Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1993, Side 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1993.
Spumingin
Hvernig fannst þér
áramótaskaupið?
Hergeir Elíasson nemi: Mér fennst
það frekar dapurt.
Elin Hallsteinsdóttir nemi: Það var
ágætt og hægt að brosa að því en það
var ekkert meiriháttar.
Þráinn Hafsteinsson trésmiður: Mér
fannst það heldur dapurt.
Baldur Sigurðsson, starfsmaður
Odda: Ég hef enga skoðun á því.
Lilja Hjartardóttir klínikdama: Ekk-
ert nyög skemmtilegt.
Þorbjörg Albertsdóttir húsmóðir:
Hræðilegt.
Lesendur
„Lyginn eða falskur hundur er nefnilega ekki til,“ segir m.a. i bréfinu.
K.S. skrifar:
Það getur verið ótrúlegt samband
sem myndast milli manns og hunds.
Sambandið ræðst ekki af því hvar
maður og hundur búa, þörfin fyrir
þessi nánu tengsl er bæði hundi og
manni eðlislæg.
Ég bý í Reykjavík og á hund. Þeir
Reykvíkingar sem eiga hunda eru oft
flokkaðir sem annars flokks borgar-
ar. Við megum einhverra hluta
vegna ekki ganga Laugaveginn, ekki
fara á Klambratún og svo framvegis,
ef við erum með hundana með okk-
ur, og þá er sama hvort þeir eru í
taumi eða ekki.
Þrátt fyrir að við megum ekki vera
hvar sem er, þrátt fyrir að við séum
einu dýraeigendumir í borginni sem
eru skattlagðir og þrátt fyrir að vera
oft htnir hornauga höfum við nú einu
sinni valið okkur vinskap hunda. En
það væri (alla vega er það mín
reynsla) með öllu ómögulegt að eiga
hund í Reykjavík, nema því aðeins
að í nágrenni Reykjavíkur eru rekin
gistihús fyrir hunda.
Það skal haft í huga að hundaeig-
anda er ekki sama hver gætir hans
besta vinar þegar fara þarf í ferðalög
til útlanda eða upp koma aðrar að-
stæður sem kalla á að leita þarf gist-
ingar fyrir hundinn. Ég hef hugsað
til þess fólks sem rekur gistiheimili
fyrir hunda. Það hefur tekið á sig
mikla ábyrgð því hundar eru við-
kvæmir fyrir sínu nánasta umhverfi.
Vegna eigin reynslu verð ég að
nefna hundagistinguna að Leirum á
Kjalamesi. Þar er „gisihússtjóri"
kona sem kölluö er Ninna. Þegar ég
fór fyrst með hundinn minn aö Leir-
um sá ég aö Ninna vill honum ekki
síður vel en ég. Þegar ég fer með
hundinn að Leirum liggur við að ég
Carl J. Eiriksson skrifar:
Enn einu sinni hefur stjórn Skot-
sambands íslands orðið að athlægi
fyrir val sitt á íþróttamanni ársins í
skotfimi. í þetta sinn var valinn einn
af stuðningsmönnum stjómar skot-
sambandsins. Árangurinn sem hann
náði var 174 stig í haglabyssu, Skeet,
sem er ipjög slakur árangur og er
langt fyrir neðan neðsta mann á al-
þjóðlegu stórmóti skv. samanburðar-
töflu. - Til að ná neðsta manninum
hefði hann þurft að fá níu stigum
Amal Qase frá Sómaliu skrifar:
í lesendabréfi í DV frá Atla.þann
28. des. sl. segir m.a. að hjálp til Sóm-
alíu sé „hrein sóim“. Ekki get ég skil-
ið hvernig nokkur maður getur látið
sér detta í hug að segja það sóun að
reynt sé að hjálpa fómarlömbum
stríðs, hvar sem er í heiminum.
í bréfinu segir Atli orðrétt: „En það
er eins og fyrri daginn, hvíti maður-
inn fær alltaf bágt hjá umheiminum
ef danglað er í svertingja hvar sem
þeir búa“. - Allir þessir valdasjúku
(byssuóðu hermenn sem myrða
hvem sem er til að fá vilja sínum
i framgengt og em ábyrgir fyrir dauða
milljóna saklausra manna em ekki
allir „svertingjar" eins og þú kallar
Hringið í síma
632700
milli kl. 14 og 16
-eða skrifíð
ATH.: Nafn og sfmanr. verður
að fylgja bréfum
verði afbrýðisamur, svo glaður er
hann í hvert sinn sem hann kemur
þangað. Það segir mér allt sem segja
þarf því engan þekki ég hæfari til að
dæma um hvort honum líkar vel eða
ekki. Lyginn eða falskur hundur er
nefnilega ekki til.
meira, eða 183 stig. - Hvorki íþrótta-
maður ársins í skotfimi né nokkur
annar íslenskur haglabyssumaður
hefur nokkm sinni unniö til verð-
launa 1 skotkeppni erlendis frá upp-
hafi.
Forráðamenn íþróttasambands ís-
lands láta sig hafa það ár eftir ár aö
heiðra þá menn sem stjóm skotsam-
bandsins velur eins og þeir væm
bestu skotmenn ársins þótt þar sé
bara verið að heiðra slaka skot-
íþróttamenn sem em vinir og stuðn-
fu.
svarta menn svo niðrandi í bréfi
þínu.
