Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1993, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1993, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1993 27 i>v Fjöliriiðlar Prýðilegurþýð- andi og þulur Söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva rann heldur þægi- lega í gegn á laugardag með hefð- bundinni spennu, þó talsvert meiri hvað atkvæðagreiðslu varðar þvi úrslitin réðust ekki fyrr en með síðustu stigunum sem Möltubúar gáfu írum. Svo viröist sem flytjendum hafi fækk- aö sem áherslu leggja á sprikl og gauragang á sviðinu og meiri áhersla er lögð á sönginn og tón- listina. Jakob menningarfuhtrúi Magnússon, sem var í hlutverki „þýðanda og þular", skilaöi sínu allvel. Rýnir hefur heyrt marga hneykslast á ýmsum ummælum sem hann lét frá sér fara um keppendur sjálfa eða atkvæða- skipti dómnefnda. Kynnir í keppni sem þessari á ekki ein- göngu að vera þýðandi heldur á hann að miöla upplýsingum til áhorfenda og jafnvel skoðunum sínum. Bnginn er betur í stakk búinn til aö koma ýmsum fróð- leik fram en sá sem staddur er á vettvangi og í hringiðu atburð- anna. Jakob hefði því að skað- lausu mátt láta gamminn geisa enn frekar. Það má vel brjóta upp þá hefð sem hefur skapast um íslenska þularhlutverkið í Júró- visíon sem til þessa hefur verið í daufaralagi. Hvað snertir söngframlag ís- lands er ekki annaö hægt aö segja en að það hafi orðið landi og þjóð til sóma. Hvort það átti meira skiliö í atkvæðagreiðslu erum við íslendingar hins vegar minnst dómbærir um. Það kom í hlut annarra að gefa okkur jafnt sem öllum hinum atkvæöi. Viö unn- um ekki heldur aörir. Því hlýtur þeirra framlag að hafa verið bet- ur til þess fallið að fá atkvæði. Óttar Sveinsson Andlát Karen Louise Jónsson lést á dvalar- heimilinu Skjóh að morgni 15. maí. Einar B. Ingvarsson frrverandi bankamaður, _ Naustahlein 28, Garðabæ, andaðist í Landakotsspít- ala mánudaginn 17. maí. Ingiríður Sveinbjörnsdóttir frá Indr- iðastöðum, Skorradal, síðast til heimilis á Austurbrún 6, andaðist í Borgarspítalanum að kvöldi 15. maí. Sigríður Halldóra Loftsdóttir, Hlíð- arvegi 58, Njarðvík, lést í Vífilsstaða- spítala aðfaranótt sunnudags 16. maí. Birgir Kristjánsson frá Dalvík, Fálkagötu 14, Rekjavík, lést á Beni- dorm 14. maí. Bjarki Friðriksson, Kambaseh 50, lést fimmtudaginn 13. maí. Jaröarfarir Útfór Katrínar Magneu Guðmunds- dóttur, Stórholti 28, Reykjavík, verð- ur gerö frá Fossvogskapehu mið- vikudaginn 19. maí kl. 15. Vigdis Benediktsdóttir frá Bolungar- vik verður jarðsungin frá Bústaða- kirkju í dag, þriðjudaginn 18. maí, kl. 13.30. Kristrún Helgadóttir, Þiljuvöhum 33, Neskaupstað, veröur jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju miðvikudaginn 19. maí kl. 14. örn Albert Ottósson, Ólafsvík, verð- ur jarðsunginn frá Olafsvíkurkirkju föstudaginn 21. maí kl. 14. Rútuferð frá Umferðarmiðstöðinni kl. 9 um morguninn. Odda Margrét Júlíusdóttir, Helga- magrastræti 48, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mið- vikudaginn 19. maí kl. 14. Ástriður Einarsdóttir, Hringbraut 53, verður jarðsungin frá Dómkirkj- unni í dag, þriðjudaginn 18. maí, kl. 13.30. Sigurður Gunnarsson, Bjargi, Vík í Mýrdal, lést á heimili sínu sunnu- daginn 16. maí. Útför hans fer fram frá Víkurkirkju laugardaginn22. mai kl. 14. Lalli og Lína Slökkvilið-lögregla Reykjavík: Lögreglan sími 11166 og 