Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1993, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1993.
5
Fréttir
Lækkun mædra- og feðralauna
4.732 kr. 12.398 kn 21.991 kr.
10 300 kr\
*Miðað er við mánaðarlegar greiðslur
1.000 kr.
1 barn
5.000 kr.
2 börn
10.800 kr.
3 börn
Breytingar á almannatryggingum um áramótin:
Meðlög hækka
en mæðralaun
lækka
- böm greiða flórðung kostnaðar viö tannlækningar
Um áramótin lækkuðu mæðra- og
feðralaun vegna efnahagsaðgerða
ríkisstjómarinnar. Hækkun varð
hins vegar á barnalífeyri og meðlög-
um. Þá verður bömum og unglingum
ásamt elh- og örorkulífeyrisþegum
gert að taka aukinn þátt í kostnaði
vegna tannlækninga.
Um áramótin hækkaði meðlag og
bamalífeyrir með hverju barni úr
7.551 í 10.300 krónur á mánuði. Á
ársgrundvelli er hækkunin upp á
tæpar 33 þúsund krónur með einu
barni og tæpar 66 þúsund krónur
með tveimur bömum.
Fyrir áramót vom mæðra- og
feðralaun með einu bami 4.732 krón-
ur en lækkuðu um áramótin í eitt
þúsund krónur. Með tveimur böm-
um lækka þessar greiðslur úr 12.398
í 5 þúsund krónur og með þremur
börnum eða fleiri lækka þær úr
21.991 í 10.800 krónur. Nú falla
mæðra- og feðralaim niður einu ári
eftir að viðtakandi þeirra skráir sig
í sambúð í þjóðskrá með öðrum en
foreldri bamsins eða bamanna. Áð-
ur féllu greiðslur niður eftir 2 ár.
Samkvæmt þeim breytingum sem
gerðar hafa verið á almannatrygg-
ingum eiga böm og unglingar undir
16 ára aldri að greiða flórðung kostn-
aðar við allar tannlækningar. í því
sambandi em þó undanskildar gull-
fyllingar, krónu- og brúargerð auk
tannréttinga. Engu að síður er gert
ráð fyrir að böm og unglingar eigi
kost á einni ókeypis skoðun hjá tann-
lækni á ári. Fyrir áramót greiddu
böm og unglingar að jafnaði um 15
prósent kostnaöar og fyrirbyggjandi
aðgerðir vom ókeypis.
Breyting varð einnig á þátttöku
elli- og örorkulífeyrisþega í tann-
læknakostnaði um áramótin. Þeir
sem njóta fullrar tekjutryggingar
greiða nú fjórðung kostnaðar vegna
tannlækninga og gervitanna en
fengu kostnaðinn áður að fullu end-
urgreiddan. Þeir sem njóta skertrar
tekjutryggingar greiða nú helming
tannlæknakostnaðar en greiddu áð-
ur fjórðung. Þeir sem ekki njóta
tekjutryggingar greiða nú tann-
læknakostnað að fullu en greiddu
áðurhelming. -kaa
Viðurkenning fyrir aðbúnað:
Útivinnustaðir þurfa
ekki að vera sóðalegir
Byggingarfélagið Húsafl sf. fékk
fyrir skömmu sérstaka viðm-kenn-
ingu frá Trésmiðafélagi Reykjavíkur
fyrir góðan aðbúnað og öryggismál
starfsmanna.
Viðurkenninguna fékk fyrirtækið
fyrir vinnusvæðið að Amarsmára
4-6 en þar vora nýlega hafnar bygg-
ingarframkvæmdir. í tilkynningu
frá Trésmiðafélagi Reykjavíkur segir
að vinnustaðurinn að Amarsmára
sé til marks um að það sé ekki lög-
mál að aðstaða við útivinnustaði
þurfl að vera óvistleg og sóðaleg.
Húsafl hafi komið fyrir mjög góðri
starfsmannaaðstöðu við Amarsmár-
ann. Þar sé rúmgóð og björt matstofa
ogfyrirmyndarsnyrtiaðstaða. -ból
Elnar örn Einarsson tekur við viðurkenningu fyrir góðan aðbúnað frá Finn-
biml A. Hermannssyni.
ÞEIR SEM ÆTLA
AÐÁVAXTA
UM 30 MIIUARÐA
TAKA AUÐVITAÐ
ENGAÁHÆTTU
KIÖRBÓK
LANDSBANKANS
GAF
3,0-5,0%
RAUNÁVÖXTUN
ÁRH) 1992
Innstæöa á tæplega 100 þúsund Kjörbókum í Landsbankanum
er nú samtals um 30 milljarðar. Kjörbókin er því sem fyrr
langstærsta sparnaðarform í íslenska bankakerfinu.
Ástæðan er einföld: Kjörbókin er traust, óbundin og áhættulaus
og tryggir eigendum sínum háa og örugga ávöxtun.
Ársávöxtun á árinu 1992 var4,6-6,6%
Raunávöxtun á grunnþrepi var því 3,0%,
á 16 mánaða innstæðu var hún 4,4%
og á 24 mánaða innstæðu var raunávöxtunin 5,0%.
Kjörbókin er einn margra kosta sem bjóðast í RS,
Reglubundnum sparnaði Landsbankans
Landsbankinn óskar landsmönnum vaxandi gæfu
og góðs gengis á árinu 1993.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna