Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1993, Qupperneq 8
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993.
Neytendur
DV kannar verð á kjöti:
Hækkunin er enn
ekki komin fram
kjúklingum um tæp 10 prósent.
Svínakjötsframleiðendur hafa enn
ekki tekið ákvörðun um hækkun en
búist er við að hún verði nálægt tíu
prósentum.
Verðkönnunin var gerð í Bónusi
vestur í bæ, Hagkaupi á Eiðistorgi,
Kaupstað í Mjódd, Miklagarði og
Fjarðarkaupum.
Egg og nautahakk
Eggin eru alls staðar á sama verði,
353 krónur, nema í Bónusi á kr. 340
og Miklagarði á kr. 342 með 3% stað-
greiðsluafslættinum. Eftir verðhrun
í nóvemberlok fór verðið upp rétt
fyrir jól og hefur haldist stöðugt síð-
an.
í töflunni hér á síðunni er sett inn
eitt verð á nautahakki og er þá miðað
við betra hakkið. Bónus selur hakk
í tveimur verðflokkum; er sá ódýrari
á 514 krónur kílóið en það er 30%
fitumeira. í Hagkaupi fæst líka
nautahakk í tveimur verðflokkum
og er það ódýrara á 639 krónur kíló-
ið.
Nautakjöt
Nautakjötið er á misjöfnu verði og
má sjá að fille er ódýrast í Bónusi á
krónur 1144 en dýrast í Hagkaupi á
1695 krónur. Munur á hæsta og
lægsta verði er 48%. Gúllasiö var líka,
ódýrast í Bónusi á krónur 718 hvert
kíló en dýrast í Kaupstað, kr. 1194.
Verömunur er 66%. Nautalundin er
ódýrust í Fjarðarkaupum en þar hef-
ur hvert kíló lækkað um 100 krónur
frá því fýrir jól. Kílóið á nautalund
hefur líka lækkað í Kaupstað því það
var 2.250 fyrir jól en er núna 2.195.
Aðrar tegundir af nautakjöti voru
ekki til nema á fáum stööum.
Svínakjöt
Bónus selur ekkert svínakjöt og er
því ekki með í samanburðinum.
Ódýrustu kótelettur voru í Mikla-
garði, kr. 1033, en dýrastar í Kaup-
stað, krónur 1199. Munur á hæsta og
lægsta verði er 16%. Svínabógur er
ódýrastur í Miklagarði, kr. 533, en
dýrastur í Kaupstað, kr. 649, og er
munur á hæsta og lægsta verði 21
prósent. Svínagúllas var líka ódýrast
í Miklagarði, kr. 997, en dýrast í Hag-
kaupi á kr. 1299 og er munur á hæsta
oglægstaverðirúm30prósent. -JJ
Vegna yfirvofandi verðhækkana
gerði Neytendasíðan verðkönnun á
eggjum og kjöti í gær. Kannað var
verð í fimm verslunum og hafði eng-
inn þeirra hækkað verðið til neyt-
enda ennþá. í samtölum við verslun-
arstjóra kom fram að þeir væru ekki
vissir hvenær þessar hækkanir
kæmu í útsöluverðið eða hvort hún
kæmi til með að verða minni vegna
þess að verslunin tæki á sig hluta af
hækkuninni til þess að standa betur
af vígi í verðsamkeppninni. Líklegast
hækkar verð á kjúkhngum fyrst því
nú er farið að bera á hamstri á kjúkl-
ingum. Hugsanlega hækka þeir fyrir
helgi en verð á öðrum tegundum
ætti að haldast fram í næstu viku eða
lengur.
Boðaðar verðhækkanir á nauta-
kjöti eru 14%, á eggjum 5 prósent og
Neytendur er þegar byrjaðir að byrgja sig upp af kjúklingum fyrir komandi
verðhækkun.
TEPPI
BLÖNDUNGARTÆKI
STAKAR MOTTUR
DÚKAR
BLÖNDUNGARTÆKI
TEPPI
MÁLNING
HREINLÆTISTÆKI
FLÍSAR
MÁLNINGÁRVÖRUR
DÚKAR
GRENSASVEGl 11 S: 813500
TIL
afsláttur
M
METRÓ
MÖGNUÐ VERSLUN í MJÓDD
Álfabakka 16 @670050
Kilóverð Bónus Hagkaup Kaupstaður Mikligarður Fjarðarkaup
Egg 340 353 353 342 353
Kjúklingar 545 566 566 549 566
Nautalund 2198 2195 2132 2075
Nautahakk 611 725-639 699 678 668
Nautafille 1144 1695 1685 1295 1490
Nautagúllas 718 1194 1139 998
Nautainnralaeri 1650 1540
Nautahnakki 998
Nautasnitsel 770 1406 1236
Piparsteik 1687
Svlnakótelettur 1098 1199 1033 1075
Svínabógur 599 649 533 556
Svlnagúllas 1299 1298 997 1128
Svínalund 1689 1798 1638 1575
Svlnasnitsel 1564 1224
Svínalæri 669 579
Svínahakk 608