Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1993, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993.
13
Neytendur
Mikiö úrval af bókum fæst nú á góðu verði en viðskiptavinir eru fáir og fátækir í ár. DV-mynd Brynjar Gauti
Bókamarkaðir um allan bæ:
Mikið úrval
á góðu verði
- en fáir og blankir kaupendur
Margir hafa spurt hvort gamli
klassíski bókamarkaðurinn hafi nú
endanlega verið lagður niður. Nú
auglýsa bókaútgefendur nefnilega
markaði í sínum eigin forlagsversl-
unum.
í „Bókamúlanum“ svokallaða eru
átta aðilar með markaði. Forlagið,
Mál og menning, Öm og Örlygur,
Hið íslenska bókmenntafélag, Vcika-
Helgafell og Hörpuútgáfan eru í Síðu-
múlanum, Skjaldborg er í Ármúlan-
um og Fjölvi við Grensásveg.
Fyrir utan þessa forlagsmarkaði
em verslanir Eymundsson með
markaði þar sem seldar em bækur
frá flestum forlögum og í Kolaport-
inu er sameiginlegur markaður aUar
helgar. Þessir markaðir renna sitt
skeið fljótlega en í bígerð er að halda
stóran sameiginlegan bókamarkað í
mars eða apríl eins og þekkst hefur
síðustu áratugi.
Bókamarkaður í janúar
er tímaskekkja
En það er samdráttur í þjóðfélag-
inu og bóksalar finna rækfiega fyrir
því. Hálfdán Örlygsson hjá Emi og
Örlygi sagði aö þeir fyndu fyrir mikl-
um samdrætti.
„Við byijuðum fyrir nokkrum
árum að halda okkar eigin markað í
byijun janúar og gerðum góða hluti
til að byrja með. Svo fóm fleiri að
fylgja í kjölfarið og upphaf markað-
anna færðist alltaf framar í janúar
því afiir vfidu vera fyrstir. Miðað við
breytt efnahagsástand er bókamark-
aður í janúar tímaskekkja. Fyrir ut-
an samdrátt fyrir jól er greinfiegur
samdráttur í bóksölu í janúar þó við
bjóðum hagstætt verð,“ sagði Hálf-
dán. „í janúar em allir með útsölu
og meðan efnahagsástandið er slæmt
lætur fólk frekar föt og nauðsynjar
ganga fyrir. Maður verður að klæða
sig en bókin er ekki lífsnauðsynleg."
Hálfdán sagði aö bóksalar myndu
síðan sameinast í einn stóran bóka-
markað líkt og verið hefði í áratugi.
Á þann markað mundu þeir setja
sömu bækur og væru nú á tilboði og
engar myndu bætast við. „Við seljum
þá það sem eftir verður núna. Viö
vonum að það verði heppilegri tími
fyrir kaupendurna heldur en núna
því salan er ekki svipur hjá sjón
miðað við sem áður var.“
Ódýrustu barnabækurnar
seljast best
í öllum verslunum Eymundsson er
bókamarkaður og er þar safnað sam-
an frá flestum forlögum. Hveijum
verslunarstjóra er í sjálfsvald sett
hvað hann velur af bókum. Hjá Ey-
mundsson á Hlemmi er Auður Halls-
dóttir verslunarstjóri.
„Það er alveg einstaklega lítið
verslað núna og mikill munur frá því
í hittifyrra. Það eru helst ódýrustu
bamabækumar og einstaka ævisög-
ur sem hreyfast eitthvað og lítils
háttar af öðrum. Ég held samt að
úrvaliö sé nokkuð gott og bækumar
em á mjög góði verði. Fólk lætur lík-
lega nauðsynjar ganga fyrir öðru,“
sagði Auður. „í þessum mánuði er
fólk að hugsa um jólakreditreikning-
inn og heldur fast um budduna."
Fjórar fyrir 2000 krónur
Sem dæmi um verð hjá Eymunds-
son á Hlemmi má nefna æviminning-
ar Jónasar Jónassonar á 780 krónur,
bókina um Bubba á 990 krónur, fjór-
ar bækur í pakka eftir spennusagna-
höfundinn Colin Forbes á kr. 1.990
og Forsetar lýðveldisins á 990 krón-
ur. Flestar þessar bækur hafa verið
gefnar út á síðustu árum.
