Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1993, Page 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1993.
Utlönd
Palestínsku flóttamennirnir fá aldrei að snúa heim:
Kuldinn drepur þá hægt
og hægt á næstu dögum
„Viö getum ekki borið ábyrgð á
ölium. Eg vona sannarlega að þeir
haldi lífi en þeir eru ekki á okkar
ábyrgð,“ sagði Rafik al-Hariri, for-
sætisráðherra Líbanons, um palest-
ínumennina 415 sem enn bíða örlaga
sinna á einskinsmannslandinu milli
Líbanons og ísraels.
Ráðherrann viðurkenndi að ef ekk-
ert væri að gert þá biði dauðinn
mannanna en ítrekaöi fyrri afstöðu
að það væri ísraelsmanna að leysa
málið. Starfsmenn hjálparstofnana
segja aö Palestínumennirnir hljóti
fyrr eða síðar að farast úr kulda enda
berist þeim nú engin hjálp.
Af hálfu ísraelsmanna er engrar
miskunnar að vænta. Þeir hafa þó
viðurkennt að nokkrir úr hópnum
hafi verið ranglega reknir úr landi
og geti snúið heim. Hinir séu nú á
ábyrgð Líbanonsstjómar.
Boutros Boutros Ghali, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
er enn að leita lausnar á málinu.
Hann hefur skipað nýjan sendimann
til viðræðna við stjómir Líbanons
og ísraels. Framkvæmdastjórinn
hefur talað í síma við ráðamenn í
ísrael en enga lausn fundið á málinu
enn.
Palestínumennirnir halda á sér hita við lestur á Kóraninum enda fátt annað
tiltækt. Þeim berst nú engin hjálp. Símamynd Reuter
Utanríkisráðherrar arabaríkja
ætla að koma saman til fundar í
næstu viku og þar verður þess að
öllum líkindum krafist að ályktun
Sameinuðu þjóðanna um að ísraels-
menn taki aftur við mönnunum verði
fylgt eftir. Enginn veit þó hvort þeir
verða þá enn á lífi enda era nú vetr-
arhörkur í Mið-Austurlöndum.
Reuter
Ákveðið að hengja bandarískan bamamorðingja:
Geymdi líkin í
klaeðaskápum
- „réttlát og eðlileg refsing“ segir í úrskurði hæstaréttar
Allan Dodd verður hengdur næstkomandi þriðjudag fyrir morð á þremur
ungum drengjum. Sjálfur segist hann verðskulda slíkan dauðdaga. Henging-
um hefur ekki verið beitt í Bandaríkjunum frá árinu 1965. símamynd Reuter
„Henging er réttlát og eðlileg refs-
ing,“ sagði í úrskurði hæstaréttar í
Bandaríkjunum þegar ákveðið var í
gær að hengja fjöldamorðingjann
Allan Dodd fyrir misþyrmingar,
nauðganir og morð á þremur ungum
drengjum árið 1989.
Dodd verður því að öllum líkindum
tekinn af lífi næstkomandi þriðjudag
klukkan tólf á hádegi. Hann hefur
sjálfur krafist þess að verða hengdur
en hann mátti velja milli hengingar
og aftöku með eitri.
Andstæðingar liflátsdóma vestra
hafa krafist þess að hætt verði við
henginguna enda hefur maður ekki
verði hengdur í Bandaríkjunum frá
árinum 1965.
Dodd lýsir sjálfum sér sem mjög
sjúkum manni. Hann segist hafa full-
an hug á að halda voðaverkunum
áfram og því sé aftaka eina lausnin
sem hann sjái á áráttu sinni. Morðin
á drengjunum þremur þóttu mjög
ógeðsleg. Dodd lék sér að þeim næt-
urlangt áður en hann myrti þá og
geymdi líkin í klæðaskáp þegar hann
hélt tfi vinnu að morgni.
„Fyrir mig er henging vægasta
refsingin," sagði Dodd í gær. Hann
brást ókvæða við tilraunum til að
lengja líf sitt. Hann sagði að ungu
drengimir hefðu hlotið hræöilegri
dauðdaga. Sá yngsti var fjögurra ára.
Þann kyrkti Dodd eftir miklar pynd-
ingar.
Einn dómara í hæstarétti skilaði
sérálití. og sagði að ekki væri hægt
að hengja Dodd þvi enginn böðull,
vanur hengingum, væri tiltækur.
Aðrir dómarar töldu það ekki frá-
gangssök.
Andstæðingar dauðarefsinga segja
að henging sé hrottaleg aðferð við
aftöku því hún leiði af sér að hinn
seki kvelst áður en hann lætur lífið.
Stjómarskráin mæli gegn slíku.
Reuter
Grænlendingar
Grænlendingar töpuðu um
tveimur og hálfum milijarði ís-
lenskra króna á úthafsrækju-
veiðinni á nýliðnu ári. Ástæðan
er lækkandi verð á ræKju og
gengislækkanir á útflutnings-
mörkuðunum. Tekjutapiö getur
haft alvarlegar aíleiðingar fyrir
úthafsrækjuflotann.
í fiárlagafrumvarpinu fyrir áriö
1993 eymamerkti landsþingið um
einn milljarð islenskra króna í
úreldingarsjóð rækjutogara og til
að stuðla að samruna útgerðar-
fyrirtækja. Það er þó langt frá því
að vera nóg til að bjarga öilum
frá gjaldþroti.
Norðmaður
verðurfyrsturá
Norskur landkönnuður er á
góöri leið með að veröa fyrstur
manna til að ganga aleínn á suð-
urpólinn.
Erling Kagge átti aðeins eftir
rúma áttatíu kflómetra að suð-
urpólnum í gær. Hann hafði þá
lagt að baki liðlega tólf hundmð
kílómetra frá því hann lagði af
stað frá Berknereyju þann 17.
nóvember síöastliðinn.
