Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1993, Blaðsíða 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 1993
ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 1993
17
Eyjapeyjar bikarmeistarar
ÍBV varð bikarmeistari 1993 í 2. flokki karla er þeir báru sigurorð af Stjörn-
unni í geysilega skemmtilegum og spennandi úrslitaleik en úrslit réðust
ekki fyrr en eftir tvíframlengdan leik.
Strax í upphafi var ljóst að hvorugt liðanna ætlaði sér annað en sigur og
skiptust hðin á um að skora en staðan í hálfleik var jöfn, 7-7. Sama jafn-
ræði var með liðnum í seinni hálfleik og það var ekki fyrr en að lokinni
seinni framlengingu að ÍBV tryggði sér sigurinn, 21-20, þar sem jafnt var í
leikslok, 13-13, og aftur að lokinni fyrri framlengingu, 17-17.
Flest mörk ÍBV skoruðu Davíð Hallgrímsson 7 og Amar Pétursson 6 en
Sæþór Ólafsson skoraði 6 mörk fyrir Stjömuna og Einar Hjaltason 5. Á
myndinni sést liö ÍBV eftir að sigurinn í bikarkeppninni var í höfn.
-HR/DV-mynd Sveinn
íbr mfl. karla, A-riðill krr
REYKJAVIKURMOT
MEISTARAFLOKKUR KARLA
FRAM - LEIKNIR
í kvöld kl. 20.00
HK kærir ÍR-leikinn
HK hefur ákveðið að kæra leik
sinn gegn ÍR í 1. deild karla í hand-
knattleik sem fram fór á sunnu-
dagskvöldið og lauk með jafntefli,
20-20.
Að sögn Þorsteins Einarssonar,
formanns HK, telja HK-ingar að
jöfnunarmark ÍR-inga, sem skorað
var 20 sekúndum fyrir leikslok,
hafi verið ólöglegt þar sem tíma-
vörður hafi flautað að beiðni eftir-
htsdómarans rétt áður en Matthías
Matthíasson fékk boltann á línunni
og skoraði.
„Það er meginregla í handbolta
eins og öðrum íþróttum að þegar
flautað er skal leikurinn stöðvaöur.
Ef sú regla er brotin er þetta
skrípaleikur en ekki handknatt-
leikur. Mark ÍR-inga var skorað
utan leiktíma og við sættum okkur
ekki við að tapa stigi vegna mistaka
eftirhtsdómara sem taldi að um
ranga skiptingu ÍR-inga hefði verið
að ræða. Leikmenn HK hættu að
sjálfsögðu þegar flautan gah og
horfðu á Matthías skora. Dómar-
amir áttu auðvitað að dæma mark-
ið af og láta ÍR-inga hefja leikinn
aftur," sagði Þorsteinn.
Iþróttir______________
Þingeyingar
ósigrandi
Þingeyingar sigruðu 14. árið í
röð í sveitaglímunni sem háð var
að Laugum í Þingeyjarsýslu um
helgina. KR-ingar ientu í öðru
sæti og HSK hafnaði í þriðja sæti.
-JKS
Caniggiaí
vandræðum
Fyrir helgina var frá þvi skýrt
á Ítalíu að fundist hefði kókaín i
þvagsýni Claudio Caniggia hjá 1.
deildar hðinu Roma. Þvagsýni
var tekið hjá Caniggia eftir leik
gegn Napoli 21. mars. Caniggia
segist ekki hafa tekið nein ólögleg
lyfum ævina. Hann mun gangast
undir annaö próf í dag.
-JKS
HSÍfærgóðan
styrkfráíSÍ
Framkvæmdastjóm ÍSÍ sam-
þykkti á fundi sínum fyrir helg-
ina að styrkja nokkra aðila að til-
lögu Afreksmannasjóðs ÍSÍ.
Handknattleikssamband íslands
fékk tveggja milljóna króna styrk
vegna þátttöku A-landshðs karla
á HM í Sviþjóð. Eftirtaldir ein-
stakhngar fengu 80 þúsund: Ein-
ar Vhþjálmsson, Vésteinn Haf-
steinsson, Siguröur Einarsson og
Bjami Friðriksson.
