Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1993, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1993, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1993. 13 Menning Jóhann Eyfells. Páll Guðmundsson. Pétur Arason. Tumi Magnússon. Þorvaldur Þorsteinsson. Menningarverðlaun DV: Tilnefningar í myndlist Dónmefnd vegna myndlistar hefur tilnefnt eftirfarandi fimm aöila til Menningarverðlauna DV fyrir myndlist árið 1993: Jóhann Eyfells myndhöggvara fyr- ir sýningu á verkum hans sem hald- in var í Listasafni íslands. Þessi sýn- ing einkenndist af djörfung, stórbrot- inni hugmyndafræði og tæknilegri nýsköpun. Pál Guðmundsson frá Húsafelli, myndhöggvara og málara, sem hélt tvær sýningar erlendis og tók þátt í erlendum sýningum við góðan orðs- tír. Höggmyndir Páls eru meðal ann- ars markverðar fyrir notkun hans á forsendum sem brúa bilið milli al- þýðulistar og nútíma höggmynda- gerðar. Pétur Arason verslunarmann fyrir Ustmiðlun og langvinnan og óeigin- gjarnan stuðning við framsækna myndlist, einkum og sérílagi fyrir stofnun sýningaraðstöðunnar „Efri hæðin“ á Laugavegi, þar sem kynnt hafa verið verk þekktra erlendra myndlistarmanna. Tuma Magnússon hstmálara fyrir eftirminnilega sýningu á málverkum sem haldin var í Nýhstasafninu en á henni áréttaði hann sérstöðu sína í íslenskri myndhst, sköpun myndver- aldar mitt í mihi raunveruleika og hugmyndaheims. Þorvald Þorsteinsson myndhstar- maður fyrir formræna og hug- myndalega nýsköpun og markverð innlegg í menningarpóhtíska um- raeðu og sýningarhald á árinu. í dómnefnd vegna myndhstarverð- launa DV eru Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur við Listasafn íslands, Ólafur Enghbertsson, leikmynda- hönnuður og myndhstargagnrýn- andi DV, og Ólafur Gíslason blaða- maður. Menningarverðlaun DV: Dómnefnd um tónhst hefur tilnefnt fimm aðila th tónhstarverðlauna DV árið 1993. Dómnefndina skipa þau Finnur Torfi Stefánsson, tónhstar- gagnrýnandi DV, Guðný Guðmunds- dóttir konsertmeistari og Sigurður Steinþórsson prófessor. Hinir fnnm útvöldu eru: Hörður Áskelsson orgeUeikari er tUnefndur fyrir framúrskarandi org- eheik á tórúeikum á árinu og fyrir framlag sitt tU þess aö koma upp hinu mikla orgeh HaUgrímskirkju. Kammermúsíkklúbburinn er tU- nefndur fyrir hið mikUvæga og ágæta framlag sitt tU tónhstarlífs í landinu um mörg undanfarin ár og þá smekkvísi og alúð sem jafnan er lögð í tónleikahald klúbbsins. Að- standendur Kammerklúbbsins eru Guðmundur W. Vilhjálmsson, Þórar- inn Guðnason, Einar B. Pálsson, Jak- Sigrún Eðvaldsdóttir. ob Benediktsson og Runólfur Þórðar- son. Petri Sakari hijómsveitarstjóri er tílnefndur fyrir mjög góðan árangur Petri Sakari. í starfi sínu með Sinfóniuhljómsveit íslands undanfarin ár. Sigrún Eðvaldsdóttir, hún er tíl- nefnd fyrir framúrskarandi fiðluleik Hörður Áskelsson. sinn, bæði í á tónleikum og hljóm- plötu með íslensku efni og fyrir frammistöðu sína við aö keppa í fiðluleik erlendis. Sigrún Hjálmtýsdóttir. Sigrún Hjálmtýsdóttir. Hún er til- nefnd fyrir frábæran söng, einkum í hlutverkum hjá íslensku óperunni og á hljómdiski sem út kom á árinu. Tilnefningar í tónlist Sviðsljós Bjami Jónsson, Árni Þór Sigmundsson, Guðmundur Bogason, Þórhallur Árnason og Þór Steinarsson gengu úr skugga um að flotgallarnir væru i lagi. Bjarni og Þór eru frá Fjörgyn en hinir starfa í lögreglunni í Grafarvogi. DV-myndir Sveinn Lionsklúbburinn Fjörgyn: Gáfu lögregl- unni í Grafar- vogi þrjá flot- galla Félagar í Lionsklúbbnum Fjörgyn færðu nýlega lögreglunni í Grafarvogi þrjá flotgaha að gjöf. Gaharnir koma væntanlega að góð- um notum enda hefur þessi hverf- isstöð lögreglunnar eftirUt með fjölda vatna fyrir ofan vogjnn auk Grafarvogsins að sjálfsögðu. Nota- gjldi flotgaha er mikið en þeir þykja einnig hentugur klæðnaður við margvíslegar aðrar aðstæður er áður voru nefndar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.