Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1993, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1993, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1993. Grensássöfnuður I tilefni af yfirstandandi kynningu á tillögum aö kirkju- byggingu fyrir Grensássöfnuð, sbr. auglýsingu Borg- arskipulags Reykjavíkur, er boðað til almenns safnað- arfundar í Grensáskirkju nk. laugardag þann 9. þ.m. kl. 13.00. Á fundinum verða nefndar tillögur kynntar sóknar- mönnum. Sóknarnefnd TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINSq? Handhafar fríkorta, athugið Fríkort vegna læknisþjónustu, gefin út 1992, eru fallin úr gildi. Tryggingastofnun ríkisins NUDDSTÖÐIN STÓRHÖFÐA17, SÍMI682577 BJÓÐUM UPPÁ líkamsnudd, svæðanudd, slökunarnudd, sænskt nudd, vítamínsgreiningu, tryggerpunktameðferð og acutpunktameðferð án nála. Erum einnig með trimmform 10% afsláttur á 10 tíma kortum til 15. janúar. 20% afsláttur af fyrsta tíma í nuddi. Opið 9-18 virka daga. Valgeröur Stefánsdóttir nuddfræöingur Gestaíbúðin Villa Bergshyddan í Stokkhólmi íbúðin (3 herbergi og eldhús í endurbyggðu 18. ald- ar húsi) er léð án endurgjalds, þeim sem fást við list- ir og önnur menningarstörf í Helsingfors, Kaup- mannahöfn, Ósló eða Reykjavík, til dvalar á tímabil- inu 15. apríl til 1. nóvember 1993. Umsóknir um dvöl í Villa Bergshyddan, þar sem fram komi tilgangur dvalarinnar og hvaða tíma sé óskað, svo og upplýsingar um umsækjanda, skal senda til Hásselby Slot, Box 520, S-162 15 Vállingby, fyrir 28. febrúar nk. Ekki eru notuð sérstök umsóknareyðublöð. Nánari upplýsingar fást hjá skrifstofu borgarstjóra, sími 632000. Landsnefnd um alnæmisvarnir efnirtil samkeppni um ritun einþáttungs fyrir leiksvið Efni: Verkið skal á einhvern hátt fjalla um alnæmi. Umfang og lengd: Gera skal ráð fyrir að unnt verði að sýna verk- ið t.a.m. i skólum og á vinnustöðum og taki 20-40 minútur i flutningi. Úllum er heimil þátttaka. Verðlaun: Veitt verða verðlaun að upphæð kr. 250.000. Dómnefnd áskilur sér rétt til að láta verðlaunaupphæð renna óskipta til eins höfundar, skipta verðlaunafénu eða hafna öllum tillögunum. Dómnefnd er skipuð fulltrúm Landsnefndar um alnæmisvarnir, Rithöfundasambands islands, Leikskáldafélags Islands og Leik- listarráðs. Skilafrestur: Handritum skal skila undir dulnefni til Landsnefnd- ar um alnæmisvarnir, Laugavegi 116, 150 Reykjavík, fyrir 5. apríl 1993. Rétt nafn höfundar, kennitala og heimilisfang fylgi i lokuðu umslagi. Frekari upplýsingar fást hjá starfsmanni Lands- nefndar um alnæmisvarnir í síma 91 -623830. Sólrún Halldórsdóttir, rekstrarhagfræðingur og starfsmaöur Neytendasamtakanna, sá um útgáfu Heimilisbókhalds Neytendasamtakanna. DV-mynd Brynjar Gauti Neytendur Yfirsýn og skipulag Margir upplifa útborgun um mán- aðamót sem hreinustu martröð. Far- ið er með launaávísunina og alla reikningana í bankann og maður má teljast heppinn að eiga fyrir pulsu á eftir. Þetta verður smám saman þreytandi og uppgjafartónn heyrist í launþeganum um hver mánaðamót. En það er hægt að breyta þessu ástandi, í það minnsta reyna að breyta því. Heimilisbókhald hefur hjálpað mörgum að hafa stjóm á út- gjöldunum og haga þeim í samræmi við tekjur. Með nýju ári er upplagt að taka upp nýja og betri háttu í fjár- málum. Neytendasamtökin hafa gefið út hefti sem heitir Heimilisbókhald - lykill að bættum efnahag. Það er Sólrún Halldórsdóttir, rekstrarhag- fræðingur og starfsmaður Neytenda- samtakanna, sem útbúið hefur bók- ina. Að hluta til er hún eins og eldri hefti en með nokkrum nýjungum. Einfalt mál „Heimilisbókhald gefur okkur yfir- sýn yfir fjármálin og auðveldar áætlanagerð. Það hjálpar okkur að mæta óvæntum útgjöldum og minnkandi tekjum. Með heimilis- bókhaldi stýrum við íjármálum heimilisins," segir Sólrún Halldórs- dóttir. „Það er mjög einfalt að færa heimil- isbókhald en heldur erfiðara að gera áætlanir fram í tímann.