Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Page 26
26
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1993.
Kristján Jóhannsson á Metropolitan í kvöld:
' I
- segir söngvarinn en gamall draumur hans er að rætast í kvöld
(jll/.'cpft
'i’. I <r<
cNello Santi
í'abnzio Melano
Sci'Ib'uiihr: V.'/Áo I:rÍirerio
tíuu- IV'ujn/r: Francu Squarciapino
l.iijbtifhi Divufth’r: Cill W ecbsloi'
! i.oxura Apnle Millo
AZUCHN \ Dolora Zaju k
^'IdCO Knstjan Johannsson
111 CL \ \ \ iadimir Chernov
HHKR.wi h ) Jeflrev \\ eils
!N1 CZ Jane Slu:
uilis
Rl IZ
MHSSKXUHR
Í >1.1 JGVPSV
bharles Anthonv
ArthurApv "
lAtri'v Brandes
Kristján Jóhannsson stórsöngvari fyrir utan Metropolitan-óperuna i New York. Eins og sjá má á töflunni er þaö Islendingurinn sjálfur sem fer með eitt
aðalhlutverkiö i óperu kvöldsins. Kristján hefur alltaf stefnt á þennan rlsa óperuheimsins. DV-myndir Anna T. Pálmadóttir
Anna T. Pálmadóttir, DV, New Yorlc
Kristján Jóhannsson söngvari mun
í kvöld standa á sviði Metropolitan-
óperunnar frægu í New York og
syngja aðalhlutverkið í II Trovatore.
Hann og meðsöngvarar hans á svið-
inu eru taldir ijóminn af óperu-
söngvurum samtímans. „Við erum
þær stjörnur sem í dag skína skæ-
rast,“ segir Kristján sjáífur.
Þessi viðburður hefur vakið
ómælda athygh í óperuheiminum.
Hans hefur verið beðið með eftir-
væntingu og þegar er löngu orðið
uppselt á allar þær sýningar sem
Kristján tekur þátt í við Metropolit-
an- ópenrna.
í viðtah við blaðamann DV í New
Yerk sagðist Kristján Jóhannsson
vera fullur af tilhlökkun. Þegar hann
var spurður hvort sú tilfinning væri
kvíöablandin svaraði hann: „Kvíða?
Nei, svo sannarlega ekki. Ég kann
hlutverkið út og inn og veit að ég fer
vel með það. Svo þekki ég stjómand-
ann mjög vel og hef auk þess sungið
með öhurn söngvurunum áður. Þeg-
ar svona hátt er komið þekkjast alUr
- það em svo fáir í A-liðinu.“
MetropoUtan-óperan er stórglæsi-
legt hús sem tekur tæplega íjögur
þúsund manns í sæti, helmingi fleiri
en Scala-óperuhúsið í Mílanó. Að
sögn Kristjáns skipa MetropoUtan,
Scala, Vínaróperan og Covent Gard-
en í London virðingarmestu sætin á
þessu sviði.
Sögðu hann
gott „efni''
Kristján Jóhannsson söng starfsár-
iö 1986-87 með New York City óper-
unni, sem er til húsa á vinstri hönd
við MetropoUtan, en nokkmm flokk-
um neðar að gæöum og virðingu. Þá
lét Kristján sig dreyma um að þenja
raddböndin fyrir fullu næsta húsi.
Um stund gældi hann við hugmynd-
ina en ákvað svo að prufusyngja fyr-
ir þessa nágranna sína. „Þeir vom
svo sem ekkert yfir sig hrifnir," segir
Kristján. „Sögðu þó aö ég væri gott
efni. Þá var ég „efni“, sjáðu til. Þetta
er því stór sigur fyrir mig, jafn stór
og Scala var á sínum tíma.“
Þakkláturfyrir
athyglina heima
Krislján Jóhannsson söng síðast á
íslandi fyrir sjö árum. Hann segist
vera mjög þakklátur fyrir það hversu
íslendingar hafi fylgst með ferlinum.
Einkum væri þaö Stöð 2 að þakka
enda hafi stöðin sent menn til aö
fylgjast með Kristjáni til ítaUu, Vín-
ar, Chicago og nú til New York. „ís-
lendingar gerðu sér ekki grein fyrir
þessum heimi. Menn héldu Konung-
legu í Kaupmannahöfn og Ópemna
í Osló vera topp tilverunnar. Nú hafa
opnast gáttir sem gera íslendingum
kleift að vita út á hvað þetta gengur.
Þeir hafa komist nær mér og það er
í mínum huga afar mikilvægt," sagöi
Kristján.
AUt frá upphafi stefndi Kristján
Jóhannsson á þessa risa óperunnar.
Hann tók áhættu, var frakkur og,
sem raún ber vitni, gekk aUt upp.
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1993.
