Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1993, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR17. FEBRÚAR1993
9
ingsHavtíbúiim
Bandaríski blökkumannaleiö-
toginn Jesse Jackson heílir haflð
hungurverkfall til að þrýsta á
Bill Clinton forseta um að aflétta
sóttkvi eyðnísmitaðra Haítíbúa í
flotastöð Bandaríkjanna á Kúbu.
Fimmtán Haítíbúar i flotastöð-
inni við Guantanamo flóa hafa
verið í hungurverkfalli í rúmar
tvær vikur til að þrýsta á um
kröfur sínar að fá að fara til
Bandaríkjanna. Flestir Haítíbú-
anna 274, sem eru í Guantanamo,
eru smitaðir af HlV-veirunni sem
veldur eyðni. Bandarísk innflytj-
endalög mema eyðnismituðu
fólki að flytja til landsms.
Jackson hefúr hótað aö hvetja
til hungurverkfalls meðal þjóðar-
innar allrar atlétti Clinton ekki
sóttkvínni innan viku.
Spslitirsfjórn-
málamenn
kosta Ítalíu
1200milljarða
Spilling meðal stjórnmála-
manna á undanfórnum tólf árum
hefur kostað italska ríkið sex
hundruð til tólf hundruð millj-
arða islenskra króna og á sök á
allt að íimmtán prósentum af gíf-
urlegum haHa i ríkisbúskapnum.
Þetta eru mðurstöður rann-
sóknar sem birt var í Tórínó í
gær. Þar er skýrt frá tveimur
aðalleiðum sem spillingin hefúr
farið inn í ríkisbókhaldið.
í fyrsta lagi krefja einkafyrir-
tæki ríkið um meira fyrir birgðir
og þjónustu sem innt er af hendi
til að standa straum af kostnaði
við mútur til stjórnmálamanna.
í öðru lagi var gildi opinberra
fjárfestinga rýrt vegna þess að
stjómmálamenn beindu þeim
ekki endilega í sem arðbærastan
farveg heldur þangaö sem auð-
veldast var að klípa af fé.
Nýrformaðurí
grænlenskum
stjórnarflokki
Grænlenski landsstjómar-
flokkurinn Inuit Ataqatigiit fékk
nýjan formann á mánudag þegar
þingmaðurinn Johan Lund Olsen
frá Sisimiut tók við af Lynge.
Lynge var einn af stofnendum
flokksins í lok áttunda áratugar-
ins. Sem formaöur tók hann þátt
i að tryggja sívaxandi áhrif hæts
á landsþinginu.
Aqqaluk Lynge hefúr verið
harðlega gagnrýndir fyrir fært
flokkinn til hægri og fyxir að hafa
ekki kynnt steömna fýrir trúnaö-
armönnum flokksins um landiö.
hryðjuverkum
Þýski saksóknarinn Alexander
von Stahl segir að búið sé að
koma böndum á nýnasista en
varar viö bráðri hættu af hryðju-
verkum vinstrisinna.
Von Stahl sagöi í ræðu í
Múnchen að ofbeldisárásum
hægrisinna hefði fækkað vem-
lega. Þær voru 2200 á síðasta ári.
Hann sagði hins vegar að
vinstrfslnnuðu skæruliðasam-
tökin, sem kennd eru við Baader-
Meinhof. helðu á að skipa raamv
skap og tækjum til ofbeldisverka.
Baader-Meinhof hópurinn var
stofnaöur snemma á áttunda ára-
tugnum. Um árabil stundaöi
hann mannrán og morð á stjóm-
málamönnum, iðnrekendum og
yfirmönnum herslns en bauðst í
fyrra til aö láta af ofbeldi.
Reuter og Rltzau
Útlönd
Grænfriðungar óttast áform Japana í Kyrrahafinu:
Vilja skutía hval
í stórum stíl á ný
- Japanir sakaðir um sérsamninga við aðila hvalveiðiráðsins
Umhverfisvemdarsamtökin
Greenpeace sögðu í gær að þau óttuð-
ust að Japanir ætluðu að virða sjö
ára gamalt bann við hvalveiðum í
ábataskyni aö vettugi og skutla hval
í stórum stíl í Suður-Kyrrahafi.
