Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1993, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
11
Merming
Hugsanaveðrun
- Daníel Þorkell Magnússon á Kjarvalsstöðum
Þegar Duchamp stillti upp hjóli af reiöhjóli fyrir réttum áttatíu árum
og kallaði „tilbúna" („readymade") Ust, óraöi sjálfsagt engan fyrir því aö
„tilbúningur“ ætti eftir aö vera einn rauðasti þráöurinn í Ust aldarinnar.
Dadaistar og súrreaUstar freistuðu þess aö nota hversdagslega hluti til
að afhjúpa þær ógöngur sem Ustin væri komin út í; að hún væri orðin
Myndlist
Ólafur Engilbertsson
pjöttuð og fjarlæg almenningi. PoppUstin og konseptið endurlífguðu þessa
ögrandi gagnrýnisrödd sem hinn hversdagslegi hlutur bjó yfir. Daníel
Þorkell Magnússon, sem nú hefur hengt upp verk sín í austursal Kjarvals-
staða, færir „tilbúninginn" skrefi lengra; inn í samhengi hins rétthyrnda
og lóðrétta myndflatar sem hefur verið svo lífseigur í gegnum tíðina.
Segja má að Hreinn Friðfmnsson hafi tekið skrefið á undan inn í ljóðræn-
ar lágmyndir sem innihéldu „tilbúninga" en hér eru forsendur breyttar;
einfaldleiki og aUt að því Utleysi í fyrirrúmi.
Grámuska og léttleiki
Tvennt vekur strax athygU þegar komið er inn í austursaUnn; grábrúnn
litaskaUnn og samhverf bygging myndanna. Verk númer eitt er gott
dæmi um þaö hvemig Daníel getur búið til einfóld og tær myndljóð úr
hversdagslegum atvikum eða jafnvel eigin gleymsku. Hér hefur Ustamað-
urinn gert myndröð af belgískri sykurvöfilu sem hann gleymdi í vasa
sínum og fyrir neðan er eins konar platónsk útgáfa vöfilunnar; frum-
formaflétta í anda Eschers og útfærð með einfaldri blýantsteikningu á
grátt karton. í þessu verki og einnig t.a.m. í verki númer fimm, „SamtaU
um skipasmíði", á sérstætt skopskyn höfundarins stóran þátt í grunnhug-
myndinni og sú staðreynd aö húmorinn skín ávaUt í gegn í verkum Daní-
els veldur því að léttleikinn er í fyrirrúmi á þessari sýningu þrátt fyrir
grámuskuhti og stöðluö form.
Einfaldleiki í stað fjölbreytni
Titlar verkanna skipta jafnframt töluverðu máU og Daníel gengur greini-
lega til móts við sköpunarferUð með opnum huga þess sem sér skáldskap
í hversdagsleikanum. Orð og mynd eru jafngild hugtök í Ust hans. Tvö
verk sem eru í sýningarskrá þótt þau hafi ekki ratað inn á sýninguna,
„StiUimynd fyrir rómantískt ljóðskáld" og „Stillimynd fyrir konkret ljóð“
eru góð dæmi um þessa skáldskapartaug sem er listamanninum greini-
lega uppspretta. í sýningarskrá íjallar Daníel um það hvernig hugsunin
sUpi hugtök og geri þau meðfærileg og getur þess að hann líti á verk sín
sem „hugsanaveðrun". Miðað við mörg fyrri verk listamannsins, jafnt
leikmyndir sem lágmyndir, þykir mér sem of margt hafi veðrast í burtu
hjá honum af þaulunnum en þó einföldum myndfletinum. Grátt karton
er nú áberandi í stað þess fjölbreytilega yfirborðs óviðtekinna efna sem
áður voru svo einkennandi fyrir verk Daníels. Það er að mínu viti óþarft
og síst til bóta að sníða verkunum einn gráan stakk. Þau hafa svo sterka
persónulega útgeislun að samhengið kemur af sjálfu sér. Hér er um aö
ræða sýningu frá hendi listamanns sem hefur allt til brunns að bera tU
að láta hversdaginn losna við grámann, þrátt fyrir dálæti hans sjálfs á
gráma. -ÓE.
Það kostar minna
en þig grunar að
hringja til útlanda
Kvikmyndir
Laugarásbíó: Herrafóstri: *l/2
Glímt við gæsluna
Þetta er ein af þessum myndum þar
sem stranga en góða „barnfóstran"
tekur óþekktarormana á beiniö og
öðlast um leið virðingu þeirra.
Þetta er klassísk saga og eina breyt-
ingin er að Hulk Hogan leikur
Mary Poppins og það eru komnir
nauðsynlegir glæpamenn tU skjal-
anna svo aö Hulk geti notið afls-
munar síns.
leikur fyrrverandi glímukappa
(góö hugmynd) sem vinnur nú fyr-
ir þriðja flokks lífvarðaleigu. Hann
er ráðinn til að gæta tveggja barna
iðnjöfurs en sá hefur fengið hótanir
frá glæpamanni (Johannsen) sem
girnist eina af uppfinningum hans.