“ Fremst í heftinu eru leiðbeiningar um það hvemig á að færa bókhaldið. Einnig er í boði námskeiö hjá Neyt- endasamtökunum en þar er kennd áætlanagerð, útreikningar lána, hvernig á að nálgast markmið, al- mennur sparnaður og skipulagning fjármála auk annars. Námskeiö í janúar eru þann 6., 12., 21. og 28. Ekki er enn fullbókað á komandi námskeið. Hvert námskeið, sem tekur eina kvöldstund, kostar 1.000 krónur og er bókin innifalin. Bókin eingöngu kostar 290 krónur og fæst í Máli og menningu, hjá Ey- mundsson, í Hagkaupi, Bónusi, Miklagarði, Kaupstað, Fjarðarkaup- um, á skrifstofu Neytendasamtak- anna og hjá neytendafélögum úti á landi. Kostnaður við smáu hlutina kemur á óvart Sólrún er leiðbeinandi á námskeið- unum sem hafa verið í gangi meö stuttum hléum í ár. Hún segir góða reynslu komna á þau og aðsóknina mikla. „Fólk úr öllum stéttum með margs konar fjárhag hefur sótt þessi nám- skeið. Þau eru höfð mjög almenn svo að flestir geti-nýtt sér þau,“ segir Sólrún. Hún segir að ýmislegt komi á óvart þegar fólk fari að skrá tekjur sínar og gjöld. Meðal annars eru ýmsir smápóstar drjúgir. Má sem dæmi nefna aö ein lítil kók á dag kostar 30 þúsund krónur á mann. Fjögurra manna fjölskylda eyðir því 120 þús- undum í kók á ári. Sé súkkulaði tek- ið með má reikna með sömu upphæð í það. Þarna fara tveggja mánaða laun í kók og súkkulaði. „Þessa fjármuni vill fólk gjaman sjá fara í annað,“ segir Sólrún Hall- dórsdóttir hjá Neytendasamtökun- um. Margir kostir Á fyrstu síðu bæklingsins fyrir heimilisbókhaldið eru tíundaðir kostir við að halda heimilisbókhald: Meö skipulagningu á útgjöldum verðum við okkur meira meðvitandi um það hvernig við viljum nota pen- ingana. Þegar við vitum hvemig við viljum ráðstafa tekjunum eigum við auð- veldara með að standast hin ýmsu gylliboð. Með því aö færa heimilisbókhald verðum við okkur meira meðvitandi um verðlag. Við vitum hvað hlutim- ir kosta og eigum auðveldara með að gera hagkvæmustu innkaup. Þegar við vitum í hvað peningamir fara vitum við hvaða útgjöld em ónauðsynleg og getum sparað á rétt- um stöðum. Erfiöir mánuöir koma okkur ekki lengur á óvart. Við sjáum þá fyrir og gerum viðeigandi ráðstafanir. -JJ Jólatrén í gámastöð - átta stöðvar á höfuðborgarsvæðinu Þrettándinn er á morgun og þar með líkur jólunum að sinni. Með breyttum reglum um sorp verða landsmenn nú að skila sínum jóla- tijám í gámastöð þar sem þeim verð- ur eytt. Á höfuðborgarsvæðinu eru átta slíkar safnstöövar fyrir utan Sorpu sjálfa. Fólk verður sjálft að sjá um flutninginn því öskubílamir taka ekki annað en tunnusorp. Það er ljóst að tréð er ívið fyrirferð- armeira núna en það var áður en það var tekiö úr netinu. Ef það kemst ekki með góðu móti í fjölskyldubílinn verður að panta undir það sendibíl. Skynsamlegt er að nokkrir taki sig saman með bíl og geta til dæmis íbú- ar í blokk safnað duglega í stóran bíl ef skipulag er haft á hlutunum. DV hafði samband við gámastöðina við Sævarhöfða í gær og þá höfðu starfsmenn tekið við þremur litlum heimilistrjám en aöaltraffíkin byrjar eftir morgundaginn. Gámastöðvam- ar era opnar frá 13-20 alla daga. -JJ o Áimóttöku- og Cflokkunarstöð 4 / Mosfellsbær, nærri hesthúsabyggð 7------------------ Jt__ Við Ánanaust | rKitfiRM Ártúnshöfði, t \ K við Sævarhöfða IjJ Gylfaflöt, austan gömlu Gufuneshauganna ,o Sléttuvegur, U vestan Borgarspítala f ímÆ Breiðiolt, í Seljahverfi sunnan w I Breiðholtsbrautar l\- Ö Miðhraun 20, á mörkum Garðabæjar og Hafnarfjaröar Gámastöðvar á Reykjavíkursvæðinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.