Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1993, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1993, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 1993 15 Nauðsyn nýrra rjúpnarannsókna Rjúpan hefur lítíð verið til um- ræðu síðustu vikur. Árlegur veiði- tími er liðinn, en honum lauk í desember. Margur hafði síðan ijúpu á jólaborðinu, en eftir það virðist ijúpan ekki vera á dagskrá fyrr en næsta haust. Þetta er al- rangt og þarf að breyta. Við ættum að fylgjast með ijúpunni allt árið. Þekkingu á ijúpunni má auka með rannsóknum og eflaust má stækka ijúpnastofninn með þvi að koma upp friðlöndum fyrir ijúp- una þar sem hún hefði heppilegan gróður. Þetta á bæði við hreiður- gerð og svo æti en ijúpan hefur ákveðnar skoðanir á því hvað hún vill leggja sér til munns. Merkingar Einfaldasta ráðið til að auka KjáUarinn Lúðvík Gizurarson hæstaréttarlögmaður „Það væri mörgum heppileg sumar- vinna að girða af friðlönd og rækta þau fyrir rjúpuna ef menn hafa ekkert betra handa atvinnulausum að gera.“ þekkingu á rjúpunni er að merkja fjölda fugla árlega. Þetta var gert áöur um tíma og við vitum meira en ella. Rjúpan fer um landið, þótt segja megi að heimkynni hennar séu öðru fremur fyrir norðan og austan. Hún er samt um allt land þar sem hún finnur réttan gróður og hæfilegan frið. Besta dæmið er Heiðmörk fyrir ofan Reykjavík. Þar fjölgaði ijúp- unni mjög um leið og landið var girt af. Rjúpan verpti í skjóli runna og tijáa. Einnig hafði hún þama næga fæðu. Venjulega er ijúpan og aðrir fugl- ar merktir með hring um fótinn. í dag er hægt að setja htið senditæki á fugla og dýr. Einnig var nýlega skýrt frá nýrri hugmynd að merkj- um sem reyna á að þróa hér á landi. Þá skráir merkið þætti í umhverfi og síðan er hægt að lesa úr þessu þegar merkið næst. Allt þetta eigum við að nota okkur. Rannsaka rjúpuna og þróa um leið nýja tækni. Slá tvær flugur í einu höggi, eins og sagt er. Friðlönd Ef menn viija stækka ijúpna- stofninn ætti í alvöru aö huga að Vilji menn rækta rjupnastofninn ætti i alvöru að huga aö sérstökum frið- löndum fyrir rjúpuna, segir greinarhöfundur m.a. þvi að stofna sérstök friðlönd fyrir ijúpuna. Víða eru stór svæði sem eru ijúpunni heppileg ef gróður væri aukinn þar með friðun og ræktun. Til þess þarf eitthvert fé. Settar hafa verið síðustu árin tugir eða hundruð milljóna króna í kaup á veiðibyssum, skotfærum og heppilegum bílum til að gera rjúpnaveiðar mögulegar. Síðan aka menn af stað á hveiju hausti til rjúpnaveiöa en þá vantar oft ijúp- una. Það er í dag útbreidd og almenn skoðun að með hverju árinu séu veiðimenn fleiri og fleiri en ijúp- umar færri og færri. Talað er um að auka atvinnu þó í smáu sé. Það væri mörgum heppileg sumar- vinna að girða af friðlönd og rækta þau fyrir ijúpuna ef menn hafa ekkert betra handa atvinnulausum að gera. Þá yrði meira og meira af ijúpu fyrir aUa nýju skotveiði- mennina. Rannsóknum á fálka er nýlokið. Það væri æskilegt að halda þeim áfram með því að hefja nýtt átak í ijúpnarannsóknum. Margt er hægt að gera með 4-5 millj. króna árlega og er það nánast ekkert fé, þegar htið er á allan kostnaöinn við ijúpnaveiðamar, bæði beinan og óbeinan. Það er