Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1992, Síða 30
50
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1992.
Afmæli
Robert Geiger Cook
Robert Geiger Cook, prófessor í
ensku viö HÍ, Fossagötu 5, Reykja-
vík, er sextugur í dag.
Starfsferill
Robert fæddist í Bethlehem í
Pennsylvaniu í Bandaríkjunum og
ólst þar upp. Hann nam við Prince-
ton háskóla í New Jersey, með styrk
frá skólanum, og útskrifaðist þaðan
með BA í ensku 1954. Næstu tvö
árin lauk hann herskyldu í Banda-
ríkjunum og Frakklandi sem
óbreyttur hermaður.
Frá 1956-57 var Robert í námi í
Zurich-háskóla í Sviss og starfaði
samtímis sem kennari og þýðandi.
Frá 1958-62 var hann við framhalds-
nám í ensku við John Hopkins há-
skóla í Baltimore þar sem hann
kynntist Stefáni Einarssyni heitn-
um prófessor og fékk áhuga á ís-
landi.
Árið 1961 útskrifaðist Robert með
MA gráöu í ensku frá John Hopkins
háskólanum og heimsótti ísland í
fyrsta sinn sama ár og starfaöi um
tíma hjá Páh Björgvinssyni, b. á
Efra-Hvoli í Hvolshreppi.
Ári síöar iauk hann Ph.D. gráðu í
ensku frá John Hopkins og starfaði
eftir það við enskudeild Tulane-
háskólans í New Orleans til ársins
1989, þar af var hann lektor 1962-63,
aðstoðarprófessor 1963-69, dósent
1969-80 og prófessor frá 1980.
Frá 1968-69 starfaði Robert sem
sendikennari Fulbright stofnunar-
innar við HÍ, á vormisseri 1972 sem
aðstoðarmaður í ensku við Kaup-
mannahafnarháskóla og á vormiss-
eri 1988 sem gistiprófessor við
Berkeley háskóla í Kalifomíu.
Robert hefur einnig unnið ýmis
trúnaðarstörf við Tulane háskól-
ann, þar á meðal verið varaformað-
ur öldungadeildar háskólans um
tveggja ára skeið, þ.e. fuUtrúi og
aðalræðismaður um 800 fastráðinna
kennara.
Robert hefur ennfremur skrifað
mörg fræöirit um enskar, amerísk-
ar, franskar og íslenskar bókmennt-
ir, þar á meðal unnið að útgáfu
forn-norskra Strengleika í sam-
vinnu við Mattias Tveitane sem út
komíOslól979.
Fjölskylda
Robert kvæntist 4.7.1979 Gerda
Bodegom, f. 4.3.1948 í Hendrik Ido
Ambacht (Hollandi), kennara og
hstmálara.
Dóttir Roberts frá fyrra hjóna-
bandi er Kristin, f. 4.4.1963, mennta-
skólakennari í frönsku og ensku í
Genf, Sviss, gift Phihppe Gaihoud,
lækni og heilasérfræðingi, og eiga
þau dótturina Leshe Mae Mathilde,
f. 10.7.1992. Sonur Roberts og Gerda
er Edward Jakob, f. 11.11.1981, nem-
andi í 6. bekk Melaskóla.
Systkini Roberts eru: John Miller
Cook, f. 9.5.1927, hreppsfuhtrúi í
Bethlehem, kvæntur EUé LeSeuer
og eiga þau fjögur börn; Jean Char-
lotte Cook Jacobs, f. 31.7.1929, hús-
móðir í Atherton í Kaliforníu, gift
John Jacobs og eiga þau fjögur böm;
Charles Trexler Cook, f. 22.2.1934,
framkvæmdastjóri í Baltimore,
ókvæntur; og Katharine Ann Cook,
f. 11.7.1935, fiðluleikari í Þýska-
landi, ógift.
Faðir Roberts var Robert Geiger
Cook, f. 5.12.1895 í Emmitsburg,
Maryland, d. 22.9.1957, verkfræð-
ingur og framkvæmdastjóri í stál-
verksmiðju í Bethlehem.
