Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1993, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1993, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1993. Viðskjpti______________________________________ Fisksala í Bretlandi: Verðlækkun eftir jólin Aðeins var selt úr gámum í Bret- landi í einn dag í síðustu viku, enda voru margir frídagar. Þann 29. des- ember seldust samtals 312 tonn. Rúmlega 159 tonn fóru af þorski, 69 tonn af ýsu, 26 tonn af ufsa, 7 tonn af karfa, sjö af kola og 43 tonn voru blandaður afli. Meðalverðið var lágt en mjög gott verð hefur fengist síðustu vikur og mánuði. Meðalverð aflans í heild var aðeins um 92 krónur kílóið. Sölu- verðmætið var tæpar 30 miUjónir. Meðalkílóverðið fyrir ýsu var 110 krónur en til samanburðar var það 203 krónur fyrir hálfum mánuði. Otto N. Þorláksson. 250 Gámasölur í Bretlandi meðalverð í öllum löndunarhöfnum síðastliðinn mánuð - | Þorskur □ Ýsa □ Ufsi H Karfi 30/9-3/12 7.-10/12 14.-18/12 21.-24/12 29/12 Þorskverðið var 96 krórtur en hafði veriö 175 krónur. Karfinn hefur hrapað frá 112 krónum í 49 krónur og kílóverð ufsa lækkaði um tæplega 30 krónur og er nú 58 krónur. Otto N. Þorláksson var eina skipið sem landaði í Þýskalandi í vikunni sem leið. Alls fóru 119 tonn og sölu- verðið var um níu milljónir. Meðal- kílóverð aflans var 75,39 krónur. Otto N. seldi fyrst og fremst karfa og ufsa í Bremerhaven og sæmilegt verð fékkst fyrir báðar tegundir, 98 krón- ur fyrir ufsakílóið og 78 krónur fyrir karfakílóið. -Ari Fiskmarkaðir: Viðskipti í lágmarki Aðeins voru viðskipti í tvo daga á fiskmörkuðum landsins í síðustu viku. Báða dagana seldist mjög lítið og verðið var lélegt. Viðskipti fóru aðeins fram á nokkrum mörkuðum og alls seldust ekki nema um 80 tonn. Verðið lækkaði einnig verulega en það hefur farið hratt niður á við í desember. Nú var þorskkílóið að meðaltali á 90,68 krónur sem er sex krónur niður á við milli vikna. Verð- ið á karfanum er enn lágt eða aöeins um 36 krónur kílóið og ufsaveröið hefur ekki verið svo lágt lengi eða rúmar 30 krónur kílóið. Ýsuverðið er hins vegar ágætt og hækkaði nokkuð milli vikna. Kílóið var að jafnaði á 116 krónur. Mikil eftirspum var eftir ýsimni ailan des- embermánuö. -Ari EB fær að veiða 6000 tonn af þorski í norskri landhelgi Samkomulag hefur orðið mn að EB-skip fái heimild til að veiða 6000 tonn af þorski og 1500 tonn af ufsa í landhelgi Noregs. Á móti kemur heimild fyrir norsk skip að veiða innan fiskveiðilögsögu EB eftirtalinn afla: Af grálúðu má veiða 1700 tonn, af ufsa má veiða 1000 tonn og 5000 tonn af hestamakríl, 500 tonn af ískóði og 2000 tonn af blönd- uðum afla. Auk þessa er í samningn- um ákvæði um að aukinn afli skuli verða 2,9% á ári fram tíl 1997 en þá verður þorskaflinn hjá EB-þjóðunum 11.000 tonn. Með þessum samningi virðist sem nú sé búið að marka þá stefnu sem hugsanlega verður til frambúðar. Norska stjómin hefur aukiö 3700 tonnum við kvóta smærri skipanna og kemur það niður á kvóta stærri skipa. Tveir peningapokar AUs vom 16.534 norskir sjómenn lögskráðir á norska kaupskipaflot- ann árið 1991 en á sama tíma vom erlendir sjómenn skráðir alls 23.520 á flotann. Útgerðin reiknar með að þurfa á næstu árum 1000 nýja yfir- menn menntaða til yfirmannastarfa á þann hluta flotans sem skráður er í Noregi. Erfitt hefur reynst að ná samkomulagi við ríkistjómina um að ríkið liðki fyrir því að unglingar fari til sjós og athugi hvort hugur þeirra stendur til sjósóknar. Mikið atvinnuleysi er hjá