Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1993, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1993, Blaðsíða 10
r 10 Útlönd Ennogafturlek- ur hjá sænsku kjarnorkuveri Nýr leki kom upp í Ringhals 1 kjamakljúiiium í Svíþjóð um það leyti sem átti að gangsetja hann eftir nokkurra daga stopp, að því er starísraaður versins sagði í gær. Kjarnakljúfurinn var stöðvað- ur um helgina eftir að í ljós kom að geislavirkt vatn lak úr ventli. Til stóð að gangselja hann aftur i á þriöjudag en þá komu starfs- menn auga á sprungu í röri og lak geislavirk gufa þar út. „Magnið var mjög, rajög lítiö,“ sagði Bengt Hansson, fram- leiðslustjóri i Ringhals 1. Búist er við að ofninn verði gangsettur i dag. Tólf kjarnaofhar eru í Svíþjóð og sinna þeir um helmingi orku- þarfar landsmanna. Valhnetur minnkakólest- eról hjá körlum Unnendur valhnetna geta nú kæst því ný rannsókn hefur leitt í ljós að karlmenn, sem fá tuttugu prósent hitaeininga sinna við val- hnetuát, eru með tólf prósent minna kólesíeról í blóöinu en aðrir menn. Ranftsóknin birtist í lækna- tímaritinu New England Journa) of Medicine sem kemur út í dag i og var hún framkvæmd af hópi visindamanna sem skýröu frá þvi i fyrra að hnetuætur fengju síður þjartáfall og hjartasjúkdóina. Nýjasta rannsóknin beindist eingöngu að valhnetum og var hún fjármögnuð af hagsmuna- samtökum valhnetubænda í Kali- forníu. Konankemurá varð síðast allra í Evrópu til að veita konum kosningarétt, er eft- irfarandi málsháttur: „Fyrst kemur karlmaðurinn, svo kemur kýrin og síðan konan.“ Þessi orð voru svissneskum konum ofarlega í hugai gær þeg- ar þing landsins hatnaði að þvi er viröist ákaílega hæfri konu, Christiane Brunner, til að gegna ráðherraembætti. Hundruö kvenna efndu til mót- mælaaðgerða fyrir framan þing- húsið f gær. Jafnaðarmannaöokkurinn hafði tiinefnt Brunner í ráðherra- embættið en hún er lögfræðing- ur, verkalýðsleiðtogi og kvenrétt- indakona. Umræðurnar í þínginu snerust hins vegar meira um fijálslegan klæðaburð henuar og lífsmáta en hæfni hennar til aö gegna embætinu.: Til {æssa hefur aðeins ein kona gegnt ráðherraembætti i Sviss. )jóð, Finnlandi, Noregi, Kanada og Japan gæti leitt til aukinnar tíðni húðkrabbameins og til skemmda á uppskeru. Grænfrið- ungar sögðu í gær að meteyðing ósonlagsins á norðurhveli jarðar væri mikil ógn við umhverfið. Ósonlagiö er allt að 40 prósent- um þynnra en venjulega yfir Sví- ijóð og Finnlandi, 25 prósentum tynnra yfir Kanada og rfflega 13 prósentum þynnra yfir Japan. Ósonlagiö vemdar jörðina fyrír skaðlegum áhrifum útfiólublárra Reuter FIMMTUDAGUR 4. MARS1993 Lögreglan bíður með miklu liði fyrir utan búgarð sértrúarsafnaðar Davids Koresh í Carmel, rélt austan Waco í Texas. Talið er að um 450 lögreglumenn, með brynvarða bíla og þyrlur, eigi að gera árás á búgarðinn gefist Koresh ekki bráðlega upp. Á búgarðinum eru á annað hundrað manns, þar af tuttugu börn. Koresh segist hafa um það fyrirmæli frá guði að þrauka og segir að sér verði umbunað á himnum fyrir verk sin eins og öðrum réttlátum. Símamynd Reuter Bandaríska alríkislögreglan sætir gagnrýni fyrir aðgerðimar 1 Texas: Boðuðu sjálf ir komu lögreglu á búgarðinn - líklegt talið að 21 hafi látið lífið í fyrstu árásinni, þar af tvö böm Nú er upplýst að lögreglan í Texas hafði flugumann á búgarði safnaðar Davids Koresh nærri Waco í Texas. Hringt var í manninn áður en lög- reglan lagði til atlögu á sunnudaginn. Við símtalið vöknuðu grunsemdir Koresh, leiðtoga- safnaðarins, um hvað væri í vændum. Hann gat því skipulagt varnir í tíma og þegar lög- reglan kom var henni mætt með skothríð. Fjórir lögreglumenn féllu og 15 særðust í einu versta afhroði sem bandarískt lögreglulið hefur goldið á síðari tímum. Blöð í Texas telja að ÐANDARÍKIN aUt að 21 maður hafi látið lífið í árás- inni á sunnudaginn, þar af tvö böm. Þetta hefur þó ekki fengist staðfest. „Það