Móðir Roberts er Mae Eliza Mih-
er, f. 11.5.1903 í Topton, Berks
County Pennsylvaníu, íþróttakenn-
ari og húsmóðir. Mae dvelur nú á
elliheimih í Nazareth nálægt
Betlilehem.
Robert Geiger Cook.
í móðurætt er Robert kominn af
John Peter Trexler, f. 1680 í Pfalz í
Þýskalandi, sem var einn fyrsti
landnemi Pennsylvaníu-Þjóðverja. í
föðurætt er hann kominn af skosk-
írskri ætt sem kom til Maryland
snemma á 19. öld og enskri ætt sem
kom þangað seinna á 19. öld.
Robert verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Sveinn Már Guðmundsson
Til hamingju með daginn 25. nóvember
Sveinn Már Guðmundsson, Austur-
vegi 30, Seyðisfiröi, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Sveinn fæddist á Hvanná á Jök-
uldal í Norður-Múlasýslu en ólst
upp í Jökuldalnum, á Seyöisfiröi og
aö Mýrarlóni við Akureyri.
Hann stundaði nám við MA í einn
vetur. Sveinn var við sveitastörf á
árunum 1930-A0 en stundaði síðan
vegagerð, setuhðsvinnu og var aftur
við landbúnaðarstörf. Eftir 1944 var
Sveinn í sigUngum erlendis en kom
svo heim og rak söltunarstöðina
Ströndina hf. á Seyðisfirði. Þá
stundaði hann jafnframt ýmsa verk-
takastarfsemi.
Sveinn var fréttaritari Morgun-
blaðsins á Seyðisfirði og umboðs-
maður Eimskipafélags íslands. Þá
var hann starfsmaður Síldarútvegs-
nefndar á Seyðisfirði um skeið.
Sveinn sat í bæjarstjóm Seyðis-
íjarðar á árunrnn 1954-74 og gegndi
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
Seyðisfjarðarbæ. Hann hefur verið
mikiU áhugamaður um bridge og
var einn af stofnendum Bridgefé-
lagsins á Seyðisfirði.
Fjölskylda
Sveinn kvæntist 5.12.1949 Guð-
rúnu Bjömsdóttur, f. 15.4.1929, d.
1.9.1971. Hún er dóttir Björns Jón-
sonar og Ámýjar Sigríðar Stígsdótt-
ur.
Sveinn og Guðrún eiga fjögur
böm. Þau em Björn Sveinsson, f.
5.1.1950, hitaveitustjóri Hitaveitu
Egilsstaða og FeUa, kvæntur Jónu
Kristínu Sigurðardóttur skrifstofu-
manni og eiga þau tvö börn; Am-
björg Sveinsdóttir, f. 18.2.1950, skrif-
stofustjóri á Seyðisfirði, gift Garðari
Rúnari Sigurgeirssyni fram-
kvæmdastjóra og eiga þau tvær
dætur; Ámý Sveinsdóttir, f. 18.11.
1958, leiöbeinandi á Akureyri, gift
Guðmundi Þorsteinssyni prent-
smiði og eiga þau einn son; Bóthild-
ur Sveinsdóttir, f. 15.11.1960, há-
skólanemi í Reykjavík, og á hún
einn son en sambýhsmaður Bótlúld-
ar er Einar Guðlaugsson sölumað-
ur.
Bræður Sveins em Víkingur Guð-
mundsson, f. 29.5.1924, vömbílstjóri
á GrænhóU á Akureyri, kvæntur
Bergþóru Sölvadóttur og eiga þau
tíu böm; Vignir Guðmundsson, f.
6.10.1926, nú látinn, blaðamaöur við
Morgunblaðið, var fyrst kvæntur
Önnu Pálu Sveinsdóttur og síðar
Berthu Snorradóttur. Vignir og
Anna Pála eignuðust fimm dætur
og einn son en Vignir og Bertha
eignuðust einn son.
Foreldrar Sveins voru Guðmund-
ur Jónsson, f. 1.8.1899, d. 3.5.1979,
b. að Mýrarlóni við Akureyri, og
Ambjörg Sveinsdóttir, f. 26.12.1896,
d. 20.2.1929, húsfreyja og kennari.