Þau Pétur Guðmundsson,
Martha Emstdóttir, Kristinn
Bjömsson, Daniel Jakobsson og
Freyr Gauti Sigmundsson fengu
öll 40 þúsund króna styrk.
-JKS
Besti tíminn
í hálf maraþoni
Moses Tanui frá Keniu náði
besta tíma ársins í hálfmaraþoni
á móti í Mílanó á laugardaginn.
Keníumaðurinn hljóp vegalengd-
ina á 59.47 mínútum og var þetta
f fyrsta skipti sem hann hleypur
þessa vegalengd undir einni
klukkustund.
-JKS
Moraleslangt
frásínubesta
Bandaríska meistaramótinu í
sundi var fr amhaldið um helgina
en keppt var í langrí braut. Ágæt-
ur árangur náðist í nokkram
greinum en athygli vakti aö
ólympíutneistarinn Pablo Moral-
es synti nokkuð undir getu, Jeff
Rouse sigraði í 100 m baksundi
karla á 54,87 sek. Sethvan Neerd-
en sigraði í 100 m bringusundi
karla á 1:02,46 mín. Brian Alder-
man vann 100 m flugsund karla
á 54,11 sek. Summer Sanders sigr-
aði í 100 m flugsundi á 59,83 sek.
-JKS
Valdimartil
Valsmanna
Valdimar Pálsson, fyrrum leik-
maður með Þór á Ákureyrí, er
genginn th hös við bikarmeistara
Vals í knattspyrnu. Valdimar er
25 ára gamall vamarmaður og
hefur leikið 35 leiki með Þórsur-
um í 1. dehd, en tvö síðustu árin
hefur hann spilað með Dalvíking-
um í 3. dehd.
-VS
Keilufólká
Evrópumóti
Valgeir Guðbjartsson hafnaði í
13. sæti í karlaflokki og Ágústa
Þorsteinsdóttir í 15. sæti í
kvennaflokki á Evrópubikarmóti
landsmeistara i keilu sem fram
fór í ísrael um helgina. Keppend-
urvoru22íhvorumflokki. -VS
_________íþróttir
Snjöllbanda-
körfu á íslandi
Skrifstofu KKÍ hefur borist bréf
frá bandarískri stúlku, að nafni
Kathy Halligan, þar sem hún lýs-
ir yfír áhuga sínura að leika
körfuknattleik á íslandi. Kathy
hefur leikið undanfarin ár með
skólahði Craigton háskóla í Oma-
ha þar sem hún hefúr veriö með
15-24 stig að meðaltali í leik.
Hún mun einnig vera á meðal
25 bestu Ieikmanna Bandaríkj-
anna og ein allra besta skytta
landsins. Bréfínu fylgja einnig
meömæh og yfirht yfir háskóia-
ferh hennar. -JKS
ÍR-sngarfá
góðan liðsstyrk
ífótboltanum
2. dehdar hð ÍR hefur að undan-
förnu fengið góðan hðsstyrk leik-
manna. Björn Axelsson gekk um
helgjna í raðir Breiðholtshðsins
en hann hefur undanfarin ár leik-
ið með Selfyssingum. Að auki
hafa fjórír aðrir leikmenn gengiö
frá félagaskiptum yfir í ÍR. Þeir
Guðlaugur Baldursson úr FH,
Heiðar Ómarsson úr Leikni, Bogi
Pétursson frá Haukum og Þor-
steinn Magnússon frá sama fé-
lagi.
Umhelginafórmeistaraflokkur
ÍR í æfinga- og keppnisferð til
Hannover í Þýskalandi og dvelur
þar yfir páskana.
•JKS
Landsleikirvið
UtháaogBreta
íkörfubolta
Nú er oröið ákveðiö aö landshð
Litháa og Englendinga i körfu-
knattleik koma hingað th lands í
byrjun maí. íslenska landshöið
mætir Englendingum i þremur
leikjum dagana 7.-9. maí.
Tveimur dögum siðar koma Lit-
háar og leika hér þrjá landsleiki
dagana 11.-13. mai íslendingar fá
þarna verðug verkefni því Lithá-
ar og Englendingar hafa sterkum
liðum á að skipa.
