Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1993, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1993, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 7. MAÍ1993 13 Neytendur Kjötvinnslufyrirtækið Austmat býður upp á fryst og unnið kjöt á góðu verði og því verður ekið til kaupenda. Austmat á Reyðarflrði: Kjötvörur á 15-25% lægra veröi en í stórmörkuöunum - neytendur fá kjötið sent heim Kjötvinnslufyrirtækið Austmat á Reyðarfirði hefur gert samning við Heimilisklúbbinn um sölu og dreif- ingu á kjötvörum fyrir félagsmenn klúbbsins á 15-25% lægra verði en í stórmörkuðunum á höfuðborgar- svæðinu. Félagsmönnum gefst kostur á að panta í gegnum síma fimm pakka sem hver um sig inniheldur mismun- andi samsetningu af frystu kjöti og unnum kjötvörum. Minnsti pakkinn sem um ræðir kostar 5000 krónur en í honum eru um 12 kíló af kjöti. Stærsti pakkinn, tæp 21 kíló, kostar 15000. Ein ferð verður farin vikulega frá Reyðarfirði til Reykjavíkur og þá er pökkunum ekið heim til kaupenda þeim að kostnaðarlausu. Hægt er að greiða matinn meö greiðslukorti eða staðgreiða um leið og pakkinn er af- hentur. „Við erum heildsalar og framleið- endur fyrst og fremst og hér er auð- vitað ekki um neina smásöluálagn- ingu að ræða,“ sagði Jón Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Austmats hf., aðspurður hvernig hann gæti boðið upp á slík verð. Jón sagði að sölufyrirkomulag af þessu tagi væri velþekkt víða erlendis og nytitnikilla vinsælda. Austmat, sem hefur starfað í rúm 12 ár, framieiðir á milli 140 og 150 tegundir af kjötvörum og í fyrirtæk- inu vinna um 30 manns. Þess má geta að nýverið keypti fyrirtækið grænmetisframleiðslu Sólar hf. en ætlunin er að flytja þá framleiðslu til Reyðarfjarðar. Allir sem vilja geta gerst meðlimir að Heimilisklúbbnum. Klúbburinn gefur út svokaUað Heimihskort en handhafar þess eiga kost á afslætti í um eitt hundrað verslunum hér á landi. Hægt er að kaupa þriggja mán- aða kort fyrir 1000 krónur og 1 árs kort fyrir 2900 krónur. -KMH Manneldisráð: Bæklingur um holla fæðu Manneldisráö íslands hefur gefið út bækling sem nefnist Þitt líf - þitt fæðuval í kjölfar könnunar sem gerð var síðastliðið haust á mataræði ís- lenskra grunnskólabama. Bækl- ingnum verður dreift á meðal skóla- barna en ætlunin með honum er að hjálpa bömunum að velja hollan og góðan mat. í bæklingnum segir að krakkar í dag séu að mörgu leyti sjálfstæðari og ráði meim um eigin fæðuvenjur en jafnaldrar þeirra gerðu áður fyrr. Margir sjá um sig sjálfir mikinn hluta dags, taka til mat handa sér í hádeginu eða eftir skóla og velja hvað þeir fá sér að borða. Þannig beri krakkar heilmikla ábyrgð á eig- in heilsu og líöan. Einnig segir að komið hafi í ljós að nemendur, sem borða lítinn og léleg- an morgunmat og hafa ekki með sér bæklingnum er leitast viö að hjálpa börnum að velja góðan og hollan mat. nesti, standi sig verr í skóla en þeir sem borða betur á morgnana. Þá eru gefnar nokkrar tillögur að morgunverði, nesti og hádegisverði sem bömin geta auðveldlega útbúið sjálf. í könnuninni sem Manneldisráð gerði á mataræði skólabama kemur fram að tíu ára krakkar sem búa í þéttbýh koma langflestir með ágætt nesti að heiman, en nestispökkum fer strax að fækka á meðal stelpna í 7. bekk og þegar komið er í 9. bekk sjást fáir með nesti, hvort heldur stráikar eða stelpur. Aðstaða barna og ungl- inga í dreifbýli er gjörólík að þessu leyti þar sem flest þeirra fá heitan mat í hádeginu á skólatíma og í sum- um skólum er jafnvel boðið upp á morgunmat þegar bömin koma í skólann. -KMH Hú er tvöfaldur l.vinningur! MERKISMENN HF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.