Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1993, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1993
Fréttir
Banaslys sem varð á mótum Sæbrautar og Holtavegar í maí 1992:
Akærður fyrir manndráp
af gáleysi í hassvímu
- ókjeppa á 80 km hraða á móti rauðu ljósi á bíl 17 ára stúlku
Ríkissaksóknari hefur ákært 21 árs
Reykviking fyrir manndráp af gá-
leysi þegar hann varö valdur að
hörðum árekstri á mótum Sæbrautar
og Holtavegar í maí á síðasta ári þeg-
ar 17 ára stúlka lét lífið. Hann er jafn-
framt ákærður fyrir að hafa valdið
verulegu líkamstjóni tæplega fimm-
tugs karlmanns sem var í sama bíl
og stúlkan. Manninum er gefið aö
sök að hafa ekið jeppa á rauðu ljósi
á allt að 80 km hraða og undir slíkum
áhrifum kannabisefna að hann hafi
ekki verið fær um að stjórna bílnum
örugglega.
Hið hörmulega slys varð með þeim
hætti að fólksbifreiö var ekið vestur
Holtaveg og inn á gatnamótin. í hon-
um var 17 ára ökumaður, stúlka, og
maður sem sat í framsæti. Um það
leyti kom Cherokee jeppi ákærða
norður eystri akbraut Sæbrautar á
móti rauðu ljósi á talsvert mikilli
ferö. Þegar bílamir rákust saman
kastaðist fólksbíllinn á kyrrstæða
bifreið á vestari akbraut Sæbrautar
og síðan á aðra bifreiö þar fyrir aftan.
Fólksbíllinn skemmdist mjög mik-
ið en tiltölulega htið sá á jeppanum.
Stúlkan hlaut svo mikla áverka á
höfði og í brjóstholi að hún lést
skömmu síðar. Farþegi í framsæti
hlaut brot á þremur riíbeinum og
mar á hjarta og lungum.
Ríkissaksóknari krefst þess að
ákærði verði dæmdur til refsingar
samkvæmt hegningarlögum og þess
að hann verði sviptur ökuréttindum.
-ÓTT
Kísiliöjan við Mývatn:
5,7 miiljóna hagnaður
Hagnaður af rekstri Kísiliðjunnar
við Mývatn varð 5,7 milljónir króna
á síðasta ári en árið á undan varð 8
milljóna króna tap á rekstri félags-
ins. Samtals voru framleidd 19.646
tonn af fullunnum kísilgúr sem er
um 15 prósent samdráttur frá árinu
á undan. Útflutningurinn í fyrra nam
18,656 tonnum sem er 20 prósent
samdráttur milli ára.
Þessar upplýsingar komu fram á
aðalfundi Kísiliðjunnar sem haldinn
var á laugardaginn. Þar kom einnig
fram að tap fyrir skatta fyrstu fjóra
mánuði þessa árs næmi 7,8 milljón-
um króna, var 1,2 milljónir á sama
tíma í fyrrra.
„Tapið nú má rekja til þess að
fyrstu sex vikur ársins var engin
framleiðsla. Við búumst við að í lok
maí veröum við mjög nálægt núlhnu
en rekstraráætlun félagsins gerir ráð
fyrir hagnaði á þessu ári,“ sagði Friö-
rik Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Kísiliðjunnar, við DV.
Kísiliðjan hefur mest framleitt 28
þúsund tonn af kísilgúr en framleiddi
undir 20 þúsund tonnum í fyrra.
„Þegar samdráttur er í efnahagslífi
finnum við strax fyrir því. Við erum
á viðkvæmum markaði þar sem
framleiðsluvörur okkar eru notaðar
í hreinar neysluvörur, í drykkjar-
vöru-, matvæla- og málningariðnaði,
Kísihðjan er ágætis barómeter á
efnahagslífið'í Evrópu á hverjum
tíma,“ sagði Friðrik.
-hlh
Ákærði ók yfir gatnamótin á Cherokee jeppa gegn rauðu Ijósi og lenti á fólksbil sem 17 ára stúlka ók. Hún lét
lífið stuttu eftir áreksturinn. Ökumanni jeppans er gefið að sök að hafa verið undir áhrifum kannabisefna.
DV-mynd S
Siglufjörður:
Minnkandi atvinnuleysi
Gylfi Kristjánsson, DV, Aknreyri:
„Það eru markvissar aðgerðir sem
hafa skilað okkur þeim árangri að
nú er atvinnuleysi hér mun minna
en á síðasta ári. Fyrstu íjóra mánuði
ársins var atvinnuleysi að meðaltah
30% minna en sömu mánuði á síð-
asta ári,“ segir Bjöm Valdimarsson,
bæjarstjóri á Siglufirði.
Um síðustu mánaðamót vom 37 á
atvinnuleysisskrá á Siglufirði en
voru 57 á sama tíma í fyrra. Bjöm
segir að uppbygging í sjávarútvegi á
staðnum hafi þama mest að segja.
Mun fleiri skip landi afla reglulega á
Siglufirði en áður, störfum hjá Þor-
móöi ramma hafi fjölgað mjög eftir
breytingar á rekstri fyrirtækisins og
þá sé stöðug og góð vinna hjá Ingi-
mundi hf.
„Bæjaryfirvöld hafa einnig unnið
að algjörri uppstokkun sem hefur
skilað okkur miklu. Það má segja að
við höfum gengið í gegnum það tíma-
bil fyrir um þremur árum sem nú
er víða annars staðar, en við höfum
unnið okkur út úr þessu með mark-
vissum aðgerðum og menn hafa ver-
ið mjög samstiga," segir Björn.