ekki nóg fyrir skot- veiðimenn að eignast fallega hagla- byssu ef engin er ijúpan. Lúðvík Gizurarson Óvönduð blaðamennska Ekki fer á milU mála að fjölmiðl- ar hafa á seinni árum oft ráðið meir um atburðarás en margir vUja vera láta. Fyrir nokkrum árum reið svoköUuð rannsóknarblaða- mennska hér húsum. Og var þar oft gengið lengra í vafasömum fréttaflutningi en góðu hófi gegnir. Eitt sárasta dæmiö um þetta er Hafskipsmálið. Enn í dag er það mörgum ráðgáta hvað lá á bak við öU þau skrif og Utt rökstuddar ályktanir er leiddu tU gjaldþrots Hafskips. Var engu líkara en þar væm leigupennar á ferðinni, sem svifust einskis til að sverta rekstur Hafskips, sem um þessar mundir átti í erfiðleikum vegna verkefna sem höfðu bragð- ist. Og Hafskip var gert gjaldþrota þó að það sannaðist löngu seinna að fyrirtækið hefði átt fyrir skuld- um ef eignir hefðu verið seldar á fijálsum markaði. En það lá svo mikið á aö finna glæpinn í rekstrinum að það var ekki hikað við að eyða miUjónum, Kjallariim Andrés Guðnason stórkaupmaður jafnvel tugum milljóna króna af almannafé til að leita að þeim glæp, sem aldrei fannst. Menn vom sviptir frelsi sínu, mannorði sínu, atvinnu og eignum. Þá var ófsvífin blaðamennska höfð í hávegum. Málstaðurinn átti að helga meðahð. Síðan hafa hundmð fyrirtækja far- ið á hausinn og ekki þótt tiltöku- mál. Frá Hafskipi í laxaveislu Sá blaðamaður sem mest velti sér upp úr erfiðleikum Hafskips á sín- um tíma gaf út bók fyrir síöustu jól sem hann nefndi Laxaveislan mikla. TUgangur þessarar bókar er aðeins einn: Að koma höggi á þá menn sem með hugrekki og dugnaði reyndu að byggja upp nýj- ar atvinnugreinar. Og auka þannig fjölbreytni í útflutningi okkar. En hvað fór úrskeiðis? Það kemur bókarhöfundi ekkert við enda er hann einungis að leita að neikvæðu hUðunum, ekki þeim jákvæöu. Það sem miður fór var af margvíslegum toga. í fyrsta lagi skorti þekkingu. í öðm lagi of mikU fjárfesting á of skömmum tíma. í þriðja lagi skort- ur á markaðskönnun og offramboö á eldislaxi. í fjórða lagi ófyrirsjáan- leg óhöpp. Þrátt fyrir aUt þetta er enginn vafi á því að þegar menn ranka við sér aftur eftir timburmenn laxa- veislunnar munu fagleg vinnu- brögð í laxeldi og annarra nytja- fiska hefjast á ný í miklu stærri stíl en „dýrasta tilraun íslenskrar atvinnusögu“ greinir frá. Þessi upphrópun blaðamannsins er auð- vitað blekking og ber keim af leigu- (pennaskrifum svipuðum þeim er tíðkuðust um Hafskip á sínum tíma. Og það er manni ráðgáta hvaða tilgangi það þjónar að gera fiskeldi að samnefnara fyrir vafa- samar ákvarðanir í athafnalífi þessarar þjóðar. Blindan er aigjör Það er svo víða pottur brotinn í atvinnusögu okkar. Hvað um aUa þá vitiausu fjárfestingu sem átt hefur sér stað í sjávarútvegi? Á sama tíma og fiskimiðin em að verða þurrausin er fiskiskipaflot- inn margfaldaður, svo að hann hef- ur aldrei verið stærri. Og því fer svo flarri að þetta útgerðaræði eigi nokkuð skylt við hagsýni. BUndan er algjör. Þeir sem halda því fram að sjór- inn sé ekki ótæmandi auðlind em sagðir þröngsýnir afturhaldssegg- ir. Hvaðan halda menn að allir þeir peningar hafi komið sem ausið hef- ur verið í vitlausar fjárfestingar í