Tilhneiging mannskynsins til að
beita ofbeldi af minnsta tilefni er
ekki bundin stað, þjóðemi, trúar-
brögðum eða litarhætti. - Hvorki
fyrri né seinni heimsstyijaldimar
vom svörtum mönnum að kenna og
það var ekki svartur maður sem tók
af lífi sex milljónir manna í gasklef-
Það er fólki eins og að Leirum að
þakka að við borgarbúar getum verið
með þessa tryggu og góðu vini okkar
hjá okkur. Það er gott til þess að vita,
ef maður þarf burt, að manns besti
vinur er í góðum höndum.
ingsmenn skotsambandsins.
Nýjasta brella stjómar skotsam-
bandsins er að hjálpa sjálfum sér og
stuðningsmönnum sínum að vinna
íslandsmeistaramót meö því að
halda tímasetningu mótanna leyndri
fyrir öllum öðrum. Sumir stjómar-
menn skotsambandsins keppa nefni-
lega á íslandsmótum. Svo auglýsa
þeir mótin ekki fyrr en ýmist 11 dög-
um eða einum mánuði áður en þau
em haldin. - Þá verða aörir að mæta
næstum óþjálfaðir til keppni.
um fyrir það eitt að játa gyðingatrú.
Þú vekur ekki reiði hjá mér vegna
ummæla þinna, Atli, vegna þess að
þú ert því miður einn þeirra einstakl-
ingaí þessum blessaöa heimi sem
ekki geta séð raunvemleikann vegna
fordóma og fáfræði. - Ég hef þvert á1
móti samúð með þér. - Gleðilegt nýtt
ár.
DV
Gjaldeyrismálin
Sigurjón Björnsson hringdi:
Maður undrast hvaö fijálslega
leið íslendingar hyggjast feta í
gjaldeyrismálum sínum i íram-
tíöinni. - Nú, strax í ársbyrjun,
munu taka gildi nýjar reglur sem
kveða á um að allar hömlur verði
felldar niður varðandi yfirfærsl-
ur á ferða- og námskostnaði svo
og um fjárfestingu í atvinnu-
rekstri erlendis. - Höfum viö
virkilega komist í slík efhi að
þetta sé framkvæmanlegt? Er þá
gjaldeyrir ekki lengur munaður
á íslandi?
Geralítiðúrsér,
þingkonumar
Rósa skrifar:
Mér finnst ekki mikil reisn yOr
konum á þingi í dag. Plestar eru
þær nú í Kvennalistanum og þar
er ekki um auðugan garð að
gresja hvað málflutning varðar.
Yfirgnæfandi vælutónn og
barlómur fyrír hönd hinna og
þessara þjóðfélagshópa sem þær
þingkonurnar vita greinilega
ekkert um hagi hjá í reynd. -
Konur úr öðrum flokkum eru
ekki mikið betri. -Þær sjást sjald-
an í ræðustóli og þá sialdan þær
fá málið er það vegna hagsmuna
sem þær þurfa að verja persónu-
lega aö því er manni sýnist. IJkt
og sjálfstæðiskonurnar nú síðast.
Þær gera lílið úr sér, þingkon- ;
urnar, með þessu háttemi.
Alltofþröng
bilastæði
Jóhannes hringdi:
Ég var að taka bflinn minn úr
bílastæöi í Kolaportinu. Ég hef
áður geymt bil minn þarna og lík-
ar vel - þegar ekki er of þröngt á
þingi. En segjast verður eins og
er að bæði í Kolaportinu, en ekki
síður í bílageymslu ráðhússins
nýja, eru bílastæðin alltof þröng
og erfitt að athafna sig nema á
minnstu bílunum.
Það er skilyrði að þar sem bíla-
stæði eru séu þau merkt með
nægu hliðarplássi, þ.e. að þau séu
merkt með tvöfóldum strikum
líkt og t.d. er gert viö Borgarspít-
alann. Hurðirnar veröur að vera
hægt að opna og svigrúm til að
snúa bil örlítið. Án þess er bíla-
stæði einskis nýtt.
K.S. skrifar:
Með titrandi röddu sagði ráð-
herrann fr á fólki er kæmi í ráðu-
neytiö niðurbrotið og að því kom-
ið að gefast upp. Þessu fólki yrði
aö hjálpa. Það gerði ráöherrann
víst með því að samþykkja ásamt
íhaldinu miklar skatta- og verð-
hækkanir á launafólk og sem
koma af fullum þunga strax í árs-
byijun.
Ráöherrann sveik ekki aðeins
fólkiö sem leitaði eftir stuðningi
í erfiöleikum heldur allt launa-
fóik í landinu svo og jafnaðar-
stefriuna. -Spá mín er sú að „Júd-
asar“-kossinn verði fall þessara
svikulu manna sem lofuðu að
engir nýir skattar yrðu lagðír á
né kæmu skattahækkanir til
greina. „Júdasar“-ráöherrar
sviku sjálfa sig og munu þeir þvi
iu-ökklast frá meö skömm. ;
ÁTVR-fyrirbærið
Steindór hringdi:
Er ekki komiim timi til fyrir
liið opinbera að taka fyrirbærinu
Áfengis og tóbaksverslun nkis-
ins tak? Hvers vegna gilda þar
aörar reglur varðandi grciðslu-
fyrirkomulag en annars staðar i
landinu? Hví má ekki innleiða
þar greiðslukort, að ekki sé talað
um að greiða með einni ávísun?
- Útilokun greiðslukorta er þó
yfirgengilega heimskuleg. -
Blessaðir, kippið þessu í lag,
þarna er svo einstaklega útnára-
leg hugsun á bak við.
Skotmaður ársins 1992
Fómarlömb stríös og valdasýki:
Er sóun að hjálpa þeim?
„Tilhneiging mannkynsins til að beita ofbeldi af minnsta tilefni er ekki bund-
in stað, þjóðerni, trúarbrögðum eða litarhætti," segir Amal m.a. - Frá Sómal-