Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1993, Qupperneq 32
LOKI
Hann nærekki einu sinni
ívinnukonuútsvar,
blessaður!
Ríkið sparar
ástöðvun
Herjólfs
„Þaö er ljóst að ríkissjóður þarf
allavega ekki að borga eins mikið
með skipinu meðan það liggur við
bryggju. Hann sem sagt tapar minna.
Ég veit hins vegar ekki hvað það er
mikið. Ríkissjóður þarf samkvæmt
áætlun að borga 95 milljónir með
rekstri skipsins á þessu ári,“ segir
Þórhallur Jósepsson, aðstoðarmaöur
samgönguráðherra, en nú eru hðnar
tvær vikur síöan rekstur Heijólfs
stöðvaðist.
Þórhahur sagðist ekki geta séð
hversu mikið ríkið þyrfti að borga
með skipinu í framtíðinni og það
hlyti að vera breytilegt frá ári th árs,
forsendur rekstrarins hlytu að breyt-
ast. Upphæðin gæti þó hækkað nema
rekstrartekjur skipsins ykjust.
Þórhahur sagði það nokkuð aug-
ljóst að meðan skipið væri bundið
við bryggju væri kostnaður eitthvað
minni fyrst það væri rekiö með tapi.
Hann sagðist hins vegar ekki þekkja
það hvort einhverjar framtíðartekjur
kynnu að tapast vegna stöðvunar-
innar. -Ari
Hagvirki-Klettur:
Starfsmenn
styðja for-
svarsmenn
„Það er ósk stjórnar Starfsmanna-
félags Hagvirkis að fjármálaráðherra
skoði betur afleiðingar þessara að-
gerða fjármálaráðuneytis og bú-
stjóra Fómarlambsins áöur en okkur
verður fómað líka,“ segir meða) ann-
ars í bréfi sem starfsmannafélag
Hagvirkis-Kletts hefur sent íjármála-
ráðherra vegna riftunarkröfu á
samningum Hagvirkis og Hagvirkis-
Kletts, áður Hagtölu, frá 1990 og
kyrrsetningar á eignum Hagvirkis-
Kietts nú fyrir 370 mihjónir.
í álykfim frá fundi starfsmannafé-
lagsins segir aö starfsmenn standi
einhuga að baki forsvarsmönnum
Hagvirkis-Kletts og Fómarlambsins.
-hlh
Vatnsflóðí
Fósturskóla
Vatn flóði um Fósturskólann í gær-
kvöld þegar samskeyti á heitavatns-
leiðslu fóm í sundur við vask í skóla-
stofu. Heitt vatn flóði um skólastof-
una, fram á gang og niður á næstu
hæð fyrir neðan. Kahað var á
slökkvúiðið til að hreinsa vatnið upp
ogvarðljónekkiverulegt. -ból
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - DreifingrSími 63 27 00
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRUAR 1993.
Með 11-121 vinnu en
er á atvinnuleysisbótum
„Ég er í forsvari hjá fyrirtækinu
en er ekki á launum hjá þvi. Ég er
bara vörubílstjóri. Það eina sem ég
hef eru tekjur af mínum bíl þjá
Bílastöð Dalvíkur. Jarðverk er hins
vegar með verktakaviðskipti sem
eru rekin hér - vöruflutningar hér
á milli, snjómokstur og alls kyns
vélaútgerð. En ég fæ engin laun
þar. Ég borga í alla mína sjóöi í
gegnúm bflstjórafélagið og er þar á
launum þó ég fái hvergi föst mán-
aðarfaun," sagði Hallgrímur
Hreinsson, Dalvíkingur á atvinnu-
leysisbótum en jafnframt eigandi
og framkvæmdasfjóri Jarðverks
sem hefur 11-12 manns á launa-
skrá. :
Þrátt fyrir að vera með á annan
tug manna í vinnu í fyrirtæki sem
gengur nokkuð vel segist Hallgrím-
ur þiggja atvinnuleysisbætur í nær
ailan vetur - hann sé bara bílstjóri
- vinna við slikt glaeðist fyrst í vor.
- Nýtur þú ekki góðs af vinnunni
í þínu eigin fyiirtæki?
