Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1993, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1993, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1993 Fréttir Friðrik Sophusson flármálaráðherra: Höf um ekki lengur kverka- tak á Bandaríkjamönnum „Ég vil taka fram að þær fréttir, sem ég hef séð af hugsanlegum sam- drætti hjá vamarliðinu, eru óstað- festar. Giska má á að ef umsvif vam- arliðsins drægjust saman um helm- ing heiði það veruleg áhrif á gjald- eyristekjur íslendinga. Sumir halda því fram að það gæti numið 4 til 5 milljörðum í gjaldeyristapi. Þetta er - sem oft hefur verið gripið til vegna hemaðarlegu Islands svipuð tala og þegar við tölum um eitt stykki álver,“ sagði Friðrik Sop- husson fjármálaráðherra. Hann sagði það augljóst að sam- dráttur myndi hafa mikil áhrif á at- vinnumál á Suðumesjum. Stór hóp- ur Suðumesjamanna starfaði á Keflavíkurflugvelli og það væri ekk- ert í sjónmáli sem gæti komið í stað- inn fyrir þá vinnu sem fólk hefði nú á Keflavíkurflugvelli. Friðrik var spurður hvort við hefð- um efni á því að reka Keflavíkurflug- völl einir og sér ef til þess kæmi að Bandaríkjamenn hættu því. „Þaö er auðvitað spuming um hvort við höfum efni á því að vera sjálfstæð þjóð. Það hefur ótalmargt verið að gerast í heimimnn að und- anfórnu sem gerbreytt hefur stöð- unni hjá okkur. Við höfum ekki leng- ur það kverkatak á Bandaríkja- mönnum sem oft hefur verið gripið til vegna hernaðarlegu íslands. Nú þurfum viö fremur en áður að standa á eigin fótum og getum átt von á því að það verði erfiðara fyrir okkur á næstunni. Nýlegt dæmi mn það er afstaða Bandaríkjamanna til hval- veiðanna. Ef þeir ætla að beita við- skiptaþvingunum til að koma hval- veiðistefnu sinni fram mun það hafa veruleg áhrif hér á landi, ofan á allt annað. Þetta er ný staða fyrir okk- ur,“ sagöi Friðrik Sophusson. -S.dór stytti refsingu barnsræn- ingjans Hæstiréttur færði refsingu : Trausta Róberts Guðmunds- sonar, í hinu svonefnda barnsr- ánsmáli í fflíðunum, niður úr 5 ára fangelsi í 4 ár. Minnihluti dómsins, þeir Gunnar M. Guð- mundsson og Garðar Gíslason greiddu þó sératkvæði og töldu að 5 ára fangelsisrefsingu Hér- aðsdóms Reykjavíkur bæri aö staðfesta. Dómurinn komst aö þeirri niðurstöðu að Trausti Róbert heföi framið húsbrot, tilraun til þjófhaðar, frelsís- og umsjár- sviptingu svo og að hafa sýnt stúJkubami kynferðislega áreitni. í niðurstöðu Hæstaréttar seg- ir að taka verði tillit til þess að Trausti Róbert fór heimildar- laust inn í íbúöarhús aö nætur- þeli, hann hefði tekið 7 ára stúlku úr rúnú hennar fá- klædda, boriö hana í nætur- myrkri líklega meira en 800 metra um svæöi þar sem ekki var von mannaferða og sýnt henni kynferðislega áreitni. „Við ákvörðun refsingar verð- ur að byggjá' á því aö stúlku- barnið hafi verið 1 alvarlegii hættu statt,“ segir m.a. í dómi Hæstaréttar. Þeir hæstaréttardómarar, sem tóku meirihiutaafstöðu í málinu í gær, voru þau Þór Vil- hjálmsson, Guðrún Erlends- dóttir og Hjörtur Torfason. -ÓTT Fyrsta sængurkonan kom í vikunni á Fæðingarheimili Reykjavíkur. Birna S. Pálsdóttir eignaðist stúlkubarn á Landspítalanum aðfaranótt þriðjudags en var flutt á Fæðingarheimilið daginn eftir. Móður og barni heilsast vel. Litla stúlkan var tæpar þrettán merkur og 49 sentímetrar við fæðingu. -GHS/DV-mynd BG Tveir fyrrum stjómarmenn og framkvæmdastjórar Bygginga og ráðgjafar hf.: Fangelsi og 2,5 milljóna sekt hvor fundnir sekir um undandrátt á söluskatti upp á 5,2 miUjónir króna Héraðsdomur Reykjavikur hefur dæmt tvo fyrrum stjómarmenn og framkvæmdasfjóra hlutafélagsins Byggingar og ráðgjafar í 5 mánaða fangelsi, þar af 3 skilorðsbundið, og til greiðslu 2,5 milljóna króna sektar hvom fyrir að hafa dregið 5,2 millj- ónir króna undan söluskattsskyldri veltu fyrirtækisins á árunum 1986- 1988. Þeir voru einnig taldir hafa gerst sekir um brot á lögum um bók- hald með því að hafa ekki samiö árs- reikning fyrir árið 1986. Við refsi- ákvörðun