Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1993, Síða 30
42
FIMMTUDAGUR i. JÚLÍ1993
Veiðivon
Fjöldinn var ótrúlegur við Elliðaárnar þegar Árni Steinsson veiddi 65. laxinum á Þingeying á Neðri-Breiðunni.
Á innfelldu myndinni er laxinn kominn á land og áhorfendur eru mættir á staðinn.
Elliðaámar:
Veiðin lifnaði verulega
- smálaxinn að mæta í Kjósina
Kristin Vignisdóttir með tvo laxa úr Laxá í Kjós fyrir fáum dögum.
DV-myndir G.Bender
„Þetta er meiriháttar barátta við
laxinn og hann tekur skemmtilega
í, laxinn er vænn,“ sagði Stefán
Guðjohnsen en hann var einn af
þeim fjölmörgu sem mættu á stað-
inn þegar 65. laxinn veiddist í Ell-
iðaánum í fyrradag.
Það var Árni Steinsson sem
veiddi fiskinn á Neðri-Breiðunni
og hann var 8 punda og tók Þingey-
ing. Árni var í fimmtán mínútur
að landa laxinum og baráttan var
fjörleg. Ekki færri en 100 manns
fylgdust með viðureigninni við
fiskinn.
Það veiddust 17 laxar í fyrradag
og 10 þeirrakomu fyrir mat. Elliða-
árnar hafa gafið yfir 80 laxa.
Það er rétt, til að forðast allan
misskiling, að geta þess að veiði-
vörðurinn í Elliöaánum sagði fólki
oft á veiðidegi fjölskyldunnar að
hætta veiðum í Höfuðhylnum. Það
kom bara alltaf aftur og sagöi að
fyrst það væri veiðidagur fjölskyld-
unnar mætti það veiða í ánni.
Hofsá hefur
gefið 20 laxa
„Hofsá í Vopnafirði hefur gefið
20 laxa og sá stærsti er 15 punda
en það er sama tala í Selánni, enn-
þá 12 pund,“ sagði Eiríkur Sveins-
son í veiðihúsinu við Selá á þriðju-
dagskvöld en áin var þá htuð og
ekki hægt að renna fyrir lax.
„Það er mikið vatn í Hofsá en
veiðimenn reyna þar, í Selá hafa
veiðst tveir 15 punda laxar,“ sagði
Eiríkur ennfremur.
Miðfjarðará
hefur gefið 55 laxa
„Við vorum að koma úr Miðfjarð-
ará og veiddum fjóra laxa, 17, 15,
10 og 8 punda," sagði Egill Guðjo-
hnsen en hann var að koma úr
Miðfjarðará með Gylfa Gauti Pét-
urssyni.
„Hollið veiddi 5 laxa í heildina
og áin hefur gefið 55 laxa og hann
er 17 pund sá stærsti. Þaðvoru lax-
ar í vesturánni í Túnhylnum,
slangur í Miðfjarðará í Teighúsa-
hyl og Brekkulækjarstrengnum og
laxar eru í austuránni. Við fengum
Qóra laxa á maðk og einn á spún.
Eg var i Stóru-Laxá í Hreppum fyr-
ir fáum dögum á svæði þrjú og þar
var enginn lax kominn á land.
Svæði eitt og tvö hafði gefið 2 laxa,
15 og 12 punda," sagði Egill enn-
fremur.
300 laxa múrinn
rofinn í Norðurá
„Það reyttist upp úr Norðuránni
þessa daga og núna eru komnir
yfir 300 laxar á land, hann er 16
pund sá stærsti," sagöi Halldór
Nikulásson, veiðivöi ður í Norðurá,
á þriðjudagskvöld. Aðalsvæðið hef-
ur gefið 255 og Munaðarnesssvæðið
hefur gefið 50 laxa.
„Hollið, sem hættir á hádegi á
morgun, hefur fengið 40 laxa og áin
hefur dottið niður í dag í vatni. En
hann er rigningarlegur í Norðurár-
dalnum þessa stundina," sagði
Halldór ennfremur.
