Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1992, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992.
5
Fréttir
Þóra Hjaltadóttir, formaður skipulagsneöidar Alþýðusambandsins:
Leggjum til færri og
stærri verkalýðsfélög
- hugmynd hreyft um eitt deildaskipt verkalýðsfélag fýrir allt landið
„AUt írá þvl að síðasta þingi Al-
þýðusambandsins lauk höfum við
unnið í þessum skipulagsmálum.
Við höfum kortlagt allt landið með
það fyrir augum að fækka verka-
lýðsfélögum og stækka þau sem
eftir verða. Hugmyndir okkar hafa
gengið út á það að til að mynda í
Eyjafirði verði bara eitt verkalýðs-
félag, annað í Skagafirði, eitt á Ár-
borgarsvæðinu og tvö á Austíjörö-
um og svo framvegis,“ sagöi Þóra
Hjaltadóttir á Akureyri en hún er
formaður skipulagsnefndar Al-
þýðusambands islands.
Þóra benti á að skipulagsnefndin
hefði ekkert vald til að skipa fyrir
í þessu efni. En nefndin hefði bent
á að annaðhvort yrðu verkalýðsfé-
lögin að sameinast eða þá að vinna
saman og hafa eina sameiginlega
þjónustumiðstöð. Þannig yrðu fé-
lögin stærri og betur í stakk búin
til að veita góða þjónustu.
„Enda þótt allir sjái nauðsyn
þessa þá er hér greinilega um mik-
ið tilfinningamál að ræða hjá mör g-
um. Þegar kemur að því að fram-
kvæma þessar hugmyndir finnst
mér áhugi manna vera takmarkað-
ur,“ sagði Þóra.
Jón Karlsson, formaður Verka-
lýðsfélagsins Fram á Sauðárkróki,
á einnig sæti í skipulagsnefnd ASÍ.
Hann sagði að í stað þess að ætla
að gera allt í einu hefði þessi skipu-
lagsnefnd ákveðið að koma fram
með hugmyndir um stækkun fé-
lags- og skipulagssvæða verkalýðs-
hreyfingarinnar.
„Þetta gæti byijað með því að fé-
lög stæðu saman að þjónustuskrif-
stofum. Síðan gæti þetta þróast í
þá veru að félög sameinist. Hug-
myndir í þessa áttina verða lagðar
fram á ASÍ-þinginu í nóvember
enda hafa þær verið til skoðunar
hjá félögunum. Ég vil einnig benda
á að hugmyndir hafa verið uppi um
einungis eitt deildaskipt verkalýðs-
félag fyrir landið allt. Deildaskipt-
ingin réðist þá af landafræði og
atvinnusvæðum," sagði Jón Karls-
son.
Jón Agnar Eggertsson, formaður
Verkalýðsfélags Borgamess, sagði
ljóst að huga þyrfti að sameiningu
félaga en sér htist ekki vel á eitt
verkalýðsfélag fyrir hvert kjör-
dæmi. Það mætti hugsa sér eitt
verkalýðsfélag fyrir Borgarfjörð,
annað fyrir Akranes og eitt á Snæ-
fellsnesi svo dæmi væri tekið. Miða
ætti við að félögin yrðu ekki fá-
mennari en svo sem eitt þúsund
félagar.
„Þessi mál eru viðkvæm og þau
þarf að ræða vel í félögunum.
Svona breytingar geta aldrei komið
með valdboði ofan frá. Hins vegar
tel ég mikla nauðsyn á að verka-
lýðsfélögin verði færri og stærri,"
sagði Jón Agnar.
-S.dór
Ragnar hefur þegar roðflett hlýrann og var roðið á annan fermetra. Ragn-
ar segir roðið af hiýranum mjög fallegt, likt krókódllasklnni, og ætlar hann
að freista þess að fð það sútað og hengja það síðan upp á vegg enda
sómi það sér vel sem stofustáss. DV-myndir S
Þessi ferlegi fiskur heitir hlýri og er náskyldur steinbítnum enda álíka Ijótur
á að líta. Að sögn Ragnars Haukssonar hjá Fiskbúð Hafliða, sem hér heldur
á feriikinu, er hlýrinn mjög góður matfiskur. Venjulegur hlýri vegur um 2-4
kg en þessi, sem kom á land i Grundarfirði, vegur hvorki meira né minna
en 23 kg.
fiskbuð
Alþjóðleg kjötvinnslukeppni:
íslenskar vörur sópa
til sín verðlaunum
íslensk fyrirtæki unnu til íjölda
verðlauna í alþjóðlegri fagkeppni í
kjötiðnaði sem lauk á Jótlandi um
helgina.
Átta íslensk fyrirtæki sendu ahs
29 vörutegundir í keppnina og 26
þeirra unnu til verðlauna. íslensku
vörumar unnu 10 gull, 9 silfur og 7
bronsverðlaun.
„Þetta er ótrúlegur árangur og það
vakti mikla athygh hvað íslending-
amir stóöu sig vel. Þetta er mikh
viðurkenning og sýnir hvar íslensk-
ur kjötiðnaður stendur miðað við
aðrar þjóðir,“ segir Bjöm Ingi
Bjömsson, formaður Meistarafélags
kjötiðnaðarmanna.
Þetta er í fyrsta skipti sem svo
margir íslenskir kjötiðnaðarmenn
fara út í þessa keppni en ahs munu
um þúsund vömtegundir frá 150-200
fyrirtækjum hafa keppt um verð-
launin.
-ból
SUZUKIVITARA
LIPUR OG ÖFLUGUR LÚXUSJEPPI
* Aflmikil vél með beinni innspýtingu.
* Vökvastýri - rafmagnsrúðuvindur - samlæsingar -
rafdrifnir útispeglar - lúxusinnrétting.
* Mjúk gormafjöðmn - aksturseiginleikar í sérflokki.
* Grindarbyggður - auðvelt að hækka bílinn upp.
* Eyðsla frá 8 1 á' 100 km.
* Verð frá kr. 1.395.000 stgr:
$ SUZUKI
-----------
SUZUKIBÍLAR HF.
iSKEIFUNNI 17 • SlMI 685100