0112, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Seltjarnarnes: Lögreglan s. 611166, slökkvilið og sjúkrabifreið s.11100. Kópavogur: Lögreglan sími 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Hafnarfjörður: Lögreglan sími 51166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 51100. Keflavík: Lögreglan s. 15500, slökkvilið s. 12222 og sjúkrabifreið s. 12221. Vestmannaeyjar: Lögreglan s. 11666, slökkviliö 12222, sjúkrahúsið 11955. Akureyri: Lögreglan s. 23222, 23223 og 23224, slökkvilið og sjúkrabifreið s. 22222. ísafiörður: Slökkvihð s. 3300, brunas. og sjúkrabifreið 3333, lögreglan 4222. Apótek Nætur- og helgidagaþjónusta apótekanna í Reykjavík 14. til 20. maí 1993, að báðum dögum meðtöldum, verður í Lauga- vegsapóteki, Laugavegi 16, sími 24045. Auk þess verður varsla í Holtsapóteki, Langholtsvegi 84, simi 35212, kl. 18 til 22 virka daga og kl. 9 til 22 á laugardag. Upplýsingar um læknaþjónustu eru gefn- ar í síma 18888. Mosfellsapótek: Opið virka daga frá kl. 9-18.30, laugardaga kl. 9-12. Apótek Garðabæjar: Opið mánudaga- föstudaga kl. 9-18.30 og laugardaga kl. 11-14. Sími 651321. Apótek Kópavogs: Opið virka daga frá kl. 9-19, laugardaga kl. 9-12. Hafnarfjörður: Norðurbæjarapótek opið mánud. til fimmtud. kl. 9-18.30, Hafnarfjarðarapótek kl. 9-19. Bæði hafa opið föstud. kl. 9-19 og laugard. kl. 10-14 og til skiptis helgidaga kl. 10-14. Upplýs- ingar í símsvara 51600 og 53966. Apótek Keflavíkur: Opið frá kl. 9-19 virka daga, aðra daga frá kl. 10-12 f.h. Nesapótek, Seltjarnarnesi: Opið virka daga kl. 9-19 nema laugardaga kl. 10-12. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga kl. 9-12.30 og 14-18. Lokað laugar- daga og sunnudaga. Akureyrarapótek og Stjörnuapótek, Akureyri: Á kvöldin er opið í því apó- teki sem sér um vörslun til kl. 19. Á helgidögum er opið kl. 11-12 og 20-21. Á öðrum tímum er lyfjafræðingur á bak- ■vakt. Upplýsingar í síma 22445. Heilsugæsla Slysavarðstofan: Sími 696600. Sjúkrabifreið: Reykjavík, Kópavogur og Seltjarnames, sími 11000, Hafnarfjörður, sími 51100, Keflavík, sími 12222, Vestmannaeyjar, sími 11955, Akureyri, sími 22222. Krabbamein - Upplýsingar fást hjá fé- lagsmálafulltrúa á miðvikudögum og fimmtudögum kl. 11-12 í síma 621414 Læknar Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn- arnes og Kópavog er í Heilsuvemdar- stöð Reykjavíkur aha virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, símaráðleggingar og tímapantanir í sími 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu í símsvara 18888. Borgarspítalinn: Vakt frá kl. 8-17 aha virka daga fyrir fólk sem ekki hefur heimihslækni eða nær ekki til hans (s. 696600) en slysa- og sjúkravakt (slysa- deild) sinnir slösuðum og skyndiveik- um allan sólarhringinn (s. 696600). Læknavakt Þorfinnsgötu 14. Skyndi- móttaka-Axlamóttaka. Opin 13-19 virka daga. Tímapantanir s. 620064. Seltjarnarnes: Heilsugæslustöðin er opin virka daga kl. 8-17 og 20-21, laugar- daga kl. 10-11. Sími 612070. Hafnarfjörður, Garðabær, Álftanes: Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta morgun og um helgar, sími 51100. Kefla vík: Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta morgun og um helgar. Vakthaf- andi læknir er í síma 14000 (sími Heilsu- gæslustöðvarinnar). Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna í síma 11966. Akureyri: Dagvakt frá kl. 8-17 á Heilsu- gæslustöðinni í síma 22311. Nætur- og helgidagavarsla frá kl. 17-8, sími (far- sími) vakthafandi læknis er 985-23221. Upplýsingar hjá lögreglunni í síma 23222, slökkviliðinu í síma 22222 og Akureyrarapóteki í síma 22445. Heimsókriartniii Landakotsspítali: Alla daga frá kl. 15-16 og 18.30-19. Barnadeild kl. 14-18, aðrir en foreldar kl. 16-17 daglega. Gjör- gæsludeild eftir samkomulagi. Borgarspítalinn: Mánud.-föstud. kl. 18.30-19.30. Laugard.-sunnud. kl. 15-18. Heilsuverndarstöðin: Kl. 15-16 og 18.30-19.30. Fæðingardeild Landspítalans: Kl. 15-16 og 19.30-20.00. Sængurkvennadeild: Heimsóknartími frá kl. 15-16, feður kl. 19.30-20.30. Fæðingarheimili Reykjavíkur: kl. 15-16.30 Kleppsspítahnn: Kl. 15-16 og 18.30- 19.30. Flókadeild: Kl. 15.30-16.30. Grensásdeild: Kl. 16-19.30 virka daga og kl. 14-19.30 laugard. og sunnud. Hvítabandið: -Frjáls heimsóknartími. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15-17 á helgum dögum. Sólvangur, Hafnarfirði: Mánud.-laug- ard. kl. 15-16 og 19.30-20. Sunnudaga og aðra helgidaga kl. 15-16.30. Landspítalinn: Alla virka daga kl. 15-16 og 19-19.30. Barnaspítali Hringsins: Kl. 15-16. Sjúkrahúsið Akureyri: Kl. 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkrahusið Vestmannaeyjum: Kl. 15-16 og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness: Kl. 15.30-16 Og 19-19.30. Hafnarbúðir: Kl. 14-17 og 19-20. Vífilsstaðaspítali: Kl. 15-16 og 19.30-20. Geðdeild Landspítalans Vifilsstaða- deild: Sunnudaga kl. 15.30-17. Söfnin Asmundarsafn við Sigtún. Opið dag- lega kl. 13-16. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74: Op- ið daglega nema mánudaga kl. 13.30-16. Árbæjarsafn: Opið í júní, júh og ágúst. Upplýsingar í síma 84412. Borgarbókasafn Reykjavíkur Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155. Borgarbókasafnið í Gerðubergi 3-5, s. 79122. Bústaðasafn, Bústaöakirkju, s. 36270. Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind söfn eru opin sem hér segir: mánud.-fimmtud. kl. 9-21, fostud. kl. 9-19, laugard. kl. 13-16. Aðalsafn, lestrarsalur, s. 27029. Opið mánud.-laugard. kl. 13-19. Grandasafn, Grandavegi 47, s.27640. Opið mánud. kl. 11-19, þriðjud.-fóstud. Vísir fyrir 50 árum Þriðjudagur 18. maí: Kolavinnslan á Tindum hefst í sumar eöa haust. Leitast fyrir um vélakaup í Ameríku. Spakmæli_____________ Enginn hefur meiri áhrif heldur en þeg- ar hann gleymir sjálfum sér. A. Gide. kl. 15-19. Seljasafn, Hólmaseli 4-6, s. 683320. Bókabílar, s. 36270. Viðkomustaöir viðs vegar um borgina. Sögustundir fyrir börn: Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15. Borgar- bókasafnið í Gerðubergi, fimmtud. kl. 14-15. Bústaðasafn, miðvikud. kl. 100.1. Sólheimar, miövikud. kl. 11-12. Lokað á laugard. frá 1.5.-31.8. Kjarvalsstaðir: opið daglega kl. 11-18. Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7: er opið daglega nema mánud. kl. 12-18. Listasafn Einars Jónssonar er opið alla daga nema mánudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn alla daga kl. 11-16. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnesi er opið mánud.