Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1992, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1992, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1992. Merming Eftir að til Boston kemur gerist Joseph (Tom Cruise) atvinnuboxari. Laugarásbíó og Bíóborgin - Ferðin til Vesturheims: ★★ 'A Nýtt líf í nýju landi Sjálfsagt hafa fáir sem þekkja feril leikstjórans Rons Howard búist við epískri stórmynd frá honum, mynd með gamaldags og rómantískum sögu- þræði sem ekíd beint endurspeglar tíðarandann í Hollywood. En Howard hafði lengi borið í bijósti löngim til að gera kvikmynd um landnema hins nýja heims og styðst hann að hluta til við sögu forfeðra sinna í Ferðinni til Vesturheims (Far and Away). Forfeður hans komu einmitt frá írlandi þar sem Ferðin til Vesturheims hefst og er myndin fógur á að líta með stórfenglegum sviðsetningum, mjög góðri tónhst og gamaldags sögu- þræði. Tom Cruise og Nicole Kidman leika aðaihlutverkin, írsku ungmennin Joseph Donelly og Shannon Christie sem segja skiiið við gamla heiminn og halda til Vesturheims þar sem þeirra bíður „ókeypis land sem gera má við hvað sem er“. Þau eru af ólíkum uppnma. Shannon er dóttir ríks landeiganda en Joseph sonur fátæks leiguhða en örlögin leiða þau saman og þegar vestur er komið sameinast þau í baráttu fyrir daglegu brauði, þvi eins og máltækið segir gerir fjarlægðin fjöllin blá og þeirra bíður allt Kvikmyndir Hilmar Karlsson annað en guU og grænir skógar þegar stigið er á land í Boston. Ron Howard hefur færst mikið í fang með Ferðinni til Vesturheims, en hann er leikstjóri sem hefur styrk til að takast á við slíkt stórvirki. Hann sýndi það með síðustu mynd sinni, Backfire, að hann hefur getu til að takast á við stórar myndir með góðum árangri. Ferðin til Vesturheims hefur sterkt yfirbragð og liggur við að glæsileg- ar sviðsmyndir og góður leikur geri það að verkum aö gallamir, sem finna má í sögunni, gleymist en undir yfirborði persónanna er ekki mikll grunn- ur, sagan er klisjukennd og byggð á of miklum tilviljunum. En þegar á heildina er htið er Ferðin tíi Vesturheims góð og rómantísk skemmtun, stórmynd sem er tilbreyting frá nútíma- og framtíðarstórmyndum sem berast yfir hafið frá Vesturheimi. Ferðin til Vesturheims (Far and away) Leikstjóri: Ron Howard. Handrit: Bob Dolman ettir sögu Bob Dolman og Ron Howard. Kvikmyndun: Mikael Salomon. Tónlist: John Williams. Aðalhlutverk: Tom Cruise, Nicole Kidman, Thomas Gibson, Robert Prosky og Bar- bara Babcock. Regnboginn - Vamarlaus: ★ lA Lögfræðingur í Ijótum málum í spennumyndinni Defenceless er nýjum khsjum hrært saman við gaml- ar á árangurslausan hátt með hóp góðra leikara og tæknimanna fastan í súpunni. Barbara Hershey leikur einhleypan lögfræðing sem á í ástarsambandi við einn af umboðsmönnum sínum (J.T. Walsh). Fyrir tílviljun rekst hún á gamla skólasystur (Mary Beth Hurt) sem sömuleiðis fyrir tílviljun er eiginkona durtsins. Þær ákveða að endurnýja gömul kynni en fyrr en varir hggur einhver í valnum. Atburðarásin byggist að mestu á ótrúlegum tUvUjunum eða óskUjan- legri hegðun persóna sem er hvorugt til þess fahið að skapa sannfærandi eða spennandi sögu. Handritshöfundurinn reynir að hressa upp á dæmi- gerða morðgátu, þar sem aðalpersónan þorir ekki að segja löggunni það sem hún veit af ótta við að hggja sjálf undir grun, með því að bæta inn sálfræðUegum forsendum fyrir hinu og þessu í fari persónanna, sem ger- ir myndina bæði langdregnari og óskUjanlegri. Kvikmyndir Gísli Einarsson Persónusköpunin er gerð á svo fólskum forsendum að samúðin með þeim er horfin um miðbik myndarinnar og á endanum var mér orðið nákvæmlega sama um hver gerði hvað og hvers vegna. Á meðan er fyllt upp í myndina með óþarfa hhðarsögum og reynt að auka spennuna með vafasömum aðferðum eins og að láta geðveikan kah skjóta upp kollinum endrum og eins tU að hreha persónumar. Leikaramir era allir hafnir yfir svona efni og sá eini er heldur höfði er Sam Shepard sem leikur svala rannsóknarlöggu. Delenceless (Band. 1991) 104 min. Saga: James Hicks, Jeff Burkhart. Handrit: Hicks (Morning After, Chattahootchie). Leikstjóri: Martin Campbell (Criminal Law) Leikarar: Barbara Hershey (Last Temptation of Christ, Shy People), Sam Shepard (Homo Faber), Mary Beth Hurt, J.T. Walsh.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.