Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1992, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1992.
17
Fréttir
Framkvæmdastjóm VSÍ um aðstöðugjaldið:
Fjötrar fyrirtækin
- hafnar alfarið hækkun tryggingagjalds á laun
Islensk fyrirtæki munu mæta auk-
inni samkeppni meö tilkomu sameig-
inlegs markaðar EB og EES. Afnám
aðstöðugjalds er forsenda þess að ís-
lensk fyrirtæki geti aukið markaðs-
hlutdeild sína enda geti þau ekki
mætt til leiks í alþjóðlegri samkeppni
í fjötrum úrelts/skattakerfis. Þetta
mat framkvæmdastjórnar VSÍ kom
fram á fundi hennar á dögunum.
Samkvæmt útreikningum VSÍ má
lækka verðlag um aUt að 2 prósent
með því að fella aðstöðugjaldið nið-
ur, auk þess sem atvinna og almenn
umsvif í þjóðfélaginu muni aukast.
VSÍ bendir á að þar sem gjaldið legg-
ist á alla veltu íslenskra fyrirtækja
sé sama varan í raun margsköttuð í
framleiðslu og dreifingu áður en hún
kemst endanlega í hendur neytenda.
Framkvæmdastjórn VSÍ telur að
sveitarfélög verði að mæta tekju-
Ljósheimar
formlega vígðir
Þórhaflur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
Skarðshreppingar vígðu nýja fé-
lagsheimilið sitt formlega nýverið.
Húsinu var gefið nafnið Ljósheimar
og var það nafn valið úr rúmlega 30
tillögum sem bárust.
Ljósheimar eru 350 fermetrar og
tekur salurinn um 150 manns í sæti.
Félagsheimilinu barst höfðingleg
gjöf í tilefni vígslunnar, vandað
píanó frá Herdísi Ólafsdóttur í
Brennigerði, en svo skemmtilega
vildi til að hún átti einmitt hugmynd-
ina að nafni félagsheimilisins. Dótt-
urdóttir Herdísar og nafna, Álfsdótt-
ir í Brennigerði, lék á píanóið.
Kaupa meira
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Hús Áfengisverslunar ríkisins á
Selfossi hefur nú verið málað, lóðin
lagfærð og malbikuð og garðyrkju-
ráðunautur Selfossbæjar hefur sett
niður tré í kringum verslunina. Þetta
er mikil prýði.
Hér áður fyrr mátti oft sjá fólk fara
í vaöstígvél í bílunum sínum áður
en það fór yfir lóðina, svo djúpir voru
poÚamir. Fólkið fer mun ánægðara
inn í áfengisverslunina núna og ég
álykta að miklu meira sé að gera þar
eftir lagfæringarnar.
MATARGERÐ
ER LEIKUR EINN
MEÐ...
missi með aðhaldi og spamaði eftir
að aðstöðugjaldið hefur verið fellt
niður. Sameining sveitarfélaga hljóti
að vera valkostur í því sambandi.
Sumpart verði þó að bæta sveitarfé-
lögunum upp tekjumissinn með nýj-
um tekjustofnum. VSÍ leggst hins
vegar alfarið gegn því að það verði
gert með því að hækka trygginga-
gjald á laun um 3,2 prósentustig.
„Augljóst er að afnám þessa skað-
lega veltuskatts veröur ekki mætt
með álagningu hærri skatts á launa-
þátt veltunnar. Það hefur sömu meg-
inókosti og aðstöðugjaldið en grefur
auk þess undan vinnu á tímum vax-
andi atvinnuleysis," segir í frétt frá
VSÍ um málið.
-kaa
Myndmenntaskóli
verkstæði gallerí
Innritun í síma 30840
Kennsla hefst 28. september
NYR LISTASKOLI
í REYKJAVÍK
er tíl húsa í Listhúsinu í Laugardal
Engjateigi 17 til 19
teiknun veggmyndagerð
málun umhverfislist
skúlptúr glerlist
grafík kvikmyndun
blönduð tækni tækninámskeið
skjálist fyrirlestrar
byggingalist og fleira
Kynningarsýning
á námskeiðum haustannar
er hafin. Hún er opin
mán. - lau. Kl. 10:00 - 17:00
og sun. Kl. 14:00 - 18:00.
Skólastjóri er Guðrún Tryggvadóttir
POTTRETTIR
Lágmúla 8. Sími 38820