„Japanir em að leita leiða til aö
eyðileggja veiðibannið og hlutverk
Alþjóða hvalveiðiráðsins. Þeir vilja
hefja hvalveiöar í ábataskyni að
nýju,“ sagði Juan Carlos Cardenas,
yfirmaður hafumhverfisdeildar
Grænfriðunga.
Japanir, sem em mestu hvalkjöts-
ætur í heimi, vilja binda enda á veiði-
bannið og berjast gegn vemdar-
Karl Bretaprins heflu- hefllað
Mexíkómenn upp úr skónum í fór
sinni um landið og hafa öryggisverð-
ir átt í erfiðleikum með að halda
kvenfólkinu frá því það virðist
kappsmál aUra að kyssa prinsinn.
Sumum hefur tekist það.
Karl hefur blandað saman gamni
og alvöm í ferðinni. Hann fór í gær
til borgarinnar Guadalajara þar sem
228 menn létu lífið í ægUegri gas-
sprengingu á síðasta ári.
Hann heimsótti fólk sem enn á um
sárt að binda vegna sprengingarinn-
ar. Karl var hljóður þegar hann leit
stefnu hvalveiðiráðsins með því að
gera sérsamninga við einstakar að-
Udarþjóðir ráðsins fyrir ársfund þess
sem verður haldinn í maí, að því er
grænfriðungar og umhverfisflokkur
Chile, Partido Humanista Verde,
sögðu á fundi með fréttamönnum í
Santiago í Chile.
Japanir hafa boðið stjómvöldum í
ChUe, ásamt fleirum, tíl „einkafund-
ar“ sem haldinn er í Madrid í dag og
á morgun. Cardenas sagði að sá fund-
ur gæti leitt tU þess aö hvalveiðar í
ábataskyni yrðu samþykktar.
Formaður umhverfisflokksins,
Cristian Reitze, sagði á fréttamanna-
yfir rústir húsa sem hmndu í spreng-
ingunni. Uppbyggingu er enn ekki
lokið.
Bretar hafa styrkt uppbygginguna
í Guadalajara og heUsaöi Karl upp á
tvær fjölskyldur sem misstu heimili
sín en búa nú í húsnæði sem Bretar
leggja til. Karl hughreysti fólkið.
Hann hefur einnig skoðað verks-
ummerki eftir jarðskjálftann mikla í
Mexíkóborg árið 1985 en þar er enn
verið að byggja upp eftir einn
mannskæðasta skjálfta sögunnar.
Karl prins er að sjálfsögðu einn á
ferð. Díana kona hans situr heima
fundinum að þar sem Japanir væru
stærstu viðskiptavinir ChUe gætu
þeir beitt Chilemenn óréttlátum póli-
tískum og efnahagslegum þrýstingi
um að heiimla aftur hvalveiðar á
hafsvæðinu sunnan ChUe og við suð-
urskautið.
Mikið er af hval í Kyrrahafinu und-
an ströndum Chile og lengra suður,
í átt að Suðurskautslandinu. Níu
stórar hvalategundir eiga þar heim-
kynni sín, þar á meðal steypireyður
sem er stærsta hvalategund jarðar-
enda em þau skilin að borði og sæng.
Karl leikur nú á als oddi en í síðustu
ferðinni sem hann og Díana fóm
saman datt hvorki af honum né
draup og Díana prinsessa var í
stólpafýlu.
Þetta var í Suður-Kóreu á síðasta
ári og þá sannfærðust margir um að
sögumar um óhamingjuna í hjóna-
bandinu væm sannar. Það kom líka
á daginn að svo var. Nú er sem þungu
fargi sé af báðum létt þegar þau þurfa
ekkert samneyti að hafa utan opin-
berra athafna.
