Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1993, Page 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993.
A&næli
Bjami Guðmundsson
Bjarni Guðmundsson, fyrrv. sér-
leyfishafi, Skarphéðinsgötu20,
Reykjavík, er 85 ára í dag.
Starfsferill
Bjami er fæddur í Túni í Hraun-
gerðishreppi og ólst þar upp.
Hann hóf ungur að starfa við akst-
ur og var atvinnubílstjóri í tæp 60
ár.
Bjami ók rútubíl frá árinu 1933
og var sérleyfishafi í Gaulverjarbæj-
ar- og Hraungerðishreppi allt til árs-
ins 1980.
Samhhða sérleyfisferðunum fór
hann í fjalla- og öræfaferðir og tók
að sér vöruflutninga.
Fjölskylda
Bjami á sex systkini. Þau em:
Guðrún, f. 28.12.1911, húsmóðir í
Hraungerði í Hraungerðishreppi,
var gift Sigmundi Amundasyni, f.
12.3.1960, d. 8.10.1976, fyrrv. b. og
eignuðust þau fjögur böm; Guð-
finna, f. 3.9.1912, húsmóðir í
Vorsabæ í Gaulverjabæjarhreppi,
gift Stefáni Jasonarsyni, f. 19.9.1914,
b. þar, og eiga þau fimm böm; Jón,
f. 7.3.1914, bílstjóri á Selfossi,
kvæntur Rut Margret Jansen, f. 10.8.
1934, húsmóður frá Þýskalandi, og
eiga þau þrjú börn; Einar, f. 17.9.
1915, húsasmiður, búsettur í Reykja-
vík, ókvæntur og bamlaus; Stefán,
f. 14.6.1919, b. í Túni, Hraungerðis-
hreppi, kvæntur Jómnni Jóhanns-
dóttur, f. 1.12.1920, húsmóður og
eiga þau sjö böm; og Unnur, f. 30.7.
1921, húsmóðir í Reykjavík, gift
Herði Þorgeirssyni, f. 15.7.1917,
húsasmíðameistara.
Foreldrar Bjama voru Guðmund-
ur Bjamason, f. 26.3.1875, d. 8.6.
1953, b. í Túni, Hraungerðishreppi,
og Ragnheiöur Jónsdóttir, f. 12.5.
1878, d. 4.3.1931, húsmóðir.
Ætt
Guðmundur var sonur Bjarna, b.
Túni, Eiríkssonar, b. Túni, Bjarna-
sonar, b. Hjálmholti, Stefánssonar.
Móðir Bjama í Túni var Hólmfríð-
ur, systir Guðmundar í Vorsabæjar-
hjáleigu, langafa Stefáns Jasonar-
sonar í Vorsabæ. Hólmfríður var
dóttir Gests, b. í Vorsabæ, Guöna-
sonar, langafa Oddnýjar, langömmu
Vals Amþórssonar bankastjóra.
Móöir Hólmfríðar var Sigríður Sig-
urðardóttir, systir Bjama Síverts-
ens riddara. Móðir Guðmundar var
Guðfinna Guðmundsdóttir, b. í Hró-
arsholti, Tómassonar, pr. í Villinga-
holti, Guðmundssonar. Móðir Guð-
finnu var Elín, dóttir Einars, b. í
Hróarsholti, Brandssonar og Vil-
borgar Jónsdóttur.
Ragnheiður var dóttir Jóns, b. á
Skeggjastöðum í Flóa, Guðmunds-
sonar, b. á Skeggjastöðum, bróður
Bjöms, langafa Agústs Þorvalds-
sonar, alþingismanns á Brúnastöð-
um. Guðmundur var sonur Þor-
valds, b. í Auðsholti, Bjömssonar,
bróður Knúts, langafa Hannesar
þjóðskjalavarðar, Þorsteins hag-
stofustjóra og Jóhönnu, ömmu Æv-
ars Kvarans og Gísla Alfreðssonar
þjóðleikhússtjóra.
Móðir Ragnheiðar var Guðrún
Bjamhéðinsdóttir, b. í Þjóðólfshaga
í Holtum, Einarssonar, og konu
hans, Guðrúnar Helgadóttur, b. á
Markaskarði, Þórðarsonar, bróður
Tómasar, langafa Tómasar, föður
Þórðar, safnvarðar að Skógum.
Móðir Guðrúnar var Ragnheiður
Ámadóttir, b. í Garðsauka, Egils-
sonar, prests í Útskálum, Eldjáms-
Bjarni Guðmundsson.
sonar, bróður Hallgríms, langafa
Jónasar Hallgrímssonar skálds og
Þórarins, langafa Kristjáns Eldjáms
forseta.
Bjarni verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
I)yngjuvegi4,
Reykjavík.
