Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Síða 32
44
LAUGARDACHJR 20. FRBRÚAR 1993.
Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld:
Ovenjumargir
óþekktir flytjendur
Söngvakeppni Sjónvarpsins
veröur í beinni ntsendingu i kvöld.
Þar keppa tiu lög til urslita. Sigur-
lag kvöldsins mun siðaii keppa í
Eurovision keppninni á írlandi um
miðjan maí. Irar héldu keppnina
síðast árið 1988 er Sverrir Storm-
~ sigurlagið keppir á írlandi í maí
sker og Stefán Hilmarsson sungu
Sókrates og höfnuðu í hinu fræga
sextánda sæti.
Keppnin hér heima í ár er óvetýu-
leg að því leyti aö flytjendur eru
rnargir lítt þekktir. Prægustu
söngvarar landsins halda sig frá
keppninni að þessu sinni, hver svo
sem ástæðan er fyrir því.
Alis bárust um hundrað lög í
keppnina og sérstök dómnefnd
valdi tiu til að taka þátt í lokaslagn-
um. Eigendur laga og texta veröa
ekki nefhdir fyrr en að lokinni
keppni en það er gert til að koma
í veg fyrir að valinn sé höfundur í
stað lags. Miklar umræður urðu
eitt áriö þar sem talið var að þar
hefði höfundur verið vaiinn og vit-
laust lag sent í Eurovision.
Heigarblaðið ákvað að forvitnast
örlítiö um þá fly tjendur sem birtast
á skjánum í kvöld og fræöa lesend-
ur um hveijír þeir eru. Síöan er
hægt að velta fyrir sér hver þeirra
flytur sigurstranglegasta lagið.
-ELA
Júlíus Guðmundsson:
Lagið höfðar vel til mín
Ingibjörg Stefánsdóttir.
Ingibjörg Stefánsdóttir:
Kvíöi ekM kvöldinu
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég syng
í Söngvakeppni Sjónvarpsins en hef
áður tekið þátt í Landslaginu fyrir
þremur árum," segir Júhus Guð-
mundsson, 27 ára, verslunarstjóri
hjá KEA á Akureyri. Júlíus syngur
lagið Himinn, jörð og haf í keppninni.
„Ég byrjaði að syngja sem smá-
polli. Æth ég hafi ekki verið þrettán
ára þegar ég söng í fyrsta skipti opin-
berlega," segir Júlíus. Hann er vel
þekktur söngvari á Akureyri enda
hefur hann verið í mörgum hljóm-
sveitum þar nyrðra. „Ég verð að við-
urkenna að flestir hér fyrir norðan
vita hver ég er," segir hann.
Júlíus tróð upp fyrir nokkrum
árum í sýningunni Rokk, skór og
bítlahár sem fyrst var sýnd í Sjallan-
um en gekk síðan á Hótél íslandi í
heilan vetur. „Söngurinn er mitt
áhugamál. Ég hef gaman af að fást
viö eitthvað annað utan vinnunnar
og söngurinn er upplagður í það. Eig-
inlega byrjaði ég að syngja upp úr
þurru þegar við nokkrir pollar stofn-
settum hljómsveit á unglingsárun-
um. Hins vegar var mitt stærsta
tækifæri þegar ég söng í Landslag-
inu. Það er auðvitað ekki mikh
reynsla sem maður fær með því að
syngja í einni keppni en ég hef mjög
gaman af að taka þátt í Eurovision
keppninni núna.“
Meðal þeirra hijómsveita sem Júl-
íus hefur sungið með er Pass, Gall-
erí, París og eitt sumar söng hann
með hljómsveit Ingimars Eydal. Nú
syngur hann í hljómsveit sem heitir
Namm.
„Mér líst mjög vel á að taka þátt í
þessari keppni. Höfundurinn baö
mig fyrst að syngja lagið inn á demo
og í framhaldi af því kom þátttakan
í keppninni. Mér fmnst lagið fallegt
og það höfðar vel til mín að syngja
slík lög. Ég vil engu spá um úrsht
enda hef ég ekki séð neitt sigurlag
ennþá. Ég hlakka bara til aö taka
þátt í kvöld en að keppninni lokinni
ætlar hljómsveitin min að troða upp
á Gauki á stöng,“ segir Júhus Guð-
mundsson.
„Ég hef sungið með hljómsveitinni
Piece of Cake undanfarin ár en auð-
vitað er ég búin að syngja síðan ég
var bam,“ segir Ingibjörg Stefáns-
dóttir, 20 ára, sem syngur lagið Þá
veistu svarið í Söngvakeppninni.
Ingibjörg er best þekkt sem leikkon-
an í kvikmyndinni Veggfóður.
Áhugamál Ingibjargar hefur verið
söngur og leikhst. Hún veltir nú fyr-
ir sér hvort hún eigi að leggja leikhst-
ina fyrir sig. „Mér leist mjög vel á
að taka þátt í Eurovision keppninni
enda þykir mér lagið gott. Ég þurfti
ekkert að hugsa mig um enda lang-
aði mig að prófa að vera með,“ segir
Ingibjörg.