í dag mælir Dagfari
Nýr Jón f orseti
Islendingar hafa lengi beðið eftir
því að Jón forseti Sigurðsson
stökkvi aftur fram á sjónarsviðið.
Lengi vel voru vonir bundnar við
Hannes Hafstein en hann fékk aldr-
ei að njóta sannmæhs. Jónas á
Hriflu kom næstur en var svo rek-
inn úr Framsóknarflokknum og
komst aldrei á blað. Ólafur Thors
var glæsilegur persónuleiki og hk-
legur sem arftaki Jóns forseta en
Ólafur var í Sjálfstæðisflokknum
og menn geta ekki komist í skóna
hans Jóns forseta meðan þeir eru
flokksbundnir. Að minnsta kosti
var það hald manna fram til
skamms tíma.
En nú virðist loks Jón forseti
endurborinn. Og það jafnvel þótt
hann sé flokksbundinn. Hahdór
landbúnaðarráðherra Blöndal er
að verða sá hornsteinn og kjölfesta
í íslensku þjóðlífi að ahar líicur eru
á því að þjóðin geti sameinast um
hann. Að minnsta kosti bændur og
ef bændur taka ástfóstri við ein-
hvem er sá hinn sami heilmikils
virði. Það eru nefnilega bændur
sem eiga þessa þjóð, eiga þingið og
eiga slík ítök í hugum fólksins að
það sem þeir segja, það bhvur.
Baldur einhver Hermannsson
hefur verið að gera þeim skráveifu
með sjónvarpsþáttum. Slík er mót-
mælaaldan og andstyggðin á sagn-
fræði Baldurs að hann þarf ekki
að sýna sig, sá maður, í sveitum
landsins hér eftir ef hann vih
sleppa lifandi. Sama má segja um
veshngs kratana sem hafa lengi
barist fyrir því að styrkjum th
landbúnaðarins verði hætt og
kratamir njóta svo líths fylgis að
þeir mega þakka fyrir meðan þeir
hanga inni á þingi.
Nú datt nokkmm embættis-
mönnum og stjómmálamönnum
það í hug að íslendingar skyldu
framfylgja þeim samningum sem
gerðir hafa verið um Evrópska
efnahagssvæðið og þá ætlaði aht
af göflunum að ganga á Alþingi.
Fuhtrúar bændastéttarinnar í öll-
um flokkum sameinuðust 1 hehagri
baráttu gegn þessari voðalegu árás
sem Jón Baldvin var höfuðpaurinn
í, Og henni var hmndið. Og ekki
nóg með það. Nú safna þeir hði,
bændur og búahð, á fundum hjá
íhaldinu og hrópa vígorð að Jóni
skrípó og hefja Hahdór Blöndal upp
til skýjanna sem þeirra mann. Dóri
Blöndal er aht í einu orðinn goð-
sögn í þeirra augum, persónu-
gervingur þeirra Islendinga sem
vhja verja landbúnaðinn, sveitim-
ar og lömbin og þá sagnfræði sem
Baldur Hermannsson er að sverta.
Jón Baldvin segir þetta aht einn
ahsherjarmisskhning, hæði þaö að
upphlaupið á þingi um daginn hafi
sldpt einhveiju máh og eins hitt
aö Hahdór Blöndal hafi skipt þar
einhveiju máh. Hann segir að bú-
vörulögin hafi ekkert að segja og
landbúnaðarráðherra hafi ekkert
að segja og bændaglíman hafi ekk-
ert haft að segja um framhaldiö.
En það er alveg sama hvað Jón
Baldvin segir og það er alveg sama
hvað Evrópska efnahagssvæðið
segir, bændur hafa safnað liði og
Pálmi á Akri og Egih á Seljavöhum
og ahir aðrir vahnkunnir heiöurs-
menn í bændastétt geta nú gert
hróp að Jóni Baldvin og kahað
hann Jón skrípi meðan Hahdór
Blöndal er þeirra maður. Um
þeirra mann verður þjóðin að sam-
einast og standa vörð um Dóra th
að skrípin í póhtíkinni hafi ekki af
bændum það sem bænda er.
íslenskir bændur hafa niður-
greiðslurnar og styrkina og völdin
til að setja jöfnunargjöld th að
koma í veg fyrir að íslendingar
flytji inn einhvern ósóma sem kann
að drepa þeirra framleiöslu. Þetta
er sjálfstæðisbarátta og á borð við
þá sjálfstæðisbaráttu sem Jón for-
seti Sigurðsson háði og það verður
að friða Halldór og landbúnaðinn
og úthúða andstæðingum hans sem
allra, allra mest th að sjálfstæðis-
baráttan beri árangur.
Það er þetta sem hann Dóri skilur
og sér og hefur þannig yfirburði
yfir aðra ráðherra og stjórnmála-
menn og húrra fyrir honum. Hann
er ekki skrípi hann Dóri og vei
þeim sem dettur í hug að skerða
hár á höfði hans meðan hann er
landbúnaðarráðherra. Það er best
gert meö því að halda fundi til að
lýsa hvers konar skrípi þaö eru
sem hafa þá skoðun að völd Dóra
eigi að vera minni en þau eru.
Landbúnaðarráðherrar eru okkar
menn, menn þjóðarinnar, menn
sjálfstæðisins og menn framtíðar-
innar.
Dagfari