Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR1993
Svipmyndin
Afhverrier
svipmyndin?
meiri með reykelsisilmi, dular-
fullri tónlist og daufri lýsingu.
í raun var um mjög djarfan dans
að ræða. Og peningarnir fóru að
streyma til hennar. Eftir nokkum
tíma var Margarethe komin á
græna grein.
Hún fékk tíu þúsund franka fyrir
sýninguna. Stóru leikhúsin slógust
um að fá hana á fjalimar. Hún
fyllti hvert sæti í Olympia og Folies
Bergere.
Njósnir
Svo mikla athygli vakti sú sem
hér er lýst að menn komu frá öðr-
um löndum til að sjá hana dansa.
Þá var hún beðin að dansa í
Madrid, Beriín og Vín. í Vín stóð
fólk á götunum og klappaði henni
lof í lófa þegar hún lét sjá sig.
Margarethe var nú á hátindi
frægðar sinnar. Hún náði sér í rík-
an elskhuga sem hét Felix Rosseau.
Hann keypti handa henni kastala
í Touraine.
En ekkert stendur til eilífðar. Það
fór að halla undan fæti fyrir Mar-
garethe. Fegurðin dofnaði.
Hún reyndi að komast í ballett-
flokk en dansmeistarinn hafnaði
henni. Honum fannst hún vera orð-
in of feit og þung á sér.
Meðan allt lék í lyndi hafði hún
tamið sér dýra lifnaðarhætti. Nú
hrukku þeir peningar, sem hún
hafði, skammt. Og ríki elskhuginn
lét ekki sjá sig lengur.
Loks tókst henni að heilla gaml-
an, hollenskan ofursta. Hann tók á
leigu handa henni lítið hús í Haag.
Kvöld eitt var barið að dymm.
Fyrir utan stóð þýski blaðafulltrú-
inn Karl Kramer. Haxm spurði
hvort hún vildi gerast njósnari.
Margarethe fannst tilboðið
spennandi. Þá var hún félítil. Fyrri
heimsstyijöldin stóð sem hæst.
Hún tók boðinu. Kramer lét hana
fá tuttugu þúsund franka og flösku
með ósýnilegu bleki.
Sú sem svipmyndin er af fór nú
til Frakklands. Þar fékk hún einnig
tiiboð um að njósna. Síðan lá leiö
hennar til Englands og Spánar.
Hvar sem hún fór talaði hún um
njósnastarfsemi sína. Þá hélt hún
því fram að hún hefði veriö ástmey
þýska krónprinsins. Og hún sagði
að næst þegar hún hitti hann skyldi
hún svo sannarlega fá hann til að
segja sér leyndarmál sem væm að
minnsta kosti einnar milljónar
franka virði.
Loks fór eins og ýmsir höfðu búist
við. Margarethe var handtekin í
Frakklandi. Þar hafði stríðið
reynst mönnum þungt í skauti.
Ráðamenn leituðu leiða til að kom-
ast í betra álit hjá almenningi. Sú
sem svipmyndin er af var ákærð.
Hún var dæmd til dauða þótt flest
bendi til þess að dómaramir hafi
gert sér ljóst að hún var saklaus.
Þann 16. október 1917 var hún
leidd fram á aftökustað í Vincennes
fyrir utan París.
Hver var hún?
Svarið er á bls. 56
Hjónabandið entist ekki. Reynd-
ar sögðu ýmsir að það hefði mátt
sjá þegar í upphafl.
Sú sem svipmyndin er af hét
Margarethe. Maðurinn hennar hét
Rudolf. Þegar þau kynntust var
hún aðeins átján ára. En hann var
þijátíu og níu ára.
Þau kynntust eftir að nokkrir
vinir Rudolfs settu auglýsingu í
hollenskt blað en þeir höfðu áhuga
á að hann kæmist í kynni við gott
konuefni.
Rudolf var liðsforingi og var
sendur til starfa á Jövu. Þar varð
eiginkonan mjög einmana.
Þau gengu í hjónaband eftir að
hafa þekkst í aðeins flóra mánuði.
Sú sem hér er lýst hafði mikinn
áhuga á að sjá sig um í heiminum
og hún vænti þess að geta lifað
ríkulega í hollensku nýlendunum.
En lífið þar varð ekki eins og hún
hafði vonast til. Rudolf var mjög
afbrýðisamur. Hann ætlaði að
ganga af göflunum reyndi einhver
hinna liðsforingjanna aö gefa ungu
konunni hans undir fótinn.
Ekki batnaði ástandiö þegar
Rudolf fór að drekka. Þá lét hann
stundum höggin dynja á eiginkon-
unni og mörgum sinnum varð hún
að leita hælis hjá nágrönnum.
Loks þoldi hún ekki við lengur.
Hún tók dóttur sína og yfirgaf eig-
inmanninn.
Hún var tuttugu og sex ára þegar
hún varð að sjá um sig sjálf. Mennt-
un hafði hún enga. Og hún átti
ekki fjáða ættingja sem gátu hlaup-
ið undir bagga með henni. Rudolf
var aftur á móti efnaður og áhrifa-
mikill. Að lokum fór því svo að
honum var dæmt forræði yfir dótt-
urinni.
