Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1993, Qupperneq 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 1993
Utlönd
Munkarsáuvid
svindlurunum
Benediktsmunkar í Englandi
tilkynntu í gær að þeir hefðu
hætt við að bjóða þurfandi upp á
ókeypis heitar máltiðir vegna
þess að maturinn var svo góður
að vel stæöir svindlarar komu á
rándýrum bílum til að fá sinn
skammt.
Frá því bræðumir í Prinknash
klaustri i vesturhluta Englands
tóku að bera eingöngu fram supu,
brauö og te hefur viðskiptavinun-
um fækkaö um helming.
„Það er synd að þetta skyldi
vera misnotaö," sagði bróðir An-
ton sem hefur gefið fátækum að
borða í 44 ár.
Tveirfymim
ráðherraráítal-
íurannsakaðir
Mikiö uppistand er nú í kristi-
lega demókrataflokknum á ítaliu
eftir að það spurðist út aö tveir
fyrrum forsætisráðherrar lands-
ins úr röðum flokksins væru
flæktir í hneykslismálið sem nú
tröllríðurítölski
Giulio
Andreotti og
Amaldo Forl-
ani, fyrrver-
andi forsætis-
ráðherrar,
fengu aö vita í
gær að verið
væri að rann
saka þá vegna spiflingar.
Andreotti er grunaður um aö
hafa brotið lög um fiármögnun
stjórnmálaflokka og svipaða sögu
er að segja af Forlani.
Þessi nýjasta rannsókn er enn
eitt áfallið fyrir kristilega demó-
krata og Andreotti sem gegndi
forsætisráðherraembættinu sjö
sinnum. Áður hafði verið til-
kynnt að veriö væri að rannsaka
tengsl hans við mafíuna.
Lögfræðingur Andreottis sagði
að skjólstæðingur sinn heföi ekki
gert neitt af sér.
Timmanog
Karpovætlaað
leflaumtitilinn
Anatólí Karpov og Jan Timman
hafa fallist á að leika um heims-
meistaratitilinn í skák undir
merkjum Alþjóöa skáksam-
bandsins, FIDE. Frá þessu var
skýrt seint á sunnudagskvöld.
Nigel Short, sem teflir við Garrí
Kasparov um sama titíl, sigraöi
bæði Karpov og Timman i áskor-
endaeinvígjunum.
Short og Kasparov sögðu sig úr
lögum við FIDE fyrir nokkru og
ætla aö halda eigið heimsmeist-
araeinvígi síðar á árinu.
Kasparov sagði í viðtafl sem
birt var í gær aö FIDE ætti aö
hætta aö beijast viö þá Short um
hver ætti rétt á heimsmeistara-
titflnum. Reuter
Engin lausn 1 sjónmáli í fiskveiðideilunni í Danmörku:
Danskir sjómenn
skaðabótaskyldir
Samningaviðræður Bjöms
Wesths, sjávarútvegsráðherra Dan-
merkur, og samtaka sjómanna fóm
út um þúfur í gærkvöldi og er ekki
útflt fyrir að þær verði teknar aftur
upp í bráð.
Ottast er aö framhald verði á ólög-
legum aðgerðum sjómannanna gegn
ferjuflutningum og fiskiðnaðinum en
Bjöm Westh hefur varað sjómenn
við því. Mörg dönsk fiskiðjuver sem
hafa tapað tugmilljónum króna á
aðgerðum sjómannanna ætla nú að
gera þá ábyrga fyrir skaðabótum.
„Þetta verður bara þrýstingur á
sjómennina í fyrstu en við útilokum
ekki málaferli," sagði Peder Hyldtoft,
formaður samtaka danska fiskiðnað-
arins og útflytjenda, í viðtafl við blað-
ið Berlingske Tidende í morgun.
Mörg fyrirtæki sem hafa orðiö fyr-
ir baröinu á ólöglegum aðgerðum
hafa tilkynnt stéttarfélögunum að
þeir verkamenn sem em sendir heim
vegna aögerðanna fái ekki laun.
Formenn tveggja helstu sjómanna-
Björn Westh, sjávarútvegsráðherra
Danmerkur.
samtakanna fóm fram á það við fé-
lagsmenn sína í gærkvöldi að þeir
yrðu áfram í höfn en hvöttu þá ein-
dregið til aö forðast afla áreitni eða
grípa til ólöglegra aðgerða.
Bjöm Westh segist reiðubúinn að
halda viðræðum áfram. Tilboð hans
til sjómanna snerist um vaxtalækk-
un upp á nokkra milljarða króna.
Sjómenn ætla að koma saman í í
dag til að ræða stööuna.
Blaöið Jyllands-Poseten segir að
sjómannasamtökin séu að missta
tökin á deilunni í mörgum höfnum á
Jótlandi. Stór hópur sjómanna ætfl
ekki að láta sér nægja að liggja bund-
inn við bryggju heldur séu þeir til-
búnir að stöðva norska fiskflutninga-
bíla sem fara um Jótland.