-fimmtud. kl. 20-22 og um helgar kl. 14-18. Kaffi- stofan opin á sama tíma. Náttúrugripasafnið við Hlemmtorg: Opið sunnud., þriðjud., fimmtud. og laugard. kl. 13.30-16. Norræna húsið við Hringbraut: Sýn- ingarsalir í kjallara: alla daga kl. 14-19. Bókasafn Norræna hússins: mánud. - laugardaga kl. 13—19. Sunnud. kl. 14-17. Sjóminjasafn Islands er opið aha daga nema mánudaga 14-18. J. Hinriksson, Maritime Museum, Sjó- og vélsmiöjuminjasafn, Súðarvogi 4, S. 814677. Opið kl. 13-17 þriðjud. - laugard. Þjóðminjasafn tslands. Opið þriðjud., fimmtud., laugard. og sunnud. kl. 12-17. Bilanir Rafmagn: Reykjavík, Kópavogur og Seltjamames, sími 686230. Akureyri, sími 11390. Keflavík, sími 15200. Hafnarfjörður, sími 652936. Vestmannaeyjar, sími 11321. Hitaveitubilanir: Reykjavík og Kópavogur, sími 27311, Seltjamarnes, sími 615766. Vatnsveitubilanir: Reykjavík sími 621180. Seltjamarnes, sími 27311. Kópavogur, sími 41580, eftir kl. 18 og um helgar, sími 41575. Akureyri, sími 23206. Keflavík, sími 11552, eftir lokun 11555. Vestmannaeyjar, símar 11322. Hafnarfjörður, sími 53445. Símabilanir: í Reykjavík, Kópavogi, Seltjamarnesi, Akureyri, Keflavík og Vestmannaeyjum tilkynnist í 05. Bilanavakt borgarstofnana, sími 27311: Svarar alla virka daga frá kl. 17 síödegis til 8 árdegis og á helgidögum er svarað allan sólarhringinn. Tekið er við tilkynningum um bilanir á veitukerfum borgarinnar og í öðrum tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð borgarstofnana. Tilkyimingar AA-samtökin. Eigir þú við áfengis- vandamál að stríða, þá er sími samtak- anna 16373, kl. 17-20 daglega. Leigjendasamtökin Hverfisgötu 8-10, Rvík., sími 23266. Liflínan, Kristileg símaþjónusta. Sími 91-683131. Stjömuspá Spáin gildir fyrir miðvikudaginn 19. maí. Vatnsberinn (20. jan.-18. febr.): Þú hagnast á samstarfi við aðra. Ýmislegt er flóknara en þú hélst. Leitaðu ráða hjá þér reynslumeira fólki. Fiskarnir (19. febr. 20. mars.): Gættu að því að þeir sem þú talar við séu traustsins verðir áður en þú nefnir áform þin. Þú kemur ekki öllum fyrirætlunum þínum í framkvæmd. Hrúturinn (21. mars-19. apríl): Haltu þig heima í dag því nú er ekki heppilegur hmi til ferða- laga. Hætt er við að þrjóska og jafnvel rifrildi eyðileggi hópstarf. Nautið (20. apríl-20. mai): Þú tekur hl þinna ráða og gerir sjálfur það sem gera þarf. Þú mætir talsverðri andstöðu við framkvæmdina. Tvíburarnir (21. mai-21. júní): Gerðu ekki of mikið fyrir þá sem ætlast til of mikils af þér. Þú ert að undirbúa ferðalag sem tekur hug þinn allan. Krabbinn (22. júní-22. júlí): Notfærðu þér vilja annarra til samstarfs. Upplýsingar sem þú færð hafa sérstaka þýðingu fyrir þig. Happatölur eru 2,14 og 26. Ljónið (23. júlí-22. ágúst): Ekki er víst að samstaða haldist eða þú eigir vísa tryggð allra í kringum þig. Þú blandast í mál annarra en kynntu þér málin frá öllum hliðum. Meyjan (23. ágúst-22. sept.): Vertu á verði í fjármálunum. Þú hefur mikið að gera í dag. Það gefst því ekki tími til slökunar fyrr en síðar. Vogin (23. sept.-23. okt.): Vel skipulögð áætlun getur farið út um þúfur. Hugsanlegt er að einhveijir viiji hindra þig í því að ná árangri. Sporðdrekinn (24. okt.-21. nóv.): Þér líöur best í einrúmi og gerir hlutina hjálparlaust. Erfiðir skapsmunir annarra gera þér erfitt fyrir. Sýndu þolinmæði. Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.): Einhvers konar samruni verður áður en langt um líður. Þú vilt fara þínar eigin leiðir og þér líka illa allar hömlur sem eru settar áþig. Steingeitin (22. des.-19. jan.): Þú ert viljasterkur og getur því haft áhrif á aðra. Sambönd þín við aðra skila miklu. Ókunnugur aðili sýnir þér vinsemd. Ný stjömuspá á hverjum degi. Hringdu! 39.90 þ. minútan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.