Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1993, Síða 3
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993
3
Fréttir
Húsvikingar íhuga að afþakka þjónustu Flugleiða:
Skemmdarstarfsemi
- segir Einar Njálsson bæjarstjóri um fækkun áætlunarferða
Flugleiðir:
Ferðum
ekki fjölgað
í sumar
Gyffi Kris^ánsson, DV, Akureyri:
„Félagið sá slg knúlð til þess að
fækka í flugflota sínum í innan-
landsflugi og leigja eina af Fokk-
ervélunum. Þetta var aðallega af
tveimur ástaeðum; versnandi af-
komu og því aö í lok ársins verð-
ur lagður virðisaukaskattur á
innanlandsflugið sera gæti aukiö
rekstrarkostnað okkar vegna
þess um allt að 100 milljónum,"
segir Einar Sigurðsson, blaðafull-
trúi Flugleiða.
Einar segir að þrátt fyrir þetta
sé sutnaráætlun Flugleiða innan-
lands í meira en 80% tilvika
óbreytt og þetta hafi ekki þýtt
nema 5% fækkun ferða. Því mið-
ur hafi orðið að fækka um tvær
ferðir á viku til Húsavikur en
þess beri að geta að Flugfélag
Noröurlands hafi íjölgaö sínum
ferðum þangað um tvær.
Þá sagöi Einar að skiptinguna
á flugleiðinni Reykjavík-Húsavik
1990 mætti rekja til samþykktar
bæjarstjórnar Húsavikur í októb-
er 1989, þess efnis að fleiri aðilum
gæfist kostur á að fljúga á þessari
leiö. „Það er auðvitað slæmt ef
þessi ákvörðun Flugleiða hefur
komið illa við feröaþjónustuaöila
á Húsavík en þvi miöur veröur
ekki hægt að íjölga ferðum þang-
að að óbreyttum aðstæöum. Hins-
vegar bendir ýmislegt til þess að
hægt verði að fjölga ferðum á
þessari flugleið þegar vetraráætl-
un tekur gildi i haust," sagði Ein-
ar.
Sprenging í
dráttarvél
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Eldur kom upp í dráttarvél á bæn-
um Tjamargerði í Eyjaíjarðarsveit í
gær. Verið var að nota dráttarvélina
við heyskap.
Á meðan ökumaður hljóp eftir
vatni til að slökkva eldinn varð
sprenging í dráttarvéhnni og stýris-
hús hennar varð alelda um leið.
Brotist inn í
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Mjög ölvaður maður var handtek-
inn við Sparisjóð Árskógsstrandar
við Melbrún í fyrrinótt, eftir að við-
vörunarkerfi sparisjóðsins hafði far-
ið í gang. Lögregla frá Akureyri kom
fljótt á vettvang og handtókmanninn
utandyra. í ljós kom að maðurinn
hafði brotist inn í sparisjóðinn með
því að spenna upp glugga og síðan
hafði hann farið um húsnæðið.
Loðnuskipin
til Jan Mayen
GyB Kristjánsson, DV, Akureyri:
Loðnuveiðar mega heíjast um
mánaðamótin og er hugur í mörgum
útgerðarmönnum og sjómönnum að
hefja veiðamar sem allra fyrst. Talið
er að nú strax fari 10-15 skip á mið-
in, en á þessum árstíma heldur loðn-
an sig við Jan Mayen. Ef vel tekst til
er líklegt aö í næstu viku gæti fyrsta
loönan á vertíðinni borist á land.
Maðurinnsemlést
Maðurinn sem lést í vinnuslysi í
Vestmannaeyjum á mánudag hét Jón
Trausti Úranusson til heimihs að
Boðaslóð 6 í Vestmannaeyjum.
Trausti var fæddur 19. júní 1952 og
varókvænturogbarnlaus. -pp
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég líki þessu við skemmdarstarf-
semi gagnvart ferðaþjónustunni á
þessu svæði og staðan getur auðvitað
leitt til þess að við förum fram á það
að Flugleiðir láti okkur í friði og við
leitum þjónustu hjá öðrum flugfélög-
um," segir Einar Njálsson, bæjar-
stjóri á Húsavík. Húsvíkingar em
mjög óánægðir með að Flugleiðir
hafa fækkað ferðum til Húsavíkur
um tvær á viku og telja það óviðun-
andi flugtíðni þangað.
