Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1993, Qupperneq 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1993.
Fréttir
Mál 16 ára ofbeldismanns úr Árbæ til meðferðar hjá lögreglu og héraðsdómi:
Þrjú alvarleg líkams-
árásarmál á 4 ungmenni
- stöðugar kvartanir yfir þessum pilti, segir lögreglan í Breiðholti
Héraðsdómur Reykjavíkur og
lögreglustjóraembættið hafa til
meðferðar þrjú alvarleg ofbeldis-
mál, á hendur 16 ára piltiúr Árbæj-
arhverfi sem rnjög hefur verið
kvartað yfir til lögreglu á undanf-
ömum mánuðum. Hér er um að
ræða talsvert alvarlegar líkamsá-
rásir á ungmenni á svipuðum aldri
og árásarmaðurinn.
Að sögn lögreglunnar í Breiðholti
er stöðugt verið að kvarta yfir
umræddum pilti á lögreglustöðinni
en lítil úrræði virðast vera fyrir
hendi í kerfinu tíl að taka á máíinu
með viðeigandi hætti. Kvartanim-
ar hafa borist frá börnum og ungl-
ingum í Árbæjarhverfi, svo og frá
ýmsum foreldrum. Mál tengd pilt-
inum hafa borist tl Félagsmála-
stofnunar, forvamadeildar lögregl-
unnar, skólasálfræðinga og Stíga-
móta, m.a. vegna. kvartana um
kynferðislegt ofbeldi.
Þann 18. september lenti um-
ræddur piltur í áflogum við tvo 14
og 15 ára pilta í Álakvísl. Annan
þeirra þurfti að flyija á brott með
sjúkrabíl og þurfti meðal annars
aðgerð til að laga annað auga hans.
Fyrir um einu ári var umræddur
pUtur einnig kærður, þá fyrir að
hafa barið með hnefanum í andht
stúlku og hélt hann á hamri í lófan-
um. Við svo búið var hann sagður
hafa sest ofan á stúlkuna og haldið
áfram að láta högg dynja á henni.
Vegna þessara tveggja mála
ákæröi lögreglustjóraembættið
sjálft piltinn fyrir brot á 217. grein
almennra hegningarlaga. Héraðs-
dómari í Reykjavík sem fékk máhð
nýlega tfi meðferðar taldi þá grein
hins vegar ekki vera í samræmi við
alvarleika meintra brota pUtsins.
Hann taldi aö heimfæra hefði átt
brotin við 218. grein - alvarleg hk-
amsárás - en við henni eru strang-
ari viðurlög. Þessu tækniatriði var
skotið til Hæstaréttar. Svo getur
farið, samkvæmt upplýsingum DV,
að ríkissaksóknaraembættið fái
máhð tU sín. Aðeins það embætti
hefur heimUd tU að ákæra fyrir
brot sem varða við 218. greinina,
það er hin alvarlegri sakamál.
Lögreglustjóraembættið hefur
auk framangreindra mála tU með-
ferðar kæru á hendur sama pUti
vegna atviks sem átti sér stað í
heimahúsi fyrir nokkrum vikum.
Þar er hann kærður fyrir að hafa
lamið pUt í höfuðið með rörbút.
Líklegt er að það mál verði einnig
afgreittbráðlega. -ÓTT
Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda, og Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtak-
anna, á fundinum í gær. DV-mynd Brynjar Gauti
Bændur mótmæla skertum endurgreiöslum á vaski:
Aðgerðin er óþolandi
og kallar á stríð
- segir Halldór Gunnarsson, formaöur Félags hrossabænda
„Bændur hafa verið tilbúnir til að
takast á við nýja tíma og gangast
undir óskaplegan niðurskurð. Þessi
aðgerð ríkisstjómarinnar er hins
vegar óþolandi og kaUar á stríð. Hún
mismunar búgreinum og gerir í raun
þeim sem standa utan búvörusamn-
ings ókleift að starfa áfrarn," segir
HaUdór Gunnarsson, formaður Fé-
lags hrossabænda.