-JKS
Ársþing KKÍ
haldiðiKeflavík
Ársþing Körfuknattleikssam-
bands íslands verður haldið í
Keflavik helgina 7.-9. mai
Efiaust munu margar thlögur
verða lagðar fyrir þingið.
Vitaö er að ein thlaga liggur
þegar á borðinu þess efnis aö
heimila öllum öðrum en sjö
leikjahæstu leikmönnum meist-
araflokks karia að leika með 1.
flokki, í stað 10 leikjahæstu áður.
-JKS
PolarCupungl-
inga í Danmörku
Unghngalandshð phta, sem
fæddir er 1975, heldur th Dan-
merkur tíl þátttöku í opna Norð-
urlandamótinu 1 körfuknattleik.
Mótiö stendur yfir dagana 22.-25.
apríl og ieika íslensku strákamir
i riöh með Lettum, B-hði Dana
og Svíum. Friörik Rúnarsson,
þjálfari hðsins, hefur vahð eítir-
talda leikmenn th fararinnar.
Brynjar Ólafsson, West High
loha, Sverrir Sverrisson, ÍBK,
Guðjón Gylfason, ÍBK, Öm Am-
arsson, ÍBK, Ragnar Steinsen,
UMFS, Eiöur Valdemarsson, KR,
Amar Sigurðsson, KR, Ásgeir
Freyr Guðraundsson, USA, Sig-
urvin Páisson, ÍBK, Kári Rúnars-
son, IBK, Gunnar Zoéga, Val, og
Hans Bjamason, ÍR.
-JKS
Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL
Enska knattspyman:
United hefur
ekki sagt sitt
síðasta orð
- sigraði Norwich örugglega, 1-3
Manchester United hefur greini-
lega ekki sagt sitt síðasta orð í barátt-
unni um Englandsmeistaratithinn í
knattspymu. í gærkvöldi lék liöið
mjög erfiöan leik á útivelli gegn
Norwich og United sigraði örugglega,
1-3. Þetta var leikur upp á líf og
dauða fyrir United og deginum ljós-
ara að leikmenn Aston Viha verða
að hafa mikið fyrir því að krækja í
meistaratithinn.
Liö United lék frábærlega í leikn-
um, sérstaklega í fyrri hálfleik. Þá
skoraði liðið þrjú mörk á aðeins átta
mínútum. Fyrst skoraði Ryan Giggs
á 13. mínútu, þá Andrei Kanchelskis
á 20. mínútu og loks Frakkinn Eric
Cantona á 21. mínútu. Öll mörk Un-
ited komu eftir að mistök höfðu átt
sér stað í vörn Norwich sem beitti
stífri rangstöðutaktik. Öll mörk Un-
ited voru hins vegar skoruð á lögleg-
an hátt.
Meö þessum sigri er Manchester
United komið í annað sæti, aðeins
stigi á eftir Aston Viha sem er í efsta
sæti úrvalsdehdarinnar. Bryan Rob-
son kom inn á í leiknum í gærkvöldi
og munaði minnstu að hann bætti
{jórða marki United við. Robson fékk
síðan að líta gula spjaldiö á lokamín-
útunum. Mark Norwich skoraði
Mark Robins á 61. mínútu en hann
var seldur frá United th Norwich
fyrir yfirstandandi tímabh og í gær-
kvöldi skoraði hann 16. mark sitt
fyrir Norwich í vetur.
-SK
DV-mynd Brynjar Gauti
Patrekur Jóhannesson.
Handbolti:
„Patti“
kærður
Patrekur Jóhannes-
son, landsliðsmaður
í handknattleik úr
Stjömunni, hefur
verið kærður th aganefndar
HSÍ af dómuram hins umtalaða
leiks KA og Stjömunnar sem
fram fór á Akureyri í fyrra-
kvöld.
Gísh H. Jóhannsson, annar
dómarinn, sagði við DV í gær
að Patrekur hefði rifið í treyju
hins dómarans, Hafsteins Ingi-
bergssonar, með þeim afleið-
ingum að tölur hefðu rifnað af |
henni.
