Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1992, Síða 5
ií
MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1992.
5
dv_______________________Fréttir
Ingi Bjöm Albertsson um þyrlumálið:
Legg fram
nýtt frumvarp
- ljóstaðgóðorðráðherraverðasvikin
ANITECH6002
HQ myndbandstæki Árgerð 1992
30 daga, 8 stöðva upptökuminni,
þráðlaus fjarstýring, 21 pinna
„Euro Scart“ samtengi, sjálf-
virkur stöðvaleitari, klukka +
teljari, ísl. leiðarvísir.
Sértilboð 24.950.- stgr.
Vönduð verslun
E3 A fborgunarskilmálar
MJéMG)©
FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005
„Það er ekkert komið á blað um
björgunarþyrluna ennþá en það er
látið í það skína aö alfarið eigi að
hætta við kaupin. Ef það verður eru
þetta gífurleg vonbrigði, ekki bara
fyrir mig heldur fjöldann allan af
fólki um land allt. Það hreinlega má
ekki gerast,“ sagði Ingi Björn Al-
bertsson þingmaöur um áform um
að hætta eigi við kaup á björgunar-
þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna.
Ég mun spyrjast fyrir um þetta á
þingflokksfundi á mánudag til að fá
það staðfest hvort það er ætlun
manna að hætta við þessi kaup.“
Ingi Björn segist taka undir sjón-
armið Páls Halldórssonar flugstjóra
um að menn hafi ekki gengið heilir
til verks þegar nefndir voru skipaðar
í þyrlumálinu. „Ég held ég verði að
taka undir það. Mér finnst þetta búið
að vera hálfgerður skrípaleikur og
nánast sett upp til að tefja og drepa
málið. Um þetta er ekki annað að
segja en að maöur verður að taka
upp baráttuna enn á ný.
Við vorum komnir langleiðina með
að fara með frumvarp og lagasetn-
ingu um kaup á þyrlu í fyrra en við
hættum við það vegna góðra orða
ráðherra um að staðið yrði við þings-
ályktunartillöguna. Nú er ljóst aö
það verður svikið. Þar af leiðandi
mun ég leggja fram frumvarp að
nýju - og ekki bakka út úr því aftur.
Það er einsýnt að eina leiðin er aö
Ólafur G. Einarsson:
Lítekkiá
nefndina
sem aðför
„Ég hef ekkert við það að athuga
þótt Alþýðuflokkurinn tilnefni menn
til aö fara yfir málefni LÍN með til-
hti til stefnu flokksins. Ég ht ekki á
það sem aðför að þeirri lagasetningu
sem stjórnarflokkarnir stóðu að á
síðasta þingi,“ segir Ólafur G. Ein-
arsson.
Alþýðuflokkurinn hefur skipað
fjögurra manna nefnd til að meta
áhrif nýrrar löggjafar og reglugerðar
um LÍN á afkomu námsmanna. Sam-
þykkt þessa efnis var gerð á flokks-
fundi síðastliðiö vor að kröfu Sam-
bands ungra jafnaöarmanna. Þá hef-
ur Össur Skarphéðinsson, formaður
þingflokksins, lýst því yflr að hann
muni styðja breytingu á lögum um
lánasjóðinn komi í ljós að breytingin
verði námsmönnum of þungbær.
Að mati Ólafs G. Einarssonar er
hins vegar ekkert svigrúm til að
breyta lögum og reglugerð um LÍN
verði það til þess aö útgjöld sjóðsins
aukist. Hann segir hins vegar koma
til áhta að hlusta á hugmyndir um
það sem betur mætti fara. Á hinn
bóginn komi ekki til greina að draga
til baka eftirágreiðslu námslána. „Eg
legg mikla áherslu á að það verði
mótuð festa í málefnum LIN,“ segir
ráðherrann. -kaa
Úrval-Útsýn
á Akureyri
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn hef-
ur keypt hlut Flugfélags Norður-
lands og Jóns Egilssonar og fjöl-
skyldu hans í Ferðaskrifstofu Akiu*-
eyrar og opnaö söluskrifstofu við
Ráðhústorg þar sem Ferðaskrifstofa
Akureyrar var áður til húsa.
setja lög á þetta. Eg set frumvarpið
fram um leið og þetta er orðið stað-
reynd, að hætt veröur við kaupin.“
-ÓTT
Þú tekur þá úr frystinum
klýfur þá -
ristar í braudristinni, eða
eða í ofni.
mtar a ponnu
Smyrð þá með smjöri,
eða setur uppáhalds
áleggið þitt ofaná.
Verði þér að góðu