Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1993, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1993, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR .1993. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11. 105 RVlK, SÍMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð I lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Gjaldþrot á gjaldþrot ofan Áföllin dynja yfir og viröist lítið lát á. Gjaldþrot SH- verktaka og gjaldþrot Hagvirkis, tveggja af stærstu verktakafyrirtækjum landsins, eru reiöarslag þar sem hundruð manna missa atvinnu og gífurlegir fjármunir tapast. Gjaldþrot Einars Guöfinnssonar hf. er ekki minna áfall en þar er heilt byggöarlag í rúst. Hætt er við að gamh maðurinn hafi snúið sér við í gröfinni við þessi tíðindi, enda af sem áður var þegar þetta mikla fyrir- tæki í Bolungarvík var rekið af myndarskap og fyrir- hyggju. Munurinn á gjaldþrotum verktakafyrirtækjanna og EG er sá að verktakar lifa í áhættusömum heimi. Þeir rísa og falla með verkefnum, útboðum og tilboðum. EG .í Bolungarvík hefur og lifað á svipulum sjávarafla, en fyrirtækið er gamalgróið og átti að hafa traustar undir- stöður. Útgerð frá Bolungarvík á að geta lifað, ef útgerð er á annað borð möguleg á íslandi. Greinilegt er að forsvarsmenn fyrirtækisins hafa ekki gáð að sér. Hér virðist sannast kenningin um að þriðja kynslóð ráði ekki við verkefnin. Meðal afkomenda Ein- ars Guðfmnssonar er margt og mikið ágætis fólk en sennilega hefur yfirbyggingin verið of stór og of lengi dregist að grípa til ráðstafana. Boltinn hlóð utan á sig og varð að lokum óviðráðanlegur. En hér er það ekki ein fjölskylda sem bíður ósigur. Heilt byggðarlag er í hættu. Afkoma hundraða manna og kvenna er háð þeim rekstri sem EG hefur staðið fyr- ir. Bæjarstjómin rær nú lífróður en hætt er við að ríkis- stjóm, Landsbanki og Byggðastofnun hafi ekki bolmagn til að skera Bolungarvík niður úr snörunni. Vonin er bundin við að halda megi skipunum og kvótanum í plássinu, enda em fiskvinnsluhúsin og fjárfestingar til staðar fyrir nýja eigendur og nýja áhöfn. Það sama má segja um verktakafyrirtækin. Gjaldþrot þeirra em skipbrot þeirra sem eiga fyrirtækin í dag en verkefnin em enn til staðar, tækin og verkkunnáttan og hér má aftur fá annað skip og annað föruneyti. Þessir atburðir opna augu okkar fyrir því að allt er í heiminum hverfult og menn lifa ekki á goðsögnum eða fomri frægð. Samband íslenskra samvinnufélaga er nánast horfið af sjónarsviðinu, kommúnisminn er dauð- ur og máttarstólpar einkaframtaksins eru líka forgengi- legir. En það þýðir ekki að gráta Bjöm bónda. Á rústum þeirra fyrirtækja, sem nú hafa orðið gjaldþrota, þarf að reisa ný við. Við þurfum áfram stór verktakafyrirtæki og við þurfum áfram öflug sjávarútvegsfyrirtæki. Bol- víkingar munu ekki leggja árar í bát og þeir fullhugar og frumherjar, sem nú eiga í erfiðleikum í verktakaiðn- aðinum, munu aftur rísa á fætur. Gjaldþrotin virka því miður lamandi á allan almenn- ing og draga enn úr viðnámsþreki. Gjaldþrot á gjaldþrot ofan em eins og naglar í líkkistu. En þau era hluti af harðnandi samkeppni, lögmálum peninganna og mark- aðarins og afsprengi þeirrar breyttu en réttu stefnu, að láta eitt yfir alla ganga. Einhvem tímann hefði stjóm- málamönnum dottið í hug að bjarga sínum skjólstæðing- um og raunar á sá hugsunarháttur einhverja sök á skip- broti EG. Það hefur sífellt verið lengt í hengingaróhnni og sá bjamargreiði er nú dým verði keyptur. Gjaldþrot em víti til að varast. Þau em enn eitt dæm- ið um að hvorki einstaklingar, fyrirtæki né þjóð geta lifað um efni fram. Það kemur að skuldadögunum. EUert B. Schram „Hjá stjórnvöldum er sú sóun, sem langmestu máli skiptir, timasóun, bæði á þeirra eigin tima og á tíma annarra", segir Snjólfur m.a. Fjárlagahalli og atvinnuleysi Stjórnvöld standa nú í erfiöri baráttu viö viðvarandi íjárlaga- halla og meira atvinnuleysi en menn sætta sig viö. Ula gengur að finna lausn á þessum vanda og flestir gera sér grein fyrir því aö ekki er nein „patentlausn“ á vandamálunum. Um sumar nauðsynlegar breyt- ingar ríkir almenn samstaða. Til dæmis viðurkenna nær allir að við höfum varið allt of litlu fé og tíma til rannsókna á hðnum árum. Næg- ir að nefna fiskeldisævintýrið sem dæmi en ljóst er að með meiri áherslu á rannsóknir hefði mátt koma í veg fyrir sóun á milljörðum króna. í grein í Vísbendingu þann 