Poul Nymp Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, lofaði Gro
Harlem Brundtland, forsætisráð-
herra Noregs, því í gær að norskir
flutningabílar fengju lögregluvernd.
Ritzau
Börðu móðurina til bana að
tveimur dætrum ásjáandi
Barbara Meller Jensen, 39 ára göm-
ul þýsk kona, var barin til bana af
misindismönnum á Flórída um helg-
ina. Tvær dætur hennar horfðu á og
auk þess móðir hennar.
Hún er þriðji þýski ferðamaðurinn
sem myrtur er á Flórída á skömmum
tíma og alls hafa sex ferðamenn ver-
ið drepnir þar í vetur.
Þjóðvexjar hafa brugðist ókvæða
við þessum tilefnislausu árásum og
krefjast þess að yfirvöld í ríkinu
tryggi öryggi ferðamanna. Þýska ut-
anríkisráðuneytið hefur látið málið
til sín taka og krafið ríkisstjóra
Flórída skýringa.
Ríkisstjórinn, Lawton Chiles, sagði
í gær að Flórída væri ekki sá háska-
staður sem Þjóðverjar vildu vera láta
og fullvissaöi þýska ræðismanninn í
Miami um að ekkert væri að óttast.
Ofbeldismennimir leika það að
valda árekstri og þegar férðamaður-
inn fer út að kanna tjónið er hann
rændur, barinn og jafnvel drepinn.
Bæði Bretar og Þjóðveijar hafa
gefið út reglur fyrir ferðamenn aö
fara eftir og varað þá við mestu hætt-
unum.
Árlega koma um 40 milljónir ferða-
manna til Flórída og ferðaþjónusta
er mikilvægur atvinnuvegur. Því
leggja heimamenn ofuráherslu á að
sanna að staðurinn sé ekki hættu-
legrienhverannar. Reuter
Christian Jensen og dóttirin Darja á blaðamannafundi i Miami í gær. Þar
skoraði Jensen á almenning að aðstoða við að finna morðingja konu sinn-
ar en hún var drepin af ránsmönnum um helgina. símamynd Reuter
Kvarta undan
seinagangií
EB-viðræðum
Nokkrir samningamanna Sví-
þjóðar í viðræðunum um aöild
landsins að Evrópubandalaginu
hafa kvartað undan seinagangi.
Tveir mánuðir eru nú liðnir frá
því viðræðumar hófust.
„Það verður að herða róðurinn.
Þaö er greinflegt að ekki öllum
löndum EB liggur mikið á,“ segir
einn sænsku samningamann-
anna,
Svíar hafa haldíð tvo fundi með
samningamönnum EB. Fyrri
fundurinn var í febrúar en sá síð-
ari í mars þar sem farið var yfir
öll atriöin sem þarf að semja um.
Svíamir hafa m.a. undrast öll
formlegheitin í viðræöunum.
Ferðamenn
staðniraðstór-
Toflverðir í Trelleborg í Svíþjóð
komust I feitt þegar þeir gerðu
leit í ferðamannarútu á heimleið
frá Þýskalandi um helgina.
Farþegamir vom í innkaupa-
ferö og höfðu svo sannarlega
birgt sig upp af áfengi og tóbaki.
Tollverðirnir fundu rúma 400
fltra af sterku áfengi, um600 litra
af öli og tæpa 200 lítra af léttvini.
Þegar upp var staðið kannaðist
enginn við að eiga nokkra tugi
fltra af áfenginu og rúmlega eitt
þúsund sígarettur. Ferðamenn-
imir mega búast viö sektum.
Eldsprengjurá
danskaflótta-
mannamiðstöð
Tveimur íkveikjusprengjum
var kastað að flóttamannamið-
stöö í Helsingjaeyri aðfaranótt
mánudagsíns. Milfl sjö og átta
hundruð flóttamenn frá fyrrum
Júgóslavíu em í miðstöðinni.
Fyrri sprengjan kveikti í þvotti
sem var til þerris úti á svölum
en fljótlega tókst að slökkva eld-
inn. Síðari sprengjan lenti í
mnnagróðri og brann út. Ekki er
vitaö hveijir vom þarna að verkl
Grafarræningjar
skila líkamsleif-
unum aftur
Grafarræningjar sem íjarlægðu
likamsleifar vinsæls teikni-
myndasöguhöfundar í Japan
hafa skilað þeim aftur til fjöl-
skyldu konminar án þess að
lausnargjald væri greitt.
Lögreglan endurheimti leifar
Machiko Hasegawa úr læstum
skáp á jámbrautarstöð í Tokyo í
gær. Ræningjarnir höföu sent
fjölskyldu Hasegawa tvö bréf og
fóra íram á Iausnargjald.
