Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1993, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1993, Síða 26
26 ÞRIÐ JUDAGUR 6. APRÍL1993 Afmæli___________________iD^ Sophus A. Guðmundsson Sophus Auðun Guðmundsson, fyrrv. skrifstofustjóri, Sléttuvegi 13, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferill Sophus fæddist á Auðunarstöðum í Víðidal, ólst þar upp og vann þar öll almenn sveitastörf. Hann nam við Reykjaskóla í Hrútafirði og starfaöi síðar viö verslunarstörf á Hvammstanga. Sophus fluttist til Reykjavíkur ár- ið 1942 og réð sig þar til Rafmagns hf. við bókhalds- og gjaldkerastörf. Árið 1963 hóf hann svo störf sem bókhaldari hjá Almerma bókafélag- inu og starfaði þar allt til ársins 1988, lengst af sem skrifstofustjóri. Fjölskylda Sophus kvæntist 15.5.1943 Ás- laugu Maríu Friðriksdóttur, f. 13.7. 1921, fyrrv. skólastjóra. Hún er dótt- ir Friðriks Klemenzsonar póstfull- trúa og Maríu Jónsdóttur kennara oghúsmóður. Börn Sophusar og Áslaugar eru: Friðrik Klemenz, f. 18.10.1943, fjár- málaráðherra, kvæntur Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur, f. 13.8. 1952, lektor í mannfræði, búsett í Reykjavík, og á hann fimm börn og tvo stjúpsyni; Guðmundur, f. 15.8. 1947, sýslumaður, kvæntur Mar- gréti Elínu Guðmundsdóttur, f. 15.6. 1949, kennara, búsett í Garðabæ og eiga þau þrjú börn; María, f. 25.4. 1950, kennari, gift Siguijóni Mýrdal, f. 12.11.1949, forstöðumanni fjar- skóla KHÍ, búsett í Reykjavík og eiga þau eitt barn; og Kristín Auður, f. 22.3.1952, hjúkrunarfræðingur, gift SigþóriSiguijónssyni, f. 12.7.1948, veitingamanni, búsett í Reykjavík og eiga þau tvö börn. Sophus átti sex systkini en á nú fimm systkini á lífi. Hann er næst- elstur systkinanna, en þau eru: Ingi- björg, f. 16.4.1914, húsmóðir, gift Óskari Hanssyni, f. 8.11.1909, raf- verktaka, búsett í Reykjavík og eiga þau tvo syni; Jóhannes, f. 13.2.1916, b. á Auðunarstöðum, kvæntur Ingi- björgu Ólafsdóttur, f. 5.8.1917, hús- móður, og eiga þau fjögur börn; Kristín, f. 20.7.1919, d. 29.9,1944, húsmóðir, var gift Sigurði Pétri Tryggvasyni, f. 6.2.1918, d. 14.6.1987, verslunarmanni, og eignuðust þau tvo syni; Erla, f. 28.4.1921, húsmóð- ir, gift Birni Lárussyni, f. 10.9.1918, b. á Auðunarstöðum, og eiga þau eitt bam; Gunnar, f. 10.9.1923, raf- verktaki, kvæntur Hallfríði Guð- mundsdóttur, f. 3.3.1925, húsmóður, búsett í Reykjavík og eiga þau þijú börn; og Hálfdán, f. 24.7.1927, við- skiptafræðingur, kvæntur Önnu Margréti Jafetsdóttur, f. 29.5.1932, kennara, búsett í Mosfellsbæ og eiga þausexbörn. Foreldrar Sophusar voru Guð- mundur Jóhannesson, f. 25.6.1884, d. 26.4.1966, b. á Auðunarstöðum í Víðidal, og Kristín Gunnarsdóttir, f. 25.8.1890, d. 11.8.1969, húsmóðir þar. Ætt