Hún gerist skemmti-
kraftur
Margarethe fór nú til Parísar.
Hana dreymdi um fé og frægð. Ef
til vifl kæmist hún í kynni við ríkan
ekkjumann þar.
En enginn sýndi henni minnsta
áhuga. Og hún kunni ekki einu
sinni frönsku.
Þá fékk hún stórkostlega hug-
mynd. Hún ákvað að leggja fyrir
sig dans. Á Jövu og Súmötru hafði
hún séð hvemig konumar döns-
uðu. Og nú tók hún að líkja eftir
þeim. Þegar hún hafði komið fram
nokkrum sinnum fóm blöðin að
skrifa um dansmeyjuna frá Aust-
urlöndum sem líktist kventígri.
Margarthe var leikrænt hugs-
andi. Hún tók nú að segja þá ótrú-
legu sögu að henni hefði verið hald-
ið gegn vflja sínum í hindúamust-
eri. Þaðan heföi henni loks tekist
að flýja með aðstoð skosks liðsfor-
ingja. í ijós heföi hins vegar komið
að liðsforinginn var mesta ómenni.
Frásögnina gerði hún trúverðuga
með því að krydda hana með ýms-
um atvikalýsingum.
Sú sem svipmyndin er af var
mjög lagleg. Og áður en hún gekk
fram á dansgólfið smurði hún sig
með olíu. Áhrifin gerði hún svo enn
Matgæðingur vikuimar___dv
Baunaréttur
„Þó ég sé ekki grænmetisæta hef
ég gaman af að hafa baunarétti sem
tflbreytingu frá kjöti og fiski. Oft
hef ég haft gaman af að bjóða slíka
rétti en eldri mönnum þykir ekki
mikiö tfl rétta koma sem ekki er
kjöt í og fussa og sveia yfir bauna-
réttum. Ég hef nú lúmskt gaman
af. Hins vegar hefur þessi réttur
líkað mjög vel hjá yngra fólki og
flestöllum konum. Þetta er einn af
mínum uppáhaldsréttum og ég hef
hann oft,“ segir Katrín Ellertsdótt-
ir, matreiðslukennari á Siglufirði
og matgæðingur vikunnar. Vin-
kona hennar og skólasystir, María
Ósk Steinþórsdóttir, skólastjóri í
Grímsey, skoraði á Katrínu aö
miðla af reynslu sinni. Katrín varð
við þeirri beiðni og gefur uppskrift
að mjög skemmtflegum baunarétti,
sem hún segir að sé í sterkari kant-
inum, og mjög góöu kartöflusalati
sem hún hefur þróað sjálf og hefur
notið mikilla vinsælda.
Uppskriftin
12 smálaukar eða 2 venjulegir lauk-
ar
750 g grænmeti, t.d. hálf gulrófa, 2
gulrætur, 2 kartöflur, 'A seljurót
eöa annað eftir smekk hvers og eins
2 msk. matarolia
'Á tsk. pipar
1 dós niðursoðnir tómatar (athugið
500 g sem er meira en í hálfdós)
2 msk. sojasósa
salt ef vill
2 marin hvítlauksrif
2 lárviðarlauf
hálf tsk. timian
1-1 'A dl vatn
2 dl soðnar hvítar eða brúnar baun-
ir (fást þurrkaðar í stórmörkuðum
en eru lagðar í bleyti eftir upplýs-
ingum á umbúðum. Gott aö sjóða
- og kartöflusalat
Katrin Ellertsdóttir á Siglufirði er
matgaeðingur vikunnar.
DV-mynd Örn Þórarinsson, Siglu-
firði
fullan poka og geyma afganginn í
frysti þangað tfl rétturinn er gerður
næst)
Aðferðin
Hreinsið laukana og grænmetið
og skerið í stóra bita. Brúnið það
síðan í olíunni við mikinn hita.
Látið pipar, tómata, sojasósu, salt,
hvítlauk, lárviðarlauf, timian og
vatnið út í og sjóðið í um það bil
tíu mínútur. Bætið baununum út í
og hitið að suðu.