Hulk þohr ekki krakka og ekki
batnar það þegar börnin reynast
lifandi eftirmyndir Kevins, Home
ýmsum hrekkjum.
Það er ekki mikið um fágun í
formúlukenndu handritinu og aug-
ljóst að myndinni er ætlað að höfða
til yngri áhorfenda. Hulk Hogan er
að færa sig upp á skaftið sem leik-
ari og veldur hlutverkinu án meiri
háttar mistaka. Hann er ekki jafn
takmarkaður leikari og maður gæti
haldið. Madeleine Zima, sem leikur
ar léttilega senunni.
Mr. Nanny (band-1993) 84 mln. Handrit:
Edward Rugoff, Michael Gottlieb. Leik-
stjórn: Gottlieb (Mannequin). Leikarar:
Terry „Hulk“ Hogan (Suburban Com-
mando), Sherman Hemley, Austin
Pendleton, Robert Gorman, Madeleine
Zima, Mother Love, David Johansen
(Scrooge, Let It Ride).
PÓSTUR OG SÍMI
*98 kr.: Verð á 1 mínútu
símtali (sjálfvirkt val) til Ítalíu
á dagtaxta m.vsk.
^ SMÁAUGLÝSINGAR
8 C632700
Fyrrverandi glímukappinn Hulk Alone, og gera honum lífið leitt með litlu sætu telpuna, stelur hins veg-
/ 1 / /
Laugarásbíó - Dauöasveitin
Aumingja samviskan
Dauðasveitin, sem Laugarásbíó
ber á borð reykvískra kvik-
myndaáhugamanna um þessar
mundir, byggist á sannsögulegum
atburðum sem gerðust í því synd-
umspillta lastabæli Los Angeles.
Og ef eitthvað er að marka mynd-
ina er hlutskipti síbrotamanna í
borginni vægast sagt ömurlegt að
minnsta kosti þeirra sem lenda í
klónum á áðurnefndri dauðasveit.
Kvikmyndir
Guðlaugur Bergmundsson
Hér er fjallaö um hina sígildu
togstreitu milh samviskunnar og
sannleikans annars vegar og hags-
muna og samheldni hópsins hins
vegar, eins og svo oft brennur við
í lögguhasarmyndum. Og eins og
aUtaf fara samviskan og réttlætið
með sigur af hólmi í þeirri orrustu
sem sagan greinir frá þótt óvíst sé
um úrslit stríðsins sjálfs.
Hér er það ungur og óstýrilátur
lögregluþjónn, Jeff nokkur Powers,
sem glímir við samviskuna. Sú
ghma er þó ekki mjög trúverðug
Sérsveitin búin að kála óþjóðalýð
í dimmu húsasundi.
þar sem þessi sami Jeff hefur hvað
eftir annað verið kallaður inn á
teppi fyrir ofbeldisverk í starfi
sínu. Það endar með því að hann
er fluttur í leynilega sérsveit innan
lögreglunnar, sérsveit sem hefur
það hlutverk að taka harðsvíruða
glæpamenn, sem linkulegir dóm-
stólar og fangelsisstjórar sleppa út
á göturnar við fyrsta taekifæri, end-
anlega úr umferð.
Dan Vaughn heitir stjórnandi
sveitarinnar, gamall félagi hins
unga Powers. Þar má segja að
skrattinn hitti fyrir ömmu sína því
Vaughn er enn ófyrirleitnari en
Powers, hikar ekki við að fylgjast
aðgerðalaus með glæpamönnunum
fremja hin verstu níðingsverk til
þess eins að geta staðið þá að verki
og stútað þeim.
En Powers hinn ungi á ekki bara
samviskuna að, heldur líka kær-
ustuna Kelly, unga og framagjarna
löggufréttakonu. Og þegar þær,
samviskan og blaðakonan, fara að
vinna saman er ekki að spyrja að
leikslokum.
Auðvelt er að ímynda sér aö höf-
undar myndarinnar hafi ætlað að
deila á ofbeldisverk lögreglunnar
(í lok myndarinnar er jú sagt frá
því að sérsveit þessi sé enn starf-
andi í L.A., hin eina sinnar tegund-
ir í Ameríku) en allt slíkt týnist í
skefjalausu og óþörfu ofheldi sem
höfundarnir velta sér í staðinn upp
úr. Og annað er eftir því. Manni
verður næstum því flökurt af við-
bjóðnum.
Mynd þessi fær því falleinkun,
hún fær núll með gati.
Dauðasveitin (Extreme Justice).
Leikstjóri: Mark L. Lester.
Kvikmyndataka: Mark Irwin.
Tónlist: David Mlchael Frank.
Handrit: Frank Sacks og Robert Boris.
Leikendur: Lou Diamond Philllps, Scott
Glenn, Chelsea Field, Yaphet Kotto.
Aldrei áður
hefur boðist sófasett á öðru
eins verði!
Tilboð á Amsterdam-sófasettum
með tauáklæði
Verð aðeins kr. 56.450 stgr.
Dæmi: Raðgreiðslur til 18 mánaða, engin
útborgun og ca 3.800 kr. á mán.
E1
Smiðjuvegi 6
Kópavogi
Sími 44544