Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1993, Síða 33
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1993. 45 Ingunn Gylfadóttir. Ingunn Gylfadóttir: Úr karaoke í Eurovision „Ég hef aðeins einu sinni áður sungið í keppni en það var þegar ég ætlaði að æfa fótbolta á Egilsstöðum í fyrrasumar. Þá var ein allsherjar karaoke-keppni fyrir öll fyrstu deild- ar liðin og þá keppti ég fyrir Hött. Það er eina keppnin sem ég hef tekið þátt í og sigraði reyndar í henni,“ segir Ingunn Gylfadóttir, 23ja ára, sem syngur tvö af þeim tíu lögum sem keppa til úrshta í kvöld, Ég bý hér ein og Brenndar brýr. Höfundar laganna verða ekki gefnir upp fyrr en í kvöld. „Ég verð að viðurkenna að það er svolítið skrítið að koma úr karaoke og fara beint í Eurovision en mér finnst það meiriháttar spenn- andi,“ segir Ingunn. Hún sagðist hafa veriö í hljómsveit með nokkrum strákum fyrir fáum árum og spilaði hún helst í Keflavík. „Ég er nýflutt til Akureyrar en hef búið aUa tíð í Reykjavík og er í háskó- lanum að læra dönsku. Kærastinn minn, Tómas. Hermannsson, er Ak- ureyringur og ég flutti norður með honum. Mig langar að læra söng en hef ekki látið verða af því ennþá," segir hún. „Mér finnst mjög spennandi aö taka þátt í keppninni enda er þetta allt mjög framandi. Það er alveg ó- ráðið hvort ég á eftir að leggja söng- inn fyrir mig en danskan gengur fyr- ir þar sem ég ætla að verða dönsku- kennari." Ingunn segist vera svolítið kvíðin en þó spennt fyrir kvöldinu. „Þetta verður áreiðanlega mjög skemmti- legt. Mér finnst gaman að vera með og kynnast þessu öUu. Ég átti ekki von á að það væri svona mikið um- stang í kringum keppnina. Þó þetta sé mjög skemmtílegt allt saman verö ég örugglega fegin þegar keppnin er afstaðin," segir Ingunn. Hún segist eiga sér eitt uppáhaldslag í keppn- inni en ætlar ekki að gefa upp hvaða lag það er. Rut Reginalds ásamt félögum. Rut Reginalds: „Brýtur upp Euro- vision- ímyndina" „Ég hef tvisvar áður tekið þátt í Eurovision keppninniog hafði hugs- að mér að hvfia mig frá henni þetta árið. Þegar höfundur lagsins óskaði eftir að ég yrði með sló ég tU þar sem mér þótti lagið nýstárlegt," segir Rut Reginalds, 27 ára, sem syngur lagið Hopp-abla-ha ásamt þeim Lálju Guð- rúnu Þorvaldsdóttur leikkonu, Skúla Gautasyni, söngvara Sniglabands- ins, og Ómari Ragnarssyni. „Mér fannst þetta lag brjóta upp þá Euro- vision-ímynd sem hefur verið í gangi. Það er stundum eins og við treystum engu öðru en lagi í Bobby Socks stíl eða mjög rólegu lagi. Lögin hafa kannski verið of lík,“ segir Rut. „Þetta lag minnir mig á ísraelska lagið Hubba hiúle huUe sem var mjög vinsælt á sínum tíma þótt það ynni ekki en í svona lögum eru engir tungumálaerfiðleikar. “ Rut segir að mjög vel sé staðið að Söngvakeppninni að þessu sinni hjá Sjónvarpinu og ekkert stress í upp- tökusalnum. „Mér finnst mjög gott að vinna með því fólki sem sér um keppnina núna,“ segir hún. Rut er ekkert kvíðin kvöldinu enda ekki óvön aö koma fram. „Þetta er skemmtilegur hópur sem ég er að syngja með og ég held að þetta verði bara reglulega gaman.“ Það er ýmislegt að gerast hjá Rut Reginalds á næstunni. Hún mun leUia Evítu Peron í samnefndum söngleik sem verið er að setja upp í SjaUanum á Akureyri undir stjóm Gests Einars Jónassonar. Frumsýn- ing verður 6. mars. Auk þes hefur Rut sungiö gospeltónhst í Bústaða- kirkju ásamt Sigrúnu Hjálmtýsdótt- ur og Emu Gunnarsdóttur við undir- leik hljómsveitar Magnúsar Kjart- anssonar. „Það er eiginlega of mikið að gera hjá mér þar sem ég hef veriö með annan fótinn á Akureyri. Ann- ars bý ég í Grafarvoginum og á tvö böm,“ segir Rut sem segist vera svo heppin að eiga góðan mann og tengdaforeldra þannig að henni reynist þetta ekki svo erfitt. Þess má geta að það styttist í tuttugu ára söngafmæli Rutar Reginalds. MargrétEir: Hrædd um að gleyma textanum „Ég hef áður sungið í Eurovision, einnig í Landslaginu og í söngkeppni framhaldsskólanna þar sem ég sigr- aði. Ætli það hafi ekki opnað mér leið í Eurovision í fyrra en þá söng ég lagið Þú mátt mig engu leyna eftir Axel Einarsson. Mér þótti það mikifi heiður þegar ég var beðin að syngja í Eurovision keppninni í fyrra og var hissa á að vera beðin. Nú er ég orðin vanari enda syng ég með hljómsveit- inni Svartur pipar og við höfum starfað frá þvi í vor,“ segir Margrét Eir, 21 árs, sem syngur lagið Ó, hve ljúft er að lifa. Margrét segist vera orðin atvinnu- söngkona þar sem hljómsveitin hafi ferðast víða um land og spilað á dans- leikjum. „Við erum með danstónlist- arprógramm," segir