Reuter
vegaiRAvopn
í sjónvarpsþætti, sem sendur
var út í Bretlandi í gær, sást hvar
Norðmaöur nokkur lofaði að út-
vega skæruliöum írska lýðveldis-
hersins, IRA, vopn. Norðmaður-
inn var kvikmyndaður með fal-
inni myndavél og þeir sem hann
lofaði vopnunum vomsjónvarps-
menn sem þóttust vera útsendar-
ar IRA.
Þáttagerðarmennimir hittu
Norðmanninn nokkrum sinmun
og lofaði hann þeim sextán gerð-
um af vopnum og sprengiefm.
Maöur þessi varö þekktur í jan-
úar í fyrra þegar hann reyndi að
hafa milligöngu um sölu rúss-
nesks þungavatns til sendiráðs
Indlands í Osló,
Þegar sjónvarpsmenn sögðu
loks rétt deili á sér sagðist Norð-
maðurinn vera háttsettur í
norsku leyniþjónustunni.
Amfetamín-
framleiðandi
varðhaldi
Fertugur maður, sem grunaður
er um að hafa framleitt amfetam-
ín á heimili sínu nærri Árósum
í Danmörku, hefur strokið úr
gæsluvarðhaldi.
Flóttinn átti sér stað síödegis á
laugardag. Starfsmenn fangelsis-
ins rétt sáu i fætur mannsins áð-
ur en hann hvarf yfir fangelsis-
múrinn. Hann er nú eftirlýstur
um heim aUan.
Aö sögn lögreglunnar þykir
Ijóst aö maður naut utanaðkom-
andi aðstoöar við flóttann.
Maðminn var handtekinn í
nóvember. Þá fann lögreglan 1,4
kiló af amfetamíni í húsi hans,
auk framleiðslutækjanna.
Sænskolíufélög
lækkaverðiðá
Sænsku ollufélögin haia lækk-
að verðið á blýbensíni allverulega
að undanfömu. Bíleigendur
greiða nú sem svarar tveimur og
hálíri islenskri krónu minna íyr-
ir lítrann en um áramót.
Verömunur á blýlausu bensini
og blýbensíni er minni nú en um
áramót þrátt fyrir að álögur á
blýbensín hafi hækkað um tæpar
tvær krónur á sama tíma.
Ástæöan fyrir verðstríðínu er
ótti oiíufélaganna við að missa
viðskiptavini. Oliusamvinnufé-
lagið OK hefur nefnilega sett a
markaðinn eldsneyti með háu
oktani þar sem natríum kemur í
stað blýsins. Það lækkar bensín-
skattinnum hálfa fimmtukrónu.
Ódýrasta blýbensínið í Stokk-
hóhni kostar rétt rúmar sjötíu
krónur lítrinn.
Rauntekjurí
Finnlandilækka
srfellthraðar
Rauntelgur finnskra launþega
hafa haldið áfram að lækka all-
hratt aö undanfórnu. Á timabil-
inu október til deseraber á síðasta
ári lækkuöu þær um 1,7 prósent
miðað við rauntekjur sama tima-
bils árið á undan. Naftihækkun
tekna var þó 0,8 prósent.
Konur hafa enn nokkuð lægri
laun en karlar. Samkvæmt tölum
frá samtökum atvinnulífsins
voru meðaltímalaun iðnverka-
konu tæplega flórðungi minni en
meðaitímalaun iönverkamanns.
Þær tölur sýna að tímakaup
iönverkafólks fór að lækka þegar
á þriöja ársfjóröungi, basði að
raungildi og nafngáldi.
NTB, Ritzau, TT og FNB
ínnar.
Reuter
Karli Bretaprins hefur verið vel tekið í fimm daga ferð um Mexikó. Hrifnar konur sitja um að kyssa hann og förin
hefur orðið til að létta breska ríkisarfanum mjög í skapi efir erfiðar hjónabandsraunir á undanförnum mánuðum.
Símamynd Reuter
Allt gengur Karli Bretaprins í haginn í Mexikó:
Konurnar sátu um að
kyssa breska prinsinn