Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1993, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1993, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR17. FEBRÚAR1993 Fréttir Búist við vaxtalækkun innan tíðar: Markaðstæk aðgerð í gegnum Seðlabankann - segir JónSigurðssonviðskiptaráðherra Samkvæmt heimildum DV er stutt í raunvaxtalækkun. Ríkis- stjómin mun beita Seðlabankanum í þessu máli með þeim hætti að hann kaupi umtalsvert magn ríkis- verðbréfa með lægri vöxtum en nú eru á markaðnum. Þar sem ekki er víst að þetta eitt nægi til þess að fá bankana til að lækka vexti verða lífeyrissjóðimir með í ráð- um. Þar með gætu bankamir ekki lengur streist á móti. Næsti vaxta- breytingardagur bankanna er 21. febrúar. Mikið hefur verið unnið í þessu máb á bak við tjöldin að undanfömu og er það í fullum tengslum við þá kjarasamninga sem hafnir em. „Ég get ekkert sagt til um hvenær vaxtalækkun á sér stað né hve mik- il hún verður. Forsendur vaxta- lækkunar eru að skýrast. Lífeyris- sjóðimir hafa óskaö eftir viðræð- um um vextina. Ríkisstjómin mun stuðla að vaxtalækkun með mark- aðstækum aðgerðum í gegnum Seðlabanka íslands,“ sagði Jón Sig- urðsson viðskiptaráðherra. Samkvæmt þvi sem stjómarþing- menn sögðu er DV ræddi við þá um málið bera bankamir það íyrir sig við ríkisstjómina að þeir geti ekki lækkað vexti vegna óvissu á vinnumarkaði. Þeir segjast vilja fá tryggingu fyrir því að ekki verði samið um miklar launahækkanir og verðbólgan fari af stað aftur. Þess vegna vinnur ríkisstjómin nú að þessu máh á bak við tjöldin, í samvinnu við aðila vinnumarkað- arins og Seðlabankann. Eftir að ríkissjóður hætti að vera með yfirdrátt í Seðlabankanum, en fór með öll sín bréf á markað, segja stjómmálamenn að skyldur Seðla- bankans hafi breyst. í stað þess að lána ríkissjóði verði Seðlabankinn að spila sitt hlutverk á verðbréfa- markaðnum en þaö hefur hann ekki gert. Erlendis em millibanka- vextir notaðir til að stýra vaxta- málum. Markaðurinn hér er svo lítill og vanþróaður að ekki em til hin skjótu viðbrögð Seðlabanka eins og tíðkast í öðmm löndum. Með því að fá Seðlabankann inn í dæmið nú er hægt að knýja fram vaxtalækkun, hvort sem menn kalla það markaðstækar eða sér- tækaraðgerðir. -S.dór Stuttar fréttir Þessar vösku konur fá loðnuna i beitu. DV-mynd Ægir Már Vaktavinna í loðnunni í Grindavík Ægir Már Káiasan, DV, Suðumesjum: „Við erum nýbyrjaðir að vinna á vöktum og erum með 70 tonn af loðnu sem fryst er á Japansmarkað. Það em 20 manns sem vinna á vakt og vaktimar em tvær,“ sagði Halldór Sigurðsson, verkstjóri hjá Fiskanesi í Grindavík, í samtaii við DV. Það var mikið líf í kringum Há- bergið, sem kom með stóra og góða loðnu til Grindavíkur. Nóg var af loðnunni á miðunum - Hábergiö fékk 500 tonn í einu kasti. Bolvlkingar vilja stofna nýtt útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki: Létta þyrfti hehningi skulda af togurunum „Við leitum allra leiða sem leitt geta til þess að hjól atvinnulífsins í Bolungarvík geti farið að snúast á nýjan leik. Viö höfum að leiðarljósi að um framtíðarlausn sé að ræða. í þessari stöðu verður bæjarsjóður að vera leiðandi afl. Við stefnum hins vegar ekki að því að koma á fót bæj- arútgerð til framtíðar. Frá upphafi höfum hins vegar stefnt að því að fá togarana og fiskvinnsluna leigða þar til nýir aðilar geti tekið við rekstrin- um,“ segir Olafur Benediktsson, formaður bæjarráðs Bolungarvíkur. Bæjarráð Bolungarvíkur gekk á fund Byggðastofnunar í gærmorgun til að ræða aðgerðir til bjargar at- vinnulífi á staðnum. Á fundinum var farið yfir hugmyndir Bolvikinga um yfirtöku á togurum Einars Guðfinns- sonar, Heiðrúnu og Dagrúnu, og leigu eða yfirtöku á eignum EG og dótturfyrirtækisins Hóla í landi til fiskvinnslu. Áætlað söluverðmæti togaranna með kvóta er á bilinu 700 til 800 milljónir. Eftir hádegi í dag mun bæjarráð Bolungarvíkur eiga fund með Jó- hönnu Sigurðardóttur félagsmála- ráðherra, Friörik Sophusson fjár- málaráðherra og Davíð Oddsson for- sætisráðherra. Aður ætla Bolvíking- ar að hitta bankastjóra Landsbank- ans. Upphaflega stóð til að hitta Sverri Hermannsson í gær en af því gat ekki orðið þar sem hann vildi hafa samráð við aðra bankastjóra fyrir fundinn. Ólafur Benediktsson segir það trúnaöarmál hvaða hugmyndir sé nú verið að kynna Byggðastofnun, Landsbankanum og ráðherrum. DV hefur hins vegar