Bæjarstjóm Húsavíkur hefur sam-
þykkt ályktun um máhð og krefst
þess að Flugleiðir þjóni því áætlun-
arleyfi sem félagið hefur á flugleið-
inni. Gerist það ekki séu Flugleiðir
að neyða bæjaryfirvöld til að leita
annarra leiða um flugsamgöngur.
„Við erum mjög reiðir, Húsvíking-
ar, á því er engin launung," segir
Einar Njálsson. „Á fundi með Flug-
leiðamönnum 16. júní útskýrðu þeir
fyrir okkur ástæðu þessarar fækk-
unar ferða hingað og að þeir heíðu
orðið að leigja eina af Fokker-vélum
sínum til útlanda. En þetta er eldra
mál; árið 1991 vom hingað tíu ferðir
á viku, í fyrra vom þær sex og nú
em þær orðnar fjórar. Þetta er því
ekki bara vegna leigu Flugleiða á ein-
um Fokker til útlanda núna.
Þetta kemur sér sérstaklega illa
fyrir ferðaþjónuaðila hér á svæðinu
sem m.a. hafa skipulagt dagsferðir
til Mývatns og Dettifoss fyrir ferða-
menn og þá treyst á morgun- og
kvöldferðir Flugleiða. Það er alveg
búið aö eyðileggja þá markaðssetn-
ingu og þess vegna hef ég líkt þessu
við skemmdarstarfsemi."
BJÖRK - DEBUT
Pað kemur engum á óvart að þessi plata kemur öllum
á óvart. Nú þegar hefur laglð “Human Behaviour" náð
fyrsta sœti hér á landi. Ðjörk heldur áfram að syngja
slg Inn f hjörtu manna með þessari frábœru plötu.
BOGOMIL FONT OG MILLJÓNAM7ERINGABNIR - EKKI
FESSI LEIÐINDI
Gleðlgjaflnn mikli útdeiUr ananas. sölaryl og ást með
þessari elnstöku ballplótu. Ressi útgáfd hefur fengið
ótrúleg viðbrögð og elns og Bogomll segir sjálfur: "Ég
var atUaf betri en Ðertl f boUanum."
NULL OG NIX 2
Samansafn af lögum 33 fslenskra hljómsvelta. NúU og
nix sýnlr einfaldlega vel hve mlkil flölbreytnl rikir f
fslensku tónllstarlífl. Lifandi samansafn. Helvítis rokk.
Djöfuls relf.
HAM - SAGA ROKKSINS
Ham sjálfum sér Uklr og gefast ekki upp. Hór hafa
þelr endurskrifað rokksögu fslands með einstökum
lagasmfðum hvort sem þeir kljást vlð hugljúfar
ballöður eða mjög þungt rokk.
SH DRAUMUR - ALLT HEILA KLAÐÐIÐ
Tímabœr endurútgáfa á öllum lögum elnstakrar
hljómsveltar. Plötur þelrra hafa verlð ófáanlegar um
langt skelð. Kunnur spekúlant sagði að þetta vœri
betra en REM.
SNIGLAÐANDIÐ - PETTA STÓRA SVARTA
Petta stóra svarta er í raun og veru tftið sllfurUtað og
er nýr geisladiskur frá þessum fjörplnnum uppfullur
af galsa og œrslafullum skilaboðum.
VINIR DÓRA - MÉR LÍÐUR VEL
Vinlr Dóra hafd leitt "blúsbylgjuna" á fslandl. Meðal
gesta eru Chlcago Ðeau, Jimmy Dawklns, Pinetop
Perklns. Dletra Parr o.fl. Skemmtlleg og Ufandl útgáfa.
sem lœtur öUum Uða veL
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS / PETRI SAKARI
"Flutnlngur Petri Sakarl og S.f. er laus við alla tllgerð
og fylltur kraftt. Pað hljómar elns og flytjendurnir njótl
þess að spila þessi verk...Ég mœU eindregið með
þessart útgáfu." (R.L. Gramophon Júlf 1993)