„Nei, ekki nema ánægjunnar af
þvi að vera hluthafi í fyrirtækinu.
Ég er lika hluthafi og í stjóm Sæ-
plasts og hjá Isstöðinni og fæ held-
ur engin laun þar nema fyrir aö
sitja fundi. Ég þigg því ekki iaun
af neinu nema því sem ég vinn viö
- ég er bíistjóri."
Aðspuröur um horfur í rekstri
vörabíls hans, iífsviðurværisins,
sagði Haligrímur: „Það era engar
breytingar fyrirsjáanlegar á því.
Þetta er svona á hverju einasta
ári. Við bílstjórarnir förum yfirleitt
á atvinnuleysísbæturnar í október
eða nóvember og erum á þeim fram
í maí. Þá glæðist smávegis. Æth
tekjumar hjá okkur á mann séu
ekki örfáar mihjónir brúttó.
Þetta er enginn dans á rósum
enda sýnir það sig að við höfum
aldrei borgað neina skatta. Ég
borgaði reyndar skatta á síðasta ári
því ég seldi hlutabréf í Sæplasti.
Það er eina árið sem ég hef borgað
skatta."
- En þú ert sem sagt titlaður fram-
kvæmdastjóri og ert eigandi Jarð-
verks og átt.í því meirihluta:
„Já, það er ég. Við eigum þetta
tveir bræður en við erum báöir
böstjórai'. En þetta er bara okkar
vinna að vera hér. Við höfum aidr-
ei verið á launum hiá fyrirtækinu
en við erum meö 11-12 manns á
launum."
Hailgrímur segir Jarðverk ganga
ágætlega. Aðspurður um hverrng
gengið hafi að framfleytafjölskyldu
sinni kvað hann það hafa tekist
„með vörubíinum". „Með því að
iifa ákaflega spart hefur það tekist.
Með því að konan vinni alian dag-
inn rétt merjum við þetta,“ sagði
HaUgrímur.
-ÓTT
Fimmþúsund-
Eldur kom upp í garðskúr við Álfhólsveg 30 í gærkvöldi. Kallað var á slökkvilið sem gekk greiðlega að ráða niður-
lögum eldsins. Eitthvað af verkfærum mun hafa eyðilagst en tjón varð annars minni háttar. -ból/DV-mynd S
„Það komu tveir drengir, 13 eða 14
ára, hérna inn í búðina og stóðu svo-
htla stund. Þegar ég spurði hvað ég
gæti gert fyrir þá rétti annar þeirra
fram samanbrotinn fimm þúsund
króna seðU og spurði hvort ég gæti
skipt honum. Ég fór og sótti handa
honum þúsund króna seðla en um
leið og ég fletti sundur hinum seðhn-
um sá ég að hann var öðruvísi en
hann á að vera. Ég tók því mína pen-
inga til baka, fór í símann og sagðist
ætla að hringja á lögregluna. Þá þutu
þeir eins og skot út og létu sig
hverfa,“ segir Bára Þórarinsdóttir,
eigandi verslunarinnar Lflju í
Kringlunni.
Þegar farið var að athuga nánar
seðilinn, sem drengimir voru með,
kom í ljós að um leikmun frá Þjóð-
leikhúsinu var að ræða. Shkir seðlar
eru notaðir í sýningum og eru merkt-
ir leikhúsinu.
„Það er nauðsynlegt að fólk vari
sig á þessu. Ég áttaði mig strax en
ef verið er að borga með svona seðh,
til dæmis aö kvöldlagi eða þegar
skuggsýnt er, þá er vel hægt að
ruglast. Þetta er nákvæmlega sama
stærð og vepjulega en liturinn er
blárri,“ segir Bára.
Ekki er vitað hvemig drengimir
fengupeningaseðihnn. -ból
Veðriðámorgun:
Frostum
allt land
Á morgun verður norðvestan-
átt á landinu, stormur eða rok
um norðvestan og vestanvert
landið en annars mun hægari.
Sfijókoma eða éljagangur norðan-
og vestanlands en þurrt og víða
bjart veður suðaustanlands.
Frost um aht land.
Veðrið í dag er á bls. 54
Péffters
GUFULOKAR
SuAuriandsbraut 10. S. 686409.