Síðustu tveir
dagar hafa gefið 36 laxa
„Veiðin hefur gengið vel í Laxá í
Kjós síðustu tvo daga og það hafa
veiðst 36 laxar, núna eru komnir
115 laxar á land,“ sagði Rúnar Ósk-
arsson, leiðsögumaður við Laxá í'
Kjós, í fyrradag.
„Laxamir hafa verið að koma inn
síðustu sólarhringa og á neðstu
svæðunum eru laxar, þetta er mest
5-6 punda laxar sem veiðast,“ sagði
Rúnar í lokin.
Húseyjarkvísl
hefur gefið 15-20 laxa
Húseyjarkvísl hefur gefið 15-20
laxa en áin hefur verið illveiðanleg
síðustu daga. Áður en vatnið jókst
í ánni höfðu veiðst 3-4 laxar á dag.
-G.Bender
TUkyimingar
Þórsmerkurferð SUF
Hin árlega Þórsmerkurferð Sambands
ungra framsóknarmanna verður farin
helgina 2.4. júli nk. og eru allir velkomn-
ir. Lagt verður af stað frá BSÍ kl. 20 fóstu-
daginn 2. júlí. SUF mun standa fyrir
ýmiss konar afþreyingu þegar í Mörkina
er komið, s.s. göngu- og skoðunarferðum
í fylgd leiðsögumanns, hráskinnsleik,
náttúruskoðun og frisbí-móti auk þjóð-
lagasöngs við gítarundirleik. Allar nán-
ari upplýsingar um ferðina fást á skrif-
stofu SUF í síma 91-624480.
Kvenfélagið Freyja
Kópavogi
Félagsvist að Digranesvegi 12 í kvöld kl.
20.30. Molakaffi og spilaverðlaun.
Félagsmiðstöðin Gjábakki
Kópavogi
Farið verður í stutt ferðalag frá Gjábakka
mánudaginn 5. júlí kl. 13. Takið með ykk-
ur brauðsneið. Verð 300400 krónur.
Miðnæturhlaup
A.Hansen
verður í kvöld, fimmtudagskvöld, og
hefst kl. 23. Verðlaun og frí þátttaka.
Meðal verðlauna er borð og bíll fyrhr tvo,
verðlaunapeningar fyrir þá tíu fyrstu.
Hlaupið verður frá veitingahúsinu A.
Hansen út Vesturgötu-Flókagötu-Hjalla-
braut, niður Reykjavíkurveg og endað
við veitingahúsið A. Hansen. Vegalengd
3,4 km. Mæting kl. 22.30 við veitingahús-
ið. Verðlaunaafhending kl. 23.40.
Þríkeppni Stöðvar 2
og Títan
í siglingum, hjólreiðum og golfi verður
haldin 2. og 3. júli í Hafnarfirði. Föstudag-
inn 2. júli hefst sigling frá Rauðárvik utan
Reykjavíkurhafnar kl. 16. Á laugardag
hefst dagskráin kl. 08 með golfhluta þrí-
keppninnar hjá Golfklúbbi Keilis á Hval-
eyrarholti og verður samfelld dagskrá
allan daginn.
Fjölskyldu- og húsdýra-
garðurinn í Laugardal
er opinn afla daga vikunnar frá kl. 10-21.
Féiag fráskilinna
fer í útivistarferð 3.-4. júh. Mæting á
bensínstöð Esso við Ártúnshöfða. Fund-
ur í Risinu, Hverfisgötu 105, 2. júli kl.
20.30.
Neistaflug ’93
Ákveðið hefur verið að halda fjölskyldu-
hátíð í Neskaupstað um verslunar-
mannahelgina. Það er ferðamálafélag
Neskaupstaðar og nágrennis sem stendur
fyrir þessari hátið, auk flestra hags-
munahópa (aðila) í bænum, og er stefnt
að því að gera þessa hátíð að árlegum
viðburði. Engin aðgangseyrir verður að
hátíðinni en stefnt er að því að halda
uppi stanslausri dagskrá frá fóstudegi til
mánudags. Tjaldstæði bæjarins verður
opið gestum hátíðarinnar án endurgjalds.
Reiki - heilun
Opið hús öll fimmtudagskvöld kl. 20 í
Bolholti 4, 4. hæð. Allir velkomnir, bæði
þeir sem hafa lært reiki og hinir sem vilja
fá heilun og kynnast reiki.