ungu fólki og allt verður að reyna til að það fái vinnu. Norskur skipaiðnaður hefur um 25.000 manns í sinni þjónustu en skipasmíðastöðvamar em dreifðar um alla ströndina og munu vera um 50 auk 150 undirverktaka. Forráða- menn skipasmíðastöðvanna segja að mikil verkefni tapist vegna skiln- ingsleysis ráðamanna í ríkisstjóm og telja að þetta ástand megi ekki vara. Hverjir vita mest um fiskinn í hafinu? Fundur fiskifræðinga og fiski- manna var haldinn í Álasundi ný- lega. I upphafi fundar bað formaður fiskimanna blaðamenn að taka vel eftir þegar fiskifræðingurinn Odd Nakken veitti þeim aflausn á að hafa eytt fiskistofnimum í Barentshafi. Sagði hann að fiskimenn í Norður- Noregi hefðu legið undir því ámm saman aö hafa eytt fiskinum í Bar- entshafi en nú hefði fengist viður- kennt aö annað hefði gerst með fiski- stofnana, þar hefði náttúran verið að verki. Fiskifræðingurinn Odd Nakken ætlaði eins og svo oft áður að ræða um ástand fiskistofna í Barentshafi en komst lítið áfram í ræðu sinni vegna fyrirspuma frá fundarmönn- um. Miídl ólga var á fundinum og létu menn óspart í sér heyra vegna óánægju sinnar með störf fiskifræð- inganna og sögðu meðal annars að ótækt væri að svo fámennur hópur eins og fiskifræðingar væri látinn skanunta mönnum lifibrauö án þess að taka minnsta tillit til álits þeirra sem á miðunum væm. í ræðu Odd Nakken kom fram, eins og svo oft áður, að hann teldi að hrygningar- stofninn þyrfti að vera aö minnsta kosti 500.000 tonn til þess aö halda við eðlilegum fiskistofni. Heildarstofnstærð taldi hann þurfa að vera 1,7 millj. tonna. Hæfilegt taldi hann að veiða um 30-35% af stofn- stærðinni eða um 500.000 tonn. Fram kom í ræðu hans að hann teldi ís- lenska fiskifræðinga á villigötum með það álit sitt að óhætt væri að veiða 40% úr stofninum. Taldi hann nauðsynlegt að vernda alla fiski- stofna, sem í hafinu væm, þó taldi hann það mismunandi erfitt. Um síldina sagði hann að veiða ætti 15-20% af stofninum ef menn vildu halda honum í góðu horfi, ann- að væri með loðnuna, þar væri erfitt um vik, því óvíst væri hvað þorsk- stofninn tæki mikið á næstu árum. Talið er að síldarstofninn sé nú 5-7 millj. tonna og ætti að vera óhætt að veiða á næstu ámm 0,8-1,1 millj. tonna. Menn vom óánægðir með hvað Rússar veiddu mikiö og væri mikil óvissa um veiðar þeirra al- mennt, en rússneskur floti, sem sfimdar rækjuveiðar við Svalbarða, hlítir ekki sömu reglum og Norð- menn verða að gera varðandi veið- ina. Telja norskir sjómenn að Rússar moki þar upp þorskseiðum á fyrsta og öðra ári og muni slík hafa alvar- legar afleiðingar. Nýtt ár er hafið A síðasta ári aflaöist 51% meira en árið 1990 og varð aflinn yfir 1,5 millj- ónir lesta. Afli varð einn sá mesti sem um getur í fiskveiðisögu landsins, en verðmætið varð ekki eins mikið og magnið gæti sagt til um. Þetta sýnir okkur að ekki er allt fengið með afla- magninu, heldur hvað fæst fyrir afl- ann. Eins og lengi hefur verið vitað er nauðsynlegt að breyta aöalat- vinnuvegi okkar úr því að afla hrá- efnis í að framleiða matvæli. Vinna þarf matvæli úr því góða hráefni, sem við. eigum kost á, ef vel er á málum haldið. Það virðist svo að augu manna séu að opnast fyrir nauðsyn þess að fullvinna það góða hráefni sem í boði er. Með tilkomu frystitogaranna gefst gott tækifæri til að gera þann dram að veruleika. Kannski verða hinir umdeildu frysti- togarar til að auðvelda okkur leiðina að því marki sem hér hefur verið rætt um. Ekki er ástæða til að leggjast í þunglyndi fyrir