Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1992, Side 16
16
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1992.
Menning___________________________________
Plötuútgáfa fyrlr jólin:
Gamla vinylplatan horfin
- gróska í endurútgáfu á geislaplötur
í fyrra spáðu hljómplötuútgefend-
ur því að svarta vinylplatan yrði að
öllum líkindum horfin af markaðin-
um fyrir næstu jól. Þessar spár hafa
ræst fullkomlega því að ekki er vitað
til þess að ein einasta útgáfa sé fyrir-
huguð á efni á vinyl, hvorki hjá stóru
útgáfufyrirtækjunum Steinum hf. og
Skífunni né minni útgáfufyrirtækj-
um og einstakhnginn sem eru í út-
gáfubransanum.
Það sem einnig hefur einkennt út-
gáfu á þessu ári er hinn mikh upp-
gangur í endurútgáfum á gömlu efni
á geislaplötu og meðfram útgáfu á
nýju efni nú er þónokkuð um slíkar
útgáfur. Steinar hf. hefur nú beint
sinni útgáfu aö blóma- og hippatíma-
bilinu margumtalaða og gefur út
geislaplötur með Hljómum og Trú-
broti en þessar hljómsveitir hafa ver-
iö talsvert áberandi undanfarið, dag-
skrá með hljómum á Hótel íslandi
og þekktasta verk Trúbrots útsett
upp á nýtt með þátttöku Sinfóníu-
hljómsveitar ísland og flutt á eftir-
minnilegum tónleikum. Þá er einnig
dustað rykið af tuttugu ára gamalh
plötu með Mánum og hún gefin út.
Og til að minnast blómatímabilsins
hefur verið geflnn út Blóm og friður
sem innheldur tónUst hippatímans.
Þar koma við sögu fyrmefndar
hljómsveitir ásamt Flowers, Roof-
tops, Töturum, Tilvem og Óðmönn-
um, svo að eitthvað sé nefnt.
Auk þessara endurútgáfna frá
blóma- og hippatímabilinu er gefin
út á geislaplötu ein þekktasta plata
Mannakoms, í gegnum tíðina, sem
kom út fyrst fyrir fimmtán árum og
hefur lengi verið ófáanleg. Það má
segja að hvert einasta lag á þessari
plötu. hafi heyrst meira og minna á
öldum Ijósvakans frá því hún kom
fyrst út.
Skífan mun endurútgefa eina vin-
sælustu jólaplötu sem gefin hefur
verið út hér á landi, Jólastrengi. Þar
lögðu margir því Uð að gera sérlega
góða jólaplötu; má nefna EgU Ólafs-
son, Vilhjálm Vilhjálmsson, Manu-
elu Wiesler og Barnakór Öldutúns-
skóla.
-HK
Steingrímur St.Th. Sigurðsson listmálari hefur komið sé upp nýrri vinnu-
stofu að Haliveigarstíg 7 i Reykjavík. Af þessu tilefni hefur hann opnað 73.
myndlistarsýningu sina i vinnustofunni. Sýningin er opin á föstudögum,
laugardögum og sunnudögum frá kl. 14.00-22.00. Á myndinni er Steingrím-
ur með eitt verk sitt sem er frá innsiglingunni á Stokkseyri en þetta verk
keypti Stokkseyrarhreppur af honum. DV-mynd ÞÖK.
Verðlaunahafar Tónvak-
ans á tónleikum með
Sinfóníuhljómsveitinni
Annað kvöld verða hátíðartónleik-
ar Ríkisútvarpsins í samvinnu við
Sinfóníuhljómsveit íslands. Á tón-
leikum þessum verða í fyrsta sinn
veitt tónlistarverðlaun Ríkisútvarps-
ins, Tónvakaverðlaunin, en þau
hljóta Bryndís Halla Gylfadóttir
sellóleikari og Jón Nordal, tónskáld
Bryndís Halla Gylfadóttir, sellóleik-
ari og verðlaunahafi Tónvakans.
og fyrrverandi skólastjóri. A tónleik-
unum verða flutt tvö verk eftir Jón
Nordal, Leiðsla (1972) og Choralis
(1982). Bryndís Halla mun leika ein-
leik í sellókonsert Dvoráks í h-moll
ópus 104.
Að loknu námi hér heima undir
handleiðslu Gunnars Kvaran stund-
aði Bryndís Halla nám í Boston í
Bandaríkjunum og síöar í Hollandi.
Hún starfar nú sem fyrsti sellóleik-
ari Sinfóníuhljómsveitar íslands.
Hluti af verðlaunum Bryndísar voru
að fá að leika einleik með Sinfóníu-
hljómsveitinni og velja sjálf verkiö
og valdi hún konsert Dvoráks sem
er draumakonsert flestra sellóleik-
ara.
Choralis samdi Jón að tilstuðlan
hins fræga rússneska sellóista,
Rostropovich, og hefur það verk
sennilega oftast íslenskra tónverka
verið flutt á erlendri grundu.
Stjómandi á þessum tónleikum
verður þýski hljómsveitarstjórinn
Thomas Baldner en hann hefur
stjómað mörgum af helstu hljóm-
sveitum heims og má þar nefna Ber-
línarfilharmóníuna og Fílharmóníu-
sveit Lundúna. Tónleikunum verður
ekki útvarpað beint heldur verða
þeir teknir upp og sendir út á jólun-
um'
-HK
Fimm bækur gef nar út á Egilsstöðum
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egflsstöðum;
Héraðsprent á Egilsstöðum er 20
ára á þessu hausti en eigendur þess
eru hjónin Þráinn Skarphéðinsson
prentari og Gunnhildur Ingvarsdótt-
ir. Prentaðar hafa verið bækur á
hverju ári í prentsmiðjunni frá 1976.
