Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1993, Side 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1993.
Fréttir________________________________________________________________________________pv
Brimborgarmáliö:
Vafalaust eru fordæmin til
- segir skrifstofustjóri borgarverkfræöings
Hús Bifreiðaskoðunar íslands og nýbygging Heklu við Laugaveg. Hekla fékk lóðinni, sem hús Bifreiðaskoðunar stendur á, úthlutað en afsalaði sér henni
yfir til Loftorku en Loftorka byggði siðan bæði húsin, það er hús Bifreiðaskoðunar og Hekluhúsið.
„Það er vafalaust hægt að finna
dæmi þess að menn hafi gert verk-
samning þar sem verktakinn fær
hluta af húseigninni upp í greiðslu,
ég efast ekkert um það,“ sagði Ágúst
Jónsson, skrifstofustjóri borgarverk-
fræðings, þegar hann var spurður
hvort fordæmi væru til um að lóða-
hafar hefðu greitt byggingakostnað
með hluta viðkomandi húsa.
Eftir að Brimborg var svipt lóðinni
að Suðurlandsbraut 56 og henni út-
hlutað til Kjartans Amar Kjartans-
sonar, umboðsmanns MacDonald’s,
hefur verið fullyrt að hluti húsa hafi
verið notaður sem greiðsla til bygg-
ingaverktaka.
Nýbygging Heklu við Laugaveg og
hús Bifreiðaskoðunar íslands við
Hestháls hafa verið tekin sem dæmi.
En Hekla fékk lóðina við Hestháls á
sínum tíma en afsalaði sér henni yfir
til Loftorku sem byggði hús Bifreiða-
skoðunar og einnig nýbyggingu
Heklu við Laugaveg. Ingimundur
Sigfússon, stjórnarformaður Heklu,
sagði að Hekla hefði staðið fullkom-
lega löglega að öllum framkvæmdum
vegna þessara mála.
Ekki búið að gera
lóðaleigusamning
Ágúst Jónsson sagðist vita að gerð-
ur hefði verið lóðaleigusamningur
við Heklu vegna lóðarinnar við Hest-
háls en hann sagði að það hefði ekki
verið gert við Brimborg vegna lóðar-
innar að Suðurlandsbraut 56.
„Þaö er mergurinn málsins. í lóða-
leigusamningum er ákvæði sem
heimilar mönnum að framselja lóða-
leiguréttinn. Það var ekki búið að
gera þannig samning við Brimborg,"
sagði Ágúst Jónsson skrifstofustjóri.
„Það sem menn greinir helst á í
Brimborgarmálinu er skilningur á
þeim samningi sem var kallaður
verksamningur en er að mínu viti
kaupsamningur. Þeir hafa ekki fall-
ist á mína skýringu og það er þess
vegna sem menn tala út og suður í
málinu," sagði Ágúst.
Ekki venjulegur verksamningur
Ágúst sagði aö í Brimborgarsamn-
ingnum segði að verktakinn léti
teikna hús á lóðina, eitt eða fleiri,
eftir því sem honum hentaði og að
verktakinn greiddi öll gjöld, þar meö
lóðaleigu frá dagsetningu verksamn-
ingsins að telja. „Þetta er ekki venju-
legt ákvæði í verksamningi," sagði
Ágúst og sagði að venjulega vissu
menn hvaða verk ætti að vinna, alla
vega í höfuðatriðum.
„Mér er kunnugt um það að verk-
takinn svokallaði, sem Brimborg
samdi við, sendi talsmanni Macdon-
ald’s uppdrátt af þessari lóð, það var
í ágúst skömmu eftir að samningur-
inn milli hans og Brimborgar var
gerður. Ég hef tilhneigingu til að líta
þannig á að hann hafi yerið að bjóða
lóðina til sölu,“ sagði Ágúst.
Atvinnulausir tæplega
500á Akureyri
Gylfi Kristjánsson DV, Akureyri
Atvinnulausum á Akureyri fiölgaði
gífurlega í síðasta mánuði og þótti
þó ýmsum nóg komiö þegar 370
manns voru skráðir atvinnulausir í
byijun desember. Atvinnulausum
fjölgaði hins vegar um rúmlega 100
í síðasta mánuði og voru samkvæmt
fyrstu tölum Vinnumiðlunarskrif-
stofu Akureyrar um áramótin 485
talsins og mun láta nærri að atvinnu-
leysi sé um 7%.
Þessar tölur segja ekki allt. í nóv-
ember voru skráðir atvinnuleysis-
dagar á Akureyri 6511 talsins en virð-
ast hafa farið yfir 10 þúsund í des-
ember. Sigrún Bjömsdóttir hjá
Vinnumiðlunarskrifstofunni segir
þetta hryllilegt ástand og nú fyrstu
dagana sé enn að bætast við.
„Það hafa aldrei verið svona marg-
ir Einingarfélagar atvinnulausir á
þessum árstíma. Þetta er það svart-
asta en reyndar ekki nema beint
framhald af þeirri þróun sem var
allt síðasta ár,“ segir Bjöm Snæ-
bjömsson, formaöur Verkalýðsfé-
lagsins Einingar, en 208 félagar í Ein-
ingu vom atvinnulausir um áramót-
in. Bjöm segir að ástandið eigi enn
eftir að versna í janúar og hann sjái
ekki að það muni batna neitt fyrr en
í mars, án þess að hann reikni með
aö eitthvað verulega muni rofa til þá.
