkt við
Truman forseta sem vann glæsilegan
sigur í forsetakosningunum 1948
þvert ofan í allar spár.
Samlíkingin þykir þó heldur vand-
ræðalega fyrir Bush því Truman var
demókrati og lék Thomas Dewey,
frambjóðanda repúblikana, grátt í
kosningunum 1948. Bill CUnton hef-
ur og notað sér gallann á samliking-
unni og gert óspart grín að forsetan-
um fyrir að verða að leita til and-
stæðinganna eftir fyrirmynd.
Chnton kom fram í heimabæ Tru-
mans í gær á degi verkalýðsins en
hann er jafnan tahnn marka upphaf
endasprettsins í forsetakosningum
vestra. Nú var því líkast sem efna-
hagsmálin gleymdust því frambjóð-
endumir bitust um hvor ætti meiri
rétt á að líkja sér við Tmman gamla.
Truman er tahnn með fremstu for-
setum í sögu Bandaríkjanna og nú
er ævisaga hans orðin að metsölu-
bók.
CUnton hamrar á því að Truman
hafi verið verkalýsðssinni enda af
alþýðufólki kominn. Bush sé á hinn
bóginn yfirstéttarmaður sem hafi
engan áhuga á kjörum almennings.
Dóttir Trumans segir að Bush hafi
engan rétt til að nota nafn föður síns
í kosnigabaráttunni enda sé hann
„enginn Harry Truman".
Reuter
Bill Clinton ffór til heimabæjar Trumans forseta til að tryggja rétt sinn til
að nota naffn hans. Símamynd Reuter
Mikiðjárneyk-
urlíkurá
hjartaáfalli
Viðamikil rannsókn, sem gerð var
í Finnlandi, sýnir fram á að mikið
járnmagn í líkamanum eykur hætt-
una á hjartaáfalli. Það var banda-
ríska dagblaðið New York Times sem
skýrði frá þessu í morgun.
Rannsóknin er birt í riti banda-
rísku læknasamtakanna sem kemur
út í dag. Hún er hin fyrsta sinnar
tegundar sem sýnir fram á að hátt
járnmagn stuðlar að hjartaáföllum
en lágt dregur úr þeim.
New York Times sagði að sérfræð-
ingar vöruðu við því að enn væri of
snemmt að mæla með því að lækka
járnmagn í líkamanum og að of mik-
il lækkun gæti orsakað blóðleysi.
í fréttinni sagði að niðurstöður
rannsóknarinnar styddu þá kenn-
ingu að járn ætti þátt í að mynda
efni sem yllu kölkun æðaveggjanna
og hindruðu blóðrásina.
Rúmlega 1900 menn á aldrinum 42
til 60 ára tóku þátt í finnsku rann-
sókninni. Hún hófst árið 1984 og lauk
fimm árum síöar.
Sómalía gerð
að ruslahaug
fyrir Evrópu
Einn stríðsherranna í Sómahu hef-
ur undirritað samkomulag við fyrir-
tæki í Sviss um að senda þúsundir
tonna af eitruðum efnaúrgangi Evr-
ópu til landsins, að því er segir í
gögnum sem Reuters-fréttastofan
hefur undir höndum.
Samningurinn mihi fyrirtækis sem
heitir Archer Partners og ríkis-
stjómar Ahs Mahdis Mohameds,
sjálfskipaðs forseta landsins til
bráðabirgða, leggur drög að bygg-
ingu sorpbrennslu nærri höfuðborg-
inni Mogadishu þar sem 500 þúsimd
tonnum af úrgangi verður komið fyr-
ir og brennt á ári hverju.
Þá er greint frá því í samningnum
hvemig úrgangsefnunum verður
síðan komið fyrir á sérstökum msla-
haugum sem eiga að geta tekið á
móti tíu milljón tonnum. '
Samningurinn er frá því í desem-
ber í fyrra en ekki er ijóst hvort fram-
kvæmdir em hafnar.
Dans nýjung og alltaf það nýjasta!
Krakkar s. 677070
Dauöarokk, þungt rokk, það sem þið danslð á böllum í vetur, mlkil
hreyfing, mikil spenna
Böm 4-8 ára: Dans, söngur og leikræn tjáning saman.
Böm 7-9 ára: Skemmtilegir dansar örva sköpunargleði barnanna, kennt og æft verður á gólfi
sem og á senu, börnin fá tilfinningu fyrir auknu sjálfstrausti og öðlast þannig meiri ánægju
af dansi og leik. Freestyle og léttir leikdansar örva hreyfigetu barnanna til að njóta tónlistar
eins og best verður á kosið.
Afhendlng skírtelna Suðurlandsbraut 50 laugard. 12 sept. ogsunnud.
13. sept. ffá kl. 14-18.
Reuter