Akvörðun ríkisstjómarinnar um
skertar endurgreiðslur virðisauka-
skatts tU framleiðenda eggja, kjúkl-
inga, svínakjöts og nautakjöts hefur
mætt harðri andspymu meðal
bænda. Alls er skerðingin um 250
mUljónir eða tæp 65 prósent og segj-
ast bændur neyðast til að velta áhrif-
unum út í verðlag.
Bein afleiðing þessa er að naut-
gripakjöt mun hækka um 14 prósent
en framleiðendur eggja og kjúklinga
ætla að hluta til að taka hækkunina
á sig. Egg hækka um 5 prósent og
kjúklingar um tæp 10 prósent. í vik-
unni munu svínaframleiðendur taka
ákvörðim um hækkun og er búist við
að hún verði rétt innan við 10 pró-
sent.
Á blaðamannafundi í gær kröfðust
fuUtrúar bænda þess að ríkisstjómin
tæki upp viðræður við Stéttarsam-
band bænda um að tekin verði upp
lægri virðisaukaskattur á landbún-
aðarafurðum. Nær óþekkt væri í
nágrannalöndum að matvæli væm í
hæsta skattþrepinu. Auk HaUdórs
sátu fundinn fuhtrúar kúabænda,
kjúklingabænda, eggjabænda og
svínaframleiöenda, Stéttarsambands
bænda og Neytendasamtakanna.
Á fundinum sagði Haukur HaU-
dórsson, formaður Stéttarsambands-
ins, að vel kæmi tU greina að endur;
skoða gUdandi búvörusamning. Á
hinn bóginn væri erfiðleikum bundið
að afnema mismunum milh búgreina
enda hvUdi búvörusamningurinn á
búvörulögum.
Af hálfu Halldórs Gunnarssonar
kom hins vegar fram krafa um að
allrimismun verði hætt. í stað bein-
greiðslna til sauðfjárbænda og
mjólkurframleiðenda komi byggðar-
styrkir sem alhr bændur hafi rétt tíl.
-kaa
Enn stef nir í málþóf í EES-málinu
AUt bendir til að Alþingi eigi eftir
aö ræða EES-málið og sjávarútvegs-
samninginn í einhverja daga tU við-
bótar. Þegar Alþingi kom saman á
ný í gærdag, eftir hlé um jól og ára-
mót, var framhaldið annarri um-
ræðu um EES. Margir stjómarand-
stæðingar eru á mælendaskrá.
Þegar rætt er við stjómarandstöðu-
þingmenn segja þeir að máhð sé ekki
nóg rætt og sama sé að segja um sjáv-
arútvegssamninginn, hann sé gallað-
ur og krefjist talsverðrar umræðu.
Stjómarþingmenn og ráðherrar em
annarrar skoðunar. AUt bendir tíl
að þessi mál verði á dagskrá næstu
daga.
Finnur Ingólfsson, þingmaður
Framsóknarílokksins í Reykjavík,
lýsti því yfir í ræðu á Alþingi í gær
að hann ætlaði að sitja hjá þegar
Alþingi afgreiðir EES-samninginn.
Finnur er þriðji þingmaður Fram-
sóknar sem lýsir yfir að hann æth
ekki að greiða atkvæði, áður höfðu
HaUdór Ásgrimsson og Jón Kristj-
ánssonlýstþvísamayfir. -sme
Björgunarmenn fara fram á kyrrsetningu flutningaskips:
Lögreglan á ísafirði
gætir Eriks Boye
- skipið fari ekki nema 10 milljóna trygging verði sett
Lögreglan á Isafirði hefur verið
beðin um að gæta þess aö flutninga-
skipið Erik Boye láti ekki úr höfn
þar vestra vegna beiðni sem komið
hefur tU sýslumanns um kyrrsetn-
ingu skipsins. Breiðdalshreppur og
fleiri aðUar á Austurlandi hafa farið
fram á að skipið verði kyrrsett á
ísafirði vegna vangoldinna björgun-
arlauna. Skipinu var bjargað af
strandstað við Breiðdalsvík á síðasta
ári.