Atvmnuíeysi a Akureyrí
- september
203
l.sept. I.nóv. 1-des.
1991 1991 1991
91 til janúar 1993-
305
1992 1992 1992 1992
410
1. nóv. 5.des. I.jan.
1992 1992 1993
Landsbankinn slær lán
Það kom að því að Landsbankinn
slægi lán. Þær em ekki óþijótandi
hirslumar í þessum annars ágæta
banka. Nú era íslendignar búnir
að slá og slá í bankanum um ára-
bil og enginn hefur getað borgað
lánin til baka. Fiskeldið fór á haus-
inn, fiskvinnslumar era á hausn-
um og var ekki Landsbankinn
hafður í því að fjármagna minka-
eldið á sínum tíma? Þá má ekki
gleyma því aö Landsbankinn var
viðskiptabanki Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga og fékk
alla súpuna yfir sig þegar SIS fór á
hausinn.
Það er í rauninni alveg með ólík-
indum hvað Landsbankinn hefur
staðið af sér allar þessar ágjafir og
afskriftir og átt fyrir töpunum. Svo
hafa samviskulausir viðskiptavinir
bankans notfært sér góðvild
bankastjómarinnar með því að
fara yfir á reikningunum og er þess
skemmst að minnast að Reykjavík-
urborg var komin með milljarða í
yfirdrátt í Landsbankanum og
þurfti að taka stórt lán til að geta
borgaö yfirdráttinn. Landsbankinn
stendur væntanlega undir öllum
brennivínskaupunum um áramót-
in og æth flugeldamir hafi ekki
veriö greiddir með gúmmíi sem
Landsbankinn þarf að standa skil
á?
Það er þess vegna engin furða að
eitthvað gefi eftir í Landsbankan-
um. Bankinn getur ekki endalaust
horft upp á að þjóðin braðh og tapi
og sé á fj árfestingarfyUiríi út og
suöur, allt á hans kostnað. Banka-
stjómin hefur þar af leiðandi kom-
ið saman og ákveðiö aö nú skuli
sparað í rekstrinum, lögð niður
útibú, sagt upp starfsfólki og slegið
lán í Seðlabankanum. Sjálfsagt
mun næst koma að því að banka-
stjóramir skeri niöur laxveiðiferð-
ir sínar og risnukostnað, en fyrst
er samt rétt að segja upp fólkinu
áður en gripið er til algerra neyðar-
ráðstafana. Það er líka lógik í því
að segja upp fólki, vegna þess að
það er náttúrlega lítið fyrir banka-
fólk að gera í banka sem ekki hefur
lengur efni á að lána og verður að
slá sjálfur lán til að geta lánaö öðr-
um.
Annars er það enginn vandi fyrir
Landsbankann að standa vel að
vígi og veita lán til allra sem í bank-
ann koma, ef viðskiptavinir bank-
ans borguðu sín lán til baka. Það
er hins vegar meinið. Það borgar
enginn til baka og bankinn er hætt-
ur að reikna með því að lán séu
borguð. Tilgangur og tilvera banka
á borð við Landsbankann er hins
vegar í því fólgin að lána peninga
og rukka þá aftur. Ef rukkunin
bregst þá er ekkert eftir nema það
eitt að lána lán sem ekki era borg-
uð. Þessu getur Landsbankinn ekki
sinnt nema hafa til þess peninga
og þess vegna er nú slegið lán í
Seðlabankanum til að geta haldið
áfram að lána.
Seðlabankinn neyðist til að lána
Landsbankanum því það er enginn
Seðlabanki nauðsynlegur nema
aðrir bankar séu til sem lána öðr-
um og þeir bankar geta ekki lánað
nema taka lán, úr því enginn borg-
ar lánin sem verið er að lána. Hvort
Landsbankinn borgar lániö til baka
sem hann hefur fengið hjá Seðla-
bankanum er undir því komiö að
Landsbankinn geti starfað áfram
og stundaö lánaviðskipti sem gera
Landsbankanum kleift að greiða
Seðlabankanum það lán sem stend-
ur undir frekari lánum af hans
hálfu.
Auðvitað getur komið til greina
að Landsbankinn hætti aö lána eða
dragi úr lánum til þeirra sem ekki
borga lánin. En það getur reynst
erfitt vegna þess að Landsbankinn
er með langflest undirstööuat-
vinnufyrirtæki landsins í viðskipt-
um og með því að klippa á lánafyr-
irgreiðslu til undirstöðuatvinnu-
veganna gætu þau ekki lengur íjár-
magnað tapið h)á sér og hér yrði
allt stopp. Bankinn verður að halda
áfram að hjálpa undirstöðuat-
vinnuvegunum að tapa og meðan
tapiö er borið uppi af Landsbank-
anum gerir það ekki svo mikið til
þótt atvinnuvegimir beri sig ekki.
Landsbankinn lánar út á töpin og
afskrifar þau og tekur síðan lán hjá
Seðlabankanum til að halda áfram
lánafyrirgreiðslunni sem heldur
þjóðarbúinu gangandi.
Þannig gegna töpin hjá Lands-
bankanum lykilhlutverki og án
þeirra hefur enginn efni á aö tapa
og alls ekki efni á að taka lán sem
þarf að borga.
Dagfari