er yfirstjórn lögreglunnar í Washington sem ber ábyrgð á blóð- baðinu," sagði Charhe Beckwith, fyirum yfirmaður í bandaríska hem- um í gær. Hann sagði að skipulagn- ingin hefði augljóslega mistekist og þar heíði ráðið úrshtum að Koresh og hans menn hafi vitað hvað væri í vændum. í morgun hélt söfnuðurinn enn út og sagði Koresh að uppgjöf kæmi ekki til greina fyrr en guð hefði gefið fyrirmæli um að gefast upp. Um 450 lögreglumenn sitja um staðinn undir alvæpni og með brynvarða bíla. Inni em 43 karlmenn undir vopn- um, 47 konur og um 20 börn. í hópn- um era 23 Bretar sem fyrir nokkurm árum snemst tO fylgis við Koresh. Þá eru nokkrir Ástralir í hópnum eftir því sem yfirvöld segja. Búið er að sleppa átján börnum og tveimur fullorðnum konum. Þær eru 75 og 77 ára pg verða að öllum líkind- um ákærðar fyrir samsæri gegn lög- reglunni hvemig svo sem fer um hinaíhópnum. Reuter Grænfriöungar um efnaslysið við Frankfurt: Aðstæður réttar til myndunar díoxíns Þýska efnagerðarsamsteypan Ho- í Seveso og í Griesheim verksmiðj- echst vísaði á bug í gær fullyrðingum Grænfriðunga um að aðeins heíði munað hársbreidd að Schwanheim úthverfið í Frankfurt yröið þakið dí- oxínskýi, en díoxín er mjög hættulegt eiturefni. Við slys í verksmiðju fyrirtækisins á mánudag í síöustu viku sprautaðist efnablanda með eiturefninu ortho- nitroanisol yfir hverfið. Hoechst lýsti því upphaflega yfir að efni þetta væri aðeins „lítillega eitrað". Grænfriðungar sögðu hins vegar að litlu hefði mátt muna að færi fyr- ir Schwanheim eins og ítalska bæn- um Seveso árið 1976. Þá slapp díoxín út í andrúmsloftið eftir sprengingu í ítalskri efnaaverksmiðju. Búfénaður drapst og íbúar bæjarins fengu alls kyns húðsjúkdóma. Talsmaður Hoechst sagði að Græn- friðungar væm að leika hættulegan leik með yfirlýsingu sinni. „Það er ekki hægt að líkja saman slysuniun unni,“ sagði talsmaðurinn, Hartmut Vennen. Hann sagði að réttu efnin til myndunai díoxíns hefðu ekki ver- ið til staðar í slysinu við Frankfurt. Fyrirtækið vísaði einnig í því sam- bandi til niöurstaðna hóps vísinda- manna sem umhverfisráðuneyti sambandsríkisins Hesse, þar sem Frankfurt er, kallaði saman. Þýskalandsdeild Grænfriðunga haföi áður lýst því yfir að allar að- stæður hefðu verið réttar til mynd- unar díoxíns. Samtökin sögðu að í suðupottinum, sem ofhitnaði og sprautaði eiturefn- um yfir hús, bíla, garða og þvott á snúmm, hefðu verið efni sem nauð- synleg eru til myndunar díoxíns. Aðeins hefði þurft hærra hitastig til að díoxínið myndaðist í pottinum. Talsmaður Hoechst sagði að fyrir- tækið ætlaði að auka öryggi í verk- smiðjum sínum í náinni samvinnu VÍðyfirVÖld. Reuter Prinsessan sneri sig á ökkla í fjallgöngu Díana prinsessa varð fyrir því óláni aö snúa sig á ökkla í ferð sinni um fjalllendi Nepals í gær. Heimamenn vom að vonum súrir yfir þessu óhappi en prinsessan hélt fór sinni ótrauð áfram enda má hún þola margt verra þessa dagana en sárindi í fæti. Díana var á göngu eftir grýttum fjallavegi í austurhluta landsins þegar hún missté sig. Hún haltraði við en gerði gaman að öllu og neit- aði að víkja frá fyrri áætlun. Díana er áberandi létt á fæti að sögn þeirra sem ferðast með henni. í íjallferðinni í gær gekk hún af sér hóp ljósmyndara og ráðherra þró- unarmála í bresku stjórninni aö auki. Á eftir gerði hún grín að ljós- myndurunum og sagðist hafa átt von á að þeir væm betur á sig komnir. Þeir sátu þá móöir og más- andi á vegkanti en prinsessan blés ekki úr nös. í gær hitti Díana fólk af ættflokki Díana prinsessa er lítillega sár í Ökkla. Simamynd Reuter gurkha. Díana’ skoðaði hýbýh þeirra og sagði þegar hún kom út úr einum kofanum að hún myndi aldrei kvarta oftar. Bresk blöð vilja meina að Nepalir hafi hundsað Dí- önu í heimsókn hennar. Heima- menn em á öðra máli og hafa sýnt prinsessunnimikinnáhuga. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.