39
Kristján hefur alltaf
stefnt á toppinn
- segir Jóhann Már Jóhannsson, bróðir stórsöngvarans, sem aetlar að fylgjast með honum í huganum í kvöld
Jóhann Már segist aldrei hafa séö Kristján á sviði úti i hinum stóra heimi
en móðir þeirra og tvær systur ætla aö sjá hann í Metropolitian í kvöld.
Fiölskylda Kristjáns er miMl söng-
„Því miður erum við ekki svo vel
sett, launalega séð, að geta séð Krist-
ján á sviðinu í MetropoUtan í kvöld.
Ég læt mig ekki einu sinni dreyma
um slíkt. Hins vegar fóru móðir mín,
tvær systur okkar og tengdaforeldr-
ar hans utan og ætla að hlýöa á
hann,“ sagði Jóhann Már Jóhanns-
son, bróðir Kristjáns, í samtaU við
helgarblaðið. Jóhann er bóndi í
Skagafirðinum og á því ekki auðveld-
lega heimangengt frá búskapnum.
„Kristján er búinn að syngja svo
mikið í stórum húsum að það væri
að æra óstöðugan að ætla að elta
hann um heiminn. Hins vegar er það
auðvitað stórkostlegt að fá aö sitja í
þessu risastóra óperuhúsi í kvöld og
hlýða á Kristján syngja,“ sagði Jó-
hann. Hann hefur aðeins einu sinni
séð Kristján syngja á sviði og það var
í Þjóðleikhúsinu fyrir löngu. „Ég hef
ekki mikla trú á að ég eigi eftir að
sitja í stóru óperuhúsunum úti í
heimi úr þessu,“ bætti hann við.
Talað er um að MetropoUtan-
óperan í New York sé risinn í óperu-
heiminum. Jóhann segir að fjöl-
skyldan sé afar stolt af Kristjáni og
muni fylgjast með kvöldinu með til-
hlökkun. „Það er orðið svo langt síð-
an maður sá hvert stefni þannig aö
ég er tiltölulega rólegur yfir þessu.
Mér þykir hins vegar eins og frægöin
sé nýuppgötvuð hér á landi. Þessi
mikla umræða kom eiginlega í kjöl-
far þess að Kristján söng í Chicago.
Það er langt síðan stráksi sagöi sjálf-
ur að hverju stefndi en það þóttu
bara drýgindi. Nú er þetta að koma
smám saman í ljós. Kristján hefur
aUtaf stefnt á toppinn,“ segir hann.
Með afburðarödd
„Mér finnst oft of mikið gert úr
miklum dugnaði og sjálfsáUti þegar
sérfræðingar eru spurðir af hveiju
Kristján hafi náð svona langt. Hann
hefði ekkert komist nema vegna þess
að hann hefur afburðarödd. Þó menn
séu duglegir og hafi trú á sjálfum sér
nægir það ekki ef enginn annar hefur
sömu trú. Hann kemst þetta fyrst og
fremst á einstakri rödd. Kristján veit
alveg hvar hann er staddur. Söngur-
inn er hans hjartans mál, hann veit
aUt um óperusöng og söngvara í
heiminum. Sem betur fer er hann
með mikla sjálfsgagnrýni og meðvit-
und og veit alveg hvar hann stendur.
Það er aUtaf að sannast betur og bet-
ur að Kristján fer ekki með neina
þvælu.“
Jóhann segir að ekki hafi verið
mikið samband mUli þeirra bræðr-
anna undanfarið enda mikið að gera
hjá Kristjáni. „Hann hringir öðru
Hér tekur Kristján aríu fyrir utan
Metropolitan í vikunni.
DV-mynd Anna T. Pálmadóttir.
hvoru. Mest er sambandið við yngsta
bróður okkar og mömmu en Kristján
kemur orðið mjög sjaldan hingað til
lands.“
Síðasta vígið fellur
Jóhann segir að síðasta vigi Krist-
jáns faUi í kvöld er hann syngur á
MetropoUtan. „Þetta er punkturinn
yfir i-ið. Nú hefur hann sungið í öU-
um stærstu og virtustu óperuhúsum
heimsins. Kristján hefur komist
svona langt á eigin dugnaði. “
fjölskylda eins og kemur fram í graf-
inu hér viö hhðina. Jóhann Már hef-
ur verið vinsæU söngvari hér á landi
og sungið víða um land. Hann hefur
gefið út tvær hljómplötur sem selst
hafa vel. Faðir þeirra bræðra, Jó-
hann Konráðsson, var einnig mikiU
söngvari en hann lést árið 1982 í
Skotlandi. Hann var þá í ferð tíl að
hlýða á son sinn syngja í óperuhús-
inu Opera North. Jóhann segir að
söngurinn hafi fylgt fjölskyldunni.
„Þetta er eins og með svipmót og
annað, einungis erfðaþáttur.“
Svo skemmtílega viU til að Jóhann
hefur verið beðinn að syngja í New
York næsta sumar þó samningar
þess efnis séu ekki frágengnir. „Ég
söng á ferðamálaráðstefnu á Akur-
eyri í fyrra þar sem voru ferðamála-
sérfræðingar frá yfir þijátíu löndum.