Óliverðurað
heimanáaf-
mælisdaginn.
85 ára
Sigmundur Guðmundsson,
Austurbyggð 17, Akureyri.
Kristinn Rögnvaldsson,
Hnjúki, Svarfaðardalshreppi.
70ára
Guðiaugur Traustason,
Kópnesbraut 21, Hólmavík.
Mary Costello,
Eyrariandsvegi 26, Akureyrí.!
60 ára
Gunnar Leósson,
Hlíðarstræti 15, Bolungarvík.
Kr istín Jóna Einarsdóttir,
Kirkjubraut 15, Níarðvik.
Tómas Jónsson,
Tryggvagötu24, Selfossi.
Rannveig Gísladóttir,
Marbakkabraut 16, Kópavogi.
Heidrun Charlotte Vogt,
Hjarðarhaga 64, Reykjavík.
Friðsemd Ingibjörg Ólafsdóttir,
Hlíðarvegi 25, Grundarfirði.
40ára
Peter Jones,
! Bogahlíð lla, Akureyri.
ÞórhaUur Tryggvi Tryggvason,
Krummahólum8, Reykjavík.
Sigxujón Stefán Björnsson,
Hlaðhömrum 22, Reykjavík.
Elísahet Hilmarsdöttir,
Hvassaleiti28, Reykjavík.
Elsa Stefánsdóttir,
Hofi, Hofshreppi.
Óli Rey nir Ingimarsson,
Fagraholti 6, Isafirði.
Ólafia Ólafsdóttir,
Grenigrund 33, Akrancsi.
Andlát
Jón Páll Sigmarsson
Jón Páll Sigmarsson, kraftlyft-
inga- og aflraunamaður, Grundar-
tanga 11, Mosfellsbæ, lést laugar-
daginn 16.1. sl. Útför hans fer fram
frá HaUgrímskirkju kl. 13.30 í dag,
þriðjudaginn26.1.
Starfsferill
Jón PáU fæddist í Hafnarfirði 28.4.
1960. Hann ólst þar upp fyrstu tvö
árin, síðan í Stykkishólmi tfi níu ára
aldurs og loks í Árbæjarhverfinu en
hann bjó í Reykjavík lengst af síðan.
Jón PáU var í hópi fremstu kraft-
lyftingamanna heims og vann til
fleiri titla á aflraunamótum en
nokkur annar einstakUngur.
Hann hóf að æfa lyftingar hjáKR
sautján ára og kraffiyftingar ári síð-
ar. Hann varð íslandsmeistari ungl-
inga í ólympskum lyftingum 1978,
íslandsmeistari í lyftingum og kraft-
lyftingum 1980 og 1981 og íslands-
meistari í kraftlyftingum 1982 og
1986.
í kraftlyftingum vann hann silfur-
verðlaun á Norðurlandamótinu í
Reykjavík 1979, silfurverðlaun á
Evrópumeistaramótinu í Sviss 1980,
guUverðlaun á Norðurlandamótinu
í Noregi 1980, sUfurverðlaun á Evr-
ópumeistaramótinu á ítaUu 1981,
guUverðlaun á Norðurlandamótinu
1981, bronsverðlaun á heimsmeist-
aramótinu á Indlandi 1981 og silfur-
verðlaun á Evrópumeistaramótinu
á Álandseyjum 1983. Hann setti Evr-
ópumet 1984 auk þess sem hann setti
Norðurlandamet og átti mikinn
fjölda íslandsmeta.
Jón PáU varð þrisvar íslands-
meistari í þyngsta flokki í vaxtar-
rækt; 1984,1986 og 1988 og tvisvar
aUsheijar íslandsmeistari í vaxtar-
rækt.
Hann hóf þátttöku í kraftamótum
erlendis 1983, vann titilinn „sterk-
asti maður heims“ í Svíþjóð 1984, í
Frakklandi 1986, í Ungveijalandi
1988 og í Finnlandi 1990. Þá vann
hann titiUnn „sterkasti maöur aUra
tíma“ 1987 og þrisvar titiUnn „World
Muscles Power Campionship". Þá
vann hann titilinn „sterkasti maður
Finnlands 1992. Hann var kjörinn
íþróttamaður ársins hjá KR og jafn-
framt af íþróttafréttamönnum 1981.
Fjölskylda
Sonur Jóns Páls er Sigmar Freyr
Jónsson, f. 7.9.1983.
Jón PáU átti átta hálfsystkin.
Foreldrar Jóns Páls eru Sigmar
Jónsson, f. 25.5.1935, stórkaupmað-
ur í Reykjavík, og Dóra Jónsdóttir,
f. 30.5.1940, húsmóðir í MosfeUsbæ.