sjávarútvegi? Þetta er auðvitað al- mannafé, alveg eins og það var al- mannafé sem fór í fiskeldi. En það er mjög hættulegt þegar óprúttnir blaðamenn, í skjóU mik- Ular fréttar, eins og þeir segja, leggja einstök fyrirtæki í einelti. Það er oftast hægara að rífa niður en að byggja upp. Og nú um stund- ir þurfum við sannarlega á því að halda að reyna að byggja upp. Andrés Guðnason „Það er manni ráðgáta hvaða tilgangi það þjónar að gera fiskeldi að samnefn- ara fyrir vafasamar ákvarðanir í at- hafnalífi þessarar þjóðar.“ „Fyrirvara- laus brott- vikning Hrafns Gunn- laugssonar 29. mars sl. fyrir ummæU i sjónvarps- þætti var al- gerlega órétt- ------—......... mæt enda Q***ufar*ondósenL hefur enginn mælt henni bót opinberlega svo að ég viti. Hrafti var rekinn fyrir að gagnrýha starfsmenn og yfir- stjórn Sjónvarpsins en öU var sú gagnrýni mUd og hvergi ráöist á einstakiinga. Ég sá ekki betur en Hrafhi gengi til einlæg umhyggja fyrir stofhuninni skv. lögmálinu: Sá er vinur sem til vamms segir. Hrafn vUdi bæta þjónustu Sjón- varpsins við áhorfendur, útvega meira fyrir minna. Brottvikmngin var aðfór að tjáningarfrelsinu í landinu og beint brot á útvarpsiögum. Þar segir að Ríkisútvarpið skuh halda í heiðri frelsi til orös og skoðana. Þetta mál snerist ekki um per- sónu Hrafns heldur um almennar leUcreglur í landinu. En óneitan- lega var mjög ósmekklegt þegar einhver hópur í Sjónvarpinu efndi tii sérstaks fagnaöar kvöld- ið sem Hrafn var rekinn þar sem starfsmenn liældust um, jafnvel nokkrir yfirmenn. Ég Ut svo á að með ráðningu Hrafhs í stööu framkvæmda- stjóra Sjónvarpsins hafi Ölafur G. Einarsson rétt hlut hans eftir aðhaim haföi verið beittur rang- læti. Ráðherrann hefurkomiðvel og skörulega fram í þessu máii og tryggt Sjónvarpinu krafta hug- myndariks atorkumanns. Hitt er annað mál aö aUt vekur þetta okkur til umhugsunar um hvort það geti verið eðlUegt að rUtið reki sjónvarpsstöðvar. Er ekki heppUegra að einkavæða Sjónvarpið?" „Ráðning Hrafns Gunn- laugssonar sem fram- kvæmda- stjóra Sjón- varps er mjög alvarlegt mál. ÓlafurG.Ein- arsson viður- ,, . kennir sjálfur Þingfemaður. að þetta sé flokkspólitísk ráðning. Áður en til hennar kom ráðfærði hann sig viö Davíð Oddsson og Þorstein Pálsson. VUji menn nota orðin spiUing og siðleysi um islenska póUtík er spurning hvort betra dæmi finnist en þessi ráðning. Hrafhi var sagt upp störfum Ujá Sjónvarpinu fyrir aöeins fáeinum dögum. Áður haíði hann fengiö áminningu frá Markúsi Erni Ant- onssyni útvarpsstjóra. Það vita allir aö henn hefutátt í stórkost- legum útistöðum við starfsmenn Sjónvarpsins. Einnig liggur íyrir að hann fór alltaf fram úr fjár- hagsáætlunum þegar hann var dagskrárstjóri en komst upp með þaö vegna þess að hann á sterka að í þjóðfélaginu. Ég er sannfæröur um það að Hrafn getur fundið hæfileikum sínum vettvang annars staöar og hannáekkiað vera að troöaþess- ari ríkisstofnun um tær. Auk þess er hann sjálfur kvikmyndafram- leiðandi. Sem hagsmunaaðUi er hann óhæfur í starfið. Nýlegt dæmi er 3,9 miHjóna greiðsia til Hrafns fyrir sýnjngarréttinn á myndimú Hin heigu vé sem enn er þó á framleiðslustigi.“ -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.