„Mér finnst best að hafa gróft
hrauð með réttinum, partíbrauðið
hennar Maríu, sem var síðasta
laugardag í blaðinu, hentar mjög
vel með þessum rétti. Það getur
verið í raun hvaða gróft brauð sem
er, bollur eða smábrauð. Einnig hef
ég bygggijón og eða hýðishrísgijón,
stundum blanda ég þeim tveimur
saman. Hýðishrísgijónin er alls
staðar hægt að fá en bygggijónin
fást aðeins í heilsubúðum. Þetta er
hollur, heflnæmur og óvenjulegur
réttur sem vert er að prófa.“
Kartöflusalat
1 dós sýrður ijómi, 10 eða 18% eftir
smekk
karrí og salt einnig eftir smekk
1-2 tsk. Sweet Relish
4-6 soðnar kaldar kartöflur
1 grænt epli
'A paprika (gjaman rauð)
hálfur laukur eða blaðlaukur
ananas ef vifl
Hrærið kryddinu fyrst saman við
sýrða ijómann, skerið kartöflur,
eph, lauk og papriku og bætið út í
og kælið. „Salatið hentar mjög vel
með öflum kjötréttum, steiktum
fiski og grflluðum mat.“
Katrín hefur kennt matreiðslu í
grunnskólanum á Siglufirði frá ár-
inu 1986 er hún útskrifaðist úr
Kennaraháskóla íslands. „Ég geri
kannski fuUlítiö að því að elda
vegna þess að ég bý ein en ég hef
mjög gaman af að bjóða fólki í
mat,“ segir hún. „Þrjá tfl fjóra daga
í viku er ég síðan í eldhúsinu með
krökkunum og maður fær heflmik-
ið út úr því. Við vorum t.d. að baka
brauð í skólanum í gær.“
Katrínu langar tfl að skora á vin-
konu sína og skólasystur, Sigur-
borgu Birgisdóttur, húsmóður í
Hafnarfirði, að vera næsti matgæð-
ingur. „Hún er mjög hagkvæm
húsmóðir og bakar t.d. öfl brauð
sjálf enda með fimm manna fjöl-
skyldu. Hún er mesta brauðkona
sem ég veit um,“ segir Katrín. „Ég
veit reyndar ekki hvort við fáum
gimflega brauðuppskrift en Sigur-
borg er kona sem er mikið að elda
og baka. Mikill myndarkokkur."
-ELA
Hinhliöin
Helgi Jóhannsson hefur látið
mikið að sér kveða á tveimur
óskyldum sviðum að undanfömu.
Helgi er forstjóri Samvinnuferða-
Landsýnar, stærstuferðaskrifstofu
landsins, en þar hefur verið nóg að
gera undanfarið við skipulagningu
sumaráætlunar félagsins. Nýkom-
inn er út bæklingur um ferðir á
vegum Samvinnuferða-Landsýnar
í sumar.
Helgi hefur ærinn starfa því auk
þess að vera í forsvari fyrir Sam-
vinnuferðir gegnir hann forseta-
starfi hjá Bridgesambandi íslands.
í forseiatíð hans hefur landslið ís-
lands í bridge náð þeim árangri að
vinna heimsmeistaratitfl og Norð-
urlandatitil.
Sjálfur er Helgi meðal betri spfl-
ara landsins enda sannaöi hann
það svo um munaöi um síðustu
helgi. Þá fór fram alþjóðleg bridge-
hátíð Flugleiða með þátttöku flöl-
margra heimsfrægra spflara. Helgi
var meðlimur í sveitinni sem var í
fyrsta sæti af 70 sveitum og hafnaði
í þriðja sæti í tvímenningskeppni
48 para.
Helgi Jóhannsson sýnir á sér
hina hliðina að þessu sinni:
Fullt nafn: Helgi Jóhannsson.
Fæðingardagur og ár: 23. apríl,
1951.
Maki: Hjördís Bjamason.
Börn: Gunnar Fjalar, Óttar Öm og
Hallur Már.
Bifreið: Opel Vectra.
Starf: Framkvæmdasljóri Sam-
vinnuferða-Landsýnar.
Laun: Breytileg.
Áhugamál: Allar tegundir íþrótta,
Helgi Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri og bridgestjarna.
að bridge meðtöldu. Ég er íþrótta-
frík.
Hvað hefur þú fengið margar tölur
réttar í lottóinu? Tvær, ég hef spil-
að tvisvar á ævinni.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Fyrir utan það að vera í fríi
með fjölskyldunni er þaö bridge.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að taka til í bílskúrnum er
ofarlega á listanum.
Uppáhaldsmatur: Léttsteikt rauð-
spretta að hætti konunnar.
Uppáhaldsdrykkur: Undanrenna.
Hvaða iþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Jón Bald-
urssön, núverandi heimsmeistari í
bridge.
Uppáhaldstimarit: Fijáls verslun.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan eiginkonuna?
Linda Kozlowski.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Dalai Lama.
Uppáhaldsleikari: Helgi Skúlason.
Uppáhaldsleikkona: Guðrún Gísla-
dóttir.
Uppáhaldssöngvari: Bubbi og
Kristján Jóhannsson
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Of
margir tfl að nefna neinn.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Homer Simpson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir og
íþróttir.
Uppáhaldsmatsölustaður: Þrír
Frakkar og Við Tjömina.
Ertu hlynntur eða andvigur veru
varnarliðsins hér á landi? Ég sé
engan tilgang lengur með veru þess
hér á landi.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás 2.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Sigurður
Tómasson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Þórir
Guðmundsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Café
Romance.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Kefla-
vík.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Ég stefni í augnablik-
inu að því að fá heimsmeistaramót-
ið í bridge tfl íslands árið 1997.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Ég ætla að vera með fiölskyld-
unni, bæði heima og erlendis.
-ÍS