Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1993, Page 11
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993
11
Útlönd
Refsaðmeð
magaæfingum
Forsætisráðherrann í fylkinu
Bihar á Indlandi neyddi erabætt-
ismenn, sem misnotuðu opinbera
sjóði, til að gera magaæfingar
opinberlega. Indverska frétta-
stofan United News of India
greindi frá þessu í gær.
í fréttinni sagði aö forsætisráð-
herrann hefði komist að misnotk-
un hjá nokkrum embættismönn-
um er gerð var skyndikönnun á
stöðu þróunarverkefna I höfuð-
borg fylkisins. Ekki var greint frá
hversu mörgum var refsað né
hversu margar magaæfingar þeir
þurftu að gera.
Brasiliuforseti
nýrDonJuan
Forseti Bras-
ilíu, Itamar
Franco, sem 'rm * ■ 1
varð 63 ára í . ðí3FVi iJBAX
vikunni og er
fráskilinn, hef-
ur nú fengið
viðumefnið
í Brasilíu hafa verið óspör á aö
greina frá faömlögum forsetans
og kossum, ekki bara á kinn held-
ur einnig munn, við opinberar
athafnir. Eitt blaöanna fullyrðir
að forsetiim trylh konur yfir fer-
tugt upp úr skónum rétt eins og
Robert Redford.
Forsetinn þykir ekki beint hta
út eins og grískur guð. Þaö er
einkum vegna gamaldags sjarma
og nærgætni sem hann er vin-
sæll meöal kvenna.
LeitaðaðLoch
Nessskrímslinu
Visíndamenn hafa nú hafið enn
eina leitina að hinu fræga
skrímsli sem sögusagnir herma
að lifi í vatninu Loch Ness í Skot-
landi. Skrímshð, sem kallað er
Nessie og hefur aflað feröa-
mannaiðnaöinum í Skotlandi
mikils íjár, á að hafa sést síðast
fyrir viku.
Við leitina að skrímshnu verða
notuð sónartæki og neöansjávar-
myndbandstökuvélar.
Neitaraðhafa
bariðTinu
Tónhstar-
maöurinn Ike
Turner neitaöi
þvi á fundi með
fréttamönnum
í vikunni að
hafabariðfyrr-
um eiginkonu
sina, stór-
stjörnuna Tinu Tumer. í kvik-
mynd um ævi söngkonunnar,
sem sýningar eru hafnar á, er því
haldiö fram að Ike hafi bæði bar-
ið Tinu og nauðgað henni þar til
hún gafst upp eftir 18 ára hjóna-
band.
Ike hefur átt við ýmis vandamál
að stríða síðan hjónabandinu
lauk.
dauðafyrir
mannát
Dómstóll á Filabeinsströndinni
í Afríku hefur kveðið upp dauða-
dóm yfir þremur liberískum
flóttamönnum fyrir mannát.
Fómarlambið var tveggja ára
drengur sem flóttamennirair
fundu í þorpi nálægt bænum
Tabou. Flóttamennirnir voru að
flýja borgarastríðið í Líberíu þeg-
ar þeir frömdu glæpinn árið 1990.
Þeir vora upphaflega fjórir en
einn þeirra lést viku eftir mann-
átið.
Reuter
Saf naði munum f órnarlambanna
Fjöldamorðinginn Joel Rifkin sem játað hefur á sig morð á sautján vændis-
konum í New York. Simamynd Reuter
Atvinnulaus skrúðgarðyrkjumað-
ur í New York, sem kveðst hafa myrt
sautján vændiskonur, safnaði nær-
fatnaði og bókasafnskortum fórnar-
lamba sinna auk ýmissa annarra
muna.
Þegar lögreglan í New York stöðv-
aði garðyrkjumanninn Joel Rifkin
fyrir umferðarlagabrot á mánudag-
inn fann hún lík af vændiskonu í bíl
hans. Rifkin, sem var stöðvaður fyrir
að vera ekki með númersplötur, ját-
aði þá á sig morð sextán vændis-
kvenna til viðbótar. Lögreglan hefur
nú tengt átta morð við Rifkin.
