Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1993, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1993, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1993. Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÚNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Svei þeim Sameinuðu Oft hafa Sameinuðu þjóðirnar gengið í berhögg við eigin grundvallarforsendur 1 stofnskrá og sáttmála sín- um. Einkum fóru þær út af sporinu, þegar þar ríkti öflugt bandalag harðstjóra Austur-Evrópu, íslams og þriðja heimsins, sem virtu forsendurnar að vettugi. Nú er stjórnkerfi Austur-Evrópu hrunið til grunna og harðstjórar þriðja heimsins geta ekki lengur teflt saman heimsveldunum. Því hafa grundvallarforsendur Sameinuðu þjóðanna eflzt nokkuð, svo sem fram kom í Persaflóastríði og hemaðaraðgerðum í Sómalíu. Framkoma Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í árás- arstríði Serba gegn Bosníumönnum og öðmm Balkan- þjóðum stríðir gegnþessari þróun í átt til stofnskrárinn- ar og sáttmálans. Obeint hafa sáttatilraunir og aðrar aðgerðir af hálfu þess stutt landvinningastefnu Serba. Hrapallegar eru tillögur frá Cyrus Vance og David Owen, sáttasemjurum Sameinuðu þjóðanna, sem lagðar voru fyrir sáttafund deiluaðila í Genf um helgina. Þar var gert ráð fyrir skiptingu Bosníu í sjálfstjórnarsýslur, sem aðeins að formi til lúti landsstjórn í Sarajevo. Með tillögu þessari var 1 fyrsta lagi verið að tilkynna öllum þjóðum og þjóðabrotum, sem telja sig eiga harma að hefna í Austur-Evrópu, að það borgi sig að feta í fót- spor Serba og hefja blóðuga þjóðahreinsun að þeirra hætti. Sameinuðu þjóðirnar muni blessa niðurstöðuna. í öðru lagi er verið að tilkynna upprennandi ofbeldis- mönnum í Austur-Evrópu, að Sameinuðu þjóðirnar muni láta kyrrt liggja, þótt óbreyttir borgarar séu myrt- ir tugþúsundum saman og konum sé nauðgað tugþús- undum saman í þágu hugsjóna á borð við Stór-Serbíu. Áður hafði Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna stutt við bakið á morðsveitum Serba með vopnasölubanni, er einkum kom i veg fyrir, að Bosníumenn gætu varið hendur sínar gegn herflokkum, sem voru og eru vel vopnum búnir frá Serbíu. Það bann gildir enn. Enginn samningur um Bosníu er neins virði, nema hann geri ráð fyrir, hvernig tekið verði á stríðsglæpa- mönnum Serba, sem skipta þúsundum, allt frá Slobodan Milosevic niður í villidýrin í byggðum Bosníu. Þetta eru einir mestu stríðsglæpir aldarinnar í Evrópu. Verið er að kortleggja þessa glæpi og eru nöfn margra verstu glæpamannanna þegar kunn. Það er út í hött, að Sameinuðu þjóðimar geti í kjölfarið haldið sáttafund í Genf, án þess að meðferð þessara glæpa skipi þar verð- ugan sess, öllum sporgöngumönnum til viðvörunar. Ekki er hægt að afsaka framgöngu Vance og Owens með því, að eitt séu góðviljuð mannréttindi og annað séu takmarkaðir möguleikar stöðunnar. Veraldarsaga síðustu áratuga sýnir einmitt ljóslega, að hagkvæmnis- sjónarmið af því tagi hefna sín fyrr eða síðar. Við horfumst í augu við, að Boris Jeltsín Rússlands- forseti riðar til falls í Moskvu og að þar em harðlínu- menn að komast til aukinna áhrifa. Sumir áhrifamenn í þeim hópi hafa opinberlega hótað öllu illu, svo sem að flytja íbúa Eystrasaltsríkjanna nauðuga til Síberíu. Arftakaríki Sovétríkjanna em hafsjór slíkra þjóðem- isvandamála._ Azerar og Armenar heyja styrjöld. Borg- arastyrjaldir geisa í Georgíu og Tadzhíkistan. Rússar seilast til áhrifa í Moldavíu og víðar. Til vopnaðra þjóð- emisátaka hefur komið í tugum annarra tilvika. Sameinuðu þjóðimar magna vandræði sín í framtíð- inni, ef þau gefa fordæmi á borð við tillögurnar, sem Vance og Owen lögðu fram í Genf um helgina. Jónas Kristjánsson „íbúð á ekki að kaupa fyrir lánsfé eingöngu," segir m.a. í grein Stefáns. Húsnæðiskaupendur: Ábendingar í ársbyrjun Á komandi ári má vænta sam- dráttar á fasteignamarkaði. Hús- næðiskaupendur eiga því að gefa sér góðan tíma. í ársbyrjun er þó oftast þensla en undir vorið er markaðurinn rólegri. Húsnæðis- kaupendur þurfa að geta lagt fram í reiðufé 15% af kaupverði, greitt skammtímalán upp á 5-6 árum og greiðslubyrði langtímalána má ekki vera hærri en 15-17% af brúttótekjum. Fólk tekur áhættu við fasteigna- kaup því stjórnmálamenn breyta stöðugt efnahagslegum forsendum kaupanna. - Varasamt er því að reikna með óbreyttmn vaxtabót- um. Gefa sér góðan tíma Árið 1993 verður samdráttur á húsnæðismarkaði. Samdráttar gætti á hðnu ári. Litlar íbúöir voru dýrar samanborið við stærri og sölum