„Ég kvíði ekki kvöldinu en ég býst
við að ég fái kitl í magann rétt áður
en útsending hefst. Það verður síðan
bara að koma í ljós í hvaða sæti lag-
ið lendir. Ég ætla að gera mitt besta
og hafa gaman af þessu öhu saman,“
segir hún.
Ingibjörg er fædd og uppahn til níu
ára aldurs í Hahormsstaöaskógi en
fluttist þá til Reykjavíkur. Hún
stundaði nám í Vogaskóla og síðan í
Menntaskólanum við Sund. Núna
vinnur hún í hljómplötuverslun Skíf-
unnar á Laugavegi og segir sér líka
það ágætlega.
Júlíus Guðmundsson.
Guðlaug Olafsdóttir:
Hef sungið talsvert á sviði
„Eg hef sungið með hijomsveit foð-
ur míns, Ólafs Þórarinssonar, (Labbi
í Mánum) sem heitir Karma í eitt ár.
Síðan tók ég þátt í söngvakeppni
framhaldsnema í fyrra og söng lagið
Ég elska aUa og lenti í öðru sæti.
Einnig hef ég sungið á skemmtunum
í Vestmannaeyjum en þar hef ég búið
frá fimm ára aldri,“ segir Guðlaug
Ólafsdóttir, 21 árs, sem syngur lagið
Bless bless ásamt þeim Kristjönu
Þóreyju Ólafsdóttur, einnig frá Vest-
mannaeyjum, og Sesselju Magnús-
dóttur sem er önnur bakröddin í
hljómsveitinni Þúsund andlit.
„Ég er ekkert óvön að koma fram
á sviði en hef aldrei áður komið fram
í sjónvarpi," segir hún.
„Þetta er aUt miklu flóknara og
alvarlegra en söngvakeppni fram-
haldsskólanna. Auk þess er maður
ekki einungis að syngja fyrir sjálfan
sig, maður hefur ákveðnum skyldum
að gegna við lagahöfundinn."
Guðlaug segist ekki vera kvíðin
fyrir úrshtunum. „Ég held ég sé frek-
ar spennt að sjá hvernig þetta fer.
Mér finnast lögin öll ágæt en ég hef
tekið þau upp og horft nokkuð á þau.
Ég vil ekkert spá um sigurlag," segir
Guölaug.
Hún hefur lokið námi í hárgreiðslu
og starfar nú hjá hárgreiðslustofunni
Spörtu í Reykjavík. „Mér finnst mjög
gaman að starfa hér,“ segir hún.
Guðlaug segist hlakka til kvöldsins
í kvöld enda er þetta frumraun henn-
ar í sjónvarpi. Allir flyfjendur þurfa
að syngja lögin í beinni útsendingu
og ræðst að flutningi þeirra hvaða lag
ber sigur úr býtum.
Guðlaug Ólafsdóttir ásamt þeim Kristjönu Þóreyju Olafsdóttur og Sesselju
Magnúsdóttur.
Anna Mjöll Ólafsdóttir.
Anna Mjöll Ólafsdóttir:
Alltaf langað að vera með
„Eg kom beint frá Los Angeles þar
sem ég er í námi til að taka þátt í
þessari keppni. Maður verður að
vera með. Ég mætti hér að morgni
31. janúar og fór beint á æfingu og
síðan hef ég varla stoppaö,“ segir
Anna Mjöh ðlafsdóttir, 23ja ára, sem
syngur lagið Eins og skot í Söngva-
keppninni. Anna Mjöll skaust upp á
stjörnuhimininn er hún kom, sá og
sigraði í keppninni Landslagið árið
1991. Auk þess hafa borist fréttir af
Önnu þar sem hún hefur nokkuð
sungið með hljómsveitinni Toto í Los
Angeles.
„Mér leist mjög vel á að koma heiih
og syngja þetta lag þegar höfundur
þess bað mig um það. Mig hefur allt-
af langað til að vera með í þessari
keppni og loksins hefur sá draumur
ræst. Reyndar var mjög mikið að
gera hjá mér í skólanum en ég var
tilbúin að fóma því fyrir þessa
keppni," segir Anna Mjöll sem er
eins og kunugt er dóttir Svanhildar
Jakobsdóttur og Ólafs Gauks.
Anna Mjöll er í tónlistamámi í
skóla sem heitir Grove Center og er
að læra tónsmíðar, textasmíðar, tón-
fræði og hljómfræði. Sjálf spilar hún
á hijómborð og er að auki að læra
söng með öllu þessu. „Ég hef líka
sungið svolítið með strákum sem em
með mérá skólanum en þeir era að
útsetja fyrir stórar hijómsveitir. Það
er því nóg að gera hjá mér.“
Anna kvíðir ekki fyrir kvöldinu en
segist vera spennt. „Það em mörg
góð lög í þessari keppni og ég er viss
um að hún verður jöfn og spenn-
andi. Mér þykja fleiri góð lög núna
en oft áður.“