í málinu var tekið mið af því hve sakarefnin í málinu em orð- in gömul. Guðjón St. Marteinsson héraösdómari kvað upp dóminn auk meðdomsmannanna Halldórs Ara- sonar og Stefáns D. Franklín lög- giltra endurskoðenda. Byggingar og ráðgjöf hf. var stofn- að árið 1983 og stundaði félagið verk- takastarfsemi auk innflutnings og sölu og leigu á byggingamótum auk framleiðslu á hlutum tengdum þess- ari starfsemi. Árið 1988 gerði rann- sóknadeild ríkisskattstjóra athugim á bókhaldi, tekjuskráningu og sölu- skattsskilum félagsins vegna inn- flutnings, leigu og sölu á steypumót- um rekstrarárin 1986 og 1987. Sölu- skattur var í kjölfarið endurákvarö- aður um tæpar 8 milljónir króna. Málið var síðan sent Rannsóknarlög- reglu ríkisins en fyrirtækið varð gjaldþrota árið 1989. Fram kom fyrir dómi hjá öömm framangreindra manna að þeir hefðu tekið ákvörðun um að greiða ekki söluskatt af allri söluskattsskyldri veltu fyrirtækisins á því tímabili sem um ræðir - rekstur fyrirtækisins hefði gengið flla. Meiningin hefði verið að gera söluskattinn upp er hagur fyrirtækisins vænkaöist, en það hefði ekki orðið. Fleiri vitnis- burðir komu fram í málinu sem studdu þennan framburð. Dómurinn taldi ekki að mennimir tveir hefðu gerst sekir um að draga undan allar þær 6,2 milljónir króna sem þeim var gefið að sök í ákæru- skjali, heldur sem nemur 5,2 milljón- um króna. Fallist var á athugasemd- ir annars framkvæmdastjórans um að ýmsir reikningar hefðu ekki verið söluskattsskyldir. Eins og fyrr greinir er mönnunum gert að greiða 2,5 milljónir króna í sekt til ríkissjóðs. Þeim er einnig, hvorum um sig, gert að greiða 4/5 hluta 300 þúsund króna málsvarnar- launa veijenda sinna og sama hlut- fall af 200 þúsund króna saksóknara- launum. Rikissjóður greiðir 1/5 hluta af málsvamar- og saksóknaralauna. JónBaldvin: „Ekkert í þessum fréttum kem- ur á óvart. Það hefur verið vitað síðan 1990 að þær breytingar sem orðiö hafa í heiminum gætu leitt til þess að samdráttur yrði hiá varnarliðinu á Keflavíkurflug- velli,“ sagði Jón Baldvin Hanni- balsson utanríkisráðherra í gær. Hann sagði að einmitt vegna þess aö þetta var vitað hefði í fyrra verið skipuð nefnd til að skoða öryggismálastefnu íslend- inga í ljósi breyttra aðstæðna. Nefndin skilaöi skýrslu í mars, áöur en mögulegt var að koma á viöræöum um málið viö nýja rík- isstjóm í Bandarikjunum en allt- af var ráð gert fyrir slíkum viö- ræðum. Jón Baldvin sagði að 16. apríl síðastliðinn heföi sendiráð ís- lands í Bandaríkjunum gert við- vart um aö samkvæmt heimild- um 1 utanríkisráöuneyti Banda- rfkjanna mætti búast viö að Bandarikjastjóm gerðí á næst- unni grein fyrir tillögum sínum um breytingar sem gætu orðið allróttækar. Jón Baldvin sagðist hafa rætt málið við sendifulltrúa Bandaríkjastjómar hér á landi. Hann staðfesti að tillögurnar væru byggðar á fyrirmælum um niðurskurð. -S.dór SvavarGestsson: Gjalda fyrir hersetuna með atvinnuleysi „Þetta mál er tvíþætt. Annars- vegar er þetta hluti af þróun sem hefur verið að ganga yfir og því gátu menn búist við að Banda- ríkjaraenn drægju saman í her- stöðinni á Keöavikurflugvelli. Það tel ég vera jákvæðan hluta af friðarþróun í heiminum. Hitt er svo ljóst að þetta mun hafa áhrif á Suöurnesjum. Það er rétt sem formaður verkalýðsfélagsins í Keflavík segir að nú muni Kefl- víkingar verða að gjalda með at- vinnuleysi fyrir hersetuna. Hún hefur verið notuð sem afsökun fyrir því aö gera ekki neitt í at- vinnumálum Suöumesja í ára- tugi. Nú sjá menn að þeir hefðu betur farið að tillögum góðra manna eins og Gils Guömunds- sonar að gera eitthvað í atvinnu- málum á Suðurnesjum," sagði Svavar Gestsson alþingismaður. Hann sagðist ekki tefja að sam- drátturinn myndi haíá háskaleg áhrif á efnahagslif íslendinga í heild sinni. Hægt væri að bregð- ast viö þessu með ýmsum hætti. Hann sagði að grípa þyrfti til al- mennra ráðstafana til að bæta atvinnuástandið. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.