Safnadarstarf Hjónaband
Áskirkja: Opið hús fyrir alla aldurshópa
í dag kl. 10-12 og 13-16.
Grensóskirkja: „Ný dögun“: Samtök um
sorg og sorgarviðbrögð. Opiö hús í Grens-
áskirhju kl. 20.30.
Laugarneskirkja: Kyrrðarstund kl.
12.00. Orgelleikur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu að stundinni lokinni.
Tónleikar
Tónleikar í Kristskirkju
Þriðjudagskvöldið 6. júh verða haldnir
tónleikar i Kristskirkju og hefjast þeir
kl. 20.30. Á þessum tónleikum mun
kammerhljómsveit ungra hljóðfæraleik-
ara frá borginni Cervera í Katalónfu leika
tónverk eftir Rachmaninoff, Grieg og
katalónska tónskáldið Toldra. Tónleikar
katalónsku ungmennanna verða endur-
teknir 8. júlí kl. 20.30 í Borgameskirkju.
Aðgangur er ókeypis á báða tónleikana.
Þann 29. mai voru gefin saman í hjóna-
band í Seljakirkju af sr. Valgeiri Ástráðs-
syni Berglind Pálsdóttir og Luc
Leroy. Heimili þeirra er í Frakklandi.
Laugavegsleikur á löngum
laugardegi
Mikill fjöldi fólks lagði leið sína á Lauga-
veginn á löngum laugardegi þann 5. júni.
Það rikti sanköiluð kamivalstemmning á
Laugaveginum þennan dag. Laugavegs-
leikurinn var á sinum stað. Laugavegs-
bangsinn var aö þessu sinni staddur í
glugga sportvömverslunarinnar Spörtu,
Laugavegi 49. Sparta gaf vinninga í leikn-
um, fimm vöruúttektir. Þátttaka var
mjög góð og bámst rúmlega 3000 svör.
Reykjavík: Sri Chinmoy
friðarhöfuðborg
Laugardaginn 26. júní sl. var Reykjavík
tilnefnd friðarhöfuöborg og þar með er
hún komin í hóp með Ottawa í Kanada
og Canberra í Ástraliu, tveimur af virt-
ustu Sri Chinmoy friðarstöðum af rúm-
lega 500 slíkum í heiminum. Friðarstað-
irnir em helgaðir alheimsfriði, vináttu
og samlyndi milli maima. Tileinkun
Reykjavikur sem friðarhöfuöborg var í
tengslum við Friðarhlaupið ’93 en auk
Reykjavikur vora Mosfellsbær, Hafnar-
fjörður, Garðabær og Kópavogur út-
nefndir friðarbæir. Á hverjum stað tók
fulltrúi viðkomandi bæjarfélags við
skildi, úr hendi framkvæmdastjóra
hlaupsins, með áletran þess efnis að stað-
imir væra tileinkaðir friði.
PeterGullin endar
landsreisu á Sóloni íslandus
Um síðustu helgi lék á Djasshátíðinni á
Egilsstöðum sænski saxófónleikarinn
Peter Gullin og tríó hans. Á þessari vel
heppnuð hátíð vora þeir aðaigestir og
léku við mikla hrifningu gesta. Gullin og
félagar hans, Danimir Morten Kargárd,
gítarleikari, og Ole Rasmussen, bassa-
leikari, óku síðan suðurleiðina í átt til
Reykjavlkur, léku á Kirkjubæjarklaustri
á mánudagskvöld og Þorlákshöfn í fyrra-
kvöld og þótt ekki sé mikill fjöldi á þess-
um stöðum kom fjöldi fólks að hlýða á
þá félaga. í gærkvöldi lék Gullin síðan í
Vestmannaeyjum og í kvöld endar hann
íslandsfór sína með því að leika á Sóloni
íslandus og hefjast tónleikar hans klukk-
an 10. Tónhst tríósins er mjög lagrænn
djass og á efnisskránni má finna lög eins
og Dalakofann og gömul bítlalög, auk
klassískra djassverka og frumsaminna
verka.