Guðmundur var sonur Jóhannes- ar, b. á Auðunarstöðum, Guð- mundssonar og Ingibjargar Ey- steinsdóttur. Ingibjörg var systir Björns í Grímstungu sem var afi Bjöms alþm. á Löngumýri, langafi Páls alþm. á Höllustöðum og langafi Ástu, móður doktors Hannesar Hólmsteins. Móðir Jóhannesar var Dýrann Þórarinsdóttir, systir Þur- íðar, langömmu Halldórs E. Sig- urðssonar, fyrrv. ráðherra. Móðurforeldrar Sophusar voru Gunnar, b. Valdarási í Víðidal, Kristófersson og Kristín Guð- mundsdóttir, systir Pálínu, ömmu Bernharðs, blaðafulltrúa Þjóðkirkj- unnar, og Kristjáns, fyrrv. bæjar- stjóra í Kópavogi, Guðmundssona. Kristín eldri var dóttir Guðmund- ar, b. á Neðri-Fitjum, Guðmundson- ar og Kristínar Bjamadóttur, systur Ragnheiðar, ömmu Bríetar Bjarn- héðinsdóttur, móður Héðins Valdi- marssonar alþm. Móðir Guðmund- ar var Unnur Jónsdóttir en móðir Unnar var Sigurlaug Jóelsdóttir, systir Jóels, langafa Sigurðar, afa Sophus Auðun Guðmundsson. Salóme Þorkelsdóttur, forseta Al- þingis, og einnig langafi Gunnlaugs, föður Stefáns, fyrrv. bæjarstjóra í Hafnarfirði og alþm., fóður Finns Torfa, fyrrv. alþm., séra Gunnlaugs í Heydölum alþm. og Guðmundar Árna, bæjarstjóra í Hafnarfirði. Sophus og Áslaug dvelja erlendis um þessar mundir. Nauðungarsala Á nauðungarsölu, sem fram á að fara við Hraðfrystihús Þórkötlustaða i Grindavík föstudaginn 16. apríl 1993 kl. 16.00, hefur að kröfu Einars Gauts Steingrimssonar hdl. verið krafist sölu á eftirtöldu lausafé. GulurToyota rafmagnslyftari 2'A tonn, Baader 99 flökunarvél, Baader419 hausari og síldarflökunarvél VMK með hausara ásamt fínhreinsunartækjum fyrir loðnuhrogn. Sýslumaðurinn í Keflavík HVÍTUR STAFUR TÁKN BLINDRA UMFERÐ FATLAÐRA’ VIÐ EIGUM SAMLEIÐ ||UMFERÐAR SMÁAUGLÝSINGADEILD VERÐUR OPIN UM PÁSKANA SEM HÉR SEGIR: Þriðjudaginn 6. apríl kl. 9-22. Miðvikudaginn 7. apríl kl. 9-18. Mánudaginn 12. apríl, annan í páskum, kl. 18-22. Lokað skírdag, föstudaginn langa, laugar- daginn 10. apríl og páskadag. Athugið! Síðasta blað fyrir páska kemur út miðvikudatjinn 7. apríl. Fyrsta blað eftir páska kemur út þriðjudaginn 13. apríl. SMÁAUGLÝSINGADEILD, ÞVERHOLT111 -SÍMI91 -632700 Valtýr Guðmundsson Valtýr Guðmundsson, Alftamýri 58, Reykjavík, er áttatíu og fimm ára ídag. Starfsferill Valtýr fæddist í Ólafsvík en flutt- ist á öðm ári með föður sínum og stjúpmóður til Reykjavíkur. Hann ólst því upp í Reykjavík en var þó í sveitásumrin. Valtýr var töluvert innan við fermingu þegar hann starfaði á vor- in á stakkstæðum viö saltfiskverk- un en eftir sextán ára aldur var hann til sjós á vetmm og í kaupa- vinnu á sumrin. Hann byijaði á árabátum frá Grindavík og síðan var hann á trillu frá sama stað. Þá var hann á línu- veiðara frá Reykjavík og einnig vertíðir