Fyrirmæh hafa verið gefin um aö
skipið láti ekki úr höfn nema með
samþykki þeirra aðUa sem telja sig
eiga björgunarlaun hjá eigendum
Eriks Boye - eha verði 10 miUjóna
króna trygging sett sem geröarbeiö-
endur hafa krafist.
Að sögn Ólafs Helga Kjartansson-
ar, sýslumanns á ísafirði, verður tek-
in afstaða til kyrrsetningarbeiðninn-
ar á morgun, miðvikudag. Kyrrsetn-
ing er bráðabirgðagerö til að tryggja
þá fjármuni sem krafa hefur verið
gerð um vegna greiðslu björgunar-
launa.
Ef og þegar ákvörðun hefúr veriö
tekin um kyrrsetningu skipsins
verða gerðarbeiðendur síöan að fara
í svokahað staðfestingarmál - til að
fá kyrrsetninguna staðfesta. Þá mun
dómstóU, væntanlega á Austurlandi,
skera úr um réttmæti kröfunnar, það
er hvort björgunarmenn eiga „sjó-
veð“ í skipinu eða ekki. Falli síðan
dómur að lokum þeim í hag eiga
kröfuhafar möguleika á aö biðja um
uppboð á skipinu fyrir þeim björgun-
ariaunum sem farið er fram á.
Kyrrsetningarmáhð var tekið fyrir
hjá sýslumanni á gamlársdag en
ákvörðun í máhnu var frestað tU
morgundagsins. TU stendur að draga
Erik Boye tU Siglufjarðar af hálfu
eigenda. -ÓTT
Landsbankinn liklega rekinn meö tapi 1992:
Afskrifar yf ir 100
milljónir á mánuði
- verið aö flnna leiðir til að fækka um 200 manns
„Ymsar hagræðingaraðgerðir eiga
að geta skUað því að hægt sé að
fækka um 200 manns en hvemig
verður farið að og á hvað löngum
tíma Uggur ekki alveg fyrir. í þá hluti
á að fara í bankastjóminni nú á
næstunni og hugmyndir eiga að
hggja fyrir í lok mánaðarins," segir
Brynjólfur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbankans.
Brynjólfur sagði ekkert hggja fyrir
um uppsagnir en erfitt væri þó að
útUoka það. Mestur áhugi væri á því
meðal stjómenda bankans aö fara
þess á leit við fólk að það minnki við
sig vinnu og ætti það sérstaklega við
um útibú á landsbyggðinni. Brynjólf-
ur sagði að tekist hefði aö fækka
stöðugUdum á þessu ári.en það væri
þó miklu minna en stjómendur
Landsbankans heíðu vUjað.
Nýjar reglur um eiginfiárhlutfall
banka- og sparisjóða sem taka aukið
tilUt tU áhættuflokkunar útlána
koma frekar Ula viö Landsbankann
og bankinn hefur nú fengið 1.250
mihjóna víkjandi lán hjá Seðlabank-
anum tíl að uppfyha þessar nýju regl-
ur um 8% eigið fé. 65 th 70% útlána
Landsbankans eru við fyrirtæki
tengd sjávarútvegi.
Brynjólfur sagði ljóst að afskriftir
hefðu numið að minnsta kosti 100
mihjónum á mánuði af útlánum síð-
ustu tvö árin. Útht væri fyrir að
bankinn yrði rekinn með nokkru
tapi árið 1992 en 1991 var bankinn
rekinn með 53 mihjóna hagnaði og
hagnaöurinn 1990 var 58,8 mUljónir.
-Ari
Skátar í Kópavogi:
Þrettándagleði þrátt fyrir íkveikju
„Við erum búin að útbúa 500
kindla og ætlum að safna í nýja
brennu. Þrettándinn verður þvi
dansaður út þrátt fyrir að kveikt
hafi verið í brennunni okkar,“ segir
Guðrún Adolfsdóttir.
í frétt DV í gær vom leiddar hkur
að því aö ekki yrði dansað á þrettánd-
anum í Kópavogi þar sem kveikt
hafði verið í brennu skáta við Snæ-
landsskóla. Skátamir em hins vegar
ekki á því að gefast upp og æfia að
kveikja sinn eld, rétt eins og upphaf-
legavarráðgert. -kaa