„Patrekur náði að komast
fram hjá gæslumönnum KA og
rífa í Hafstein við tímavarðar-
borðið. Sem betur fór fuku töl-
umar úr því það herti að hálsi
Hafsteins," sagði Gish.
Patrekur gæti átt refsingu yfir
höfði sér en hver sem hún verð-
ur getur hann leikið með
Stjömunni gegn Haukum ann-
að kvöld.
-VS
Ragnheiður Stephensen skorar sigurmark Stjörnunnar gegn Víkingi i gærkvöldi í fyrsta úrslitaleik liðanna um íslandsmeistaratitilinn.
Pressan er nú á þeim
- sagði Ragnheiður Stephensen sem skoraði sigurmark Stjömunnar gegn Víkingi
„Það er draumurinn að skora svona
mark. Ég var viss um að þetta yrði sig-
urmarkið og trúði ekki öðra en vömin
myndi bjarga málunum í lokin. Annars
var þetta bara eitt af mörgum mörkum
í leiknum. Þaö var gott aö vinna fyrsta
leikinn á útivehi, núna er pressan á
þeim. Við komumst einnig yfir í leikjum
okkar gegn Víkingi í fyrra og það dugði
ekki th. Við ætlum að komast í 2-0 á
miðvikudaginn," sagði Ragnheiður
Stephensen en hún skoraöi sigurmark
Stjörnunnar gegn Víkingi í fyrsta úr-
slitaleik liðanna um íslandsmeistaratit-
ilinn í handknattleik kvenna í Víkinni
í gærkvöldi. Stjaman sigraði 15-16, og
skoraði Ragnheiður sigurmarkið þegar
20 sek. voru th leiksloka.
Leikurinn einkenndist af mikihi bar-
áttu beggja hða og hörðum vamarleik.
Markvarsla báðum megin var mjög góð
og þær Nina Getsko, Stjömunni og
Mara Samardzija, Víkingi, vörðu mörg
skot úr dauðafærum.
Staöan í leikhléi var 8-6, Víkingi í vh.
í upphafi síðari hálfleiks náði Víkingur
3ja marka forskoti, 9-6 og 10-7, en
Stjarnan jafnaði og komst yfir 11-12.
Eftir það var leikurinn í jámum eins
og úrshtaleikir eiga að vera. Eftir loka-
mark Ragnheiðar reyndu Víkingsstúlk-
ur ákaft að jafna en vöm Stjömunnar
kom í veg fyrir það.
„Þessi leikur var eins og viö var að
búast, við vomm betra liöið allan leik-
inn, en gleymdum okkur aðeins undir
lokin. Við misnotuðum of mikið af
dauðafærum og það er dýrt 1 svona leik.
Við fórum erfiðari leiðina í gegnum
þessa úrslitakeppni en erum ákveðin í
að snúa dæminu við í næsta leik,“ sagði
Theódór Guöfinnsson, þjálfari Víkings.
Vamarleikurinn var góður hjá báðum
hðum. Hjá Víkingi átti Halla María
Helgadóttir ghmrandi leik í fyrri hálf-
leik og gerði þá 6 af 8 mörkum Víkings.
í þeim síðari var hún tekin úr umferð.
Þá losnaði um Ingu Lám Þórisdóttur
sem ekki skoraði mark í fyrri hálfleik.
Mara í markinu var best í hði Víkings
og varði 13 skot. Nina Getsko átti stór-
leik í marki Stjömunnar og varöi 16
skot, þar af 3 vítaköst og var besti leik-
maður vaharins. Una Steinsdóttir lék
einnig vel. í vöminni vora þær Guðný
Gunnsteinsdóttir og Stefanía Guðjóns-
dóttir mjög sterkar.
Mörk Víkings: Halla María 7/3, Inga
Lára 3/1, Matthildur 2, Valdís 1, Svava
1, Elísabet 1.
Mörk Stjömunnar: Una 7/3, Ragnheið-
ur 2, Sigrún 2, Guðný 2, Ingibjörg 1, Stef-
anía 1, Þórunn 1.
