Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1993, Blaðsíða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
HM’95áíslandi:
Allt á góðri leið
- jákvæð viðbrögð fulltrúa IHF
FH-ingar höföu ástæðu til að fagna i gærkvöldi þegar þeir sigruðu Keflvíkinga. H:
liðanna í Kaplakrika.
Enska knattspyman í gærl
United á to|
- meistararnir sigruðu Aston Villa 1-
íþróttir
Eyjólfurjafnaði
fyrirStuttgart
gegn Duisburg
Eyjólfur Sverrisson skoraði
annað af tveimur mörkum
Stuttgart þegar liðið gerði 2-2
jafntefli við Duisburg í þýsku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu um
helgina. Duisburg komst í 2-0 eft-
ir 15 mínútna leik en Strunz
minnkaði muninn á 25. mínútu.
Eyjólfur skoraði síðan jöfnunar-
markið á 53. mínútu. Ónnur úr-
slit í Þýskalandi urðu þannig:
Gladbach-Nurnberg 2-0
Dortmund-Freiburg 3-2
Frankfurt-Kaiserslautern 1-0
HSV-Schalke 4-1
Wattenscheid-Leverkusen 1-2
Köln-Karlsruhe 2-1
Bayem Múnchen-Dresden 5-0.
Werder Bremen, Frankfurt og
Bayer Leverkusen eru efst og jöfn
með 5 stig, Kaiserslautern hefur
4 stig en Stuttgart rekur lestina í
deildinni með aðeins 1 stig eftir
þrjá leiki. -GH
Laudrup bræður
trekkjaað
Danir og Litháar leika í undan-
keppni HM í knattspyrnu á
Idrættsparken í Kaupamanna-
höfn á morgun. Geysilegur áhugi
er á leik þessum og er búist að
uppselt verði á leikinn. Það eru
einkum tvær ástæður sem liggja
að baki þessum mikla áhuga.
Önnur er sú að geysihörö barátta
er í þessum riöli um tvö sæti í
lokakeppni HM og þar eru Danir
í toppbaráttu. Hin er sú að nú
klæðist snillingurinn Michael
Laudmp danska landsliðsbún-
ingnum að nýju eftir nokkurra
ára fjarveru en hann og Richard
Möller Nielsen landsliðsþjálfari
hafa nú loks náð sáttum. Þeir
verða því saman í framlínunni
bræðurnir Michael og Brian
Laudrup og Danir iða í skinninu
að fá að sjá þá saman á knatt-
spymuvellinum. -GH
Bragi Bergmann
dæmirleikinn
íslendingar munu eiga sína
fulltrúa á Idrættsparken því
dómaratríóið kemur frá íslandi.
Bragi Bergmann fær þaö
skemmtilega hlutverk að dæma
leikinn og línuverðir þeir Sæ-
mundur Víglundsson og Gísli
Björgvinsson. Aðstoðarmaður
þeirra verður Guðmundur S.
Maríasson. Það er óhætt að full-
yrða að þessi leikur er með þeim
allra stærstu sem íslenskum
dómurum hefur verið úthlutað
en reiknað er með að 45 þús.
áhorfendurverðiáleiknum. -GH
Annavarð
íslandsmeistari
á nýju íslandsmeti
í umfjölluninni um Reykjavík-
ur-Maraþon í DV í gær láðist að
geta um árangur Önnu Cosser.
Anna varð Islandsmeistari í
kvennaflokki í heilu maraþoni.
Hún hljóp vegalengdina á 3:02.07
klukkustundum. Þessi tími henn-
ar er nýtt glæsilegt íslandsmet
og hún bætti sig um hvorki meira
né minna en tæpar 20 mín. -GH
Stöð 2 með
ítalska boltann
ívetur
AC MOan sigraði Torino, 1-0, í
hinum árlega leik meistaranna
og bikarmeistaranna í ítölsku
knattspyrnunni. Um næstu helgi
hefst síðan deildarkeppnin. Að
sögn Heimis Karlssonar hjá
íþróttadeild Stöðvar 2 er reiknað
með að hefja beinar útsendingar
fráítaliul7.október. -GH
í gær funduðu stjómarmenn
Handknattleikssambands íslands og
framkvæmdastjórn HM ’95 áfram
með fulltrúum Alþjóða handknatt-
leikssambandsins um heimsmeist-
arakeppnina í handbolta sem fram á
að fara á íslandi 1995. Fulltrúar IHF
hafa verið mjög jákvæðir í garð
keppninnar og á blaðamannafundi í
gær var tilkynnt að stefnt væri að
þvi að skrifa endanlega undir samn-
inga um keppnina í nóvember.
Helsta ágreiningsefnið milli IHF og
HSÍ hefur verið tímaáætlunin. HSÍ
vildi halda keppnina fyrr á árinu.