Við leit á heimili Rifkins, sem býr
með móður sinni og systur, fann lög-
reglan keðjusög og hjólbörur. Lög-
reglan fann einnig skilríki eins og
ökuskírteini, krítarkort og bóka-
safnskort tíu kvenna. Lögreglan gat
þó ekki tjáö sig um hvort þau til-
heyrðu þeim konum sem Rifkin hef-
ur verið tengdur við morðin á. Skil-
ríkin sem fundist hafa verða mikil-
væg gögn við rannsókn málsins. Lög-
regla frá nágrannafylkjum tekur þátt
í rannsókninni og leit fer nú fram
þar sem Rifkin segist hafa komið lík-
um vændiskvennanna fyrir.
Lögreglan segir að ef Rifkin segir
satt frá sé hann einn af verstu fjölda-
morðingjunum sem komist hefur
UppumíNewYork. Reuter
ÞRIKEPPNI STODVAR 2 OG TITAN
Í SIGLINGUM, HJÓLREIÐUM OG GOLFI
2. OG 3. JÚLÍ 1993 í HAPNARFIRDI
16.00
19.30
21.30
8.00
9.00
10.00
13.00
13.30
14.00
15.00
18.00
19.30
2IJ0
FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ
Sigling hefst frá Rauðarárvík utan Reykjavíkurhafnar.
Koma fyrstu seglskútunnar til Hafnarfjarðar (áætlaður tími).
Kokkar frá A. Hansen grilla gómsætar skútusteikur á vægu verði á smábátabryggju,
þar sem líta má á skúturnar.
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ
Golf hluti Þríkeppninnar hefst hjá Golfklúbbi Keilis á Hvaleyrarholti. Á 16. braut geta keppendur unnið
Combi-Camp Family Modena tjaldvagn með aukabúnaði að verðmæti kr. 500 þúsund með holu í höggi.
Almenningi boðið að reyna við holu í höggi á 16. braut til kl. 11.00 og er Laser 4,7 seglbátur að
verðmæti kr. 360 þúsund í verðlaun. Lengd brautar er 129 metrar og fær bver eina tilraun.
Meðlimir Fallhlífaklúbbs Reykjavíkur reyna að koma golfkúlu í holu með frjálsri aðferð úr 25 feta hæð.
Fjallahjólreiða hluti Þríkeppninnar á Norðurbakka hefst, þar sem keppendur hjóla 20 km. vegalengd.
A Norðurbakka sýna fjallahjólamenn listir sínar á hjólum.
Hjólreiðakeppni Fálkans fyrir börn og unglinga. Keppt í 2 flokkum, 9-12 ára (10 km.)
og 13-15 ára (15 km.). Tímalengd fer eftir þátttöku.
Siglingar í Þríkeppni hefjast að nýju, sigldur verður ca. 3ja tíma þríhyrningur fyrir utan Hafnarfjörð.
Dagskrá í höfninni meðan stóru skúturnar keppa;
* Laser sýningarsigling.
* Samæfing Björgunarsveitarinnar Fiskakletts og þyrlu Landhelgisgæslunnar við björgun á sjó.
* Bátasmiðja Guðmundar sýnir veiðar og siglingar á hraðfiskibát.
Reynt verður við íslandsmet í fjöldadrætti á sjóskíðum.
* Vatnasport-sjóskíðasýning og ótrúlegir Shetland hraðbátar.
Áætlaður komutími fyrstu seglskútu inn í Hafnarfjarðarhöfn og verða þá dregnir út hinir heppnu
sem fá að fara í skemmtisiglingu með skútu frá Hafnarfirði til Reykjavíkur á sunnudag kl. 13.00.
Verðlaunaafhending á Norðurbakka.
Sigurvegaraveisla á A. Hansen, kr. 2.500 pr. mann. Borðapantanir í síma 651130.
PALKINN
ÞEKKING, REYNSLA OG ÞJDNUSTA
UTILIF" 1
HEKLA
SERSTAKAR ÞAKKIR FÁ
HAFNARFJARDARBJER,
HAFNARFJARDARHÖFN
OG SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR hafnarfjörður
Þann 3. júlí verða bílar frá HEKLU og tjaldvagnar frá TÍTAN til sýnis á Þórsplani.