Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1993, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1993, Side 5
FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1993 5 Fréttir Blaðamönnum DV bannaður aðgangur að Keflavikurstöðinni: Engin viðtöl á varnarsvæðinu „Yfirmenn mínlr sjá ekki ástaeöu til þess aö fara út í þá „sensasjón" að láta taka viötöl viö starfsfólkið á vinnustað. Hvorki myndir né viðtöl. Menn mega auövitað taka viðtöl og myndir af fólki utan vinnustaðar. Þessi ákvörðun gildir í óákveðinn tíma,“ segir Friðþór Eydal, upplýs- ingafulltrúi Varnarliðsins. Blaðamönnum DV var tilkynnt í gær að þeir fengju ekki leyfi til að Stefán Friöfinnsson: Bíðum eftir utanríkis- ráðuneytinu „Ég þpri ekki að giska á hvað þetta þýðir. Ég veit ekki til þess að búið sé að ákveða neitt í þessum efnum. Annars erum við að bíða eftir því hvað utanríkisráðuneytið segir,“ segir Stefán Friðfinnsson, forstjóri íslenskra aðalverktaka, aðspurður um hvemig fyrirhugaður niður- skurður á Keflavíkurflugvelli muni koma niður á fyrirtækinu og fram- kvæmdum í framtíðinni. Stefán segir að stefnt hafi verið að framkvæmdum á velhnum fyrir tvo milljarða í sumar. Hann vissi ekki hvaða áhrif nýjar hugmyndir um niðurskurð hefðu á þær fram- kvæmdir. Stefán sagði að verkefnastaðan nú. væri þolanleg en gæti auðvitað verið mun betri. Síðast þegar hann vissi hefðu samningar um sumarverkin verið í fullum gangi. Það væri spum- ing hvort það breyttist eitthvað nú. -Ari Þorsteinn Pálsson: Útilokar ekki hrefnuveið- ar í sumar „Við höfum verið að búa okkur undir að geta hafið hrefnuveiðar á ný með sem skemmstum fyrirvara. Hvort af veiðum verður í sumar ræöst af þróuninni á alþjóðavett- vangi á næstu vikum. Ég hef ekki viljað lofa því að veiðar verði heimil- aðar í sumar en ég vil heldur ekki útilokað það. Lokaákvörðun hefur ekki verið tekin," segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra. Þorsteinn segist horfa mjög til þess hvaöa ákvörðun Norðmenn taki. Enn hafi þeir ekki ákveðið hvenær þeir hefji hrefnuveiðar í atvinnu- skyni en væntanlega muni þau mál skýrast eftir fund Alþjóða hvalveiði- ráðsins í Japan í næstu viku. í fréttum hefur verið greint frá þeirri afstöðu Bandaríkjanna að styðja ekki tillögur um hvalveiðar í atvinnuskyni innan Alþjóða hval- veiðiráðsins, jafnvel þótt vísindaleg rök skorti fyrir friðun. Þetta segir Þorsteinn óskiljanlega afstöðu. Að auki sé þessi afstaða brot á ýmsum alþjóðlegum skuldbindingum sem Bandaríkjamenn hafi gengist undir. „Gagnvart vísindunum er það mik- il vanvirða að hundsa með öllu vís- indalegan grundvöll fyrir hagnýt- ingu náttúruauðlindanna. Þá er þetta ekki síður vanvirða fyrir Bandaríkin sem hafa verið forysturíki í vísindum ogtækni.“ -kaa fara inn í stöðina til að heyra hljóðið í íslenskum starfsmönnum í ljósi nýjustu tíðinda af niðurskurði á starfsemi bandaríska varnarliðsins í Keflavík „Ástæðan fyrir þessu er einfold. Það er ástæðulaust á meðan ekki liggur neitt fyrir frekar um málið að auka á óvissuna og vonbrigði fólks- ins hér á vellinunum. Það þjónar engum tilgangi," segir Friðþór. -Ari Sýnd í Bíóborginni Sýnd kl. 5 - 7 - 9 og 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.