fækkaði. Samt lækkaði verð ekki. Samdrátturinn mun líklega halda áfram og verð á ákveðnum Ilokkum íbúða lækka. í janúar og febrúar gætir þó ætíð þenslu. Fólk ætti þá að fara sér hægt því undir vorið verður markaðurinn rólegri. Ef verð lækkar er sennilegt að það komi fram í apríl eða mai. Húsnæðiskaupendur eiga reyndar alltaf að gefa sér góðan tíma. Hinir bráðlátu greiða oftast hærra verð en eðlilegt er. Kaupendur fá nú kaupgetu sína metna áður en kaup fara fram. Greiðslumat banka og Húsnæðisstofnunar er að mörgu leyti ágætt en er þó staðlað og óper- sónulegt. Fólk með opinbert greiðslumat hefur oft lent í greiðsluerfiðleikum. Mikilvægt er að húsnæðiskaup- endur myndi sér sjálfir skoöun á því hversu dýrar eignir þeir ráði við og skilji forsendur greiöslu- matsins. Við matið skipta eigið fé, langtímalán, skammtímalán og fjölskyldutekjur mestu. KjaUarinn Stefán Ingólfsson verkfræðingur ast bankalán. Þau eru dýr því þeim er yfirleitt velt í nokkur ár með töku nýrra. Kaupendur mega ekki taka hærri skammtímalán en að þeir geti greitt þau upp á 5-6 árum. Langtímalán eru aðahega hús- bréfalán, verðtryggð 25 ára lán meö jöfnum árlegum greiðslum. Kaup- endur þurfa árlega sömu fjárhæð verðtryggða af langtímalánum í aldarfjórðung. Greiðslubyrði þeirra ætti þess vegna ekki aö vera hærri en 15-17% af brúttótekjum. Ótryggar forsendur Húsnæðiskaupum fylgir óvissa sem stjómmálamenn hafa skapað. Þeir breyta sífellt forsendum hús- næðiskaupa svo erfitt er fyrir fjöl- skyldur að skipuleggja fjármál sín. Fyrir fáum árum voru til dæmis „Mikilvægt er að húsnæðiskaupendur myndi sér sjálfir skoðun á því hversu dýrar eignir þeir ráði við og skilji for- sendur greiðslumatsins.“ Fjármál-tekjur íbúð á ekki að kaupa fyrir lánsfé eingöngu. Kaupendur þurfa aö geta lagt fram ekki minna en 15% af kaupverði. Ungu fólki sem leggur lítið eigið fé í íbúð er mjög hætt ef út af ber. Afborganir og vexti af lánum greiðir fólk af launum sín- um. Erlendis er tahð að fjölskyldur með miðlungstekjur geti varið allt að 25% af brúttótekjum til greiðslu af húsnæðislánum. Þá er miðað við óverðtryggð lán og 10% útborgun. Aðstæður hér eru flóknari. Langtímalán eru lægri og verð- tryggð og útborgun há. Við hús- næðiskaup þarf ungt fólk þess vegna að taka skammtímalán, oft- teknar upp vaxtabætur í stað þess að greiða niður vexti af húsnæöis- lánum. - Fólk var fullvissaö um að vaxtabæturnar mundu breytast í samræmi við verðhækkanir. Stjómmálamenn hafa hins vegar stöðugt lækkað bætumar og breytt forsendum þúsunda húsnæðis- kaupenda. Skhningur þeirra á þess- um mikhvægu hagsmunamálum heimhanna skánar htið. Fólk tekur þess vegna áhættu þegar þaö festir sér íbúð. Opinber aðstoð við hús- næðiskaupendur getur minnkað þegar síst skyldi eins og dæmin sanna. Þess vegna er óvarlegt að reikna með óbreyttum vaxtabótum. Stefán Ingólfsson Skoðanir armarra Fræðslumiðstöð í sjávarútvegi „Eitt af fáum sviðum þar sem íslendingar eru sterkir er sjávarútvegur. í tengslum við hann starfar fjölbreyttur iðnaður og þjónusta. Þarna em nokkuð augljósir möguleikar tíl eflingar viðkomandi at- vinnugrein ef rétt er á málum haldið. Hér á landi er rekinn Jarðhitaskóli Sameinuöu þjóðanna með myndarbrag. Hvers vegna er leikurinn ekki endur- tekinn á sviði sjávarútvegs? Væri ekki, með skipu- lagsvinnu en litlum thkostnaði, unnt að setja á lagg- imar einfalt og skhvirkt kerfi tíl miðlunar á þekk- ingu okkar th þjóða, sem eru skemur á veg komnar í sjávarútvegi? Það gætí verið eins konar fræðslu- miðstöð í tengslum við opinbera sem einkaaðha og helst einnig alþjóðlegar stofnanir. “ Gunnar Svavarsson form. Félags ísk iðnrekenda í Mbl. 31. des. Spáð í spilin „Það verður mikið um hvers konar spástefnur strax í ársbyrjun og ýmsar niðurstöður verða kynnt- ar þjóðinni að þeim loknum. Þjóðhagástofnun mun fljótlega á nýju ári birta eina þeirra. Ekki mun spá hennar reynast trúverðug þar sem hún mun enn halda sig við að gengið verið svo tíl óbreytt og að laun haldist í nokkru jafnvægi, hækki lítíð sem ekk- ert... í þessum spám verður ekki tekið mið af því að ríkisfjármálin sæta ekki þeim aga sem nauðsyn- legur er og margt mun verða farið úr böndunum á vordögum sem í árslok var taliö fastmælum bundið. Verðbólgan er eitt þeirra atriða sem heldur betur verður misvísandi í þessum spám. - Ég sé verðbólg- una nefnilega verða í kringum 14% þegai- dregur að næstu áramótum og þykir það sumum vel sloppið." Úr Völvuspá Vikunnar 1993

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.