Dómarar: Láms H. Lámsson og Jó-
hannes Felixson, slakir.
Áhorfendur: Um 250.
Maður leiksins: Nina Getsko, Stjöm-
unni. -BL
KR nær 1. deildinni
KR-ingar færðust nær 1. dehdinni í handknattleik í gærkvöldi þegar þeir unnu
ÍH, 30-20, í úrslitakeppni 2. dehdarinnar í Laugardalshöllinni. Þeir þurfa nú aðeins
að vinna botnhð HKN annað kvöld til að guhtryggja 1. dehdar sætið.
Afturelding vann Gróttu, 17-29, á Seltjamamesi í fyrrakvöld og tryggöi sér sigur
í úrshtakeppninni, en sætið í 1. deild var þegar í höfn hjá Mosfellingum. Breiðabhk
vann nauman sigur á HKN í Keflavík, 25-26. -VS
Guðrún Amardóttir, Ármanni, náöi um síðustu helgi n\jög góðum tíma
í 100 metra grindahlaupi og bætti fyrri árangur sinn verulega.
Guðrún keppti á háskólamóti í Atlanta í Bandaríkjunum og hljóp á
13,75 sekúndum. Besti tími Guðrúnar áður var 14,11 sekúndur þannig að
bætíngin er umtalsverð. Tínú Guðrúnar er annar besti tími íslenskrar
konu frá upphafi. Aðeins íslandsmet Helgu Halldórsdóttur frá 1987 er
betra, 13,64 sekúndur. -SK
Stjömumenn leggja í dag inn kæm vegna leiksins umdeilda gegn KA á Akureyri:
Starfsmaður KA fer með rangt mál
„Við höfum greinhega sönnun fyrir
því á myndbandi aö þegar leikurinn
hófst vora 5,4 sekúndur eftir, og frá
því flautað var og þar th boltinn lá í
markinu Uðu 4,1 sekúnda," sagði
Gunnar Einarsson, þjálfari 1. dehdar-
Uðs Stjörnunnar í handknattleik, í
samtali viö DV í gær.
Stjömumenn leggja í dag inn kæra
vegna leiksins umdehda við KA á Ak-
ureyri á sunnudagskvöldið, en eins og
fram hefur komið vann KA leikinn,
25-24, eftir að mark Stjörnunnar í lok-
in var ekki dæmt ght.
„Þaö er augljóst af myndbandinu að
tímavörðurinn, sem er starfsmaður
KA á leiknum, fer með rangt mál þeg-
ar hann segist hafa flautað leikinn af
áður en boltinn fór yfir línuna. Það
sem vakir fyrir okkur er að sannleik-
urinn verði leiddur í ljós. Svona atvik
á ekki að geta gerst í háþróaðri íþrótt
eins og handknattleik, og það segir sitt
um umgjörð leiksins þegar svona er
staðið að málum,“ sagði Gunnar.
Dómararnir ekki
á okkar vegum
Gunnar vhdi taka fram að frétt DV í
gær um að Stjarnan hefði skhið dóm-
ara leiksins eftir á Akureyri væri ekki
rétt. „Dómararnir voru ekki á okkar
vegum, þeir komu með sama áætlun-
arílugi og við og fengu að fljóta með
okkur frá tlugvehinum þegar við kom-
um norður. Eftir leikinn flýttum við
okkur út á flugvöh th að ná vélinni
suður en við urðum ekkert varir við
dómarana og höfðum þó mikinn áhuga
á að ræða við þá,“ sagði Gunnar.
Gátu sagt að við
værum rétt ókomnir
„Við vorum seinir á flugvöllinn þar
sem þaö tók sinn tíma að ljúka við
skýrsluna og komast af stað. Þegar við
komum þangað, um fimm mínútum á
eftir Stjömumönnum, var búið aö loka
flugvélinni og ekki hægt að hleypa
okkur með. Stjömumenn hefðu getað
látið vita að við værum rétt ókomnir
og þá hefði verið hinkrað eftir okk-
ur,“ sagði Gísh H. Jóhannsson, annar
dómara leiksins, við DV í gær, en hann
og Hafsteinn Ingibergsson, hinn dóm-
arinn, þurftu að gista á Akureyri um
nóttina.