þjóð sem á svo margt ógert. Verkefhin bíða og margar vinnufúsar hendur era til ef rétt er á málum haldið. SS stendur jám í jám. Það em uppi misvisandí túlkanir milli lögraanna um það hvort SS sé heimilt að kreflast greiðslu í stofnsjóð gegn því að taka gripi til slátrunar. Ég veit ekki til þess að einstakir framleiðendur hafi ákveðið að fara í mál við SS en nokkrir hafa hugieitt það. Frum- kvæði af okkar hálfu er hins veg- ar ekki til umræðu,“ segír Guð- mundur Lárusson, formaður Landssambands kúabænda. DV greindi frá því siðastliðið haust að SS neyddi nautgripa- bændur til að kaupa bréf í B- stofnsjóðí félagsins til aö vera öruggir um slátmn. í upphafi voru bændur krafðir um fjórðung afurðaverös en nú hefur krafan verið lækkuð í 15 prósent. Alls stefnir SS að því að auka eigiö fé fyrirtækisins um 50 milljónir með þessum aðgerðum. Að sögn Guðmundar veita auknar greiðslur nautgripa- bænda í sjóðinn þeim ekki nein réttindi umft-am þau sem þeir hafa fyrir. Ljóst sé að þeir muni ekki geta sótt þessa peninga til baka. Á hinn bóginn geti bænd- umir hugsaniega vænst forgangs í arögreiðslur komi á annað borð til þeirra í framtíðinni. -kaa F iskmarkaðirrár Faxamarkaður 4. janúsr seldust alls 26,281 tonn. Magn í Verð í krónum tonnum Meóal Lægsta Hæsta Blandað 0,041 49,00 49,00 49,00 Þorskur, sl. 11,753 435,00 435,00 435,00 Þorskflök 0,015 170,00 170,00 170,00 Þorskur, ósl. 0,478 74,88 50,00 105,00 Undirmálsfiskur 3,370 81,86 36,00 85,00 Ýsa, sl. 8,027 118,76 109,00 138,00 Ýsuflök 0,042 170,00 170,00 170,00 Ýsa, ósl. 2.550 104,42 87,00 135,00 Fiskmarkaður Hafnarfjarðar 4. janúar sqldust alls 7,785 tonn. Þorskur, ósl. 0,076 81,00 81,00 81,00 Ýsa, ósl. 2,090 105,75 104,00 107.00 Þorskur 0,423 103,00 103,00 103,00 Ýsa 5,179 120,90 116,00 123.00 Smáýsa 0,020 30,00 30,00 30,00 Fiskmarkaður Breiðafjarðar 4. janúar aaldust alls 21,967 tomt. Þorskur, sl. 11,771 110,11 101,00 111,00 Þorskur, ósl. 4,300 96,37 96,00 100,00 Undirmálsþ. sl. 1,321 83,00 83.00 83,00 Undirmálsþ. ósl. 0,150 69,00 69,00 69,00 Ýsa, sl. 2,629 129,51 45.00 135,00 Ýsa, ósl. 0.800 122,87 121,00 124,00 Karfi, ósl. 0,010 29,00 29,00 29,00 Langa, sl. 0,064 61,00 61,00 61,00 Keila, ósl. 0,445 25,00 25,00 25,00 Steinbítur, sl. 0,162 72,00 72,00 72,00 Steinbítur, ósl. 0,056 62,00 62,00 62,00 Hlýri, sl. 0,020 72,00 72,00 72,00 Gellur 0.223 250,00 250,00 250,00 Fiskmarkaður Suðumesja 4. janúar seldnst alls 38.361 tonn Þorskur, ósl. 33,150 87,92 65,00 100,00 Ýsa, ósl. 4,250 127,78 113,00 138,00 Ufsi.ósl. 0,020 15,00 15,00 15,00 Keila 0,300 38,00 38,00 38,00 Lúða 0,015 80,00 80,00 80,00 Undirmálsþ. 0,626 71,47 56,00 78,00 Fiskmarkaður Akraness 4. jönúar seldust alls 2.484 tónn. Steinbítur, ósi. 0,015 89,00 89,00 89,00 Þorskur.sl. 0,540 85,72 50,00 10500 Þorskur.ósl. 1,120 74,00 74,00 74 00 Undirmálsf. 0,177 64,35 50,00 70.00 Ýsa.sl. 0,506 130,94 120,00 135,00 Ýsa.ósl. 0,126 108,00 108,00 108,00 Fiskmarkaður Vestmannaeyja 4. jgnúar seWttft aits 6,664 tonrt Þorskur, sl. Ufsi, sl 4,008 1,656 102,51 42,00 94,00 112.00 42.00 42.00 Fiskmarkaður 4J iqnn. aorskur, sl. 4,726 96,47 95,00 97,00 Ýsa, sl. 0,063 101,00 101,00 101.00 Jfsi.sl. 0,500 31,00 31,00 31,00 <arfi, sl. 0,200 34,00 34,00 34,00 Steinbítur, sl. 0,060 64,00 64,00 64,00 -úöa, sl. 0,055 183,18 100.0C 250,00 Skarkoli.sl. 0,200 81,00 81,00 81,00 Undirmálsþ. sl. 1,839 72,00 72,00 72,00 Undirmý., sl. 0,056 50,00 50,00 50,00 Karfi, ósl. 0,017 34,00 34,00 34,00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.