hún. Margrét er í söngnámi í Tónlistar- skóla Reykjavíkur. Hún er Hafnfirð- ingur og segist hafa verið syngjandi frá því hún fæddist. „Ég var í kór Öldutúnsskóla og hef síðan haldið áfram. Ætli ég hafi ekki verið átta ára þegar ég byijaði í kómum,“ segir hún. Núna er Margrét í Flensborg auk þess sem hún syngur með hljóm- sveitinni og stundar nám sitt í tón- listarskólanum. „Ég reyni líka að mæta á kóræfingar en það gengur illa vegna þess hversu mikið er að gera hjá mér,“ segir hún. Margrét spilar á píanó en segist gera lítið að því um þessar mundir. Hún segist vera orðin mjög spennt fyrir kvöldinu í kvöld. „Ég er farin að finna fyrir stressi. Áhyggjuefni mitt er alltaf hræðslan við að gleyma textanum en svo gengur þetta auðvit- að alltaf upp,“ segir hún. Ekki vill hún spá um sigurlag enda telur hún lögin nokkuð jöfn. „Maður gerir sér hugmyndir en ég get engu spáð.“ „Mig langaði að taka þátt í þessari keppni og gaf því kost á mér,“ sagði Katla María Hausmann söngkona í samtali viö helgarblaö DV fyrir stuttu en þá var hún rétt stigin úr flugvélinni sem flutti hana frá Spáni. Katla María er spænsk í aðra ættina og hefúr búið í landi fóöur síns und- anfarin ár. Hún syngur lagið Samba í Eurovision keppninni. „Þetta lag er ekki í þessum hefð- bundna Eurovision stíl sem hefur verið ríkjandi,“ sagði Katla María ennfremur í viðtalinu. „Þaö er í sam- batakti sem er mjög vinsæll núna. Það er gaman að syngja lag með suð- rænum blæ á þessu kalda landi." Katla María er 23ja ára gömul. Hún sló í gegn sem söngkona bam að aldri hér á landi eins og flestum er kunn- ugt. Nú starfar hún sem söngkona á Spáni, rekur eigið hljóðver og vinnur við almannatengsl í Barcelona. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Katla María tekur þátt í Söngva- keppni Sjónvarpsins. Hún söng lagið Sóley eftir Gunnar Þórðarson fyrir nokkrum árum. Þrátt fyrir það segist hún ekki vera mikil keppnismann- eskja. „Yfirleitt finnast mér músík- keppnir hundleiðinlegar. Ég þarf Katla María Hausmann. ekki að taka þátt í þeim til að vita hvemig söngkona ég er. Ég veit að ég hef mína kosti og galla og þarf enga keppni til að segja mér það. Ég skil hins vegar að Eurovision keppn- in er mikilvæg fyrir ísland. Hún er góð auglýsing fyrir þjóðina. Ég er því ánægð og hreykin að eiga þess kost að taka þátt í henni." Katla María kláraði menntaskóla- námið á Spáni. Texti lagsins var henni svolítið erfiður þar sem hún segist vera farin að ryðga í íslensk- unni. „Það er svo langt síðan ég hef komið hingað,“ segir hún. Eins og margir hafa þegar séð þá er spænska í laginu Sömbu þannig að það hentar Kötlu Maríu ágætlega. Katla María Hausmann: Sambataktur með suðrænum blæ Haukur Hauksson: Þátttakan er ákveðin reynsla „Eg var nokkuð óákveðinn hvort ég ætti að taka þetta að mér, þurfti að hugsa mig nokkuö um. Lagahöfund- urinn bað mig að syngja lagið á demói sem hann sendi inn og það var viss skuldbinding. Þegar hann óskaði eftir að ég syngi lagið í keppninni gat ég varla neitað því,“ segir Haukur Hauksson, 29 ára, söngvari hljóm- sveitarinnar Af lífi og sál, sem syng- ur lagið í roki og regni í söngva- keppninni. „Eg lít á þátttöku mína í keppninni sem ákveðna reynslu,“ segir Haukur, sem er bróðir Eiríks Haukssonar, sem hefur tvisvar sungið í söngva- keppni Sjónvarpsins, þar á meðal í fyrstu keppninni, og í eitt skipti í Eurovision fyrir Noreg þar sem hann býr. Mikill söngáhugi er í ætt þeirra þvi þriðji bróðirinn, Haraldur, er söngvari á Akureyri og syngur um þessar mundir í óperu þar í bæ. Syst- ir þeirra bræðra hefur einnig tekið sig tíl og sungið þó ekki sé það opin- berlega ennþá heldur í einkaveislum í fjölskyldunni. Haukur vill ekki meina að hann sé að feta í fótspor bróður síns, Eiríks, í söngvakeppninni. „Það er ekki um mjög auöugan garð að gresja fyrir söngvara á íslandi þannig að í raun Haukur Hauksson. eru öll verkefni vel þegin.“ Fyrir utan að syngja með hljóm- sveitinni Af lífi og sál er Haukur unghngaráðgjafi hjá Rauöa krossin- um. Hann hefur veriö í nokkrum hljómsveitum frá unglingsaldri, þar á meðal Sprakk sem margir kannast við. Hann segist vera orðinn nokkuð stressaður fyrir kvöldið enda sé alltaf dálítil spenna sem fylgi keppni sem þessari. Auk þess þarf hann að fara til Hafnarfjarðar með hljómsveit sinni og leika fyrir dansi eftir keppn- ina. Hauki finnst Eurovision keppnin ólík Landslaginu. „Það er miklu meiri flölbreytni og breidd í lögunum í Landslaginu," segir hann. „Annars leggst þetta vel 1 mig.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.