á Akranesi. Sem kaupamað- ur var Valtýr fjögur sumur á Böð- móðsstöðum í Laugardal og einnig áLaugarvatni. Valtýr hóf búskap að Miðdal í Laugardal árið 1934 ásamt mági sín- um, Magnúsi Böðvarssyni, en flutti síðan að Miðdalskoti í sömu sveit 1938, þar sem hann bjó til 1962. Þá fluttist Valtýr til Reykjavíkur þar sem hann starfaði hjá Rafmagns- veitum ríkisins og síðan hjá Orku- stofnun, en Valtýr hætti störfum árið 1987. Fjölskylda Valtýr var kvæntur Sigríði Böðv- arsdóttur, f. 29.8.1912 d. 19.5.1989, ljósmóður. Hún var dóttir Böðvars Magnússonar b. og hreppstjóra á Laugarvatni og konu hans, Ingunn- arEyjólfsdóttur. Böm Valtýs og Sigríðar eru: Ing- unn, íþróttakennari við Kvenna- skólann, gift Þóri Ólafssyni prófess- or við KHI; Guðmundur Rafnar, skólastjóri Bamaskólans á Laugar- vatni, kvæntur Ásdísi Einarsdóttur handavinnukennara; Böðvar, raf- virkjameistari í Reykjavík, kvæntur Hólmfríði Guðjónsdóttur skrifstofu- stúlku; og Gunnár, læknir í Reykja- vík, kvæntur Sólveigu Þorsteins- dóttur læknabókasafnsfræðingi. Valtýr á nú þrettán bamaböm og fimm langafabörn. Hálfsystkin Valtýs, samfeðra, era: Jóhanna, starfsmaður Sundhallar- Valtýr Guðmundsson. innar í Reykjavík, nú látin; og Matt- hías, fyrrv. póstmeistari í Reykja- vík. Foreldrar Valtýs vom Guðmund- ur Kristmundsson sjómaður í Reykjavík og Elínborg Jónsdóttir húsmóðir, en hann ólst upp hjá föð- ur sínum og stjúpmóður, Guðríði Davíðsdóttur. Valtýr er að heiman á afmælisdag- inn. Karl Magnússon, Jöklagmnni9,Reykjavík. , Jón Antoníusson, Hrauni l.Djúpavogi, Hjalti Magnússon, Heiðarhrauni41, Grindavík. Guðmundur Vigfússon, Kvoslæk, FJjótshhðarhr. Ágústa Jónsdóttir, Langholtsvegi 18, Reykjavík. 60 ára Georg Ragnarsson, Mánabakka á Bergi, Keflavík. óskar Magnússon, Dalbraut 50, Bíldudal. Margrét Jónsdóttir, Utgarði 6, Egilsstöðum. Sigfús Kristján Pálsson, TunguseliS, Reykjavík. Eiginkona Sigf- úsarKristjáns er AllabertaAl- bertsdóttir hús- móöir.Þau verðaaðheim- anáafmæhs- daginn. Hrafnhildur Kjartansdóttir, Kirkjuvegi43, Vestmannaeyjum. Eiginmaður Hrafnhildarer Jóhann GrétarOdds- son.Húnogeig- inmaðurhenn- artakaámóti gestumíÞórs- heimilinu laug- ardaginn 10. apríl klukkan 19.30. Þorsteinn Magnússon, Svartagili, Norðurárdal. Sigrún I. Jónsdóttir, Gmndarlandi 21, Reykjavík. Auður Ingvarsdóttir, Dverghamri 41, Vestmannaeyjum. Gunnar Jósefsson, Barðavogi 22, Reykjavik. Edda Sveinbjörnsdóttir, Eyjabakka 11, Reykjavík. ; ; \ Þórdís Anna Kristjánsdóttir, Mávahlíö 21, Reykjavík. Jón Tryggvi Kristjánsson, SúIunesil5,Garðabæ. Ingibjörg Kristinsdóttir, Háukinn 3, Hafnarfirði. Karin Agnes Mcquillan, Fjarðarási 23, Reykjavík. Bjami J. Kristjánsson, Heiðarbraut 29, Keflavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.