Ætt
Guðmundur var bróðir Aðalsteins
á Vaöbrekku, fóður Jóns Hnefils
þjóðsagnafræðings og afa Hrafn-
kels, formanns Verkamannafélags-
ins Árvakurs og varaþingmanns.
Guðmundur var sonur Jóns Hnefils,
b. á Fossvöllum í Jökulsárhlíð,
Jónssonar, b. á Bæ í Lóni, Jónsson-
ar, hreppstjóra í Hafranesi í Nesj-
Sveinn Már Guðmundsson.
um, Magnússonar, prests í Bjarnar-
nesi í Nesjum, Ólafssonar sýslu-
manns. Móðir Jóns á Bæ var Ljót-
unn Hallsdóttir, ríka í Hólum, Þor-
leifssonar og Vilborgar Benedikts-
dóttur. Móðir Jóns Hnefils var
Steinunn Pálsdóttir Eiríkssonar.
Móðir Guðmundar var Guðrún
Bjömsdóttir, b. á Ekkjufelli, Sæ-
mundssonar beykis Vilhjálmssonar
Sæmundssonar. Móðir Guðrúnar
var Aðalbjörg Guðmundsdóttir, b. á
Hafursá, Hinrikssonar.
Arnbjörg var systir Jóns Sveins-
sonar, bæjarstjóra á Akureyri. Am-
björg var dóttir Sveins, b. á Húsavík
í Borgarfirði eystra, Bjamasonar,
b. á Stórabakka í Hróarstungu,
Jónssonar. Móðir Sveins var Bót-
hildurSveinsdóttir.
Móðir Arnbjargar var Sigríöur
Ámadóttir, b. á Amastöðum, Jóns-
sonar, og Þorbjargar Pálsdóttur.
Sveinrí dvelur á Sjúkrahúsi Seyð-
isíjarðar um þessar mundir.
Jón Kristberg Ámason
Jón Kristberg Amason vörubif-
reiðastjóri, Hólmagmnd 6, Sauðár-
króki, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Jón Kristberg fæddist að Víðimýri
í Skagafirði og ólst upp að Víðimel
við Varmahlíð. Hann stundaði sjó-
mennsku frá fimmtán ára aldri og
fram til tvítugs. Þá hóf hann akstur
langferðabíla hjá Siglufiarðarleið á
milli Siglufiarðar og Reykjavíkur og
fleiri staða. Þá vinnu sfimdaði hann
í tíu ár. Jón hefur síðan sfimdað
vörabfiaakstur á eigin bifreið og býr
áSauðárkróki.
Fjölskylda
Jón Kristberg kvæntist 24.5.1964
Önnu Sólbrún Friðriksdóttur, f.
22.10.1941, húsmóður. Hún er dóttir
Friðriks Friðrikssonar og Sigur-
laugar Þorkelsdóttur á Sauðár-
króki.
Böm Jóns Kristbergs og Önnu
Sólbrúnar era Hallfríður Bára Jóns-
dóttir, f. 25.12.1964, hárgreiðslu-
meistari á Sauðárkróki, gift Sigur-
bimi Bjömssyni, f. 18.11.1963, bif-
vélavirkja, og eiga þau eina dóttur,
Helgu, f. 22.8.1992; Sigurlaug Jóns-
dóttir, f. 19.8.1971, afgreiðslustúlka
í Reykjavík, í sambúð með Tryggva
Forberg, f. 19.8.1971, trésmiöi; Ámi
Jónsson, f. 8.12.1981, nemi í for-
eldrahúsum.
Jón Kristberg á fiögur systkini.
Þau era Sveinn, búsettur á Víðimel;
Amalía, búsett á Víðimel; Margrét,
búsett á Akureyri; Steinunn, búsett
áSauðárkróki.
Foreldrar Jóns: Ámi Jónsson, f.
21.4.1913, d. 10.10.1972, söngsfióri,
og Hallfríður Bára Jónsdóttir, f. 14.7.
1922, húsmóðir.
Jón Kristberg verður að heiman á
afmælisdaginn.