Fósturfaðir Jóns Páls er Sveinn
Guðmundsson, f. 1.6.1937, fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík.
Ætt
Sigmar er sonur Jóns Dal, b. í
TunguhUð í Skagafirði, Þórarins-
sonar, b. í Dölum í Hjaltastaðaþing-
há, Ólafssonar, b. að Urriðavatni í
FeUum, Hjörleifssonar. Móðir Jóns
Dal var Jónína Björg Jónsdóttir, b.
í Dölum, Einarssonar, og Bóelar
Jónsdóttur frá Bæ í Lóni. Móðir
Sigmars er Sigurveig Jóhannesdótt-
ir, b. á Miðgrund í Akrahreppi, Sig-
valdasonar, b. í Glaumbæ í Langa-
dal. Móðir Sigurveigar var Jóhanna
Jónsdóttir.
Dóra er dóttir Jóns, pípulagninga-
manns í Hafnarfirði, Pálssonar,
verkamanns í Reykjavík, Jónsson-
ar, b. í Hvammi í Kjós. Móðir Jóns
í Hafnarfirði var Vigdís, dóttir Jóns,
bróður Ingibjargar, langömmu
Flosa Ólafssonar leikara. Önnur
systir Jóns var Sigríður, amma
Guðmundar Amlaugssonar, fyrrv.
rektors MH. Jón var sonur Odds,
b. á Brennistöðum í Flókadal, bróð-
ur Lofts, afa Lofts Bjamasonar, for-
stjóra Hvals hf„ föður Kristjáns, for-
stjóra Hvals. Annar bróðir Odds var
Jón, langafi Sigmundar Guðbjama-
sonar, fyrrv. háskólarektors. Systir
Odds var Kristín, móðir Ingibjargar
Johnson, kaupkonu í Reykjavík,
ömmu Ólafs Ó. Johnson, forstjóra
Ó. Johnson og Kaaber, og Amar Ó.
Johnson, fyrrv. forstjóra Flugleiða.
Oddur var sonur Bjama Hermanns-
sonar, ættfóður Vatnshomsættar-
innar úr Skorradal. Móðir Odds var
Jón Páll Sigmarsson.
Ingibjörg Jónsdóttir, b. á Stórabotni
í Hvalfirði, ísleifssonar, og Guðrún-
ar, systur Jóns, prest á Hrafnseyri,
afa Jóns forseta. Systir Guðrúnar
var Salvör, amma Tómasar Sæ-
mundssonar. Móðir Jóns var Helga
Böðvarsdóttir, b. í Skáney, Sigurðs-
sonar, og Ástríðar Jónsdóttur, b. í
Deildartungu, Þorvaldssonar, ætt-
föður Deildartunguættarinnar.
Móðir Vigdísar var Ingveldur Hann-
esdóttir frá Hvoh í Ölfusi.
Móðir Dóm var Guðrún Stefáns-
dóttir „sterka“ frá Lambhaga í
Hraunum, Magnússonar. Móðir
Stefáns var Jörgensína, systir
Kristjáns, foður Axels, forstjóra í
Rafha. Jörgensína var dóttir Jó-
hanns Cristians Boier, dansks skip-
stjóra, og Helgu Hálfdánardóttur.
Ökuþórinn Nigel Manselt
maður ársins í Bretlandi.
íþróttahetjumar
erustoltBreta
Kappaksturshetjan Nigel
Mansell var kosinn maöur ársins
í Bretlandi af lesendum Hello.
Niöurstöður þessa víðlesna ttma-
rits vora kynntar í síðasta tölu-
blaði en í DV á föstudaginn var
m.a. birtniöurstaðan úr kosning-
unni ura konu ársins.
Á hæla ökuþórinum, sem vann
Formúlu 1 kappaksturskeppnina
í fyrra, kom John Major forsætis-
ráðherra en hann var eini stjórn-
málamaðurinn í hópi tíu efstu
manna. Tlialdsmaðurinn var í
þriðja sæti á síðasta ári og er því
i framför að mati lesenda blaðs-
ins. Annars sýnir listinn að Bret-
ar eru afskaplega stoltir af afrek-
um íþróttamanna sinna og til
marks um þaö er ólympíumeist-
arinn í 100 metra hlaupi, Línford
Christie, í þriðja sæti og fyrram
fyrirliði enska knattspyrnu-
landsliðsins, Gary Lineker, i því
sjötta
Kalli prins var í limmta sæti.
Vinsældir karlpcningsins í kon-
ungsfiölskyldunni fara snar-
minnkandi og Kalli prins varð að
láta sér nægja fimmta sætið. Fast
é eftir honum kemur Andrés
bróðir hans en sá yngsti, Játvarð-
ur, komst ekki á blað.