TT, Uit7.au og Reuter
UPPB0Ð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Breiðvangur 10, 401, Hafiiarfirði,
þingl. eig. Brynja Björk Kristjánsdótt-
ir, gerðarbeiðendur Bæjarsjóður
Hafiiarfjarðar og Ástund hf., 14. apríl
1993 kl. 10.00.
Dalshraun 24, Hafnarfirði, þingl. eig.
Keilirhf., gerðarbeiðendur Bæjarsjóð-
ur Hafharíjarðar, Innheimta r&is-
sjóðs og sýslumaðurinn í Hafiiarfirði,
14. aprfl 1993 kl. 10.30.
Eyrartröð 13,0101, Hafiiaríirði, þingl.
eig. Guðmundur Lárusson, gerðar-
beiðendur Bflanaust hf., Bæjarsjóður
Hafnarfjíuðar, Guðmundur Sigurðs-
son, Hafiiarbakki hf., Hrafii Ragnars-
son, Húsasmiðjan hf., Málning hf.,
Sparisjóður Ólafsfjarðar og íslands-
banki hf., 14. aprfl 1993 kl. 11.00.
Fomubúðir 12,110, Hafiiarfirði, þingl.
eig. Fiskaklettur, björgunarsveit,
gerðarbeiðandi Húsasmiðjan hf., 14.
aprfl 1993 kl. 11.45._______________
Hjallahraun 4,101, Hafiiarfirði, þingl.
eig. Börkur hf., gerðarbeiðendur Bæj-
arsjóður Hafharfjarðar og Lífeyris-
sjóður lækna, 14. aprfl 1993 kl. 16.00.
Hveríisgata 41A, Hafiiarfirði, þingl.
eig. Nadege D. Kristjánsson, gerðar-
beiðandi Innheimta ríkissjóðs, 14.
aprfl 1993 kl. 13.30._________________
Lyngás 1, 101, Garðabæ, þingl. eig.
Burstagerðin hf„ gerðarbeiðandi
Gjaldheimtan í Garðabæ, 14. aprfl
1993 kl. 14.00._______________________
Lyngás 10, 203, Garðabæ, þingl. eig.
Rásin sf., gerðarbeiðandi Bæjarsjóður
Hafnarfjarðar, 14. aprfl 1993 kl. 14.30.
Lyngás 10, 204, Garðabæ, þingl. eig.
Rásin sf., gerðarbeiðandi Bæjarsjóður
Hafharfjarðar, 14. apríl 1993 kl. 15.00.
Lækjargata 34A, 302, Hafiiarfirði,
þingl. eig. Byggðaverk hf., gerðarbeið-
andi Innheimta ríkissjóðs, 14. aprfl
1993 kl. 15.30.
Mb. Haftindur HF-123, Hafnarfirði,
þingl. eig. Staðarhóll hf., gerðarbeið-
endur Landsbanki íslands, Isafirði, og
Vélbátaábyrgðarfél. ísfirðinga, 14.
apríl 1993 kl. 13.00.________________
Strandgata 30, 0102, Hafiiaríirði,
þingl. eig. Bæjarsjóður Hafharfjarðar,
gerðarbeiðendur Bæjarsjóður Hafiiar-
fjarðar, Kaupþing hf., Lífeyrissjóður
lækna, Sparisjóður Hafharfjarðar og
Verslunardeild Sambandsins, 14. aprfl
1993 kl. 17.00.______________________
Stuðlaberg 2, 101, Hafiiarfirði, þingl.
eig. Vigfiis J. Björgvinsson, gerðar-
beiðendur Gluggasmiðjan hf„ Hús-
næðisstofiiun ríkisins og P. Samúels-
son hf., 13. aprfl 1993 kl. 14.00.
Suðurbraut 20,201, Hafnarfirði, þingl.
eig. Stjóm verkamannabústaða, gerð-
arbeiðendur Húsnæðisstofiiun ríkis-
ins og Samvinnutryggingar gt, 13.
aprfl 1993 kl. 14.30._____________'
Suðurbraut 26,201, Hafiiarfirði, þingl.
eig. Sigríður Óskarsdóttir, gerðarbeið-
endur Innheimta ríkissjóðs og Ábyrgð
hf„ 13. aprfl 1993 kl. 15.00._____
Suðurgata 58,1. hæð og kj„ Hafiiar-
firði, þingl. eig. Gunnbjöm Svanbergs-
son, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður
máím- og skipasmiða, 13. aprfl 1993
kl. 16.00.________________________
Suðurgata 58, rishæð, Hafnarfirði,
þingl. eig. Gunnbjöm Svanbergsson,
gerðarbeiðandi Lifeyrissjóður málm-
og skipasmiða, 13. aprfl 1993 kl. 16.30.
SÝSLUMAÐURINN í HAFNARFIRÐI