18. febrúar útskýri ég þá skoðun mína að í vissum skilningi sé einföld „lausn“ á viðvarandi fjárlagahalla og atvinnuleysi. Hún felst í því að stjómvöld taki upp gæðastjómun í vinnu sinni. Gæðastjórnun snýst , um viðhorf og vinnubrögð og skoð- un mín er sú að með breyttum vinnubrögðum'. _ri mun auðveld- ara fyrir stjómvöld að leysa þessi viðfangsefni. Ekki er með því sagt að gjörbylta þurfi öhu í stjórnsýslunni, því Uta má á gæöastjómun sem skipulegt safn af góðum vinnubrögöum og sem betur fer er margt gott í vinnu- brögðum hjá stjómvöldum. En bet- ur má ef duga skal. í þessari og næstu greinum verður þessi skoð- un útskýrö betur og hún rökstudd. Ákvarðanir stjórnvalda Alþingismenn, ráðherrar og und- irmenn þeirra vinna við að taka ákvarðanir. Mörg af grundvaUar- atriðum í gæðastjómun hjá fram- leiðslufyrirtækjum gUda einnig um „framleiðslu" ákvarðana. Gæða- stjómun felur meðal annars í sér tvennt: Hún færir stjómendum í hendur aðferðir til að virkja aUa KjaUaiinn Snjólfur Ólafsson dósent við Háskóla íslands starfsmenn og hún dregur úr tvi- verknaði og sóun í rekstri. Hjá stjórnvöldum er sú sóun, sem lang- mestu máU skiptir, tímasóun, bæði á þeirra eigin tíma og á tíma ann- arra. Ég læt lesendum eftir að rifja upp dæmi um sUkt, en af nógu er að taka. Virkjun starfsmanna Stjómvöld þurfa að Uta á alla landsmenn sem starfsmenn. Að virkja starfsmennina felur í sér betri nýtingu á tíma og atorku þeirra. Augljóst er að starfsmenn, sem ganga atvinnulausir, em ekki vel nýttir og því ætti gæðastjómun hjá stjómvöldum að leiða til þess að atvinnuleysi minnki. En hvemig getur þetta gerst? Stjórnvöld geta notað flölmargar af þeim aðferðum sem fyrirtæki nota og fjaUað er um í bókum um gæðastjómun. Hér verður aöeins nefnt eitt atriði sem er afar mikil- vægt. Stjómvöld þurfa að móta skýra stefnu og útskýra hana vel og tímanlega fyrir landsmönnum. MikiU misbrestur er á að svo sé og hvað eftir annað verður maður vitni aö stórfeUdu tapi þjóðarinnar vegna þess. Dæmi um þetta eru (1) hring- landaháttur í húsnæðiskerfinu undanfarin ár, (2) skyndUegar breytingar á reglum um hvaða vör- ur og þjónusta beri virðisaukaskatt og (3) fjárframlag tU hafnargerðar á Blönduósi. Gæöastjórnun felur í sér sífeUdar endurbætur og framfarir. Því er ekki ástæða til að gera úttekt og skrifa skýrslu áður en hafist er handa við að innleiða (enn frekari) gæðastjómun í stjómsýslunni. Fjölmargir einstakUngar eru tU- búnir tU að benda á atriði s_em hægt er að bæta strax en spuming- in er hvort stjómvöld þiggja þá aðstoð sem þeim býðst. Snjólfur Ólafsson „Stjórnvöld þurfa að móta skýra stefnu og útskýra hana vel og tímanlega fyrir landsmönnum. Mikill misbrestur er á að svo sé og hvað eftir annað verður maður vitni að stórfelldu tapi þjóðar- innar vegna þess.“ Skoðanir annarra Að skipta vegafé „Það verður alltaf viðkvæmt að skipta vegafé og þar em margar skoðanir á lofti... Það á að vera hlutverk þingmanna kjördæmanna og þeir eiga að hafa samráð við sveitarstjómarmenn og aðra... TU þess að sinna þessu hlutverki hefur Samband sveit- arfélaga á Austurlandi sett sérstaka nefnd sem hefur haldið reglulega fundi um máUð... Á næstunni mun á þaö reyna hvort þaö er tíl einhvers að vinna að vönduðum undirbúningi þegar ráðherrar ems og heUbrigðisráðherra og samgönguráðherra virðast geta gert þaö sem þeim sýnist á grundvelh eigin skapgerðar á hveijum tíma.“ Halldór Ásgrimsson í leiöara Austra 11. febr. Hluti þróunar „Það er hins vegar ekki hægt að horfa fram hjá því að fyrirtæki sigla stundum í strand. Þótt slíku fylgi ávallt sárindi og margvíslegir erfiðleikar, er fyrir öUu að ný atvinnustarfsemi verði byggð upp í staðinn. Það er eðU markaðarins að fyrirtæki Uða undir lok og önnur ný koma í þeirra stað. Það er hluti af þróuninni en víða um heim hafa stjómvöld haldið of lengi í vonlaus fyrirtæki sem tíl lengri tíma hafa sUgað efnahagsþróun og athafnalíf viðkomandi þjÓða.“ Úr leiðara Abl. 16. febr. Landlæg tregða „Gjaldþrotahrina gengur nú yfir í þjóðfélag- inu... Þrátt fyrir þessar staðreymUr eru hér hærri raunvextir en í nokkru nágrannalandi. Ástandið eins og það er nú krefst skjótra aðgerða, en ekki þeirrar tregðu sem virðist landlæg í þessum málum. Ef þær stjórnunaraðferöir, sem gUt hafa varðandi vaxta- mál, þarfnast endurskoöunar, þohr hún ekki bið.“ Úr leiðara Tímans 16. febr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.