Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1993, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1993, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993. 9 Utlönd IGabriel HÖGGDEYFAR STERKIR, ORUGGIR ÓDÝRIR! Starfsmenn bandarísku leyniþjónustunnar drepnir við höfuðstöðvamar: Skaut mennina með rússneskum herrrffli - morðln skipulögð af ókunnum manni sem þekkti vel til og kunni til verka „Hann leit upp og viö horfðumst í augu eitt augnablik. Svo sneri hann sér aö bflunum og skaut mennina einn af öðrum gegnum rúðumar," sagði sjónarvottur að morðum á starfsmönnum handarísku leyni- þjónustunnar, CIA, við höfuðstöðv- amar í Langley, rétt utan við Wash- ington. Tveir menn létu þegar lífið og tveir aðrir era lífshættulega sárir. Fimmti maðurinn særðist lítillega. Sjónar- vottar sögðu að maðurinn hefði verið einkennflega kuldalegur til augn- anna og ekki sýnt minnstu svipbrigði þegar hann myrti mennina og gekk rólega í burtu. Umferðin hafði stöðvast við inn- keysluna að höfuðstöðvunum og gekk morðinginn milli kyrrstæðra bíla og skaut. Af lýsingu sjónarvotta að dæma var riffillinn rússneskur af gerðinni AK-47. Þeir vora upphaf- lega framleiddir fyrir sovéska her- inn. Yfirmenn CIA segjast enga vitn- eskju hafa um hvað morðingjanum gekk tfl. Hans er leitað en án árang- urs til þessa. Undarlegt þykir að starfsmenn CIA skuli einir myrtir og bendir það til að maðurinn hafi átt eitthvað sökótt við stofnunina. Tilburðir morðingjans benda til að hann hafi þekkt til hjá CIA og jafn- vel verið þjálfaður leyniþjónustu- maður. Atburðurinn minnir á gaml- ar njósnamyndir en starfsmenn CIA útiloka að rússneskur njósnari hafi átt í hlut enda erfitt að benda á tfl- gang Rússa með aðgerð af þessu tagi. Uppruni vopnsins breytir þarna engU um. Reuter Norskirvísinda- taxaveiru Tveir norskir vLsindamenn frá Tromsö hafa náð merkum tíma- mótum í rannsóknum sínum á smitandi blóðleysi í laxi, BLA, sem hefur kostað norska laxeldis- menn um tíu mifljarða íslenskra króna. Nú þykir það hafið yfir allan efa að það er veira sem veld- ur sjúkdóminum. Eftir tveggja ára rannsóknir hefur vísindamönnunum tekist að fá veiruna til að lifa og dafha i einangruðum fiskiframum í til- raunastofunni. Það er nauðsyn- legt til aö geta fundiö aðferðir til að beijast viö sjúkdóminn. Sjúkdómur þessi varð til þess að Frakkar og Spánveijar hættu innflutningi á óslægðum norskum eldislaxi um áramót. Bannið var síðan fellt úr gildi þar til fram- kvæmdastjóm EB tekur afstöðu tilþessummiðjanfebrúar. ntb LISTASMIÐJAN NÓATÚNI 17, RVK, S. 623705 OG NORÐURBR. 41, HAFNARF., S. 652105 LAMPAR LISTMIJMR GJAFAVÖRUR Tveir menn létu lífið og tveir aðrir særðust lífshættulega í tilræði sem minnir helst á gamaldags njósnamyndir. Mennirnir voru starfsmenn bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, og voru á leið til vinnu í höfuðstöðvum stofnunar- innar. Svalur náungi með kuldalegt augnaráð og rússneskan riffil skaut mennina einn af öðrum af stuttu færi. SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-81 47 88 Simamynd Reuter Karl Bretaprins samþykkir skrif in Karl Bretaprins hefur ákveðið að aðhafast ekkert gegn blöðunum sem birtu samtal hans og Camillu Parker Bowles í síma. Þar játaði Karl henni ást sína og hún á móti. Ýmsum þótt vafi leika á hvort þetta væra í raun og vera þau tvö. Ákvörð- un Karls þykir benda til að hann telji ekki fært að bera af sér áburð blað- anna og að símtalið sé ófalsað. Siöanefnd bresku blaðanna bauð Karli að mótmæla en hann vísaði boðinu frá í gær. Sérfræðingar 1 málefnum konungsfiölskyldunnar segja að Karl vilji umfram allt forð- ast frekara umtal enda stendur hann nú höllum fæti og óvíst hvort hann verður nokkra sinni konungur. Talsmaöur konungsfjölskyldunnar sagði að Karl ætti engra kosta völ. Útilokað væri að ríkisarfinn bland- aði sér í rannsókn á áreiðanleika frétta í ómerkilegum blöðum. Á sama tíma færast í aukana kröf- ur um að Karl verði sviptur réttinum til konugserfða og að Vilhjálmur prins verði valinn í staðinn. Karl léði ekki máls á þessu og vill verða kon- ungur með Díönu sér við hlið. Reuter Um leið og hjónaband Karls og Di- önu fór út um þúfur minnkuðu að mun líkumar á konungdómi Karls. Teikning Lurie Boddíhlutir og lugtir Mjög gott verð Nýkomin stór sending af boddíhlutum í flestar gerðir bifreiða, t.d.: Mercedes Benz árg. ’75-’90 Ford Escort árg. ’86-’90 BMW 300 árg. ’83-’90 BMW 500 árg. ’82-’87 Lancer árg. ’85-’91 Colt árg. ’85-’91 o.fl. tegundir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.