Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1993, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1993, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUK18. MAÍ1993 Sviðsljós I>V Kynbótasýning í Noregi: Tólf vetra hryssa sló í gegn Norðmenn héldu kynbótahrossasýningu í Seljord nýlega. Seljord er skemmtilegt svæði þar semýmisskonar sýningar og mót eru haldin m.a. Norðurlandamótið í hestaiþróttum. Myndin er frá inngöngu íslensku keppnis- hrossanna á Norðurlandamótinu sumarið 1992. DV-mynd E. J. Sófi í nýju stofuna Björn Anton og Thelma eru farin að búa. Þau hafa keypt sér íbúð og eiga lítið barn. Þau verða að fara vel með fjármuni sína til að endar nái saman. Þau hafa selt ýmislegt sem þau töldu sig vel geta verið án en nú vantar þau sófa í nýju stofuna. Til þess að gera sem mest úr því sem þau hafa handa á milli ákváðu þau að kaupa notaðan, vel með farinn sófa gegnum smáauglýsingar DV núna og bíða með að kaupa nýtt út úr búð þar til þau hafa komið betur undir sigfótunum. Þú getur gert afbragðs kaup á notuðum, vel með förnum munum gegnum smáauglýsingar DV. Efþig vantar pening! SMÁAUGLÝSINGAR SMÁAUGLÝSINGADEILD DV. Sími 91-632700. Bréfasími 91-632727. Græni síminn 99-6272. OPIÐ: Virka daga frá kl. 9-22, laugardaga frá kl. 9-16 og sunnudaga frá kl. 18-22. VANTAR ÞK3 PENING? Mikil kynbótahrossasýning var haldin í Seljord í Noregi helgina 8. og 9. maí. Dæmdar voru kynbóta- hryssur og sýndir stóðhestar sem nota má í Noregi. Þá voru 5 vetra gömul hross sýnd og keppt á þeim. Jón Finnur Hansson og Norð- maðurinn Reidar Johnsson dæmdu kynbótahrossin. Norðmenn voru mjög ánægðir með störf þeirra. Jón Finnur var óhræddur að nota ein- kunnaskalann og gefa hátt þegar vel var gert og lágt fyrir slaka sýn- ingu. Hryssumar fengu ágæta dóma, eru að sögn Jóns Finns mjög fram- bærilegar. Keppt er í tveimur flokkum fjögurra og fimm vetra saman og sex vetra og eldri. Barnahryssan fékk 9,5 fyrir tölt og brokk Hryssan Hetja frá Hofsstöðum í Viðvíkm-sveit, 12 vetra gömul und- an Smára og Hetju frá Hofsstöðum, fékk mjög góðar einkunnir. Hún er skeiðlaus en hlaut þrátt fyrir það 8,40 fyrir hæfileika og 7,99 fyrir byggingu. Jón Finnur segir þessa hryssu óvenjulegan grip. Hún var keypt frá íslandi þriggja vetra og var not- uð af bömum á heimili í Norður- Noregi. Christina Sandberg Lund, þekktur norskur knapi, keypti hryssuna, þjálfaði og árangurinn er þessi framúrskarandi tölhryssa, sem fékk 9,5 fyrir tölt og vilja og 9,0 fyrir brokk. Lyfting frá Nesjum, undan Stormi frá Bjamanesi og Stjörnu frá Austurhóli, fékk 8,13 fyrir hæfi- leika, 7,76 fyrir byggingu og 7,99 í aðaleinkunn. Hún er einnig tölt- hryssa; skeiðlaus, fékk hæst 9,5 fyrir viija og 9,0 fyrir tölt. Skjóna frá Ásgeirsbrekku, undan Ljóra frá Kirkjubæ og Indu frá Vatnsleysu, fékk 7,82 fyrir hæfi- leika, 8,03 fyrir byggingu og 7,90 í aðaleinkunn. Fimm vetra Spænis- dóttir yfir 8,00 Kaia frá Frövik, undan Spæni frá Efri-Brú og Kötlu frá Víkingsstöð- um, stóð efst hryssna í fjögurra og fimm vetra flokknum. Hún fékk 8,27 fyrir hæfileika, 7,78 fyrir bygg- ingu og 8,07 í aðaleinkunn. Kaia fékk hæst 9,0 fyrir vilja. Þrjú valin á HM Kaia, ásamt Kolfinnu frá Sorte- haug, undan Kolfinnu frá Torfa- stöðum og Kolskeggi, syni Þrastar frá Teigi verða fulltrúar norskrar ræktunar á HM í Hollandi í ágúst ásamt stóðhestinum Ringo frá Ringen, undan Borgfjörð frá Sig- mundarstöðum. Sennilega verður eitt hross vahð síðar í sumar. Sýndir voru nokkrir stóðhestar, meðal annarra Spænir frá Efri-Brú og Þröstur frá Teigi sem orðinn er 22 vetra en nýtur virðingar í Nor- egi. Jón Friðriksson á Vatnsleysu var mættur í Seljord og sýndi stóðhest- inn Heljar frá Vatnsleysu, fimm vetra, undan Hervari frá Sauðár- króki og Báru 4125, og fékk fyrir mikið klapp. Jón ræktaði Heljar. -E.J. Stöllurnar Magnea Ásmundsdóttir, Olga Olgeirsdóttir og Þorbjörg Þorvalds- dóttir voru mættar í nýja listaháskólahúsnæðinu við Laugarnesveg. Þær eru allar að útskrifast úr Myndlista- og handíðaskólanum á þessu vori. MHÍ: Lokaverkefni til sýnis Útskriftamemar í Myndhsta- og handíðaskóla íslands halda árlega vorsýningu á verkum sínum á þrem- ur stöðum þessa dagana, í nýja hsta- háskólahúsinu við Laugamesveg, í Perlunni og í húsnæði skólans við Skipholt. í hstaháskólahúsinu sýna nemend- ur úr málun, skúlptúr, fiöltækni, leirhst og textíl. Nemendur úr graf- ískri hönnun sýna í Perlunni og í Skipholtinu em það nemendur úr málun og grafík. ■ Svanborg Matthíasdóttir og Björgvin Sigurgeirsson, bæði kennarar við MHÍ, ræða saman innan um verk nemenda í væntanlegu húsnæði listahá- skólans við Laugarnesveg. Verkið sem hér sést er úr textíl og er eftir Maríu Valsdóttur. DV-myndir GS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.