Jón Kristberg Árnason.
80 ára
Ragnar Sigfinnsson,
Grímsstöðum 2, Mývatnssveit.
Áslaug Slggeirsdóttir,
Skaftahlíð 14, Reykjavík.
50ára
Garðar Karlsson,
Vesturfold 38, Reykjavík.
Jónínu Hjartardóttir,
Þingaseli 1, Reykjavík.
Heiga Jóhannsdóttir,
Sólheimum 23, Reykjavík.
Guðrún Jóhannsdóttir,
Heíðarbrún 10, Bolungarvík.
Þórður Kristinn Kristjánsson,
Heiðarbakka 6, Keflavík.
Kriktinn Ingvarsson,
Austurhlíð 2, Biskupstungna-
hreppi.
GarðarSigmundur Jónsson,
Höfðagrund4, Akranesi.
Sesselja Lúðviksdóttir,
Akurgerði 19, Reykjavík.
Arnbjörg Sigurðardóttir,
Blöndubakka 12, Reykjavík.
Haukur Hafsteinn Guðmunds-
son,
Hjarðarhaga 56, Reykjavík.
Carsten Jón Kristinsson,
Hjarðarholti 10, Akranesi.
Amfríður A. Sigurgeirsdóttir,
Sléttahrauni 34, Hafnarfirði.
Gunnar Karl Garðarsson,
Lönguhliö 6, Suðurfiaröahreppi.
Hrolfur Ólason,
■ Fífurima 12, Reykjavík.
Bridge
Bridgefélag Reykjavíkur
Nú er lokið tveimur kvöldum í aðaltvímenningi félagsins og baráttan
er hörð um efstu sæti. Sigurður Vilhjálmsson og Hrólfur Hjaltason náðu
forystunni með því að skora yfir 100 stig í síðustu tveimur umferðunum
á miðvikudaginn. Staða efstu para er þannig að loknum 15 tunferðum:
1. Sigurður Vilhjálmsson-Hrólfur Hjaltason 258
2. Esther Jakobsdóttir-Valgerður Kristjónsdóttir 247
3. Magnús Ólafsson-Guðmundur Sveinsson 219
4. Helgi Jónsson-Helgi Sigurðsson 209
5. Hermann Lárusson-Ólafur Lárusson 189
6. Símon Símonarsn-Sverrir Kristinsson 187
7. Guðmundur Eiríksson-Björgvin Þorsteinsson 172
7. ísak Öm Sigurðsson-Sigurður B. Þorsteinsson 172
Bridgefélag Barðstrendinga
Nú er lokið tveimur kvöldum af 5 í hraðsveitakeppni félagsins og hefur
sveit Sigurðar ísakssonar náð forystunni. Staða efstu sveita er þannig:
1. Sigurður ísaksson 1170
2. Þórarinn Ámason 1147
3. Kristinn Óskarsson 1125
4. Guðmundur Jónasson 1124
5. Ámi Magnússon 1076
Kauphallarmót BSÍ
Kauphallarmót Bridgesambands íslands verður haldið á Hótel Loftleiðum
helgina 5.-6. desember. Mótið hefst með uppboði á pörunum á föstudags-
kvöldið 4. desember klukkan 21 í sýningarsal Hótels Loftleiða. Verðbréfa-
markaður íslandsbanka mim síðan starfrækja kauphöll á staðnum og
gefst þar tækifæri á að fiárfesta í spilurunum. Spilaramir hafa forkaups-
rétt á 40% af því söluverði sem þeir spila í.
Kauphallarpotturinn skiptist síðan í verðlaun til spilaranna fyrir góða
sfióm á sínu fyrirtæki og eigenda paranna. Einnig era veitt umferðarverð-
laun til spilaranna. Miðað er við að 32 pör séu með í þessu móti en ef
fleiri skrá sig verður farið eftir meistarastigum. Spilaður er barómeter,
4 spil milli para og spilamennska hefst klukkan 13 laugardagjnn 5. desemb-
er. Þátttökugjald er krónur 10.000 á par og lágmarksboð í par er 10.000 kr.