„Hann ætti að komast á suður-
pólinn á miðvikudagskvöld eða
snemma á fimmtudagsmorgun,“
sagði Hans Christian Erlandsen,
talsmaöur Kagges, í gær.
Kagge, sem er 29 ára gamall
lögfræðingur frá Ósló, gekk á
skíðum með kunningja sínum
álla leiö á norðurpólinn árið 1990.
Á leið sinni yfir Suðurskauts-
landið hefur hann ekki notið
neinnar utanaökomandi aðstoð-
ar, heldur dregið allar vistir s ínar
sjálfur.
Ifffenýárs-
þorskurinn í
Danmörku
Uflfe EUemann-Jensen, utanrík-
isráðherra Danmerkur, var út-
neftxdur „nýársþorskur ársins" í
Danmörku daginn fyrir gamlárs-
dag eftír atkvæðagreiðslu meðal
lesenda Ekstrablaðsins. Ráðherr-
ann fékk þorskinn afhentan við
hátíðlega athöfn í Nýhöfn, en
Danir hafa þann sið að borða
þorsk á gamJársdag.
Að sögn blaðsins hlýtur sá út-
nefninguna sem hefur gert sig að
einna mestu fífli á árinu. Utanrik-
isráðherrann lítur þó á hana sem
heiöur.
Upphaflega var Uffe ekki meðal
kandidatanna en honum tókst þó
að krækja sér i tilnefningu eftir
strangar samningaviðræður,
tetamini t0Kiit i
Trefleborg
Belgískur ökumaður var hand-
lekinn með tlukílóafamfetamíni
i farteskinu þegar hann ók frá
fetjunni i TrelJeborg í Svíþjóð á
næstsíðasta degi ársins 1992. Efh-
iðer ura sjötíu mifljóna islenkra
króna virði á götumarkaði.
Amfetamínið fannst í bil
mannsins við venjubundið eftir-
lit. Tollvörðum fannst varadekk-
ið lfta einkennilega út og var
hundur fíkniefnalögreglunnar
því tiikvaddur. Við frekari skoð-
amfetamíni vora inni í dekkinu.
Bílsijórinn viöurkenndi að hafa
vitaö að eitthvað ólötrleiU væri í
bílnum en hann heföi ekki vitaö
hvaö það væri. Efniö skyldi af-
hendast f Stokkhólrai.
Iiit7.au, Reuter og TT
Ákæra hefur verið gefin út á
hendur 14 ára gamalli stúlku 1
Kaliforníu vegna þess að hún ját-
aði i dagbók slnní að hafa myrt
fiögurra ára garala systur sína.
Foreldramir komust í dagbók-
ina eftir að dóttirin hljópst að
heiman. I dagbókina halði hún
aðeins skrifað: „Kæra dagbók. Ég
verð að trúa þér fyrir svolitlu.
Ég drap systur mína.“ Lögreglan
telur að þetta nægi til að ákæra
dagbókarritara fyrir morð.
JohnF.Kennedy
varskotinn
íhnakkann
Bandariskur vísindamaöur hef-
ur rarmsakað að nýju kvikmynd-
ina sem áhugamaður tók af
morðinu á John F. Kennedy
Bandaríkjaforseta í Dallas árið
1963. Vestra hafa menn lengi deilt
um úi’ hvaða átt skotið hafi verið
að forsetanum.
Eftir nýju rarmsókninnier ekk-
ert vafamál að skotið hæfði
Kennedy í hnakkann. Nákvæm
skoðun á kvikmyndinni þykir
sýna þetta ótvírætt.
í frægri kvikmynd Olivers
Stone um morðið er gengið út frá
því sem vísu að skotið hafi hæft
forsetann í andlitið og á því reist
samsæriskenning um að fleiri
hafi tengst morðinu en Lee Harv-
ey Osvald.
Financial Times
ihviiriútgáfu
eftðrbleikaöld
Breska viðskiptadagblaðið Fin-
ancial Times birtist í gær prentað
á hvítan pappir eftir að hafa verið
bleikt í réttá öld.
Bragöið var út af venjunni í til-
efni af afmælinu. í dag er blaðið
bleikt og veröur það eftirleiðis.
Viöskiptablöð víða um heim hafa
tekið upp þann sið að prenta við-
skiptasiðurnar á bleikan pappír.
Myrtimótleik-
konu sem viidi
ólm sofa hjá
Ein vinsælasta sápuóperan í
Brasillu er orðin einum of raun-
veruleg því aðalkarlleikarinn
hefur játað á sig morð á mótleik-
konu sinni. Hann sagði lögregl-
unni að sér hefði verið nauðugxir
einn kostur því leikkonan heföi
elt sig á röndum og heimtað að
fá hann í bólið með sér.
Eiginkona ieikarans hefur nú
upplýst að hin myrta hafi verið
þunguð en ekki er vitað hver átti
þungaim meö henni. Morömál
þetta hefiir vakið mikla athygli í
Brasilíu og sky ggt á afsögn forset-
ans sem var bara sakaöur um
spillingu og svik.
Barneignir eftir
fertugt auka
hættunaá
í grein í nýjasta tölublaði
breska læknablaðsins Lancet er
því haldið fram aö barneignir eft-
ir fertugt auki verulega líkumar
á bijóstakrabba. Einu virðist
gilda hvort umræddar konur hafi
átt böm áðxir.
Áður hafa vísindameira helst
hallast að því að hættan aukist
eftir því sem konur draga lengur
að eignast fyrsta bam. Höfundar
greinarinnar ráöleggja konum að
eiga börn ungar.
Reuter