Alþjóðasambandið kaus hins vegar
helst að keppnin yrði seinni hlutann
í maí vegna þess að þá sé keppnis-
tímabilum í hinum ýmsu löndum
lokið og Evrópukeppnir félagsliða
einnig. Stefnt hefur verið á að keppn-
ín hefjist 6. maí og að fyrsti leikur
yrði 7. maí.
Ákveðiö hefur verið að draga í riðla
í Perlunni á Jónsmessunótt þann 23.
júní á næsta ári. HSÍ hefur gert mjög
hagstæðan sjónvarpssamning við
svissnesku sjónvarpsstöðina CWL og
eins og greint var frá í DV í gær mun
sambandið fá 60% af tekjum vegna
samningsins sem er mjög hagstætt.
Þá hefur verið ákveðið að keppnis-
fyrirkomulagið verði með nokkuð
öðru sniði en áður á HM. 16 lið munu
keppa með útsláttarfyrirkomulagi og
síðan munu tapliðin úr þeim leikjum
leik um sæti 9.-16 en þar er barist
um sæti á ólympíuleikum.
Kostnaðaráætlun liggur ekki fyrir
á þessu stigi en forráöamenn HSÍ
sögðust í gær vera bjartsýnir á þá
hlið mála. -RR
Meistarar Manchester United kom-
ust á toppinn í ensku úrvalsdeildinni
með sigri á Aston Villa, 1-2 á Villa
Park í gærkvöldi. Leew Sharpe var
hetja United í gærkvöldi. Hann skoraði
bæði mörk „Rauðu djöflanna". Sharpe
var í liði United vegna þess að Bryan
Robson var í leikbanni og það virtist
hafa góð áhrif á lið United.
Fyrsta mark Sharpe kom á 17. mín-
útu en Dalian Atkinson náði að jafna
metin fyrir Villa rétt fyrir leikhlé. í
síðari hálfleik náði Sharpe að tryggja
United sigurinn með góðu marki eftir
frábæra sendingu Paul Ince. Villa sótti
meira undir lokin en United hélt
Tveinaf fulltrúum Alþjóða handknattleikssambandsins, sem funduðu með
forráðamönnum HSI og framkvæmdanefnd HM '95, sjást hér svara spurn-
ingum fréttamanna á blaðamannafundi í gær. Til vinstri er Karl Guntzel,
skrifstofustjóri IHF, og til hægri er Reymond Hahn, aðalframkvæmdastjóri
IHF. DV-mynd BG
Ólympískar lyftingar:
- segir Guðmundur Sigurðsson sem keppir á HM öldunga í lyftingum
Guðmundur Sigurðsson lyftinga-
maöur heldur í næsta mánuði til Atl-
anta í Bandaríkjunum á heimsmeist-
aramót öldunga í ólympískum lyft-
ingum. Guðmundur hefur tvívegis
orðíð heimsmeistari í -90 kg þyngdar-
flokki og átti, þrjú heimsmet, í snör-
un, jafnhöttun og samanlögðu.
„Ég ætla mér að sjálfsögðu ekkert
Guðmundur Sigurðsson lyftingamaður og Vaibjöm Jónsson, aðstoðarmaður hans, við lóðin. Guðmundur tekur þátt
í heimsmeistaramótinu í ólympiskum lyftingum i Atianta í næsta mánuði. DV-mynd JAK
annað en heimsmeistaratitilinn. Ég
er að lyfta 95% af mínu besta á ferlin-
um og er í tnjög góðu formi um þess-
ar mundir. Ég kæri mig ekki um neina
samúð vegna aldurs míns, ég er að lyfta
svipuðum þyngdum og þeir bestu á
Norðurlöndum og þá er ég ekki að tala
um neina öldunga,” segir Guðmundur,
sem er 47 ára gamall og keppir í 45-Í9
ára fiokki á mótmu.
Guðmundur sagöi að lyflaeftirlit
Alþjóða lyftingasamhandsins væri
mjög strangt, menn sem féllu færu í
ævilagt bann og nýverið hefði aUri
þyngdarflokkaskipan verið breytt,
þannig að öll heimsmet og viðmið eru
úr gildi fallin. „Það má segja að verið
sé að byrja upp á nýtt. Lyfjaeftirlitið
er gott og það hefur enginn fallið á
lyfjapróti síðan Búlgaramir voru
sendir heim af ólympíuleikunum í
Seoul 1988. Lyftingarnar hér á landi
hafa átt undir högg að sækja en við
erum að sækja á brattann. Þess má
geta að tveir piltar náöu mjög góðum
árangri á síðasta Norðurlandamótl
unglinga."
Keppnin í Atlanta fer fram í sömu
höU og keppt verður i á ólympiuleUí-
unum 1996. Guðmundur keppir þann
11. september, með honum til Atlanta
fara þeir Valbjörn Jónsson og Birgir
Þór Borgþórsson sem aðstoöarmenn.