í bókamarkaði Kolaportsins eru
bækur frá mörgum útgefendum. Þar
verður sérstakt tfiboð um helgina og
má nefna bók Kristjáns Péturssonar
tollara á Keflavíkurvelli, Margir
vfidu hann feigan, á 800 krónur.
Bók fyrir minna en 100 kall
Bókamarkaður Vöku-Helgafells
hefur gengið nokkuð vel, sagði María
Ásgeirsdóttir og nefndi dæmi um
bækur á hagstæðu verði. Ódýrustu
bækurnar eru á 95 krónur og þar eru
í flokki bækur eins og Æskuár mín
á Grænlandi eftir Peter Freuchen,
Gíslar í 444 daga og Leikir í fjör-
unni. Fyrir 195 krónur fást bækur
eins og Saga Þingeyinga og Elli en
hún er byggð á samnefndum út-
varpsþáttum með Eddu Björgvins-
dóttur og Helgu Thorberg. Allar
bækur Viktoríu Holt eru á 495 krón-
ur, svo og íslensk samtíð og ævi-
minningar Ingólfs Guðbrandssonar
og Bryndísar Schram.
Stórbækur á 1.480
Bókamarkaður Máls og menningar
og Forlagsins er í sama húsi í Síðu-
múlanum og auk bóka frá þeim for-
lögum er úrval frá fleiri forlögum
líka á niðursettu verði. Þar fengust
þær upplýsingar að markaðurinn
hefði gengið vel og þá sérstaklega um
helgar. Bækur M&M á tilboði eru
meðal annara „stórbækur" Péturs
Gunnarssonar og Einars Kárasonar
sem kostuðu áður 2.980 en nú 1.480
og ungfingabókin Percival Keene er
á 790 krónur. Hin þekkta matreiðslu-
bók Helgu Sigurðardóttur, Matur og
drykkur, er seld í pakka með einni
matreiðslubók frá Kryddi í tilvenma
á 1.980 en tfi samanburðar má nefna
að þær bækur kostuðu áður 1.800
krónur. -JJ
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins, Austurvegi 4, Hvolsvelli, föstu-
daginn 29. janúar 1993 kl. 15.00 á eftirfarandi eign.
Berjanes, Austur-Eyjafjallahreppi, þinglýstur eigandi Vigfús Andrésson.
Gerðarbeiðendur: Jón Eyjólfsson, Brunabótafélag islands, Globus hf„ Póst-
og símamálastofnun, Landsbanki íslandsog Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Sýslumaðurínn í Rangárvallasýslu
LEIKFIMINÁMSKEIÐ í KVENNA-
GALLERÍI Í GARÐABÆ ER AÐ
BYRJA, PRÚFIÐ FRÍAN TÍMA.
Einnig eru til sölu 3 nýjar
leikfimispólur misjafnlega
erfiðar með Hönnu Forrest.
Sendum í póstkröfu um allt
land.
Upplýsingar um leikfimi og
spólur i SÍMA 45399.
Vinnum að betri heilsu og
betri likama '93.
Verkamannafélagið Hlíf
Tillögur uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs Verka-
mannafélagsins Hlífar um stjórn og aðra trúnaðar-
menn félagsins fyrir árið 1993 liggja frammi á skrif-
stofu Hlífar frá og með þriðjudeginum 26. janúar
1993.
Öðrum tillögum ber að skila á skrifstofu Hlífar,
Reykjavíkurvegi 64, fyrir kl. 16 föstudaginn 29. jan-
úar 1993 og er þá framboðsfrestur útrunninn.
Kjörstjórn Verkamannafélagsins Hlífar
Auglýsing um próf
fyrir skjalþýðendur
og dómtúlka
Þeir sem öðlast vilja réttindi sem skjalþýðendur og
dómtúlkar eiga þess kost að gangast undir próf er
hefjast væntanlega 26. mars nk. ef þátttaka verður
nægjanleg.
Fyrir þá sem vilja þreyta prófið verður haldið undir-
búningsnámskéið dagana 18., 19. og 20. febrúar og
tilkynnist þátttaka í því til dóms- og kirkjumálaráðu-
neytisins eigi síðar en 12. febrúar og jafnframt ósk-
ast tilkynnt í hvaða máli umsækjendur hyggjast
þreyta prófið. Námskeiðsgjald er kr. 12.000.
Frestur til innritunar í próf rennur út 5. mars 1993
og skal skila umsóknum um þátttöku í prófinu til
ráðuneytisins á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Löggildingargjald er kr. 25.000.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 24. janúar 1993.