Nú í vetur hafa verið fimm bækur
í prentun hjá fyrirtækinu. Þar skal
fyrst nefna bókina Mávabrík, níu
þætti af sögulegum toga eftir Ár-
mann Halldórsson, fyrrv. kennara á
Eiðum. Perlu, sögu fyrir böm á öll-
um aldri eftir Sigrúnu Björgvinsdótt-
ur á Egilsstöðum, Niðjatal Sólveigar
Sigfúsdóttur og Magnúsar Einars-
sonar frá Hrollaugsstöðum í saman-
tekt Gunnars Hersveins, Rauða
penna, endurútgáfa Ijóðabókar Þor-
steins Eiríkssonar frá Ásgeirsstöð-
um, og Múlaþing, ársrit héraðs-
nefndar Múlasýslna, ritstjóri Ár-
mann Halldórsson.
Má því segja að haldið sé upp á 20
ára afmælið með glæsibrag og gleði-
legt til þess að vita á þessum sam-
dráttartímum að til era fyrirtæki
sem era í stöðugum vexti. Þráinn
segir næg verkefni framundan og
fyrirækið standi vel. Það er í eigin
300 m2 húsnæði auk álíka rýmis í
kjallara sem er leigt út að hluta.
Eigendur og starfsmenn Héraðsprent. Frá vinstri: Þráinn Skarphéðinsson, Kristín Björnsdóttir, Gunnhildur Ingvars-
dóttir, Þórir Gfslason og Gunnhildur Þráinsdóttir. DV-mynd Sigrún
fáúfhlutun
Þrju íslensk verkefni hafafeng-
ið styrk úr MEDIA-áætlun Evr-
ópubandalagsins á sviði kvik-
mynda- og sjónvarpsgeröar en
ísland gerðist aðili á þessu ári.
Styrkinn fengu Snorri Þórisson
kvikmyndarinnar Agnes, Anna
G. Magnúsdóttir og Anna Th.
Rögnvaldsdóttir vegna kvik-
myndarinnar Sandur í augum og
Friðrik Þór Friðriksson vegna
kvikmyndarinnar Bíódagar. Það
kemur fram í tilkynningu sjóðs-
ins að það hafi vakið athygli
hversu góðar umsóknir hafi bor-
ist frá íslandi.
Út eru komnar hjá Máli og
menningu þijár vandaðar lista-
verkabækur. Eru þær í ritröðinni
Meistaraverkin. Fyrstberaðtelja
bók um Pablo Picasso en hann
er af raörgum talinn helsti málari
20. aidarinnar. í bókinni eru
fiörutíu og átta litmyndir af verk-
um hans. Hinar tvær bækumar
fialla um Joan Miró og Salvador
Dali. Jafh margar myndir af
verkum þeirra prýða bækurnar.
Þekktir bstgagnrýnendur rita
innganga i bækur þessar sem
hafa glæsiiegt útlit.
íNewYork
Á afmæli fullveldis íslensku
þjóöarinnar mun Pétur Halldórs-
son myndlistarmaður opna sína
fyrstu sýningu í New York, nánar
tiltekið í Pleiades Gallery í Soho.
Að sögn Péíurs er gallerí þetta
virt í New York og er það sameign
fiöratíu listamanna og er Pétur
einn þeirra cn hann gerðist með-
eigandi í vor. Þessi innganga Pét-
ur í þennan hóp gerir þaö að
verkum aö hann mun halda sýn-
ingu í New York á 21 mánaða
fresti um ókomin ár. Auk þess
að vera með málverkasýningar
stendur galleríið fyrir alls kyns
metnaðarfullum uppákomum, til
dæmis Jjóðalestri, smærri leik-
sýningum og gjörningum.
Skúligefur
útSönglög2
Hið kunna tónskáld, Skúli Hall-
dórsson, hefur gefið út annað
heftið í heildarútgáfu á verkum
sínum. í fyrsta heftinu, sem kom
út fyrir tveimur árum, vora 32
sönglög en í þessu hefti eru 34
sönglög, auk verksins Morgunn
sem erán orða. Söngtextamireru
viö Ijóð þrettán skálda, þar á
meöal er Ijóðaflokkur við ástar-
Ijóð Jónasar Hallgrímssonar sem
hlaut tónlistarverðlaun Ríkisút-
varpsins 1960.
Mannfræðlog
fomsögur
í kvöld mun Gísli Pálsson
mannfræðingur flytja erindi á
fundi sem Félag islenskra íræöa
tioðar til í Skólabæ við Suður-
götu. Erindið nefnir hann Af
fommönnum og villimönnum:
Mannfræði og framandleiki í ís-
lendingasögunum. Þar veröur
meðal annars spurt að hve miklu
leyti íslenskar fomsögur ogþjóð-
veldið lýsi framandi veröld og
hvað megi læra af því að bera
saman íslenska þjóðveldið og
önnur „frumstæð" sarafélög. Þá
kynnir Gísli nýja bók, From Sag-
as to Society: Comparative App-
roaches to Early Iceland, en í
þeirri bók eru sautján greinar um
íslenskar fomsögur eftir ýmsa
þekkta mannfræöinga, bók-
menntafræðinga og sagnfræð-
inga. Fundurinn hefst kl. 20.30.