Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1993, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1993, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993 5 DV Odd Nakken, forstöðumaður norsku Hafrannsóknastofnunarinnar: Fréttir Smugan er dæmigert uppeldissvæði þorsks segir þorskstofnana við Noreg og ísland hafa lítinn samgang „Eg held að enginn óttíst að þorsk- inum í Barentshaíi stafi bein hætta af veiðum íslensku skipanna í Smug- unni,“ sagði Odd Nakken, forstöðu- maður norsku Hafrannsóknastofn- unarinnar, aðspurður, í samtali við blaðamann DV. Nakken segir allmik- ið af þorski á svæðinu. „Hömlulaus veiði, án samninga eða samkomulags, er þó ástand sem ís- lendingar sjálfir hafa fordæmt. Ósfjóm og smáfiskadráp í miklum mæh stofnar árangri friðunar fiski- stofna í hættu. Raunar vom íslend- ingar einnig í fararbroddi þeirra sem vildu að smáfiskadrápi yrði hætt.“ - Sýnist þér íslendingar vera að breyta fiskveiðistefnu sinni? „Nei, ég held að ekki sé um stefnu- breytingu að ræða. Ástæðan er ein- faldlega skortur á þorski í íslenskri lögsögu. Þrátt fyrir að íslendingar hafi rekið af höndum sér stóra er- lenda fiskveiðiflota á 8. áratugnum hefur veiði á íslandsmiðum verið of mikil.“ „Smugan er hluti stærra svæðis. Það er dæmigert uppeldissvæði fisks. Stærstan hlutan ársins er smáfiskur þar langmest áberandi." Nakken sagði enn fremur að reglulega leitaði sjór af kaldari hafsvæðum í Smug- una. Þá hyrfi þorskurinn þaðan. Þó hefði ástandið verið óveixju gott síð- ustu ár. Nakken segir mikla og góða nýhð- un hafa átt sér stað í Barentshafs- þorski síðustu þrjú til fjögur árin. „Norðmenn og Rússar náðu sam- komulagi um að draga verulega úr veiðum í Barentshafi vegna ofveiði. Sókn í þorskstofninn var því minnk- uð stórkostiega frá 1989. Það er því mikið af smáfiski á svæðinu þar sem íslenskir togarar stunda veiðar sín- Odd Nakken, forstöðumaður norsku Hafrannsóknastofnunarinnar, segir óstjórn i veiðum og smáfiskadráp geta stofnað árangri friðunar Bar- entshafs-þorsks í hættu. - En finnst þér rétt að Norðmenn og Rússar geti samið sín á milh um nýtingu alþjóðlegs hafsvæðis án þess að aðrir komi þar við sögu? „Um það vil ég ekkert segja heldur eftirlæt það sérfræðingum í alþjóða- rétti. Það er hins vegar hafið yfir ýafa að fiskurinn á svæðinu er af Sömu stofnum og fiskur annars stað- ár 1 Barentshafi. Þorskurinn á svæð- inu er úr norska heimskautsstofnin- um.“ - Aðrir hafa þó fullyrt að þvert á móti sé þar á ferðinni sami stofn og kenndur er við ísland og Grænland. „Norðmenn hafa rannsakað þetta frá því snemma á þessari öld. Öhum rannsóknunum okkar virðist bera saman um að lítih samgangur sé milh stofna við ísland og Noreg en hins vegar sé hann mikih á milli Grænlandsþorsks og hins íslenska. Merkingar á fiski og rannsóknir á stofnunum eru nú árlegar og mjög viðtækar.“ -DBE Nuer tvöfaldur l.vinningur Spilaðu með fyrir kl. j \ 16 á miðvikudag Vei'ðnr haiin 70.000.000 kr.?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.