Eftir að ég hafði sungið kom til mín
bandarískur maður og spurði hvort
ég vUdi koma og syngja á sumarhátíð
í New York. Síðan hef ég fengið nokk-
ur bréf frá honum. Ég býst við að ég
muni hafa gaman af ef úr því verð-
ur.“
Hln söngelska
fjölskylda
Krlstjáns
Jóhannssonar
óperusöngvara
W vlife ' ^ Magnús Jónsson. Einn þekktasti óperusöngvari íslendinga í seinni tíð. Söng við Konunglegu óperuna í Kaupmannahöfn 1957-66.
'f||| fm .** ^’jSj Agnes Oddgeirsdóttir. Lét sér nægja að syngja við heimilisstörfin
Hákon Oddgeirsson. Var ein-
k | söngvari Fóstbræðra, söng með
/ ^ ■ýjpj. Pólýfónkórnum, Þjóðleikhúskórn-
um, með Tígulkvartettinum og í
óperum hjá Þjóðleikhúsinu og
L íslensku óperunni.
Jóna Fanney Svavarsdóttir.
Varð í þriðja sæti (slandsmótsins .Hefur víða sunoið einsöno oo er
í karaoke sem haldið var nú einsönnvari Karlakórs Bólstaðar-
w, JSL fyrir skömmu. 139 mm,m
Stefán Birgisson. Hefur m.a.
sungið með kvintettinum Galgopar
og stundar söngnám við Tónlistar-
skóla Eyjafjarðar
Örn Viðar Birgisson. Hefur verið
einsöngvari með Karlakórnum
Geysi og Fóstbræðrum og söng
eitt aðalhlutverkið í Ástardrykknum
í uppsetningu Tónlistarskóla
Akureyrarnú fyrir skömmu.
Anna María Jóhannsdóttir. Söng
viða á skemmtunum, söng með
Gígjunum, með Ingimar Eydal og
fleiri hljómsveitum. Söng inn á
plötu með Ftagnari Bjarnasyni.
Heiða Hrönn Jóhannsdóttir. Söng
víða á skemmtunum með systur
sinni og syngur i kirkjukór I sinni
sveit.
Fanney Oddgeirsdóttir Söng
mikið með Kantötukór'Akureyrar
og með Gígjunum.
Jóhann Konráðsson. Þekktur ein-
söngvari m.a. með Karlakór Akur-
eyrar og Geysi og söng með
Smárakvartettinum.
CD
IDV
Stend ekki
í skugganum
Jóhann segist aldrei hafa gengið
með í maganum að ná á toppinn eins
og bróðirinn. „Við vorum báðir í kór
og fórum í söngtíma hjá Sigurði De-
metz. Síðan þróaðist þetta hjá mér,
fyrst sem einsöngur með kór en síðan
einsöngur á skemmtxmum. Ég hef
ekki haft meiri metnað í þessu en svo
að gera bara eins vel og ég get hveiju
sinni.“
Hann segist alls ekki standa í
skugganum af Kristjáni enda eigi
þeir sinn aödáendahópinn hvor.
„Það er vissulega aUtaf verið að bera
okkur saman. Mér er þó varla verri
grikkur gerður en þegar ég er kom-
inn á svið og það er farið að lesa upp
að ég sé bróöir Kristjáns Jóhanns-
sonar. Það er þó kannski ekki óeðli-
legt að slíkt sé gert,“ segir Jóhann.
Söngelska
fjölskyldan
Þriðji ættliðurinn í fjölskyldunni
virðist ætla að erfa sönghæfileika því
þegar er farið aö bera á þeim. „Elsta
systir mín, Heiða, á tvo syni sem eru
mikiö í söng og hafa fallegar raddir.
Einnig á Svavar, bróðir minn, dóttur
sem er í söngnámi og þykir efnileg.
Hún náði þriðja sæti í karaoke-
keppni í Danshúsinu í Glæsibæ.
Reyndar fannst mér hún best. Dóttir
mín var að syngja á fimmtudags-
kvöldið var í söngkeppni framhalds-
skóla þannig að maður veit aldrei
hvað verður.
Krisfján kom síðast norður sl. vor
en þá var móðir hans, Fanney Odd-
geirsdóttir, sem er 75 ára, alvarlega
veik og barðist viö lungnasjúkdóm.
„Hún þurfti á tímabili aö ganga með
súrefniskút en hefur náð sér ótrúlega
vel og það er kraftaverk að hún gat
farið til New York núna,“ útskýrir
Jóhann. „Mamma hefur farið oft áð-
ur bæði til Ítalíu og annarra landa
til að hlusta á Kristján. Hún var í
Scala þegar Kristján söng þar fyrst.
Fjölskyldan stendur alltaf með
Kristjáni í huganum og fylgist með
honum. Við erum ákaflega stolt af
því sem hann er að gera.“
-ELA