Hafsteinn með á hreinu
að markið var ekki gilt
Um markið umdehda í lokin sagði
Gísh: „Ég var innidómari, heyrði ekki
í flautunni og gaf því merki um að
mark hefði verið skorað. Hafsteinn var
útidómari, hann var með það á hreinu
frá byrjun að tíminn hefði verið höinn
þegar boltinn fór yfir línuna. Þaö var
erfitt að ræða saman strax eftir leikinn
vegna látanna og því tók það þennan
tíma að fá markið á hreint.“
-VS
KRbikarmeist-
araríkeilu
Afturgöngumar urðu bikar-
meistarar kvenna 1 kehu um
helgína er þær sigruðu fyrrver-
andi bikarmeistara, HA!, 2123-
1992 í úrslitaleik. Bæði hðin eru
frá Kehufélagi Reykjavíkur. KR
varð bikarmeistari karla, vann
Kehulandssveitina frá Kehufé-
lagi Garðabæjar í úrslitaleik,
2144-2131.
-VS
Yfirburðirhjá
TBRídeilda-
keppninni
TBR hafði algera yfir-
burði í dehdakeppn-
inni í badminton sem
fram fór um helgina.
TBR sendi sex liö th keppni, fíög-
ur þeirra urðu í fíórum efstu
sætum l. deildar, E-hð TBR vann
2. deildina og F-hð TBR vann 3.
deildina. Það var C-liö TBR sem
varð dehdameistari, D-höið varð
í ööru sætí, og A- og B-liðin urðu
í 3.-4. sæti. Þessi sex TBR-lið töp-
uöu ekki leik gegn ööru félagi á
mótinu en alls kepptu 17 hð í
þremur dehdum. A-liö KR féll úr
1. deild, E-liö TBR kemur í stað-
inn, og TBR á því fimm hð af sex
í 1. dehdinni næsta vetur.
-VS
Óvænttaphjá
Mexíkönum
E1 Salvador vann
óvæntan sigur á Mex-
íkó, 2-1, í undankeppni
HM í knattspymu í
fVrrinótt en leikið var í San
Salvador, höfuðborg E1 Salvador.
Hondúras og Kanada gerðu jafn-
tefli, 2-2, í Hondúras. Þessar fiór-
ar þjóðir leika th úrslita um sæti
í lokakeppninni í Bandaríkjunum
á næsta ári. Efsta hðið kemst
þangað en hð númer tvö keppir
við lið úr Eyjaálfu og Suður-
Ameríku um eitt sæti.
-VS
Hrannarmenn
Reykjavíkunneistaramótið í
boögöngu fór fram í Skálafehi um
helgina. í karlaflokki sigraöi A-
sveit Skíðadehdar Hrannar en
sveitina skipuðu: Bjöm Trausta-
son, Bjami Þór Traustason og
Valur Valdimarsson. í kvenna-
flokki sigraði A-sveit Skíðadehd-
ar Hrannar einnig en í sveitinni
vom: Helena Óladóttir, Heiðrún
Guðmundsdóttir og Margrét
Jónsdóttir.
-GH
íhálf marþoni
Fimm íslendingar tóku
þátt í hálfmaraþon-
hlaupi sem fram fór í
Haag í Hollandi um
helgina. Jóhann Ingibergsson,
FH, hljóp á 1:11,00 klst., Már Her-
mannsson, HSK, á 1:12, 46 klst,
Sveinn Ernstsson, ÍR, á 1:13,44
klst„ Ingvar Garðarsson, HSK, á
1:25,20 klst. en Sigmar Gunnars-
son, UMSB, varð að hætta hlaup-
inu vegna meiðsla. Sigurvegari
varð heimsmeistarinn í þessari
grein, Benson Masya frá Keníu
sem hljóp á 1:00,24 klst. Englend-
ingurinn Toby Tanser, sem dval-
íð hefur hér á landi í tvö ár, náði
góðum árangri í þessu hlaupi og
kom í mark á tímanum 1:06,26
klst.
-GH