Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1993, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
Stuttar fréttir
Utlönd
~r
SÞinntil Mostar
Hersveitir Bosníu-Króata sögðu
í morgun að þær ætluðu að leyfa
bílalest Sameinuðu þjóðanna
með hjálpargögn að fara til mús-
Iímaborgarinnar Mostar.
FHdaráætlunrædd
Þingið í Bosníu kemur saman á
föstudag til að ræða hvort sam-
þykkja beri nýjustu friðaráætl-
unina fyrir lýðveldiö.
Herstjóri frá
Ibrahim Ba-
bangida, her-
foringi og æðsti
drottnari í Ní-
geríu, áformar
aö fara frá
völdum á miö
vikudag. Búist er þó við aö lýð-
ræðisöflin haldi áfram baráttu
sinni með borgaralegri óhlýðni.
Gisl sleppt í Managua
Vinstrisinnaðir vígamenn, sem
halda varaforseta Nicaragua og
tugum hægrisinnuðum stjórn-
málamönnum í gíslingu, létu
þriðja fangann lausan.
Engarsannanir
Skjöl um
morðið á John
F. Kennedey
geyma engar
haidbærar
sannanir um
skuggalega
hegðun leyniþjónustunnar CLA.
Engin undanskot
Alexander Rutskoj, varaforseti
Rússlands, neitar að hann hafi
komiö miHjónum dollara til út-
landa. Reuter
Aðeins fitnm íslenskir togarar eftir við veiðar í Smugunni í morgun:
Flotinn svarar ekki
köllum gæslunnar
- sjávarútvegsráðherrar Noregs og íslands ræddu allt nema Smuguna 1 gær
Guirnar Blöndal, DV, Ósló:
Norska standgæslan ákvað í morg-
un að senda varðskip til móts við
íslenska togaraflotann þar sem hann
stefndi í vesturátt út úr Smugunni í
Barentshafi.
í fréttum norska útvarpsins í morg-
un sagði aö fullkomin óvissa ríkti um
hvað íslensku togaramennirnir
hygðust fyrir því að þeir svöruðu
ekki köllum strandgæslunnar. Flug-
vél hefur sveimað yfir togurunum í
nótt og morgun en ekkert svar fengið
þrátt fyrir ítrekuð köll.
Óttast um verndar-
svæðið við Bjarnarey
Norðmenn óttast að togurunum
verði haldið til veiða á verndarsvæð-
inu við Bjamarey en þar hafa Norð-
menn umdeilda lögsögu. Þar hefur
verið skotið á erlenda togara við
veiðar.
Þegar síðast fréttist voru aðeins
flmm íslenskir togarar eftir við veið-
ar í Smugunni. Strandgæslan sagði
í morgun að 21 íslenskur togari
stefndi til vesturs og væru þeir sýni-
lega hættir veiöum. Eftir eru í Smug-
unni fjórir færeyskir togarar skráðir
1r
Smugan Barentshaf
Bjarnarey
21 íslenskur togari
stefndi í morgun '
í átt að Bjarnarey.
5 eru eftir í Smugunni.i
undir hentifána og nokkrir franskir Sjávarútvegsráðherrarnir Jan
togarar auk íslendinganna. Henry T. Olsen og Þorsteinn Pálsson
áttu með sér fund í Halstad, skammt
frá Gautaborg í Svíþjóð, í gær. Þeir
urðu að sögn Aftenposten í morgun
sammála um að ræða allt annað en
veiðarnar í Smugunni. Þær bíða
fundarins í Stokkhólmi í dag.
Olsen hefur kynnt sjávarútvegs-
ráðherra Rússa málið en þeir eiga
hagsmuna að gæta í Smugunni eins
og Norðmenn. Norðmenn og Rússar
hafa áður leitað samkomulags um
nýtingu Smugunnar.
Þorsteinn með umboð
til samninga
Norðmenn eru bjartsýnir á að sam-
komulag náist á Stokkhólmsfundin-
um og að deilan um Smuguna verði
úr sögunni eftir hann. Haft er eftir
Þorstein Pálssyni að fundurinn geti
staðið fram á nótt. Hann hefur að
sögn Aftenposten umboð til samn-
inga.
Afli íslensku togaranna er nú um
1500 tonn. Þar af er talið að um þriðj-
ungur eða 500 tonn séu undirmáls-
fiskur. Hér í Noregi halda menn að
íslendingarnir hafi ákveðið að fara
úr Smugunni eftir að kvótar fyrir
næsta fiskveiðiár á íslandsmiðum
voru gefnir út í gær.
Við höldu m
Fjórir glœsilegir
Miðvikudaginn 1. sept. verður hringt
í4 skuldlausa áskrifendur DV.
Fyrir hvern þeirra leggjum við
3 laufléttar spurningar úr landafræði.
Sá sem svarar öllum spurningum rétt
fær í verðlaun eina af þeim fjórum ferðum sem
er ípottinum í ágiíst og lýst er hér til hliðar.
Verðlaunin verða afhent daginn eftir, 2. sept.,
og úrslitin hirt í Ferðablaði DV
þriðjudaginn 7. september.
Allir skuldlausir áskrifendur DV,
nýir og núverandi, eru sjálfkrafa þátttakendur
íþessum skemmtilega leik.
Stjörnuferð Flugleiða fyrir tvo.
Flug og gisting í ellefu daga.
Safariferð um hásléttur Kenía með myndavél að
vopni er lífsreynsla sem enginn gleymir.
Náttúrufegurðin er ólýsanleg og þegar fylgst er
í návígi með konungi dýranna á veiðum er
spennan mögnuð. Eftir safariævintýri á
hásléttunni er haldið til Mombasa við strönd-
ina þar sem bíða þín glæsihótel og hvítar
strendur svo langt sem augað eygir.
Gist á Hotel Hilton. 4ra daga safariferð með
Prestige Safaris Ltd. Flogið með Kenya
Airways og Flugleiðum.
FLUGLEIDIR
Traustur tslenskur ferðafélagi
z
m
m
Æ
Stjömuferð Flugl. fyrir tvo.
Flug og gisting í 2 vikur.
Sólböð og sæla á „Eyjum
hins eilífa vors“. Allt sem
sólarsinnar geta hugsað sér
best, skemmtilegast og
þægilegast. Paradís fyrir
alla í fjölskyldunni.
Gist á Stil Marieta, fyrsta
flokks íbúðahóteli á Ensku
ströndinni.