heimildir fyrir því að þær feli í sér að helmingur af skuldum togaranna verði felldur nið- ur eða lækkaður með hlutafé sem hugsanlegir eigendur að nýju fyrir- tæki um útgerðina og fiskvinnsluna kynnu að leggja til. Talið er að út- gerð togaranna geti ekki staðið undir meira en 400 milljóna króna skuld. Ákvílandi á togurunum eru hins veg- ar 900 milljónir, þar af um 400 millj- óna króna lán frá Landsbankanum. Báðir togarar EG eru nú á veiðum en Heiðrún kemur væntanleg til hafnar í vikunni. Þá mun áhöfnin ganga atvinnulaus í land og aflinn verður seldur á fiskmarkaöi því öll vinnsla liggur nú niðri í Bolungar- vík. Dagrún mun hins vegar sigla með sinn afla til Þýskalands og er áhöfnin ekki væntanleg í land fyrr en í lok mánaðarins. Allt að 200 manns hafa eða munu missa vinnuna í Bolungarvík vegna gjaldþrots EG og Hóla. Skuldir fyrir- tækjanna eru hátt í tveir milljarðar. Eignir á landi eru hins vart taldar söluvara en á þeim hvíla þó veð- skuldir upp á hundruð milljóna. -kaa K. Jónsson á Akureyri: Skoraðá stjóminaað endurskoða ákvörðun um uppsögn kaupauka- samnings Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Starfsfólk Niðursuðuverk- smiðju K. Jónssonar á Akureyri hefur samþykkt að skora á stjóm fyrirtækisins að endurskoða þá ákvörðun sína að segja upp kaup- aukasamningi við starfsfólkið. Sú ákvörðun, sem kom til fram- kvæmda um síðustu helgi, hefur í för með sér yfir 20 þúsund króna launalækkun starfsfólksins sem fær þá aðeins greitt taxtakaup á bilinu 43-47 þúsund krónur á mánuði. Starfsfólk fyrirtækisins, sem DV hefur rætt við, hefur ekki veriö tilbúið að tjá sig um máhö, og ber m.a. við að slíkt sé hættu- spil sem gæti e.t.v. kostað upp- sögn. „Mér virðist vera næg ólga innan veggja fyrirtækisins og ég þori hreinlega ekki að blanda mér í málið. Ég er ekki að segja að það gæti kostað mig vinnuna en ég er ekki tilbúin að taka þá áhættu," sagði starfsmaöur fyrir- tækisins sem DV ræddi við. Sömnu sögu var að segja þegar DV leitaði til Guðrúnar Káradótt- ur, trúnaðarmanns starfsfólks. „Ég vil bara vísa þessu til verka- lýðsfélagsins, ég hef engar upp- lýsingar. Það er legið ámanni en ég er ekki til viðræðu,“ sagði Guðrún. Bjöm Snæbjömsson, formaður Verkalýðsfélagsins Einingar, seg- ir að mikil reiði sé meðal starfs- fólksins, en á fundi hans með starfsfólkinu vora málin rædd. „Við höfum óskað formlega eftir viðræðum við forsvarsmenn fyr- irtækisins og það hefur veriö skorað á sljóm þess að endur- skoða þessa ákvörðun," sagði Bjöm eftir fund með starfsfólk- inu. Á þeim fundi var samkvæmt heiroild DV rætt um að gripa til aðgerða yrði ákvörðunin um uppsögn kaupaukakerfisins ekki endurskoðuð. Þar var m.a. minnst á að minnka afköst, en þetta var heldur ekki hægt að fá neinn til að tjá sig um undir nafni. Féiagsiegir vextir hækka Ríkisstjómin hefur samþykkt að vextir í félagslega íbúöakerf- inu hækki úr 1 prósenti i 2,4 pró- sent frá og með l. mars. Hækkun- in nær til lána frá 1. júli 1984. Formannafundw BSRB Formannafundur hefur verið boðaður hjá BSRB í dag til að ákveöa framhald samningamála. I gær hafnaði samninganefnd rík- is kröfum um kauphækkun. Dómsmálaráðherra hefur gert lögreglustjóra að endurráöa íjóra lögregluþjóna sem sagt var upp í hausL Umboðsmaður Alþingis telur að brotið hafi verið á þeim. Ýmis kvennasamtök efna í dag til mótmælaaðgerða á Austur- vellí.klukkan 17.17. Aðgerðunum er béint gegn mannréttindabrot- um og ofbeldi gegn konum og börnum í stríðshijáðum löndum fyrram Júgóslavíu. Guðríður Sigurðardóttir, ráðu- nautur menntamálaráðherra, verður skipuð næsti ráðuneytis- stjóri i menntamálaráðuneytinu. Hún tekur við af Knúti Hallssyni. Eistneskt ákveðið að hefja reglubund^ ieiguflug milli Eistlands og Norð- ur-Ameríku meö millilendingu á íslandi. Stöð tvö skýrði frá þessu. Deiiuríborgarráði Borgarráð samþykkti í gær að veita Tómasi A. Tómassyni leyfi fyrir 20 milljóna króna veðsetn- ingu á Hótel Borg. Víð kaup á hótelinu fékk Tómas veðlevfi fyr- if' 15 milljón króna láni. Agrein- ingur varð um máhð í borgarráöi. Borgarráö samþykkti á fun sínum í gær að semja við Stofi lánadeild landbúnaöarins u leigu á Reiöhöllinni i Víðidal 1 áramóta. Fóstrar í Hafnarfirði hafa sam- þykkt miðlunartillögu ríkissátta- semjara frá því i vor. Boðaö verk- fall í dag kom því ekki til fram-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.